Alþýðublaðið - 31.03.1993, Page 3
Miðvikudagur 31. mars 1993
Vátryggingafélag íslands - VÍS
3
Góður hagnaður þrátt
fyrir efnahagslægðina
Starfsemi Vátryggingafélags íslands -
VÍS - skilaði 73,1 milljón króna í hagnað
þrátt fyrir mikinn efnahagssamdrátt í
þjóðfélaginu. Auk þess skilaði dótturfé-
lag VÍS, Líftryggingafélag íslands hf.
15,5 milljóna hagnaði. Vanskil sem nú
gerast mun meira áberandi, lentu illilega
á félaginu, því afskrifa þurfti kröfur upp
á 105,4 milljónir, aðallega vegna gjald-
þrota og greiðsluerfiðleika fyrirtækja og
einstakiinga.
Iðgjöld ársins námu meira en 4,4 millj-
örðum hjá VÍS á síðasta ári, þar er um að
ræða 6% hækkun _frá fyrra ári. Tjón ársins
námu 3,6 milljörðum króna, sem er 320
milljónum króna lægri upphæð en árið
1991.
Athygli vekur að afkoma ýmissa trygg-
ingagreina varð betri árið 1992 en verið
hefur undanfarin ár. Þar á meðal eru öku-
tækjatryggingar, en frá þeim kemur um
helmingur allra iðgjalda íslenska vátrygg-
ingamarkaðarins. „Ánægjulegt er að slys-
um í umferðinni hefur fækkað frá fyrra ári
og vonandi að með sameiginlegu átaki í
þjóðfélaginu megi takast að halda áfram þá
braut“, segir í ársskýrslu VÍS.
Evrópska efnahagssvæðið er skammt
undan og telja forráðamenn VÍS að tals-
verðar breytingar séu framundan á starfs-
umhverfi íslenskra vátryggingafélaga þess
vegna. Framundan eru ný lög um bruna-
tryggingar fasteigna og breytingar verða á
högum allra þeirra vátryggingafélaga sem
starfað hafa samkvæmt sérstökum lögum
eða notið sérstöðu með stoð í lögum. Þá em
til umfjöllunar lög um vátryggingastarfsemi
sem móta munu veigamikla þætti í rekstrar-
Forstjórar VÍS, þeir Ingi R. Helgason og Axel Gíslason.
umhverfi vátryggingafélaga á Islandi á
komandi ámm. Þá hefur verið kynnt fmm-
varp til skaðabótalaga, sem tekur í veiga-
miklum atriðum mið af dönskum lögum.
Hvetja forrráðamenn VIS til þess að sem
fyrst verði af þessari lagasetningu, hennar
hafi verið þörf lengi, bæði fyrir vátrygg-
ingafélögin sem og hina tryggðu.
En VlS-menn em bjartsýnir á framtíðina:
„Breytt lagaumhverfi og hröð og vaxandi
samkeppni á opnari markaði en verið hefur,
skapar ný tækifæri, en gerir jafnframt vax-
andi kröfur til þátttakenda á innlendum vá-
tryggingamarkaði um vömþróun, verðlagn-
ingu og þjónustu. Vátryggingafélag íslands
er vel undir það búið að takast á við þessi
verkefni", segja þeir.
/
Skeljungur hf. - Arið 1992 var kvíðvœnlegt en
SKILAÐI 91
MILUÓN
Kristinn Björnsson, forstjóri Skelj-
ungs hf. viðurkennir að innan stjórnar
Skeljungs hafi verið talsverður kvíði
fyrir afkomu ársins 1992. Núna, ári
síðar, hafi komið í ljós að sá kvíði var
ekki með öllu ástæðulaus, enda þótt'
margt gleðilegt hafi gerst á árinu. Það
fari þó ekki framhjá nokkrum hugs-
andi manni að rekstrarerfiðleikar í út-
gerð valdi miklum áhyggjum.
Árið 1992 reyndist viðburðarikt og átti
Skeljungur hf. og hinn nýi forstjóri þess,
Kristinn Bjömsson, stóran þátt í því. Má
þar minnst á innflutning fyrirtækisins á
fleiri tegundum af blýlausu bensíni og að
Skeljungur reið á vaðið í þeirri sjálfsögðu
þjónustu að taka við greiðslukortum í
viðskiptum við bíleigendur.
,J>að er metnaður okkar hjá Skeljungi
hf. að bjóða upp á nýjungar í samskiptum
við viðskiptamenn okkar. Ekki bara nýj-
unganna vegna. Heldur munum við leit-
ast við að gæta þess að þær leiði til betri
þjónustu og nútímalegri viðskiptahátta,
án þess að það sem gamalt er og gott,
glatist“, segir Kristinn Bjömsson.
Staða Skeljungs er traust, sem og fjár-
hagur fyrirtækisins. Það kemur mæta vel
fram í ársreikningi fyrirtækisins. Eigið fé
félagsins í árslok var rúmlega 2,2 millj-
arðar króna og hækkaði milli ára um 136
milljónir. Þá hefur félagið styrkt mark-
aðshlutdeild sína á heildarmarkaði.
Heildarsalan hjá Skeljungi á árinu var
185 þúsund tonn af 628 þúsund tonna
sölu allra olíufélaganna þriggja. Mark-
aðshíutdeild Skeljungs batnaði úr 28,4%
Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs, -
algjört afnám opinberra afskipta af olíu-
verslun mun tryggja betri þjónustu og
lægra verð.
í 29,5%.
Kristinn Bjömsson segir að það beri að
harma að ekki náðist samstaða á Alþingi
á síðasta ári um að gefa olíuverslun al-
frjálsa. „Frelsi í þessum málum og afnám
opinberra afskipta, mun leiða til betri
þjónustu við viðskiptamenn og tryggir
jafnframt hagstæðasta verð á hverjum
tíma“, segir Kristinn Bjömsson, forstjóri.
I
Einn stærsti innisalur á landinu
Vantar allar gerðir bílá á staðinn.
Vanir menn, góð þjónusta.
Seljum einnig mótorhjól og sleða.
Við gerum betur.
Sími 686 222
Opið frá 10-22 alla virka daga.
Einnig laugardaga og sunnudaga.
BIIABORG
SKEIFUNNI 6, SÍMI 686222