Alþýðublaðið - 30.04.1993, Blaðsíða 22
22
Föstudagur 29. mars 1993
1. maí ávarp samtaka kvenna á vinnumarkaði
Hcrfna samfélagi
einkapets og
dekurvina
Konur á vinnumarkaði hafafátt til að kœtastyfir í dag.
Við konum á vinnumarkaði blasir
óöryggi; höfum við vinnu á morgun,
höfum við vinnu hinn daginn? Marg-
ar okkar eru atvinnulausar, jafnvel
búnar að missa atvinnuleysisbætur
vegna langvarandi atvinnuleysis.
Niðurskurður í samfélagslegri þjón-
ustu skapar atvinnumissi hja konum.
Launuðum störfum fækkar en þjónust-
unnar er þörf eftir sem áður. Sjúkling-
um, gamalmennum, bömum og öðrum
er aðhlynningu þurfa fækkar ekki að
sama skapi og þjónusta er skorin niður.
Þau sem peninga eiga kaupa einka-
vædda einkaþjónustu á sínu einkaheim-
ili, öðrum er vísað á konur í fjölskyld-
unni sem kauplaust skulu veita þá þjón-
ustu sem samfélagið sinnir ekki, hvem-
ig svo sem aðstæður þeirra eru.
Svokallaðar samningaviðræður að
undanfömu hafa ekki verið konum til
góðs. Ekkert raunhæft hefur verið gert
til að brjóta á bak aftur hræðsluáróður
og niðurrifsstefnu ríkisstjómarinnar.
Okkur er gert að trúa því að engir pen-
ingar séu til á sama tíma og einkaneysla
einstakra úrvalshópa vinanna blómstrar
sem aldrei fyrr. Engar kröfur um hækk-
un launa eru settar fram á hendur at-
vinnurekendum, jafnvel stærir varafor-
seti Alþýðusambandsins sig af því að
ASI hafi boðið atvinnurekendum uppá
óbreyttan kjarasamning til tveggja ára
án nokkurra trygginga. Eina ástæðan
hlýtur að vera að ríkisstjórninni skal
gefið aukið svigrúm til áframhaldandi
eyðilegginga.
Atvinnurekendum var færð niðurfell-
ing aðstöðugjalds á silfurfati, á sama
tíma var aukin skattpíning á launafólki,
sérstaklega á láglaunafólki, sjúklingum
og bamafjölskyldum. Niðurfelling að-
stöðugjalds átti að skila sér í lækkuðu
vöruverði og aukinni atvinnu, en hvergi
hefur sést vísir af þeim árangri nema ef
vera skyldi í vösum atvinnurekenda og
vina þeirra.
Ríkisstjómin hefur ekki mótað neina
stefnu til aukinnar atvinnu, heldur tekið
upp flausturskenndar hugmyndir ann-
arra án nokkurrar úrvinnslu. Ein af
þessum flausturskenndu hugmyndum
er að hagræða ræstingakonum út af
vinnustað en hagræða vinunum inn í
stjómun.
Samtök kvenna á vinnumarkaði
krefjast raunhæfra úrlausna.
Við krefjumst hækkunar lægstu
launa, þannig að við getum verið ma-
tvinnungar. Við krefjumst hækkunar
umsamins taxtakaups.
Burt með frjálshyggjupostula, sem
ræða um hæfilegt atvinnuleysi. Við
krefjumst þeirra gmndvallarmannrétt-
inda að allir hafi vinnu.
Sviptum burt þeirri blekkingu að öll-
um bömum séu búin ömgg uppeldis-
skilyrði. I borg Ráðhúss og Perlu em
úrræðin fyrir böm í hróplegu ósamræmi
við þarfir þeirra. Tæpur helmingur
bama innan sex ára á kost á hlutavist-
un! á leikskóla. Um 1000 böm ein-
stæðra foreldra eiga ekki kost á leik-
skólaplássi. I borg Kringlu og Viðeyjar-
stofu em innan við 300 skóladagheimii-
ispláss, en í hverjum árgangi em um
1200 böm.
Samtök kvenna á vinnumarkaði
hafna samfélagi einkapots og dekur-
vina.
Samtök kvenna á vinnumarkaði
hvetja til baráttu fyrir samfélagi mann-
réttinda og jafnréttis og hvetja konur til
að rísa upp gegn óréttlætinu.
Konur á vinnumarkaði hafa yfir
fáu að gleðjast, segir í ávarpi Sam-
taka kvenna á vinnumarkaði.
RÁÐÁUGLÝSINGAR
MÁLMIÐNAÐARMENN
Munið útihátíðarhöldin 1. maí.
Tökum þátt í göngunni og útifundinum á Lækjartorgi.
Aö loknum útifundinum á Lækjartorgi er boöiö upp á kaffi-
veitingar aö Suöurlandsbraut 30, 4. hæö.
Málmiðnaðarmenn
OPIÐ
Opið hús hjá Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur eftir úti-
fundinn á Lækjartorgi 1. maí í Húsi verslunarinnar á fyrstu
hæö.
Verzlunarmannaféiag Reykjavíkur.
?AX 6Z-9Z-44
Félag
járniðnaðarmanna
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
UMSÓKN UM ORLOFSHÚS
sumarið 1993
Umsóknarfrestur um orlofshús hjá Félagi járniönaöar-
manna rennur út 7. maí nk.
Upplýsingar á skrifstofu félagsins í síma 91-813011.
Stjórnin
'//WM
'W Útboð
lllugastaðavegur 1993
Vegagerö ríkisins óskar eftir tilboöum í lagningu 3,7 km
kafla á lllugastaöavegi á Norðurlandi eystra.
Helstu magntölur:
Fylling 81.000 m3 og buröarlag 10.000 m3.
Verki skal lokiö 15. október 1993.
Útboösgögn veröa afhent hjá Vegagerð ríkisins á Akureyri
og í Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og meö 3.
maí nk.
Skila skal tilboöum á sömu stööum fyrir kl. 14.00 þann 17.
maí 1993.
Vegamálastjóri
Starfsmenntastyrkir
félagsmálaráðuneytisins
Félagsmálaráöuneytiö auglýsir hér meö eftir umsóknum
um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu samanber
lög nr. 19/1992.
Styrkir eru veittir til stuönings viö skipulega starfsmenntun,
undirbúning, náms- og kennslugagnagerð, kennslu og
starfsþjálfun. Miðaö er viö að styrkir séu veittir vegna viö-
fangsefna á síðari hluta árs 1993. Lögð er áhersla á stuön-
ing viö ný starfsmenntunarnámskeið eöa vegna endurnýj-
unar á eldra námsefni sem hefur reynst vel.
Rétt til aö senda umsóknir eiga: Samtök atvinnurekenda og
launafólks, einstök atvinnufyrirtæki, einkaaöilar, eöa opin-
berir aöilar sem standa fyrir starfsmenntun í atvinnulífinu,
starfsmenntaráö einstakra atvinnugreina og samstarfs-
verkefni tveggja eöa fleiri framangreindra aöila. Umsóknir
frá skólum koma til álita þegar um er aö ræða samstarf viö
samtök sem áöur eru nefnd.
Umsóknir berist félagsmálaráöuneytinu, Hafnarhúsi viö
Tryggvagötu, 150 Reykjavík, í síðasta lagi 2. júní 1993, á
sérstökum eyðublöðum og skulu merktar: Umsókn um
styrk vegna starfsmenntunar.
Nánari upplýsingar er aö finna í lögum nr. 19/1992, um
starfsmenntun í atvinnulífinu, en sérprentun þeirra liggur
frammi í félagsmálaráðuneytinu. Sérprentuö umsókna-
reyöublöö liggja frammi á sama staö.
Félagsmálaráðuneytið,
28. apríl 1993.