Alþýðublaðið - 25.06.1993, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 25.06.1993, Blaðsíða 1
Deilt vegna afskipta Iðnlánasjóðs af gjaldþroti Óss- húseininga: STEYPUSTÖÐIN KÆRIR Steypustöðin hf. hefur kært Iðn- lánasjóð til Samkeppnisstofnunar. Forráðamenn fyrirtækisins segja að það kunni að brjóta í bága við 14. grein hinna nýju samkeppnislaga ef rekstrarfé Hrauns hf., sem stofnað var fyrir atbeina Iðnlánasjóðs, kem- ur frá sjóðnum sjálfum. Hraun hf. var sett á laggimar til þess að reka áfram steypuverk- smiðjuna Os - húseiningar hf. í Garðabæ, gjaldþrota fyrirtæki. Hlutaféð er ein milljón króna. „Það er ekki nokkur minnsti möguleiki að reka verksmiðju þessa án þess að til korni mun meira rekstarfé en nemur þessu hlutafé“, sagði Halldór Jónsson annar tveggja forstjóra Steypustöðvarinn- ar hf. í samtali við Alþýðublaðið. Hann sagði að menn hlytu að spyrja hvaðan það fé kemur eða hvaða vextir em greiddir fyrir það, um það væri öllum ókunnugt. „Viðskipti af þessu tagi hafa leitt til stórkostlegrar verðsamkeppni sem hefur kostað okkur milljónir á milljónir ofan á stuttum tíma. Það er orðið vonlítið að keppa við þau undirboð sem verið hafa í gangi af hálfu fyrirtækja sem opinber aðili heldur á floti“, sagði Halldór Jóns- son í gær. Hann sagði að ef í ljós kæmi að rekstrarfé Hrauns hf. kæmi inn fyr- ir atbeina Iðnlánasjóðs þá gæti það varðað við 14. grein samkeppnis- laga. Þar er kveðið á um að sam- keppnisráði sé heimilt að mæla fyr- ir um fjárhagslegan aðskiinað, ann- arsvegar á milli þess hluta rekstrar fyrirtækisins sem nýtur einkaleyfís eða vemdar og hinsvegar þess hluta rekstrar sem er í frjálsri samkeppni við aðra aðila. Bragi Hannesson, forstjóri Iðn- lánasjóðs, sagði í gær að málefni þrotabús Óss-húseininga væri al- farið í höndum skiptastjóra, Val- garðs Sigurðssonar. Hann sagði að eftir helgina yrði fundur í búinu og að hann vonaðist eftir að búið Ienti hjá Iðnlánasjóði. Þá væri næst að auglýsa eignimar til sölu. Nokkrir aðilar hefðu þegar lýst yfír áhuga, og sagðist Bragi vonast til að Steypustöðin yrði meðal þeirra sem biðu í eignimar, en hagstæðasta til- boði yrði tekið. Bragi Hannesson viðurkenndi að Iðnlánasjóður hefði allt of Iengi haldið lífinu í fyrirtæki þessu. Hins- vegar væri Iðnlánasjóður í þessu tilviki í hreinni nauðvörn og yrði að gera allt sem í hans valdi stæði til að verja hagsmuni sína. Bragi kvaðst hinsvegar ekki átta sig á þessari kæm Steypustöðvarinnar á hendur Iðnlánasjóði, kvað hana engum tilgangi þjóna. Hinstu dagar Óháðrar listahátíðar Reykjavíkur: FORGARÐUR HELVÍTIS & DAWN OF THE DEAD Þá er komið að hinstu dögum ÓLÉTT ’93. Á föstu/laugar/sunnudag- inn kemur mun henni verða komið fyrir í frystikistu minninganna, með viðhöfn. Vafalaust á hið kraftmikla listafólk sem að hátíðinni stendur eftir að endurvekja uppákomuna, afþíða skrýmslið. Ef til vill strax á næsta ári. En hvað skyldi vera í boði þessa síðustu þrjá daga? A morgun mun leiklistin taka völdin á Café París klukkan 20 og í Faxaskálanum klukkan 20:30 verða rokktónleikar af harðari sortinni. Þar spila meðal annars hljómsveitimar tvær sem nefndar em í fyrirsögninni, For- garður Helvítis og Dawn of the Dead. Á laugardaginn fer svo fram unaðslegt samspil dans og ljóða í Faxaskálanum, á milli klukkan 15 og 17. Á útitaflinu verður leiklist klukkan 16:05. I Faxaskálanum um kvöldið verða þrennir tónleikar; Gítar- tónlist, tölvutónlist og blús- djamm Halldórs Auðarssonar (framkvæmdastjóra ÓLÉTT ’93) og fleiri. Þessir tónleikar boða í raun endalok hátíðarinnar þrátt fyrir að kvöldið eftir, í Tjamarsal Ráðhússins, muni verða píanó- tónleikar um skamma hríð. Hafið kæra þökk fyrir, sjö- hundmðburar ÓLÉTT ’93, Óháðrar listahátíðar. 200 MILUÓNA SKEKKJA í GREIN Prentvilla slæddist inn í grein Guðmundar Oddssonar, bæjar- fulltrúa Alþýðuflokksins í Kópa- vogi, í Alþýðublaðinu í gær, þar sem hann fjallar um skuggalega niðurstöðu ársreiknings bæjarins. Þar sem stóð að nettóskuldir samkvæmt ársreikningum væra 1.787 milljónir króna átti að standa 1.587 milljónir króna. Hér var ekki verið að reyna að gera illa stöðu verri, þetta var að- eins prentvilla, og leiðréttist hún hérmeð. Kátir peyjar SHELL-mótið í knattspyrnu yngstu knattspyrnumanna okkar stendur yfir í Eyjum. Engin smá- ræðis framkvæmd. Fjölgað hefur í bæjarfélaginu um 1.500 manns um stundarsakir. Það er því mik- ið líf og fjör á götum Vestmanna- eyja þessa dagana, að maður tali ekki um á knattspyrnuvellinum þar sem keppt er allan daginn. Og strákamir sem koma frá meg- inlandinu em góðir gestir og heima- menn bera þeim hina bestu sögu. Þeir segja að þeir fari um í hópum eins og hermenn á göngu, kátir og hressir, en kurteisir og prúðir í hví- vetna. ALÞÝÐUBLAÐIÐ birtir opnu frá Shellmótinu á bls. 12 og 13 í dag. Þar má sjá margan snilldartakt- inn hjá knattspymumönnum fram- tíðarinnar. Á stærri myndinni eru strákar úr gcstgjafaliöinu, Tý, með verndarvætt sinn við opnunarathöfn Shellmótsins. Á minni myndinni má sjá þátttakend- ur í skrúðgöngu í bænum á leið til at- hafnarinnar. TINDINUM • KAFFI I HRAUNBOLLA • SKELFISKVEIÐAR • BJARTAR NÆTUR REYNDU ÍSLENDINGINN í ÞÉR Njóttu Islands - ferðalands íslendinga S Olíufélagiðhf Ferðamálaráð íslands - óvallt I alfaraleii Nýttu þér upplýsingaþjónustu vítt um land varðandi ferðir, gistingu, veitingar og afþreyingu á hverjum stað. STEINRUNNIN TRÖLL • Þ Ö G N • SÖGUSLÓÐIR í ÆVINTÝRABJARMA • DORG

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.