Alþýðublaðið - 25.06.1993, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 25.06.1993, Blaðsíða 12
12 Föstudagur 25. júní 1993 Shellmótið í knattspymu í Eyjum - íbúum Vestmannaeyja fjölgaði um 1.500 á einum degi STÓRMÓT LITLU PEYJANNA „íbúum“ Vestmanna- eyja hefur fjölgað svo um munar síðustu dagana. Þar í bæ búa venjulega um 5.000 manns, - en á miðviku- dag fjölgaði þar um 1.500 manns, sem komu með þrem ferð- um Herjólfs og áætlun- arferðum og aukaferð- um Flugleiða. Mest eru þetta níu til tíu ára guttar úr 6. flokki knatt- spyrnufélaga víða um landið, sem keppa þar á Shell- mótinu. „Það er alveg undravert að fylgj- ast með guttunum. Þeir ganga um allan bæ í hópum og sýna fádæma pníðmennsku", sagði fréttamaður Alþýðublaðsins í Eyjum í gær. „Það eru ekki lætin eða gauragang- urinn í þessum strákum, og þeir eru félögum sínum og foreldrum til mikils sóma. Skipulagt lið, þetta“. Fréttamaðurinn sagði að ffá Eyjum væri allt hið besta að frétta, engin óhöpp eða vandamál hefðu komið upp. Hópamir tóku að tínast til Eyja í býtið á miðvikudagsmorguninn í eindæma veðurbh'ðu, sem haldist hefur síðan. Það eitt út af fyrir sig setur gott strik í reikninginn. Öll vinna við þetta umfangsmikla mót verður mun auðveldari og ánægju- legri í alla staði. Alls munu liðin sem keppa vera 68 talsins. Með strákunum er auð- vitað fjölmennt fararstjóralið, ekki veitir af því. Og talsvert margir for- eldrar hafa fýlgt strákunum sínum til keppni, enda upplagt að slá tvær flugur í einu höggi, sjá snarpa leiki, og skoða Vestmannaeyjar, sem eru einhver skemmtilegasti ferða- mannastaður landsins. Þegar allir gestir þessa mikla móts em taldir, munu þeir nálgast að vera 1.500 eins og fyrr sagði, leikmenn meira en helmingurinn. Setningarathöfnin var í fyrra- kvöld í tjómalogni og blíðu og var hin hátíðlegasta. Ekki síst vakti það mikla athygli þegar fallhlífar- stökkvari kom af himnum ofan og lenti á knattspymuleikvanginum. Þessa dagana er leikið af miklu kappi daginn langan, leikur eftir leik á mörgum leikvöllum. Þar má sjá að íslenska landsliðið á von á mörgum kappanum eftir svona einn áratug eða svo. Tilþrifín em stórkostleg og áhorfendur sem em ótrúlega margir, skemmta sér ekki síður en strákamir á sjálfir. Framtak Týsara í Vestmannaeyj- um er sérlega gott og þakkarvert. Með því hefur tekist að útvega okk- ar yngstu knattspymumönnum verðugt verkefni. „Faðir" Shell- mótsins, Láms Jakobsson, hefur ekki hvað síst unnið þrekvirki. Mótið krefst ótrúlegrar skipulagn- ingar og þar hefur Láms ekki legið á liði sínu, né heldur hópur sjálf- boðaliða, trúlega á þriðja hundrað talsins. „Það hefur alltaf verið okkar mottó að hafa þetta alvöru stórmót í háum gæðaf!okki“, segir Láms. Það hefur þeim Eyjamönnum sann- arlega tekist. Fréttir og myndir: Þórhallur Ein- isson. Hér getur að líta fulltrúa yngsta borgarhverfis Reykjavfkur, Fjölnismenn úr Grafarvogi, við opnunarhátíð Sheilmótsins í Eyjum. Ungir sem gamiir líta til himins þar sem hirtist flugvél, en út úr henni sveif fallhlífastökkvari sem lenti von bráðar á knatt- Valsmenn eru að sjálfsögðu fjölmennir í Eyjum með efnileg lið, og hér eru Hlíðarcndastrákarnir. spymuvellinum. Einbeitnin lýsir sér í svip þessa unga Stjöraumanns úr Garðabæ, ekkert gefið eftir. Stund milli stríða, eða reyndar fótboltaleikja. Þá er gott að sitja í grasinu og hvflast fyrir næstu átök í hópi fallcgra Eyja- stelpna.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.