Alþýðublaðið - 25.06.1993, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 25.06.1993, Blaðsíða 4
4 Föstudagur 25. júní 1993 FERÐAST UM ÍSLAND FERÐAST IIM ÍSLAND ALÞYÐUBLAÐIÐ ídag minnir okkur á gott s ferðamannaland, Island. Allmargir munu halda kyrrufyrir í sumar hér heima á hólm- anum og njóta þeirrar einstœðu náttúru sem Island hefur sannarlega upp á að bjóða. Ferðamöguleikar okkar eru miklir. Það þarf bara að velja og skipuleggja til að ferðalagið heppnist vel. I blaðinu í dag bendum við á ýmsa þá val- kosti sem til greina koma. Við óskum lesend- um okkar góðs sumarleyfis, hvort sem það verður ífangi íslenskrar náttúru eða erlendr- ar. Ágúst Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Islands, - vaxandi kortasala. Landakort íferðalaginu er álíka nauð- synlegt og AÐ ÞEKKJA VIÐMÆLENDUR IGOÐU BOÐI MEÐ NAFNI Ferðalag um landið án al- mennilegs landakorts og góðrar leiðarlýsingar kemur ekki að hálfu gagni. Einn góður ferða- maður sagði að það að vera kort- laus í ókunnu landslagi væri álíka og vera í góðu boði þar sem mað- ur þekkti engan með nafni! Landmælingar Islands er opin- bert fyrirtæki sem að miklu leyti sér um sig sjálft. Fyrirtækið hefur á undanfömum ámm sýnt vemlega góða þjónustu við ferðafólk með hverri útgáfunni annarri betri. Fyrir nokkrum ámm fóm Land- mælingar að gefa út staðfræðikort eftir íslenskum kortastaðii. Stað- fræðikortin em í mælikvarða 1:25 000. Þetta em góð kort til að hafa í höndunum á ferðalagi. Þá bjóðast geysigóð staðfræðikort af miðnorð- urlandi, miðhálendi og miðsuður- landi, kort í kvarðanum 1: 50 000. Otal önnur kort bjóðast hjá korta- búð Landmælinganna að Lauga- vegi 178, og kortin fást í góðum bókabúðum, mörgum viðkomu- stöðum við þjóðvegina og víðar. Ágúst Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Islands, sagði að kortasalan færi stöðugt vaxandi, og það í mun meira mæli en nemur auknum ferðalögum um landið. Rigningarsuddi og kannski rok, - en hvað um það, kortið verður að vera við hcndina.... Gist í tjaldi, skemmtilegur kostur, en þó munu menn hafa einhvem innhyggðan kvóta á gistinóttum við slíkar aðstæður, enda eiga veður það til að gera mönnum grikk. Odyra gistingu er víða aÖ fá Ferðalög um ísland geta orðiðfirna dýr, - efmenn velja hótel og dýra matsölustaði. Margirfara þá leiðina að velja ódýra gisingu og kaupa matinn í matvörubúðum, eða á skyndibitastöðum. En lítum aðeins á nokkra möguleika á ódýrri gistingu. Ferðafélag Islands og Útivist eru vinsæl ferðafélög. Margir vilja ferðast um landið með góðn leiðsögn og vönum ökumanni. Á þessum ferðum inn á hálendið koma sæluhús félaganna í góðar þarfír. Ferðafélag Islands og deildir þess víða um land ráða yfir eitthvað á þriðja tug sæluhúsa. Sæluhúsin eru læst yfir sumarmánuðina, en lykla má fá hjá skrifstofum félag- anna eða deildanna úti á landi, þ.e. á Akureyri, Sauðárkróki, Húsavxk og Egilsstöðum, eða hjá skálavörðum þar sem þeir eru. Gistigjöldin eru lág upphæð, en allt fé sem inn kem- ur rennur til viðhalds á húsunum. Farfuglaheimili Bandalags ís- lenskra farfugla em á 15 stöðum á landinu, þar af em tvö á Akureyri og tvö í Reykjavík. Farfuglaheimil- in em öllum opin, sem þar vilja dvelja, svo fremi að menn hagi sér skikkanlega og noti ekki áfengi eða eiturlyf. Þama fær fólk gistingu í rúmi og fær sængur og kodda, en þarf að hafa með sér rúmföt eða lakapoka, koddi og teppi fæst lánað án endurgjalds. Á farfuglaheimil- unum er eldhús til afnota fyrir gesti auk allrar nauðsynlegrar hreinlætis- aðstöðu. Flest farfuglaheimilin bjóða upp á aðstöðu fyrir íjölskyld- ur að vera út af fyrir sig. Félagar í farfuglahreyfingunni fá gistingu á lægra gjaldi en utanfélagsmenn. Boðið er upp á marga aðra þjón- ustu, víða er t.d. seldur matur, starfsfólkið getur bent gestum sín- um á veiðilæki, ár og vötn, bfla- verkstæði, tjaldsvæði hestaleigur og hjólaleigur. Gisting á farfuglaheimilum er prýðis lausn þegar buddan er létt en ferðahugurinn mikill. Tjaldsvæði sem Ferðamálaráð Islands mælir með í bæklingi sínum em um 100 talsins. Því miðurerls- land oft á tíðum lítt til tjaldgistingar fallið, nótt í tjaldi, þegar rigning og rok hamast á tjaldinu er sannarlega ekki eftirsóknarverð lífsreynsla. Engu að síður gista menn í tjöld- um, bæði á tjaldsvæðum löggiltum af ríkinu, og eins á þeim mörgu skemmtilegu stöðum þar sem vel hagar til og leyft er að tjalda, en þeim stöðum fækkar víst óðum. Islensk tjaldsvæði hafa löngum þótt afskaplega léleg, en á síðari ár- um hefur þó víða verið gerð bragar- bót á, m.a. er rennandi vatn og vatnssalemi nánast á öllum, eða í „hóflegri fjarlægð" frá svæðunum. Til er opinber reglugerð sem segir til um hvemig tjaldsvæði eigi að vera, - og ljóst er að ekki nándar nærri öll uppfylla þau þær kröfur sem til þeirra em gerðar. Islenskir ferðamenn em í raun ekki miklir tjaldbúar, enda þótt sumir lýsi þjóðinni í heild sem hirð- ingjum. Lfldega er meðalþol rs- lenskra tjaldbúa 2-3 nætur á sumar- ferðinni um landið, getur þó orðið meira ef menn em heppnir með veður. En engu að síður er tjaldvist- in alltaf spennandi þótt hún kunni að vera þreytandi fyrir kroppinn. Og eitt er alla vega víst, þetta er ódýrasti kosturinn af öllum í gist- ingu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.