Alþýðublaðið - 25.06.1993, Page 16

Alþýðublaðið - 25.06.1993, Page 16
LOTT* alltaf á miðvikudögum MIÐPUNKTUR REYKJANESSINS Fólk á ekki nógu sterk orð til að iýsa undrum Bláa lónsins, það er heillandi, dularfullt, rómantískt og síðast en ekki síst þekkist engin leið betri til að halda niðri húðsjúkdómum sem margir þurfa að giíma við en einmitt með því að baða sig í lóninu. Á sólríkum sumardögum er þetta eins og að koma á vinsælar erlendar sólarstrendur, sólbakaðir kroppar spranga á hvítum sand- inum og brosandi andlit er hvarvetna að sjá. Úti í grænbláu lóninu skipta gestimir hundruðum og hafa sumir komið langa leið til að leita lækninga við meinum sínum, aðrir koma til að slappa af, sýna sig og sjá aðra og leyfa sólinni að skína á kroppinn. Þegar rökkvað er orðið er aðkoman að Bláa Lóninu ekki síðri. Ljós orkuversins lýsa upp gufumökkinn, sem teygir sig upp í himinhvolfíð. Þetta gerir umhverfið seið- andi og leyndardómsfullt. Menn hafa gjam- an á orði að staðhættir minni helst á um- hverfi framtíðarinnar eins og það birtist í vísindaskáldsögum. ALHLIÐA HEELSUMIÐSTÖÐ En í hverju liggur sérstaða Bláa Lónsins, hvað er það sem dregur þessar tugþúsundir að á hverju ári? Það er náttúrlega enginn staður í veröldinni eins og Bláa Lónið . Það að fólk skuli geta baðað sig við hliðina á orkuveri'í þessu hrikalega landslagi gerir staðinn einstakan. Svo er það að sjálfsögðu þessi einstaki lækningamáttur sem dregur fólk hingað. Á síðasta ári komu hópar frá útlöndum gagngert til þess að fara í Lónið og slíkum hópum fer mjög íjölgandi, svo má líka nefna að hér er opið allt árið og ekki er síðra að koma hér yfir vetrarmánuðina. SUÐURNES - HINN NÝIÞING- VALLAHRINGUR? Á Suðumesjum og í næsta nágrenni býr meira en helmingur þjóðarinnar. Flestir ferðamenn sem koma til Islands komast ekki hjá því að fara um Suðumesin að ein- hveiju leyti. Samt virðist stundum sem svo að Reykjanesið eða Suðumesin séu ekki talin með þegar nefndir em helstu ferða- mannastaðir landsins. Hafa sveitarfélög og ferðamálasamtök á Suðumesjum tekið saman höndum á síðari ámm um að hrinda í framkvæmd átaki til að auka ferðamanna- straum um svæðið. Það hefur gengið ágæt- lega og margir famir að finna nýja og skemmtilega staði að skoða þar syðra. Alþýðublaðið fæst í Tokyo á nœstunni efbókabúð þar í borg nœr hagstœðum samningum við dreifingar- og áskriftadeild Alþýðublaðsins. Sagði einhver að Alþýðublaðið fengist óvíða? í Tokyo í Japan er bókabúð nokkur sem ber það skemmtilega nafn HO- TAKA. Fyrir hönd bókabúðar þessarar hafði Mál og menning samband við dreifingu Alþýðublaðsins og forvitnaðist um það hversu mikið áskrift að Alþýðu- blaðinu kostaði. Málið sé að Japanamir í HOTAKA-bókabúðinni væm að hugsa um að gerast áskrifendur að Alþýðublað- inu, ásamt ef til vill fleiri íslenskum dag- blöðum (almennileg þjónusta atama!). Sem sagt, nú geta tjölmiðlahungraðir fslendingar í Tokyo hugsanlega fengið öll íslensku blöðin með morgunkaffinu. Það er að segja, ef HOTAKA-bókabúðin nær samningum við dreifingar- og áskriftadeild Alþýðublaðsins. Fyrir þá Islendinga sem ekki em enn áskrifendur að eina málgagni jafnaðar- stefnunnar á íslandi má upplýsa það að mánaðaráskrift að Álþýðublaðinu (Pressan fylgir með) kostar krónur tólf- hundmð. SUMARBÚSTAÐABÓKIN Sumarbústaðabókin er komin út. Þetta er glæsileg handbók fyrir sumar- bústaðaeigendur og væntanlega eigend- ur sumarhúsa. I bókinni er meðal annars rakin fjölgun sumarbústaða á íslandi allt frá því að fyrst tóku að myndast sumar- bústaðabyggðir um landið. Einnig er fjallað um hvaða forsendur séu fyrir nú- verandi sumarhúsabyggð. Bókin hefur að geyma handhægar upplýsingar sem spara mikinn tíma og fyrirhöfn. I henni eru til að mynda upplýsingar um hvern- ig koma skuli fyrir rotþróm, einnig er þar að finna upplýsingar um verandir, undirstöður, orkugjafa og fleira. Enn fremur er fjallað um hvemig best sé staðið að skipulagningu á sumarbústaðal- óðum, eins og leiksvæði bama, göngustíg- um, bilaplani og heitum potti. Viðamikill kafli er um gróður sumarhúsalóða og um- önnun, skjólbelti, flutning á tijáplöntum, hina víðfrægu safnhauga og fleira. Kaflinn um sumarhúsalíf fjallar um við- hald á sumarhúsum, dægradvöl í sumarhús- um, fslenska fánann, matargerð, sambúð við jarðeigendur og fjölmargt annað. Einn- ig em í kaflanum upplýsingar um sundlaug- ar, golfvelli, hestaleigur, söfn og aðra dægradvöl í nágrenni við sumarbústaða- svæðin. Aftast í bókinni em svo upplýsing- ar um aðila sem þjónusta sumarbústaða- fólk. Sumarbústaðabókin er 216 blaðsfður að stærð í handhægu A5 broti og gormainn- bundin. Myndir og teikningar (Böðvar Le- ós) em fjölmargar. Bókin fæst á blaðsölu- stöðum um land allt. Ritstjóri er Aðalheiður E. Ásmundsdóttir og útgefandi er Gott mál hf. Forsíða kápu Sumarhúsabókarinnar. Landslag Reykjanesskaga er sannarlega stórbrotið. Samt hefur þessi hluti landsins orðið nokkuð útundan hjá ferðafólki almennt. En það er ástæðulaust að krækja framhjá þessum eldbmnna skaga. Hann hefur upp á margt að bjóða. Hér sjáum við brimið á Reykjanesi, kalda Átl- antshafsölduna, sem gælir við klettana. Rúsinur lÁ Kg. Umboðsmenn um land allt: A.G. Guðmundsson sf., Húsavik • Ásbyrgi hf. Akureyri • Asgeir Björnsson, Siglufirði • Guðrún sf„ Vopnafirði • Hafsteinn Vilhjálmsson, isafirði • Reynir sf„ Blönduósi • Sigbjörn Brynjóifsson. Egilsstöðum • Svanberg hf„ Vest- mannaeyjum • Umboðssala Rósu Bachmann, Patreksfirði • Dökkar Ijmar

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.