Alþýðublaðið - 13.07.1993, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 13.07.1993, Blaðsíða 4
4 Þriðjudagur 13. jútí 1993 Dagsbrúnarmenn tryggðir allan sólarhringinn - og bótagreiðslur hækka Svar við kjararýrnun og minnkandi kaupmætti -segir Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar Dagsbrún hefur gert samning við Vátryggingafélag íslands sem tryggir nærri 4 þúsund Dagsbrún- armönnum á aldrinum 16-75 ára hærri bætur og meiri vernd en fé- lagsmenn annarra stéttarfélaga með hliðstæða tryggingasamninga njóta. Dagsbrúnarmenn eru nú tryggðir allan sólarhringinn, jafnt í vinnu sem utan, samkvæmt þess- um samningi VÍS og Styrktarsjóðs Dagsbrúnar, sem greiðir allan kostnað af þessum tryggingum. Nýi tryggingasamningurinn er í grund- vallaratriðum endumýjun á hóplíftrygg- ingasamningi aðilanna, þar sem bóta- greiðslur hafa verið hækkaðar vemlega, og til viðbótar kemur fntímatrygging sem tryggir Dagsbrúnarmönnum og/eða afkom- endum þeirra dánar- og örorkubótarétt í fn- tíma, en samkvæmt kjarasamningum em þeir eingöngu tryggðir í vinnutfma. „Eitt meginmarkmið félagsins með jjess- um nýju tryggingasamningum er að treysta hag sinna félagsmanna eftir megni - á tím- um kaupmáttarhraps og kjaraskerðinga, þegar kjarasamningar verða sífellt minna virði“, segir Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar. Ef dæmi em tekin um tryggingabætur samkvæmt nýja samningnum má taka kvæntan Dagsbrúnarmann, tveggja bama föður. Falli hann frá vegna slyss, hvort heldur er í vinnu- eða fritíma, em dánarbæt- ur hans nú samtals tæplega 2,8 milljónir króna, sem er um það bil milljón krónum meira en hefðbundin slysatryggingaákvæði kjarasamninga gera ráð fýrir. Slasist Dagsbrúnarmaður það alvariega, hvort heldur er í vinnu eða frítíma, að hann hljóti af varanlega örorku, ttyggir nýi samn- ingurinn honum einnig örorkubætur. Til dæmis má nefna að 20% örorka myndi færa honum tæplega 460 þúsund krónur - til við- bótar við aðrar tryggingar sem hann kann að hafa og tryggingabætur Tryggingastofn- unar ríkisins. Nýi tryggingasamningurinn undirritaður af þeim Guðmundi J. Guðmundssyni, formanni Dagsbrúnar, og Axel Gíslasyni, forstjóra Vá- tryggingafélags Islands. Síðast voru 46.880.000kr. í ti/öföldum V I K I N G A er tvöfaldur afturKS Hetjunni í Vestmannaeyjagosinu var lítt hampað af sjálfstæðismönnum í meirihluta bæjarstjórnar. Magnúsi lítt hampað Líklega er á engan hallað þótt full- yrt sé hér að hetja Vestmannaeyja- gossins var Magnús H. Magnússon, þá bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Æðruleysi hans og bjartsýni á svört- um dögum í byggðarlaginu smitaði út frá sér. Sigurður Jónsson, sveitar- stjóri í Garði gagnrýnir það að Magn- úsi var ekki boðið til Eyja þegar gos- lokaafmæli var minnst á dögunum. Magnús var þangað mættur á eigin vegum. Hann segir í grein í Fréttum að þrátt fyrir að því sé haldið fram að engum hafi verið boðið, hafi sjálf- stæðismenn í meirihluta bæjarstjóm- ar f engu minnst þáttar Magnúsar í þeim ósköpum sem yfir dundu. „Það hefði nú verið tilhlýðileg að fá t.d. Magnús fyrrverandi bæjarstjóra til að opna svo sem eina sýningu að maður tali nú ekki um að hann væri fenginn til að flytja ávarp. Furðulegt var einn- ig að bjóða honum ekki í kvöldsigl- inguna", segir Sigurður Jónsson. Ganga- vatnið til neyslu? Svo kann að fara að valnið sem nú rennur í stríðum straumum úr vegg- öngunum undir Breiðadalsheiði verði nýtt sem neysluvatn fyrir ísafjarðar- kaupstað. Neysluvatnsmál bæjarbúa hafa verið erfið, yfirborðsvatn hefur verið notað með æmum tilkostnaði, og þykir ekkeri afburða gott. Þarna er talið að fáist betra vatn fyrir bæjar- búa, og fiskvinnsluna sem notar gríð- arlegt magn. Streymið úr göngunum er svipað og í upphafi, rennslið er tí- falt það magn sem Isfirðingar nota.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.