Alþýðublaðið - 13.07.1993, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 13.07.1993, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 13. júlf 1993 7 Það eiga ekki að vera for* réttindi að hafa atvinnu Jóhann G. Möller varð nýlega 75 ára gamall. Á 1. maí hátíð Verka- lýðsfélagsins Vöku var hann kjör- inn heiðursfélagi félagsins vegna hálfrar aldar dyggrar þjónustu við málstað hinna lægra settu í þjóð- félaginu. Jóhann er kunnur fyrir brennandi áhuga á félagsmálum. Hann gegndi meðal annars marg- víslegum trúnaðarstörfum fyrir Þrótt og síðar Vöku og sat lengi í bæjarstjórn Siglufjarðar fyrir Al- þýðuflokkinn. í tilefni afmælis Jó- hanns fór Hellan þess á leit að hann svaraði nokkrum spurning- um fyrir blaðið. Hvenær tókst þú fyrst þátt í verkalýðsbaráttunni? Það má segja að fyrstu afskipti min hafi byrjað 1942 eða fyrir 51 ári. Allmörgum árum áður höfðum við Gunnar Jóhannsson formaður Þróttar unnið saman við mjölmót- töku í SR 30. Mér þótti Gunnar sanngjam og mætur maður. Ég var ekki einn um þá skoðun. Þetta ár var uggur í verkamönnum sem unnu hjá SR vegna stríðsreksturs Þjóðveija og hættu á loftárásum á síldarverksmiðjur. I september 1942 gerði þýsk flugvél árás á hús og báta á Austfjörðum. Almenn samstaða var meðal starfsmanna hjá SR að fara fram á áhættulaun. Kosin var samninganefnd til að fylgja þessu eftir, þar sem að Þrótt- ur var samningsbundinn við SR var látið heita að þessi deila væri félag- inu óviðkomandi. Efdr harðar og lærdómsríkar deilur hækkuðu laun SR-manna töluvert. Geturðu sagt okkur stuttlega frá hugsjónum ungs manns fyrir 50 árum? Hugsjónir mínar þá eins og margra annarra voru þær að verka- lýðshreyfmgin ætti að vera það afl sem réði meira eða minna í þjóðfé- laginu, því launþegamir væru fólk sem lifði hversdagslegu líft, væri heiðarlegt og léti ekki á sér ganga. Það sem einkenndi þennan tíma var það að menn höfðu meiri trú á réttlæti en nú í dag. Annað voru átökin á milli jafnaðarmanna og sósíalista innan verkalýðshreyfing- arinnar um baráttuaðferðir og markmið. Ýmsir af þeim mönnum háðu hugsjónabaráttuna fyrir fólkið fómuðu miklu persónulega. Þeir komu slyppir og snauðir ífá þessari baráttu en auðvitað ríkir að reynslu og kunnugir mannlegum vanda og hæfir til að leysa hann. Við þessa menn stöndum við í mikilli þakkar- skuld. „Það eru ákveðnir hlutir sem ekki er hægt að semja um: Frelsi og jafnrétti," segir Jóhann G. Möller. Tcikningin er eftir Örlyg Kristfinnsson sem jafnframt tók viðtalið. / nýjasta tölublaði Hellunnar, frétta- blaði Siglfirðinga, er athyglisvert og skemmtilegt viðtal Örlygs Kristfinns- sonar við gömlu kempuna Jóhann G. Möller. Jóhann varð 75 ára 27. maí síðastliðinn og man tímana tvenna; og hejur í hálfa öld unnið í þágu verkalýðshreyfingar og jafnaðar- stefnu. Alþýðublaðið fékk góðjuslegt leyfi Hellunnar til þess að endurbirta viðtalið í heild. Hver er staða verkafólks nú í dag að þínu mati? Hlutur hinna minni máttar hefur versnað mjög undanfarin ár, það er alltaf verið að ganga á hann og munur á ríkum og fátækum eykst stöðugt. Meðan þeir lægst launuðu hafa innan við 45 þúsund krónur fyrir mánaðar vinnu þá þykir það sjálfsagt að aðrir hafi tíu til fimm- tánfaldar tekjur. Þetta er auðvitað fáránlegt og siðlaust. Verkalýðs- hreyfingin er ósamstæð, þar er hver höndin upp á móti annarri. Innan hennar em stórir hópar sem skilja ekki eðli hreyfingarinnar, það eðli að heyja stöðuga baráttu fyrir kjör- um þeirra sem minnst mega sín. Þeim fer ijölgandi innan samtak- anna sem segja sem svo: Hvað er ég að skipta mér af þessu meðan ég hef það gott? Atvinnurekendur ganga á lagið og óttinn við að missa atvinnuna ræður miklu. Verkalýðshreyfmgin á að segja að næstu samningar snúist um þetta óréttlæti. Verði ekki samið um hækkun lægstu kauptaxta þá verði farið í verkfall, verkfall fyrir þá sem minnst mega sín. Það verkfall stæði stutt og því lyki með fullum sigri. Heiðarleg og réttlát verkalýðs- hreyfing á að láta meira til sín taka um gang mála í þjóðfélaginu. Verkalýðshreyfingin er það þjóðfé- lagsafl sem er tiltölulega óspillt og fært um að takast á við vandamálin. Eitt hlutverk verkalýðshreyfingar- innar á að vera það að veita stjóm- málamönnum aðhald siðferðislega. í stjórnmálum er of rniklu fómað af þeim málum sem menn ættu að standa eða falla með. Það em ákveðnir hlutir sem ekki er hægt að semja um: Það er frelsi og jafnrétti. Það eiga ekki að vera forréttindi að hafa atvinnu. Hvað viltu segja um það að margir baráttumcnn verkalýðs- ins hér áður vildu varpa trúmál- um fyrir róða? Draumur róttæklinga um ríki al- þýðunnar í Rússlandi eftir bylting- una brást meðal annars af því að það byggðist ekki á kristilegum gmnni. Baráttumenn jafnaðarstefn- unnar gerðu mistök jsegar þeir nýttu sér ekki kærleiks- og siðferðisboð- skap Krists til fullnustu. Trúarleið- toginn Kristur boðaði jafnaðar- stefnu. Hann var veijandi hinn fá- tæku, veiku og hrjáðu. Hann var á meðal fólksins og talaði um efnaleg gæði og breytni manna ekki síður en trúna á Guð. Lærisveinar hans vom sjómenn og handverksmenn og fylgjendur úr röðum alþýðunn- ar. Eftir þvf sem fleiri em jákvæðir þá verður heimurinn betri og það ~ góða nær yfirhöndinni, annars er heimurinn búinn að vera. Ég slasaðist töluvert mikið einu sinni í síldarverksmiðjunum og var óvinnufær um tíma. Verkamaður, nágranni minn, kom til mín og sagði: „Jóhann, þú ertbúinn að vera fiá vinnu í langan tíma og fjöl- skylda þín er stór; hér er hluti af kaupinu mínu. Viltu ekki þiggja hann?“ Þessi kærleiksneisti er til ennþá, hann þarf að glæða og breiða út ef heimurinn á að geta staðist.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.