Alþýðublaðið - 13.07.1993, Blaðsíða 8
L*TT#
alltaf á írriövikudöguni
!
1
Þrirtjiicjagiii 11 juíf I'Jú.t ifi? m'muihah ;-i ÁliuAfMiiUlt
2,Og I3.|úli
ASUMARHUSGOGNUM
2
AÐEINS I 2 DAGA
iðnuÉo 88 briðjudao
...þar sem ferðalagið byrjar!
Póstsendum samdægurs
O íRÐ'/V
4 ' . , V í 'V
Tap
hjá
RARIK
Síðasta ár hjá Rafmagnsveitum
ríkisins kom út með tap upp á 82,6
milljónir króna, miðað við 236,7
milljónir árið 1991. Kristján Jóns-
son, rafmagnsveitustjóri, segir árið
1992 hafa verið hagstætt um margt
og rekstur um margt hagfelldari en
fyrr, jafnvel veðurguðimir hefðu
lagst á eitt að gera reksturinn betri.
Tekjuaukning var 13% en rekstrar-
gjöld 5% hærri en fyrr. En engu að
síður, stórfellt tap.
VERDBÓLGAN
ER5AF
HUNDRAÐI
Vísitala framfærslukostnaðar
hækkaði um 0,9% þegar Kaup-
lagsnefnd reiknaði vísitöluna í
júlí. Hún reyndist vera 167.7
stig. Vísitala vöru og þjónustu
reyndist vera 171,2 stig og
hækkaði um 1,1% frá júnímán-
uði. Verðbólga hér á landi hefur
því enn sem fyrr hægt um sig.
Nýir bílar hafa hækkað um 5,9%
sem veldur 0,42% hækkun fram-
færsluvísitölu. Bensínhækkun um
2,4% þýðir að framfærsluvísitalan
hækkar um 0,1%. VASKUR sem
nú er reiknaður á blöð, tímarit og
fjölmiðla þýðir hækkun vísitölu
um 0,2% vegna hækkunarinnar á
afnota- og áskriftargjöldum ljós-
vakamiðla, en 0,23% vegna hækk-
ana á bókum, blöðum og tímarit-
um.
En sumt hefur aftur á móti lækk-
að. Mat- og drykkjarvörur lækka
um 1,6% sem veldur 0,27% lækk-
un vísitölunnar. Er þar um að ræða
verðlækkanir á nýju kjöti, mjólk-
urvörum, grænmeti og ávöxtum.
Verðbólgan er sem fyrr afar lág.
Síðustu 12 mánuði hefur vísitala
framfærslukostnaðar hækkað um
3,9%. Undanfama þijá mánuði
hefur hún hækkað um 1,1% sem
jafngildir 4,4% á heilu ári. Sam-
bærileg þriggja mánaða breyting á
vísitölu vöru og þjónustu svarar til
5,1% verðbólgu á ári.
Engar áhyggjur
af Hallslaut
í Sunnlenska fréttablaðinu segir Böðv-
ar Guðmundsson, skógarvörður að hann
hafi ekki áhyggjur af Hallslaut í Þjórsárdal,
enda þótt viðskilnaður ungmenna þar hafi
verið slæmur. Steinþór Ingvason, oddviti,
er sama sinnis. Gróðurinn jafni sig fljótt og
hann segir að einhvers staðar þurfí ung-
mennin að skemmta sér. Steinþór segir
engin eftirmál verða, þótt ýmislegt hafi far-
ið úr böndunum á skemmtun þessari. Böðv-
ar segir að miklu breytti að lítið hefði verið
af glerbrotum, plastumbúðimar væru mikil
bót frá því sem áður var þegar mótssvæðin
vom sem svöðusár vegna glerbrota.