Alþýðublaðið - 30.07.1993, Síða 2
2
Föstudagur 30. júlí 1993
MÞBUBIJIDID
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Hermóður Sigurðsson
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.200 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 110
Innrás í Líbanon
Það er kaldranaleg þversögn þegar því er haldið fram að
innrás ísraela í Líbanon auki líkur á varanlegum friði íyrir
botni Miðjarðarhafs. Hundruð þúsunda óbreyttra borgara
eru á flótta undan heijum ísraels, og því er hótað að Suður-
Líbanon verði gert óbyggilegt með öllu. ísraelar skáka í því
skjóli að þeir séu að uppræta hryðjuverkamenn Hizbollah-
hreyfingarinnar, en í reynd eru þeir að efna til stríðs á hend-
ur sjálfstæðu og fullvalda ríki.
s
Israelar gerðu innrás í Líbanon árið 1982 og hafa síðan
haldið fímmtán kílómetra löngu belti við landamærin. Með
innrásinni fyrir ellefu árum juku þeir mjög á gríðarlegan
flóttamannavanda Líbanons. Samkvæmt opinberum tölum
stjómvalda í Líbanon ílýðu 450 þúsund manns frá heimil-
um sínum í innrásinni 1982. Flestir leituðu skjóls í rústun-
um í Beirút. Markviss áætlun stjómvalda gerði ráð fyrir að
fólkið sneri smám saman til 949 þorpa og bæja á næstu
fímm ámm. 650 þessara þorpa em nú í hættu vegna innrás-
ar Israela.
Yfírlýst markmið ísraela er að auka enn á flóttamanna-
strauminn til Beirút og knýja þannig stjómvöld í Líbanon
til aðgerða gegn Hizbollah-hreyfingunni. Israelar beita
þannig sjálfir aðferðum hryðjuverkamanna: óbreyttir borg-
arar í öðm landi em peð sem þeir fóma á kaldriljaðan hátt
til þess að ná markmiðum sínum. Tugþúsundir Líbana sem
flýðu árás ísraela árið 1982 gátu loks snúið til síns heima
síðustu mánuði og misseri. Nú er þetta fólk aftur á flótta, og
aftur spýja vítisvélar ísraela eldi á þorpin í Suður-Líbanon.
Það sem af er árinu munu tólf ísraelskir hermenn hafa fall-
ið í árásum Hizbollah-skæmliða á landamæmnum við Líb-
anon. Stjómvöld í Beirút standa ekki á bakvið þær árásir.
Hizbollah-hreyfíngin er studd af Irönum fyrst og fremst.
Það er útbreiddur misskilningur að stjómvöld í arabaríkjum
styðji almennt við bakið á öfgasinnuðum trúarhópum á
borð við Hizbollah. Stjómvöldum í Beirút er enginn akkur
í uppgangi Hizbollah, en þau hafa ekki haft bolmagn til að
kveða hreyfmguna niður. Líbanon er í sámm eftir 15 ára
borgarastyrjöld og efnahagslífið er afar bágborið.
Viðræður um leiðir að varanlegum friði fyrir botni Mið-
jarðarhafs hafa gengið harla brösuglega síðan þær hófust í
Madrid fyrir tveimur ámm. Tæpast er heldur við öðm að
búast: yfirleitt er litið á það sem meiriháttar sigur ef máls-
aðilar fást á annað borð til þess að setjast við samninga-
borð. ísraelar hafa nú skapað mikla óvissu um framhald
friðarviðræðna.
Sýrlendingar, sem em með 40.000 manna herlið í Líbanon,
hafa enn sem komið er bmgðist við innrás ísraela af yfir-
vegaðri ró. Hinsvegar hlýtur að vera umhugsunarefni hvort
ísraelar eru ekki vísvitandi að stuðla að því að friðammleit-
anir fari útum þúfur. Þeir gráta þurrum támm þótt uppúr
slitni.
Obilgimi ísraela hefur vakið hörð og eindregin viðbrögð
víðast hvar. Jafnvel Bandaríkjamenn gagnrýna aðgerðir
Israela, og þarf nokkuð til. Israelum verður að skiljast að
þeir geta ekki endalaust samið sjálfir leikreglumar í sam-
skiptum þeirra við önnur lönd.
LEIÐfiRI UNDIR RÓS
Ólafur Gunnarsson
Lyqna Don
Heim á gamla Frón berast
gleðitíðindi: Bretum þyki orðið
leiðinlegt að horfa á sjónvarp.
Þegar svona nokkuð gerist úti í
heimi þá er fyrirsjáanlegt að er-
lendu áhrilin nái bráðum til Is-
lands og nú er gott að vita að enn
eru í bænum ýmsar ágætar forn-
bókasölur. í vikunni sem leið
kom ég á eina þeirra og sá þar
eintak af Lygn streymir Don, eft-
ir Mikhail Sholokov. Sú var tíðin
að þessi bók var almennt meir
lesin á heimilum en margar aðr-
ar bækur og ég minnist þess að ef
brúkað eintak kom í búðar-
glugga þá var eins víst að það
væri selt fyrir lokun.
Lygn streymir Don féll í áliti hjá
mörgum lesanda fyrir um tuttugu
árum. Solzenytzin lét þá prenta á
eigin kostnað hálfkarað rit eftir
fræðimanninn „D“, sem þá var ný-
látinn. „D“, vildi sanna að Lygn
Streymir Don væri verk kósakkans
Victor Kryukov sem dó á flótta
undan Rauða hemum 1920. Kry-
ukov samdi fjölda smásagna um og
eftir aldamótin. Tengdafaðir Sho-
lokov átti að hafa komist yfir kass-
ann með handritinu. Sholokov
snurfusaði bókina og samdi niður-
lagið, sagði „D“. Samkvæmt kenn-
ingum „D“, var Kryukov höfundur
um 95% af fyrri bindunum. Og
hann hafði samið um 70% af þriðja
og 30% fjórða bindis.
Ég held að furðu fáir viti að Tic-
hij Don, Lygna Don, eða Hljóða
Don, eins og hún heitir víst á frum-
málinu er mun lengri saga en þau
tvö bindi sem Helgi Sæmundsson
þýddi úr ensku og Guðjón Ó gaf út.
Það er tæpast helmingur bókarinn-
ar. Lygn streymir Don, sem lesin er
á vesturlöndum, er tæpast 2/3 hlut-
ar skáldsögunnar allrar. Á rúss-
nesku er Tichij Don 2300 blaðsíð-
ur.
Kvitturinn um ritstuld var reynd-
ar ekki jafn nýr og menn héldu
1974 þegar Solzenytzin gaf út
fræðirit „D“. 1928 þótti það með
ólíkindum að svo ungur maður,
Sholokov var þá 23 ára, setti saman
slíkar heimsbókmenntir. Árið 1932
var sagan orðin þrjú bindi og íjórða
bindi fúllsamið en þá kom babb í
bátinn. Stalín sjálfur komst í málið.
Og líkaði ekki niðurlagið. Næstu ár
stóð í stappi milli höfundar og Sta-
líns. Og 1938 gafst Stalín upp og
Sholokov fékk að hafa þau sögulok
sem hann sjálfur vildi.
Það munu hafa verið kommún-
istar sem komu af stað þessum rógi
um ritstuld árið 1928 vegna þess að
Sholokov var ekki flokksbundinn.
En þegar hann var genginn í flokk-
inn var orðið of seint að kveða
kvittinn niður. Hitt er svo önnur
saga að hann varð með aldrinum
flestum höfundum meiri harðlínu-
maður og skáldskapurinn yfirgaf
hann. Um þetta hafa menn ritað
langt mál og eiga sjálfsagt margt
ósagt. En víst er að mikill þverhaus
má maðurinn hafa verið að standa
þetta í Stalín.
Minna hefur farið fyrir því hér-
lendis sem mörgum ytra þykja lok
þessa máls. Fyrir áratug mataði
norskur fræðimaður, Geir Kjetsaa,
tölvu á fyrsta smásagnasafni Sho-
lokov og fjölda smásagna Kry-
ukovs, lét þar næst tölvuna fá stórar
spildur úr fyrsta bindi Lygnu Don,
sagði tölvunni að enginn hefði sam-
ið Lygnu Don og spurði hvor væri
höfundurinn, Ktyukov eða Sho-
lokov. Tölvan velti þessu fyrir sér
með línuritum og rannsóknum á
orðum og orðnotkun, samanburði á
málsgreinum, setningum og hrynj-
andi, norska bókin liggur hér fyrir
framan mig á borðinu um leið og ég
set saman þennan leiðara undir rós:
Authorship of The Quiet Don. Sol-
um Forlag/ Humanities Press. Það
var sama hvemig jafnan var lögð
fyrir tölvuna, hún svaraði að Kry-
ukov hefði hvergi nærri komið.
Hins vegar væru á Lygnu Don
sömu tök á tungunni og Mikhail
Sholokov sýndi í smásögum sínum.
Þess vegna er öllum óhætt þegar
okkur fer að leiðast sjónvarp líkt og
Bretum, að lesa upp á nýtt, eða í
fyrsta sinn þessa bók um Don Kós-
akkana.
finnáll 30. jálí
Atburðir dagsins
1898 Þýski kanslarinn Prins Otto von Bismarck deyr.
1930 Úrúguay vinnur Argentínu 4-2 á HM í knattspymu.
1963 Breski njósnarinn Kim Philby birtist í Moskvu.
1966 England vinnur V-Þýskaland 2-1 í HM í knattspymu.
1973 Fómarlömb l'halidomide fá 20 milljón £ í bætur.
1987 Saudi-Arahísk lögregla skýtur á íranska pílagríma.
1991 Pavarotti syngur fyrir 150.000 aðdáendur í London.
Afmœlisdagar
Emily Bnintc - 1818 Enskur rithöfúndur.
Henry Ford - 1863 Bandarískur bílaframleiðandi.
Peter Bogdanovich - 1939 Enskur kvikmyndaleikstjóri.
IJaley Thompson -1958 Breskur tugþrautarmeistari.
Málsháttur dagsins
„Oft blekkir orðslœgur einfaldan.“
Málsháttasöfn Hallgríms Schevings. Boðsrit Bessastaöaskóla 1843 og 1847.
1853 - John Speke nefnir
Viktoríuvatn
Hinn 31 árs hreski landkönnuður John
Hanning Speke nefndi í dag hið mikla vatn
scm hann uppgötvaði í hjarta Afríku. Spekc
nefndi vatnið Viktoríuvatn eftir Viktoríu
Bretlandsdrottningu. Hann hefur verið í
könnunarlciööngrum með Richard Burton
um Afríku en þeir skildust skiptum nýverið.
filþýðublaöið 30. júlí 1960
Misvitur forseti
„í deiiunt um stefnuskrá repúblikana hefur farið svo, að hinn frjáls-
lyndari arrnur flokksins sigraði. Þetta varð til þess að Eisenhower for-
seti, sem hefur reynst hinn mesti íhaldskurfur í innanríkismálum, lét
sér fara um niunn niðrandi orð um smáríki í Evrópu, er stjómað hefur
verið í anda jafnaðarstefnunnar. Fer ekki á milli mála, að hann átti við
eitthvcrt Norðurlandanna.“
Segir í ómerktum leiöara í ritstjómartíð Gísla J. Ástþórssonar og Benedikts Gröndal.
Þar er ekki farið fögrum orðum um Eisenhower og þess er vænst að Kennedy verði
næsti forseti svo velmegun Bandaríkjamanna megi aukast...
Straumur í Þórsmörk
„Þá er það að lokum hið gamla vandamál: umgcngni fólks. 1 viðtali
við blaðamenn í gær sögðu forráðamenn ferðaskrifstofanna, að að-
koma að Þórsmörk hefði verið hörtnuleg f fyrra eftir verslunarmanna-
helgina.“
Svo eru menn að gera skóna að þvf að núverandi æskufólk landsins sé .versta sóðakyn-
slóðin“ hingað til...
Svavar Gests
„Svavar Gests hcfur kvatt Austurland, endurtekið tónleika á Akureyri
og Sigló og þræðir nú kauptún á leið sinni suður til Reykjavíkur. Virð-
ist því útilega hljómsveitarinnar
að taka endi, en þeir ku hafa gert
góða vertíð f ferð þessari."
íþágömlugóðu daga...
ATHUGASEMD RITSTJ.: Þau mistök
urðu við vínnslu Alþýðublaðsins sem út
kom í gær að sömu dagsetningunum á
„Annáll...“ og Alþýðublaðið..var ieyft
að slæðast inn og vorn daginn áður.
Þama átti vitaskuld að standa „Annáll
29. júli“ og „Alþýðublaðið 29. júlí 1976".
Hlutaðeigandi aðilar (til dæmis Kari Breta-
prins, Árni Gunnarsson, Jón Einar Guö-
jónsson og fleiri) eru beðnir innilegtar af-
sökunar á klúðrinu.
œqmm
/likib saltaö yrir austan
SSIIlllll
SMST-S
illdar-
túlkur! ISfM
=s
o
A Katt ttrlð milli Ghono og S-Altlku ■ — i
M
Louoardoostída Houks er ó IX iIdti