Alþýðublaðið - 30.07.1993, Blaðsíða 6
6
KEFLAVÍK
Föstudagur 30. júlf 1993
Krístján Gunnarsson með nýju smábátahöfnina í baksýn en hann vonast til að með þeirri höfn muni útgerð smábáta eflast. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
Atvinnuástand hejur batnað á Suðumesjum en blikur á lofti með haustinu
„Okkur vantar fleiri frumkvöðla
til að hefja atvinnurekstur“
- segir Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur og nágrennis
„Atvinnuleysi hefur
farið stigminnkandi
og núna erum við að
greiða 130 félags-
mönnum atvinnu-
leysisbætur. Þó að
það sé í sjálfu sér
há tala þá höfum við
séð töluna 500 þeg-
ar allt upp í 23% fé-
lagsmanna voru at-
vinnulausir síðast
liðinn vetur. Það er
atvinnuátak sveitar-
félaganna og afleys
ingastörf hjá varnar-
liðinu í sumar sem
hafa bætt ástandið.
Þegar þessu lýkur
með haustinu ótt-
umst við að atvinnu-
leysi fari vaxandi á
ný,“ sagði Kristján
Gunnarsson for-
maður Verkalýðs-
og sjómannafélags
Keflavíkur og ná-
grennis í samtali við
Alþýðublaðið.
Það er ekki af ástæðulausu sem
Kristján telur ýmsar blikur á lofti
varðandi atvinnumálin:
„Eg var að fá skeyti frá íslensk-
um aðalverktökum þar verið er að
tilkynna uppsögn 74 starfsmanna.
Þar af eru 39 í þessu félagi sem ég
er formaður fyrir. Bæði er um að
ræða sumarstarfsfólk og fólk í
fastri vinnu. Þetta er þvf verulegt
áfall. En verkefnastaða aðalverk-
taka er slæm og forsvarsmenn
þeirra hafa sagt mér að þeir séu
ekki bjartsýnir á framhaldið. Stað-
reyndin er sú að samdráttur í fram-
kvæmdum á Keflavíkurflugvelli
vegur þyngst í því atvinnuleysi
sem hefur verið hér og er enn.“
Erum leiguliðar í útgerð
Þó útlitið sé ekki að öllu leyti
björgulegt má þó einnig greina
Ijósa bletti á sumum sviðum.
„Við erum svo sem ekki von-
lausir um að einhverjum takist að
fá vinnu. Ég veit að ígulkera-
vinnslan í Njarðvík fer fljótlega á
stað aftur eftir nokkurt hlé. Mér
hefur verið sagt af forráðamönn-
um vinnslunnar að þeir muni ráða
allt að eitt hundrað manns til starfa
og þar af er stór hópur kvenna.
Svo er vonandi að ftskvinnslan
glæðist á nýju kvótaári. En það er
hægt að telja þá á fingmm annarar
handar sem hafa hætt sér út í ein-
hvers konar fiskvinnslu héma.
Fiskveiðistjómunin er okkur Suð-
umesjamönnum afskaplega
óhagsstæð. Sjómenn hér em meira
og minna leiguliðar útgerða norð-
ur í landi. Þar hafa menn peninga
og kvóta og það liggur við að það
sé pantaður fiskur í ákveðnum
stærðum sem passa í vélamar hjá
þeim. Utgerðin er öli f skötulíki
hér,“ sagði Kristján.
Þurfum fleiri frumkvöðla
„Auðvitað bindum við vonir við
aukna útgerð smábáta. Það er búið
að gera stórglæsilega smábátahöfn
hér og ég er vongóður um að út-
gerð smábáta takist vel. Islenskir
aðalverktakar eru búnir að ákveða
sína þátttöku í atvinnuuppbygg-
ingu og það vekur bjartsýni um
einhverja nýsköpun. Svo er búið
að halda hér mikið af fundum og
ráðstefnum um úrbætur f atvinnu-
málum. Vonandi fer það að skila
meiri árangri en þeim að útvega
konum vinnu við að hella uppá
kaffi og smyrja snittur ofan f fund-
armenn.
Við þurfum fleiri frumkvöðla
eins og Sigurbjöm Sigurðsson
sem hefur hafið framleiðslu á
skútum. Menn sem þora að taka
ákveðna áhættu eins og alltaf hef-
ur verið f atvinnurekstri. En okkur
hefúr vantað frumkvöðla. Menn
em svo brenndir eftir misheppnað-
ar tilraunir á ýmsum sviðum eins
og til dæmis í fiskvinnslunni.
Menn leggja ekki út í þetta núna
með vaxtakerfið og bankana á
móti sér. Það er auðvitað meira en
að segja það að ætla sér að liefja
atvinnurekstur. En vonandi em
einhveijir tilbúnir að reyna og þá
er um að gera að styðja við bakið á
þeim,“ sagði Kristján Gunnarsson.
SG
Smíðar
skútur til
útflutnings
Smíði á skútum er
nú í undirbúningi í
slippnum í Keflavík.
Það er fyrirtæki Sig-
urbjörns Sigurðs-
sonar skipasmíða-
meistara sem stend-
ur að smíðinni í
samvinnu við danskt
fyrirtæki. Reiknað er
með að smíða 6 - 8
skútur fyrsta árið og
fara þær erlendan
markað.
Fyrirtæki Sigurbjöms heitir
Ventus hf. og á dönsk skútusmíða-
stöð lítinn hlutí fyrirtækinu. Fram-
Ieiðsla Ventusar verður seld undir
merki dönsku stöðvarinnar sem að-
stoðar við að koma þessari starfs-
semi á laggimar hér. Búist er við að
um 10 manns fái vinnu við skútu-
smíðamar í Keflavík þegar fram-
kvæmdir hefjast í haust.
SG
Sigurbjöm Sigurðsson skú tusmiður ásamt aðstoðarmanni. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason