Alþýðublaðið - 30.07.1993, Blaðsíða 9
vjs/vjoisvoMttionv nw » ijh
Föstudagur 30. júlf 1993
9
yUMFERÐAR
RÁÐ
ÁFENGISVARNARÁÐ
Fullorðinn maður kom að máli við einn fyrrum ritstjóra
Alþýðublaðsins og bað hann um að „koma þessari grein
í kratablaðið“. Greinin fer hér óbreytt á eftir:
Dæmigerður dagur!
í Degi á Akureyri birtist 6.
júlí síðast liðinn eftirtekt-
arverð grein undir fyrir-
sögninni „Láta sér annars
víti að varnaði verða“.
Hún er eftir Lúðvíg Egg-
ertsson og rekur frásögn
manns, sem hafði ráðið
sig til náms og starfs í
landi austan tjalds“. Síð-
asti hluti greinarinnar,
með millifyrirsögn:
„Dæmigerður dagur“, er á
þessa leið:
„Þegar venjulegur vinnuu'mi að
morgni nálgaðisl, mátti sjá ómerkta lög-
reglubifreið, eina eða ileiri, rölta eftir
umferðargötunni gegnt íbúðinni eða taka
sér biðstöðu í nágrenninu. Sjaldan var
um að ræða hina hefðbundnu vagna,
heldur minni senditíkur löggunnar, til
dæmis Lada-druslur nær samlitar göt-
unni eða í sterkari litum. Kvensnift var
gjaman við stýrið. Stundum hímdi lög-
reglubifhjól þama tímunum saman, jafn-
vel f slæmu veðri. En slíkar hrellingar
lögreglumanna voru úr sögunni nteð til-
komu myndupptökutækja. Svo oft hafði
ég séð þessi ökutæki, að ég þekkti hvert
þeirra tilsýndarog þurfti ekki að sjá núm-
erið.
Um leið og ég lagði af stað í bifreið
minni (eða strætisvagni), fylgdi einn úr
hersingunni mér eftir, rneðan unnt var
vegna umferðarinnar. Svo kallaði hann
annan upp eða aðra, og tóku þeir þá til
við eltingarleikinn. Fyrir kom, til dæmis í
miklu annríki eða á óvenjulegum tíma,
að notast var við „félagslegu ökutækin".
sjúkrabíl eða bíl fatlaðra og lamaðra,
jafnvel póstbíl, sem var þó sjaldan. Síðast
kom lögreglubíllinn sjálfur, og var það
ávallt svo. Söniu tilburðir voru viðhafðir
á heimleið. — Ef þeir misstu af mér á leið
til borgar, var leitað á bifreiðastæðunum.
Ef það gerðist á heimleið, var bíll settur á
vakt við hús mitt.“
Alþýðublaðið er beðið að birta
þennan kafla úr grein Lúðvígs Egg-
ertssonar til að minna á hvað ber að
varast hér á landi. Það má aldrei ger-
ast, að íslensk lögregla beiti þeim að-
ferðum, sem hér er lýst. - SS -
Fyrirsögnin „Dæmigeröur dagur!"
er hugarsmíö ritstj.
HAFLIÐAHELGI
í SKÁLHOLTI
Texti, myndir og tónar
fléttast saman á Sumar-
tónleikum í Skálholts-
kirkju um þessa helgi.
Höfundur flestra verk-
anna og þátttakandi í
flutningi þeirra er Hafliði
Hallgrímsson tónskáld
frá Edinborg og verð-
launahafi Norðurlanda-
ráðs frá 1986. Þrjár tón-
smíðar verða frumfluttar
að þessu sinni. í Skál-
holtsskóla verður sam-
tímis opin sýning á graf-
íkmyndum Hafliða.
Hafliði Hallgrímsson var vel
þekktur sellóleikari áður en hann
sneri sér verulega að tónsmíðum. Á
morgun, laugardag, klukkan 15, mun
hann leika á selló á móti Bimi Stein-
ari Sólbergssyni orgelleikara í nýju
verki sem Hafliði kallar Predikun á
vatni.
A sömu tónleikum mun sönghóp-
urinn Hljómeyki flytja tvö ný verk
eftir Hafliða undir stjóm höfundar-
ins, Myrtuskóg og Níundu stund, við
latínutexta frá miðöldum og ljóð
Baldurs Oskarssonar.
Enn fremur leikur Guðný Guð-
nrundsdóttir Offerto fyrir einleiksf-
iðlu, sem samið varárið 1991 í minn-
ingu Karls Kvarans listmálara.
Seinni partinn á nrorgun, eða
klukkan 17, verður tónlistin í hönd-
urn Kolbeins Bjarnasonar, Sigurð-
ar Halldórssonar og Péturs Jónas-
sonar. Þeir munu flytja tvö verk eftir
Hafliða Hallgrimsson, Tristiu fyrir
selló og gítar og Flug Ikarusar fyrir
einleiksflautu.
Auk þess eiga eftir að hljóma tvö
einleiksverk í viðbót og hafa þau
texta og ffásögn að bakgrunni, líkt og
algengt er hjá Hafliða. Það er Elegia
eftir Finnann Aulis Sallinen og Sept-
ulum eftir þýska tónskáldið Konrad
Lechner.
Hafliði Hallgrímsson mun á undan
laugardagstónleikunum ræða unr
tónlist srna og myndverk í húsakynn-
um Skálholtsskóla. Erindið hefst
klukkan 14.
Sunnudaginn 1. ágúst verða íyrri
tónleikar laugardagsins endurteknir
klukkan 15 og í messunni, þar sem
séra Guðmundur Oli Olafsson
mun þjóna fyrir altari, verður tónlist-
arflutningur af efnisskrám helgarinn-
ar.
Einsog ævinlega er aðgangur
ókeypis að Sumartónleikum í Skál-
holtskirkju. Bamagæsla verður í
skólanunr og áætlunarferðir verða frá
Umferðarmiðstöðinni, Biffeiðastöð
Islands, r Reykjavrk.