Alþýðublaðið - 30.07.1993, Side 5
Föstudagur 30. júlí 1993 ____________________________________^ i IV____________
Meirihluti bœjarstjómar í Keflavík afhjúpar minnismerkið „Hvorki fugl né fiskur“
5
„Mikill tími í umræður
en litlu komið í verk“
- segirAnna Margrét Guðmundsdóttir bœjarfulltrúi og gagnrýnir
meirihlutann fyrir máttlausar tilraunir til að bœta atvinnuástandið.
„Það sem af er þessu kjörtímabili hafa störf bæj-
arstjórnar markast mikið af því slæma atvinnu-
ástandi sem hefur verið á Suðurnesjum og þá
ekki síst hér í Keflavík. Alþýðuflokkurinn var með
hreinan meirihluta í bæjarstjórn síðasta kjörtíma-
bil og auk framkvæmda á þeim tíma lögðum við
grunninn að ýmsum verkefnum sem hafa orðið
að veruleika eftir að við misstum meirihlutann. Má
þar nefna dagheimili og dvalarheimili fyrir aldr-
aða. Við erum nú í minnihluta með fjóra bæjarfull-
trúa. Sjálfstæðismenn eru einnig með fjóra og
mynda meirihluta með fulltrúa framsóknarmanna.
Við höfum lagt áherslu á málefnalega gagnrýni á
störf meirihlutans og lagt öllum góðum málum
lið,“ sagði Anna Margrét Guðmundsdóttir bæjar-
fulltrúi í samtali við blaðið.
skólasel tekið í notkun þar sem ung
börn geta dvalið fyrir og eftir skóla.
Það var kominn vísir að þessu í
fyrrahaust en nú er verið að flytja
starfssemina í betra húsnæði þar
sem hægt er að taka við mun fleiri
börnum. Þama er boðið uppá mat og
starfssemin er öflug þar sem bömin
fá að reyna á sitt hugvit og þau fá
tækifæri til að læra þama ef þau
vilja. Það er mjög heimilislegt og
skemmtilegt andrúmsloft sem for-
stöðukonunni hefur tekist að skapa
bömunum.
Bókasafnið hefur búið við mjög
þröngan kost en í haust verður safn-
ið flutt í nýtt og stærra húsnæði sem
tekið var á leigu. Höfnin em í eigu
Keflavíkur og Njarðvíkur og þar var
ný smábátahöfn tekin í notkun fyrir
síðustu áramót. Það var ein af hug-
myndum Alþýðuflokksmanna að
gera smábátahöfn en mörgum þótti
hugmyndin grátbrosleg. Nij er höfn-
in komin og er afskaplega mikil
bæjarprýði. Þama er góð aðstaða
fyrir smábáta. Þá vil ég nefna nýja
viðbyggingu við Fjölbrautaskólann
sem er samstarfsverkefni sveitarfé-
laganna og er ákaflega myndarleg
bygging. Með þessari viðbyggingu
er skólinn kominn með húsnæði
sem rúmar alla þá starfssemi sem
þar fer fram innandyra en áður var
hann til húsa á mörgum stöðum í
bænum. Loks vil ég nefna að bærinn
ætlar að taka á leigu húsnæði undir
æskulýðsmiðstöð sem ætlunin er að
reka í tilraunaskyni í eitt og hálft ár
til að byija með.
Það er því ýmislegt sem verið er
að gera og í Keflavík býr dugmikið
fólk sem þykir vænt um bæinn
sinn,“ sagði Anna Margrét Guð-
mundsdóttir bæjarfulltrúi.
SG
„Samstarf svcitarfélaga hcr á Suðumesjum er öflugt og hefur skilað góðum ár-
angri,“ segir Anna Margrét Guðmundsdóttir bæjarfulltrúi.
Alþýðublaðsmynd / Einar Olason
Hún sagði að atvinnuátak væri í
gangi á vegum sveitarfélagsins sem
væri fólgið í fegrun, gróðursetningu
og fleira í þeim dúr. Hins vegar skil-
aði þetta ekki störfum til lengri tíma
litið. En það væri brýnt að bæta at-
vinnuástandið í bænum.
„Þátttaka Islenskra aðalverktaka í
atvinnurekstri er nú að skýrast.
Keflavíkurbær keypti hlut Sam-
bandsins í Stakksvík fyrir einu ári á
42 milljónir króna og á nú 85% í
fyrirtækinu. Það hefur hins vegar
gengið afskaplega hægt að koma
málum fyrirtækisins á rekspöl og
skapa þannig atvinnutækifæri. Nú
hafa aðalverktakar ákveðið að
kaupa fiskiskipið Eldeyjar-Boða og
leigja það Stakksvík. Islenskir aðal-
verktakai- veita samtals 300 milljón-
um til atvinnuuppbyggingar á Suð-
umesjum. Það hillir því undir að
loksins fari eitthvað að gerast sem
skilar árangri. Staðreyndin er sú að
það hefur farið óskaplega mikill
tími í alls konar umræður um at-
vinnumál en litlu komið í verk.
Meirihlutinn í bæjarstjóm hefur ver-
ið hálf máttlaus í að finna einhveijar
lausnir í atvinnumálum," sagði
Anna Margrét.
Mikil ásókn fyrirtækja í bæj-
arábyrgðir
Það kom fram í máli Önnu
Margrétar að minnihlutinn hefur
lagt kapp á að sýna ábyrgð í störfum
sínum og ekki staðið í því að flytja
tillögur sem ekki skili árangri í að
finna ný störf. Málefnin hafa verið
látin ráða og fulltrúar Alþýðu-
flokksins verið virkir í umræðunni
um hvaðeina sem til framfara horfir.
„Það sem hefur einkennt undan-
farin misseri er mikil ásókn fyrir-
tækja í bæjarábyrgðir. Segja má að
um holskeflu sé að ræða miðað við
það sem maður átti að venjast áður,
til dæmis á síðasta kjörtímabili.
Þetta endurspeglar kanski þann
raunveruleika sem við stöndum
frammi fyrir í dag. Mörg þessara
fyrirtækja hafa fengið bæjarábyrgð-
ir en því miður hefur það ekki í öll-
um tilfellum orðið til að skapa þau
atvinnutækifæri sem við vonuðumst
til,“ sagði Anna Margrét ennfremur.
Hvorki fugl né fiskur
Við vikum talinu að framkvæmd-
um á vegum bæjarins og um þær
sagði Anna Margrét meðal annars:
„Við gerð fjárhagsáætlunar lagði
minnihlutinn til að lokið yrði bygg-
ingu sundmiðstöðvar. A síðasta
kjörtímabili réðumst við í það mikla
átak að byggja hér nýja sundmið-
stöð, en það á eftir að byggja við
hana innilaug. Við vildum að farið
yrði í það verkefni. Framkvæmdin
yrði atvinnulífinu til góða og skap-
aði síðan vinnu þegar verkefninu
lyki. Þessi tillaga okkar var ekki
samþykkt. Hins vegar fór meirihlut-
inn í gagngerar breytingar í skrúð-
garðinum sem við teljum ótímabær-
ar og þetta skapar enga atvinnu þeg-
ar frá líður. Meirihlutinn reisir sér
hins vegar ákveðið minnismerki
með þessu og því vel við hæfi að
þarna var vígt listaverk 16. júní sem
heitir „Hvorki fugl né fiskur“.
í kosningabaráttunni lágum við
undir miklu ámæli andstæðinganna
fyrir að íþyngja fbúunum með mikl-
um skattaálögum. Við sýndum
nefnilega þann kjark og það þor á
síðasta kjörtímabili að hækka út-
svarsprósentuna í 7,5 vegna þess að
Keflavík er mjög tekjulágt sveitar-
félag miðað við mörg önnur hér í
nágrenninu. Við gerðum þetta til að
geta nýtt alla tekjustofna og fengið
framlag úr jöfnunarsjóði sveitarfé-
laga. Andstæðingamir gagnrýndu
þetta hart og kváðust mundu breyta
þessu ef þeir næðu völdurn. Þeir
fengu meirihluta en reyndin er sú að
útsvarsprósentan er enn 7,5 og ekk-
ert sem bendir til að hún lækki. Hinn
nýi meirihluti lækkaði hins vegar
álagningastuðul á fasteignagjöldum
úr 0,40 í 0,36 en fækkaði jafnframt
gjalddögum úr tíu niður í fimm. Sú
ákvörðun okkar að hækka útsvars-
prósentuna á sínum tíma er búin að
skila Keflavíkurbæ 225 milljónum
króna úr jöfnunarsjóðnum og það
var það sem við horfðum til þegar
við vorum að nýta okkur þessa
tekjustofna. Ýmsir þeirra sem nú
sitja í meirihluta höfðu þá uppi
ófógur orð um þennan jöfnunarsjóð,
en þeir fúlsa ekki við þeim pening-
urn sem koma úr sjóðnum í dag.“
Öflugt samstarf sveitarfélaga
Sem fyrr segir hafa fulltrúar
minnihlutans lagt öllum góðum
málum lið og Anna Margrét sagði
að sem betur færi væri ýmislegt já-
kvætt að ftnna:
„Samstarf sveitarfélaga hér á
Suðumesjum er öflugt og hefur skil-
að góðum árangri. Af samstarfs-
verkefnum má nefna sameiginlegt
tjaldstæði Keflavíkur og Njarðvíkur
sem opnað var á þessu ári og það má
strax merkja aukningu á ferða-
mönnum í bænum. I haust verður
íslandsmeistaramótið í golfi hefur staðið yfir undanfarna daga á Iiólmsvelli í Leiru, en mótinu lýkur í dag. Meðal þátttakenda er núverandi íslandsmeist-
ari kvenna, Suðurnesjakylfingurinn Karen Sævarsdóttir. Það eru á þriðja hundrað þátttakendur í mótinu og hér er það Ágúst Ingi Jónsson, fréttastjóri á
Morgunblaðinu, sem slær kúluna.
Alþýðublaðsmynd / Einar Olason