Alþýðublaðið - 05.08.1993, Blaðsíða 6
6
SKILABOÐ & MYNDLIST
Fimmtudagur 5. ágúst 1993
Athyglisverð sýning opnuð í Nýlistasafninu
Erlendur gestur Og
ellefu Islendingar
*
Islensku listamennirnir eiga það öll sam-
merkt að hafa útskrifast úr mismunandi
deildum Myndlista- og handíðaskóla íslands
á árunum 1990 til 1992. A sýningunni eru
meðal annars Ijósmyndaverk, málverk,
textílverk, innísetningar og skúlptúrar.
A morgun, föstudag klukkan 20, verður opnuð
samsýning ellefu ungra íslenskra myndlistarmanna
og eins erlends gests, myndlistarmannsins Ralf
Samens frá Sviss, í Nýlistasafninu að Vatnsstíg
3B. íslensku listamennirnir sem eiga þarna verk
eru Finnur Arnar, Guðmundur Rúnar Lúðvíksson,
Jóhann Valdimarsson, Jón Garðar Henrýsson,
Katrín Askja Guðmundsdóttir, Lilja Björk Egilsdótt-
ir, Lind Völundardóttir, Magnús Sigurðsson, Sig-
urður Vilhjálmsson, Þórarinn Blöndal og Ragnheið-
ur Ragnarsdóttir.
Sýningin á verkum Ralf Samens
verður í Setustofu safnsins. Hann er
þýskur en búsettur í Sviss og staddur
hér á landi á vegum Bem-borgar.
Sýning Samens er liður í ferðalagi
hans til sex borga; Reykjavíkur, Bel-
fast, Helsinki, Poznan, Riga og
St.Pétursborgar.
Að sögn talsmanna Nýlistasafns-
ins er markmið ferðalags Samens að
kynna sér verk ákveðinna lista-
manna í þessum borgum og það um-
hverfi sem þeir vinna í.
Listamaðurinn leggur út net milli
fjarlægra punkta á útjöðrum evr-
ópskrar myndlistar og er því milli-
liður tengsla á milli óskyldra menn-
ingarsvæða.
Verkum sínum skiptir Samens í
fimm svokölluð vinnusvið: Manna-
myndir unnar í leir, blaðaljósmynd-
ir, sóthluti, teikningar og uppákomur
sem ýmist eru framkvæmdar innan
safnaveggja eða í borgarumhverfi
samtímans (svo sem stórmörkuðum,
bönkum eða á neðanjarðarjámbraut-
arstöðvum). Umfjöllunarefni hans
er sjónarhomið á milli myndar og
áhorfenda, blekking augans og upp-
lifun andartaksins í hringiðu hvers-
dagsins.
Á sýningunni getur að líta sýnis-
horn frá þremur af fimm vinnusvið-
um Samens.
fslensku listamennirnir eiga það
öll sammerkt að hafa útskrifast úr
mismunandi deildum Myndlista- og
handíðaskóla íslands á ámnum 1990
til 1992. Á sýningunni em meðal
annars ljósmyndaverk, málverk,
textílverk, innísetningar og skúlptúr-
ar.
Sýningin verður opin daglega frá
klukkan 14 til 18 og mun henni ljúka
sunnudaginn 22. ágúst.
Grunnskólinn Sandgerði
Sérkennara vantar
við skólann
Við leitum að manneskju sem er reiðubúin til að taka að sér
umsjón og uppbyggingu sérkennslunnar.
Vegna forfalla vantar einnig kennara við skólann. Um er að ræða
2/3 stöðu smíðakennara og 1/1 stöðu almenns kennara.
Upplýsingar veita Guðjón Þ. Kristjánsson, skólastjóri, í síma
92-37436 og Þórunn B. Tryggvadóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma
92-37730.