Alþýðublaðið - 10.08.1993, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 10.08.1993, Qupperneq 3
Þriðjudagur 10. ágúst 1993 3 Húseigendur í viðgerðarhugleiðingum mega nú vara sig eftir dóm Héraðsdóms Reykjavíkur Mat á skemmdunum verður að greiða Húseigendur sem ætla að láta gera við hús sín, og þeir eru margir um þessar mundir, ættu að vara sig á að mat og könnun á ástandi fasteignarinnar kostar peninga. Nýlega gekk dómur í máli sem þessu í Héraðsdómi Reykjavíkur byggingafyrir- tækinu í hag. Húseigendur leita stundum til margra aðila og bjóða út viðgerðir á húsum sín- um. Þeir gætu lent í því að fá marga reikninga fyrir innlit fulltrúa viðgerðarað- ila. Það er því vissara að hafa hlutina á hreinu fyrirfram. í stuttu máli voru málavextir á þá lund, að húseigandi leitaði til byggingafyrir- tækis, sem sfðan kannaði ástand fasteign- arinnar og gerði tilboð í viðgerðina á grundvelli könnunarinnar. Tilboðinu var ekki tekið, en nú barst húseigandanum reikningur að upphæð um 10 þúsund krónur fyrir að skoða skemmdimar. Neitaði húseigandi að greiða þann reikning. Vísaði hann til þess að verktaka bæri að bera kostnað af til- boðsgerð og vinnu sem henni tengdist, venja væri fyrir slíku og vísaði hann til staðalsins ÍST-30 sem setti þá almennu reglu að ekki ætti að greiða fyrir slíka þjónustu. Byggingafyrirtækið taldi hins- vegar að staðallinn innibæri enga slíka al- menna reglu. Dómarinn komst að þeirri niðurstöðu að eigandi hússins hefði ekki sýnt fram á að venja væri til þess að ekki bæri að greiða fyrir þjónustu af þessu tagi. Ekki hefðu heldur samskipti aðilanna verið þess háttar sem staðallinn gerir kröfu um. Taldi hann reikning byggingafyrirtækis- ins ekki á neinn hátt ósanngjaman. Hús- eiganda var gert að greiða fyrir þjónust- una, sem og málskostnað alian, fyrir sig og byggingafyrirtækið. Fjölmargir aðilar hafa til þessa látið meta skemmdir húseigna sinna án jress að þurfa að greiða sérstaklega fyrir þær. Fyr- irtækin hafa sent fulltrúa sína á vettvang til slíkrar könnunar án þess að greiðsla kæmi fyrir. I kjölfar dómsins má allt eins búast við að þetta breytist. Hagvirki - Klettur bauð lœgst í vegaframkvœmdir í Bólstaðarhlíðarbrekku Tilboðið 53 milljónir undir kostnaáaráætlun Vegagerðin sparar samtals 64 milljónir d aðeins fjórum útboðum Átta fyrirtæki buðu í fram- kvæmdir við vegarkafla á Norðurlandsvegi við Ból- staðarhlíðarbrekku þar sem lagður verður nýr vegur með bundnu slitlagi. Kostn- aðaráætlun Vegagerðar rík- isins nam 148 milljónum króna. Hagvirki - Klettur hf átti lægsta tilboð í verkið eða tæpar 95 milljónir sem er 64,1% af kostnaðaráætl- un og 53 milljónum undir áætlun. Hæsta tilboðið var 109 milljónir sem er 73,9% af kostnaðaráætlun. Útboð í fjögur verk vom opnuð hjá Vegagerðinni á dögunum. Ekki vom öll út- boðin jafn hagstæð og í Bólstaðahlíðar- brekku. Eitt verkið er rannsóknir í Gilsfirði og hljóðaði kostnaðaráætlun upp á 9,5 milljónir. Fjögur fyrirtæki sem buðu vom fyrir ofan þá áætlun en tvö fyrir neðan. Bjöm og Gylfi vinnuvélar buðu hæst eða 14,8 milljónir sem er 155,3% yfir áætlun Vegagerðar. Lægsta tilboðið var fra Suður- verki hf á Hvolsvelli 7,6 milljónir. Níu fyr- irtæki tóku þátt í útboði á 100 ljósastaurum á Álftanesvegi. Kostnaðaráætlun nam lið- lega sjö milljónum en lægsta tilboð átti Breiði í Staðarsveit tæpar fjórar milljónir. Loks vom opnuð tilboð í burðarlag á vegar- kafla á Nesvegi á Reykjanesi. Kostnaðar- áætlun var 26,4 milljónir en Klæðning hf. í Garðabæ bauð lægst eða 20,6 milljónir. Miðað við að lægstu tilboðum verði tek- ið í ofangreind verk nemur spamaður Vega- gerðarinnar samtals 64 milljónum miðað við kostnaðaráætlun. finnáll 10. ágúst Atburðir dagsins 1846 - Smith.soniun-stofnunin sett á stofn í Washington. 1889 - Einkalcyfi fæst í Englandi á flöskuskrúfgangi. 1896 - Þýski flugbrautryðjandinn Otto Lillcnthal deyr. 1913 - Búkarestsamningurinn endar annað Balkan-stríðið. 1961 - Umsókn Bretlands í Efnahagsbandalag Evrópu. 1964 - Mick Jagger sektaður um 32 £ fyrir umferðarbrot. 1966 - Fyrsta bandaríska gervitunglinu skotið á loft. 1969 - Ófrisk Sharon Tate myrt af gengi Charles Manson. Afmœlisdagar Cavour grcifi - 1810 ítalskur þingmaður og forsætisráðherra. Aleksundcr Koastantinovich - 1865 Rússneskt tónskáld. Herbert Hoover - 1874 Bandarískur repúblikanaforseti. Málsháttur dagsins „Betra er að deyja dýrlega en lifa við skömm.“ 25. kapítuli Róvents sögu. Fomsögur Suðurlanda, Lundi 1884. 1984 - MARY VS. ZOLA BUDD Á ÓLYMPÍULEIKUNUM í L.A. Mary Deckcr, hin bandaríska gullstúlka frjálsíþróttanna, datt í dag út úr 3.0(M) metra úrslitahlaupinu á Ólympíulcikunum í Los Angeles. Atvikið gcrðlst |)cgar Deckcr, scm vann tvöfalt á heirns- mcistaramótinu í Helsinki í fyrra, hrasaði um fótlegg hiaupakon- unnar bcrfættu, Zolu Budd. En hún er Suður-Afríkubúi sent ný- lcga fékk cnskan ríklslxirgararétt til að kcppa fyrir landið á Ólympíuleikunum. Zola var umsvifalaust dæmd úr keppni cn þeint úrskurði var síðan brcytt al' sérstökum átta manna dómstóli því sannað þótti að Dcckcr hcfði orðið fómarlamb cigin hlaupastíLs sem þykir nokkuð „grimmur". Decker fékk taugaáfall við slysið. filþýðublaðið 10. ágúst 1968 Ríkisstjórnin og stjórnarandstaðan sammála... „Um eitt em ríkisstjómin og stjómarandstaðan sammála. Það er. að ekk- ert böl sé fslenzku þjóðinni verra en atvinnuleysi. Verði því að leggja megináherzlu á að tryggja fúlla atvinnu og beita öllum tiltækum ráðum til að ná því marki. í sumar hefur verið allmikið atvinnuleysi meðal skólafólks, en lítið sem ekkerl meðal fjölskyldufeðra. Verður að minnast þess, að árgangar skóla- æskunnar em nú svo nemur þúsundum fjölmennari en fyrir fáum áratug- um. Á sama tíma hefur sumarvinna, svo sem við heyskap eða saltfisk- þurrkun dregizt saman. Verður því að taka jietta mál til athugunar á nýj- um gmndvelli með tilliti úl framtíðarinnar." segir í leiðara blaðsins mcð yfirskriftinni: SALA OG ATVINNA. Che Guevara meiri kvennamaður en skæruiiði... „Che Guevara var engin hetja. Mánuðum saman fyrir dauöa sinn í fmm- skógum Bólivíu var hann niðurbrotinn maður. Hann var óömggur, ör- vænlingarfullur og þreyttur á stríðinu. Hann hafði fengið sig fulisaddan af skæmhemaði og hinni ómannlegu lífsbaráttu í fmmskógunum. Hann var þjáður af sjúkdómum og skordýrabiti. Che Guevara var ekki iengur hinn virti foringi. Hann tók ekki þátt í bar- dögum heldur lét aðstoðarmcnn sína um stjómina. Hann sat og skrifaði. Che v;tr fyrirmynd þúsunda ungra manna um allan heim, en hann reis ekki undir |ieirri goðsögn, sem um hann myndaðist eftir dauða hans. Hann hafði setn sagt misst stríðsgleði sína, þegar til Bólivíu kom. Hins vegar missti hann aldrei áhugann á fögmm konum og skriftum. Fagrar og kátar konur hópuðust alltuf í kring um hann. Hann var mun harðfengnari kvennamaður en skæmliðaforingi," scgir í aflyúpunarfrétt hlaðsins um þcssa byltingarhetju allra tínia. Kyrirsögnin er: Che Guevara hafði mciri áhuga á konunt cn stríði. Svona var sjónvarpsdagskráin árið 1968... SVNNVDAGUR11. ÁGÚST1968 -18.00: Helgisttmd. Séra Jón Bjarm- an. 18.15: Hrói Hötmr. íslcnzkur texli: Ellcrt Sigurbjömsson. 18.40: Lassie. íslenzkur texti: Ellert Sigurbjömsson. 19.05: Hlé. 20.00: Frétlir. 20.20: Samleikur ú tvö pianó. Gísli Magnússon og Stefán Edelstein leika „Scaramouch" eftir Milhaud. 2030: Myndsjá. Umsjón: Ólafur Ragnars- son. 21.00: Mavcrick, Aðalhlutverk: Jack Kelly. íslenzkur tcxti: Krist- mann Eiðsson. 21.45: Frúronfégrœðgi. Brezk sjánvarpskvikmynd gerð eftir þremur sögum franska rit- höfundarins Guy de Maupassant. Aðalhlutverk: Milo O'Sltea, Bry- an Pringle, Barbara Hicks, Clare Kelly, Keith Marsh og Elisabeth Begley. Leikstjóri: Gordon Fle- myng. íslenzkur texti: Óskar lngintarsson. 23.40: Dagskrár- lok ALÞÝBUBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST1968 RITSTJÓRAR: Kristján Bersi Ólafs- son (áb.) og Benedikt Gröndai - FRÉTTASTJÓRI: Ámi Gunnarsson - AÐSETUR: Alþýöuhúsið við Hverfisgötu, Reykjavik - PRENT- SMIÐJA: Prentsmiðja Alþýðu- blaðsins - ÚTGEFANDI: Nýja út- gáfufélagið í lRVÐl! B ! Ð SKFIRÐINGAR SELJA SÍLD MR MILUÓNIR ERLENDIS Ótal fréttir hafa borist af hinni lélegu grásleppuvertíð á þessu ári. Framlenging sjávarútvegsráðuneytisins á veiðitímabilinu um einn mánuð hefur breytt litlu þar um. Raunar eru mjög skiptar skoðanir meðal grásleppu- veiðimanna hvort framlengingin sé æskileg. Margir þeirra telja að stofninum veitti ekki af hvíldinni eftir hefðbundinn veiðitíma. Hafrannsóknastofnun hefur þó ekki séð ástæðu til að hafa af þessu áhyggjur og telur hún að veiðin sé sáralítill þáttur í sveiflunum í stofn- stærðinni. Það er því ágætis tilbreyting frá hinum döpru aflafréttum að skyggnast eilítið til baka í sögu þessara veiða og nytjanna á fiskinum. Beitan dýrmæt Þar scm við íslendingar stunduðum nánast eingöngu öngulveiðar fram undir síð- ustu aldamót urðu sjómenn að útvega sér beitu á krókinn. Enginn var þá gervitálbeit- an fyrir beruni önglinum þannig að allt var talið skárra en dangla með hann beitulau.v an. Það cr þó augljóst að eitthvað hefur sá guli verið þéttari í sjónum þá en nú, því það kom fyrir að gert var út á að krækja hann í bert jámið. Algcngast var þetta við suður- ströndina þegar fiskur var allur uppi í sjó. En beitan var dýrmæt og til er mikið af hcimildum sem greina firá hversu þungt hún vóg í kjöram sjómanna ásamt því að eig- endur skelfiskfjara tóku leyfisgjald af nytjum á slíkum fjörum. Einn er sá misskilningur sem íslendingar hafa margir staðið í. í allri okkar útgerð- arsögu hefur sfldin, þessi tálbeita, aðcins verið notuð í stuttan tíma lil beitu svo telj- andi sé. Þetta er með ólíkindum þegar það er haft í huga að sumstaðar gátu menn jafn- vel ausið henni upp í báta sína með flátum einum saman. Grásleppan nýtt tO beitu Mcðan veiðar okkar voru eingöngu stundaðar með handfærum var nánast allt hugs- anlegt notað til beitu. Algengust var þó svokölluð Ijósabeita. Ljósabeita er hvers kyns beita af bol eða haus fisks, ásamt því að beita úr innyflum var kölluð sama nafni. Þetta var þó ekki algilt. Þannig var til dæmis sérstakt heiti yfir þá bcitu sem kom innan úr og af grásleppunni og hún kölluð rœksnisbeita. Fyrst og fremst voru innyfli hennar nýlt, en einnig eitthvað af bolnum. Notkun grásleppu til beitu var að öllum líkindum ekki mjög algeng en engu að síð- ur var hún talin hin mesta tálbeita fýrir þorsk. Ræksnisbeita varð vinsælust við Faxa- flóann og farið að veiða hrognkelsi þar eingöngu úl beitu snemma á 19. öldinni. Höfðu menn þar svo góða reynslu af henni að þeir töldu lítið á sjó að gera á vetrar- og vorvertíð ef hennar nyti ekki við. Algengasta aðferðin til að nýta grasleppuna með þessum hælti var að vitja um rœksnisnetin á leiðinni á miðin og var fiskurinn þá not- aður sem kjölfesta á leiðinni út. Sjómenn höfðu af því reynslu að illt var að vitja netj- anna á landleiðinni og ætla að nýta aflann úr þeim daginn eftir. Slógið var þá strax orðið lclegt til beitu. Til er skemmtileg heimild um hvemig einstaka sjómenn fundu rað við þessum vanda. Væri netjanna ekki vitjað á landleiðinni var grásleppan sett í sjávarpolla og brugð- ið á það ráð að gera gat á kamb þcirra og þræða band í gegn. Þannig geymdist hún bæði lifandi og litlar líkur á að hún slyppi úr prísundinni. Grásleppan sem bjargvættur Það kreppti oft að á vorin ner áður fyrr og fólk hafði lítið eða ekkert neytt nýmetis langtfmum saman. Þá eins og nú kom vorganga af grásleppu og var hún oft vel þeg- in. Ljóst er að hún kom á stundum í veg fyrir mikla neyð þegar haffs rak upp að land- inu eða náttúruöflin lögðust hart á mannfólkið. Fáir fiskar ganga jafn grunnt og grá- sleppan og fýrir kom að bömin gátu fært björg í bú með óvcnjulegum hætti. Svartbakurinn er sólginn í lifur hrognkelsisins. Veiðiaðfcrð hans byggist á því að læsa goggnum utan um kamb hrognkelsisins og stýra því á þurrt þar sem hann getur rifið fiskinn á hol. Kæmust böm að fuglinum áður en veislan hófst var fiskurinn heill og þau gátu fært hann heim í búið. Ekki er vafi á að margur íslendingurinn hefur með þessum hætti fundið í fyrsta skipti gleðina sem skapast við þá gjörð að taka með virk- um hætti þátt í framdrattum heimilisins. Fjölbreytt nýting Utan þess að nýta grásleppuna til beitu var hún ásamt rauðmaganum nýtt á allra handanna máta. Fiskurinn var reyktur, hertur, soðinn og saltaður ásamt því að hrogn- in og hveljan voru nýtt. Hveljan var meðal annars notuð til skógerðarog það jafnvel fram á þessa öld. Búfénaðurinn fór heldur ekki varhluta af nýtingu hrognkelsanna. Þar sem mikið var af grásleppunni kom fyrir að hún var gcíin skcpnunum soðin. Vanheilum skepnum vora gefin strokkuð hrogn og til er frasögn sem segir að kúm sem gefin vora hrogn- kelsi hafi mjólkað vel. í dag er aðalnýting grásleppunnar hrogn hcnnar til útflutnings. Hrognin hafa þó ekki aðeins verið nýtt á þessari öld. Fyrram vora þau nýtt til ostagerðar, soðin úr þeim grautur og bökuð brauð. ......... Og svo þjóðtrúin í Þjóðsögum Jóns Ámasonar er að finna upplýsingar um uppmna hrognkelsanna. Sagan segir að Kristur hafi eitt sinn gengið með sjó frarn og í fylgd hans var Sankti Pétur. Hafi Kristur þá hrækt í sjóinn og af því varð rauðmaginn. Hrækti þá Sankti Pét- ur cinnig í sjóinn og varð af þvf grásleppan. Hvort vísindamenn nútímans hafa eitt- hvað betri upplýsingar um uppmna þessa „ljótfríða" fisks verður ekkert fjallað um hér.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.