Alþýðublaðið - 13.08.1993, Side 9
Föstudagur 13. ágúst 1993
MINNING
9
Þorbjörg Grímsdóttir
frá Litla-Seli
fœdd 8. júlí 1889
dáin 3. ágúst 1993
Á Litla-Seli í Reykjavík bjuggu allan
sinn búskap hjónin Katrín Eyjólfsdóttir frá
Hausastaðakoti á Álftanesi og Grímur
Jakobsson frá Litla-Seli. Hún var sauma-
kona og hann sjómaður. Hinn 8. júlí 1889
eignuðust þau dóttur sem skírð var Þor-
björg og er hún nú, 104 árum síðar, til
moldar borin. Þorbjörg var þegar hún lést
elst fæddra Reykvíkinga. Ibúar Reykja-
víkur voru innan við ijögur þúsund þegar
stúlkan var í heiminn borin og þá var
Reykjavík, þrátt fyrir höfuðstaðarréttindi í
meira en 100 ár, líkari sjávarþoipi en höf-
uðstað. Borgin dafnaði og stúlkan með.
Starfsvettvangur Þorbjargar var, eftir að
hún giftist Aðalbimi Stefánssyni prentara,
á heimili þeirra að Skólavörðustíg 24a.
Þar fæddi hún og ól upp með manni sínum
átta böm og veitti skjól gestum og gang-
andi. Hún fékk í móðurarf gjafmildi og
rausn móður sinnar Kötu á Seli, konunnar
sem alltaf hafði tíma og hjartarúm til að
taka að sér böm sem vantaði íverustað um
skamman eða langan tíma.
Samband mæðra og dætra og áhrif
þeirra til mótunar umhverfis síns var
meira áður fyrr en nú er á tímum hraða og
örra breytinga. Vandinn sem felst í því að
vera manneskja byggir á þeim tíma sem
gefst til að rækta tengsl við aðra og um
leið sinn innri mann. Þann tíma höfðu þær
mæðgur. Jafnrétti var á heimilum þeirra
og gagnkvæm virðing. Á Litla-Seli var
enginn spurður þegar bam var tekið í fóst-
ur og ekki vom mótmæli fram borin þótt
einu eða öðm væri vikið að þeim sem
gengu um garð. Eins var heimilið á Skóla-
vörðustíg 24a. Þar stóðu dyr opnar fóstur-
systur Þorbjargar með böm sín eftir að
hún varð ekkja.
Aðalbjöm lést árið 1938 meðan öll böm
þeirra vom heima. Fjögur giftust og stofn-
uðu heimili, en fjögur þeirra bjuggu áffam
með móður sinni á Skólavörðustígnum.
Síðasta spölinn fylgja henni í dag yngsta
dóttir hennar kær og elsti sonurinn, hin em
farin á undan. Öll áttu þau það sameigin-
legt að gera móður sinni ellina sem ljúf-
asta og eftir að skörð fóm að koma í
bama- og tengdabamahópinn tóku bama-
bömin einnig við að hlúa að henni. Átti al-
nafna hennar ótalin spor til hennar. Síð-
ustu árin á Skólavörðustígnum bjó hún ein
með lrumburði sínum, syninum elsta sem
hún bar undir belti þegar hún fluttist þang-
að. Á sjötugasta og áttunda afmælisdegi
hans, 3. ágúst, kvaddi hún þennan heim.
Vinnulúnar verkamannshendur hans fóm
mildum höndum um hana meðan heilsa
hennar leyfði að hún væri heima.
Þrjú síðustu árin var Þorbjörg í umönn-
un á dvalarheimili aldraðra að Droplaug-
arstöðum, þar átti hún góða daga. Fallegu
ským augun hennar lýstu alltaf upp og
bros fór um andlitið þegar starfsfólkið
sem annaðist hana birtist og sýndi það bet-
ur en nokkur orð umhyggju þeirra.
Niðjar, skyldmenni og vinir Þorbjargar
frá Litla-Seli kveðja í dag með virðingu
og söknuði konu sem hefur lifað í sátt við
guð sinn og jarðvist. Blessuð sé minning
hennar.
Dætur fóstursysturinnar Önnu
Gísladóttur frá Litla-Seli.
Inga Ingibjörg og Sigríður Guð-
mundsdætur
Dagskrá
60 ára afmælis
Hvolsvallar
Föstudagur 13. ágúst:
Kl. 22.00 til 02.00, Afmælisdansleikur í hátíðartjaldi aftan við Félagsheimilið Hvol. Hljóm-
sveitin Jet Black Joe leikur. Aldurstakmark miöast við fermingarböm og eldri.
Laugardagur 14. ágúst:
Kl. 10.00 til 12.00. Útivist, ganga, leikir, hugvekja.
Lagt af stað frá Stórólfshvolskirkju kl. 10.00. Gengið á Hvolsfjall. Helstu kennileiti kynnt
undir leiðsögn Kristínar Guðmundsdótturá Stórólfshvoli. Farið í leiki. Göngunni lýkur með
hugvekju í Stórólfshvolskirkju. Siguröur Haraldsson á Komvöllum flytur.
Félagsheimilið Hvoll:
Kl. 15.00 til 17.00. Hátíðardagskrá í Félagsheimilinu Hvoli:
Setning: Helga Þorsteinsdóttir, oddviti Hvolhrepps.
Hvolsvöllur, hvemig varð hann til og hvemig er hann I dag?
Margrét ísleifsdóttir, Pálmi Eyjólfsson, Kristín Jóhannsdóttir og Stefán Davíð Helgason
flytja ásamt fleirum.
Píanóleíkur: Agnes Löve, skólastjóri Tónlistarskóla Rangæinga.
Ávarp: Friðjón Guðröðarson, sýslumaður Rangæinga.
Karlakór Rangæinga flytur sérstakan texta í tilefni afmælisins, við lagið Undir bláhimni.
Umhverfisverðlaun 1993 verða afhent.
Ljósmyndasýning Ottós Eyfjörðs.
Afmæliskaffi.
Veislustjóri Benedikt Árnason, leikstjóri á Tjaldhólum.
Kl. 22.00 til 02.00: Hátíðardansleikur f Félagsheimilinu Hvoli. Milli kl. 22.00 og 23.00
veröur óvænt hressing í boði umboðsverslunar K. Karlssonar hf. „ekki tapar sá er fyrstur
fær“. Hljómsveitin Hálft í hvoai sér um fjörið. Opinn bar eftir kl. 23.00. Atdurstakmark 18
ár.
Hátíðartjald:
Kl. 15.00 til 17.00. Dagskrá fyrir ungu kynslóðina í hátíðartjaldi.
Leiktæki fyrir böm, hæfileikakeppni, hlutavelta, hestar, o.fl. Veitingar af útigrilli.
Kl. 17.00 til 18.30. Diskótekið - Bakkabræður - fyrir yngstu kynslóðina.
Kl. 22.00 til 02.00. Diskótekið - Bakkabræður í hátíðartjaldi.
Hlíðarendaplanið:
Kl. 17.00 til 17.45. Fombílaklúbburinn sýnir glæsikerrur liðins tíma.
Björgunarsveitin Dagrenning sýnir klifur við kaupfélagsvegg.
Sunnudagur 14. ágúst:
Hátíðarmessa í Stórólfshvolskirkju kl. 14.00. Prestur Sr. Sigurður Jónsson.
Hvolhreppingar eru hvattir til þátttöku sem og brottfluttir íbúar.
SPARIfi ÞU8UNDIR KRONA. OLL GOLFEFNIA EINOM STAO.
DÚKAR - FLÍSAR - PARKET - TEPPI - NIOTTUR - AFGANGAR. TAKID MÁUN MED.
20-50 %
*tsa\*
?tsa\*
15-30%
12-20%
*tsa\*
20-30%
#ts a\*
?tsa\%
kredit
11. mán
AFGANGAR MEÐ ALLT
AÐ 70% AFSLÆTTI
raðgreiðslur
18 mán
(15-70%)
(15-50%)
1
S
TEPPABUÐIN
SUÐURLANDSBRAUT 26 • SÍMAR 681950 ~ 814850