Alþýðublaðið - 18.08.1993, Page 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Miðvikudagur 18. ágúst 1993
KORPÚLFSSTAÐIR
I' 4:;c
iíCv- lííÍC'C: C? : ;c
Korpúlfsstaðir, glæsibú Thors Jensens, sem lengi hefur fyllt hóp eyðibýla landsins. Thor keypti jörðina árið 1922 og reisti þar stærsta kúabú landsins. Reykjavík-
urborg keypti mannvirki og jörð á stríðsárunum síðari. Alþýðublaðsmynd / Einar Olason
OLINA ÞORVARÐARDOTTIR, - varar við fleiri Perlu- og Ráðhússævintýr-
um þegar ráðist verður i byggingu eða endurbyggingu Listasafns Reykjavíkur
á Korpúlfsstöðum.
Alþýðublaðsmynd / Einar Olason
um samningum að fari raunkostn-
aður fram úr frumáætlun, er dregið
úr þóknun til arkitektanna. Hins-
vegar fái þeir bónus ef kostnaður
verður undir áætlun.
Tíu ára
framkvæmdaáætlun
Samkvæmt drögum að heildar-
áætlun uppbyggingarinnnar á
Korpúlfsstöðum á ífamkvæmdin að
standa í tíu ár og vera lokið að fullu
árið 2003. Fyrst verður unnið að
hönnun og viðgerð aðalhúss og við-
bygginga og þær endanlega full-
búnar að utan í árslok 1995. Gert er
ráð fyrir að vinna við Errósafnið á
3. hæð hefjist ekki fyrr en 1996 og
ljúki árið á eftir. Síðari bygginga-
áfangar eru við forsal og aðra hæð
miðhússins, fjölnota sal, bókasafn
og fleira.
Nýtt hús á Korpúlfs-
stöðum, nákvæm eftir-
líking, eða það gamla
endurbyggt? Um þetta
er nú fjallað í borgar-
ráði. Gamla húsið er
nánast komið að fótum
fram að mati sérfræð-
inga í byggingalist.
Endurreisn hins gamla
stórbýlis Thors Jens-
ens sem Listamiðstöð
Reykjavíkur mun kosta
í það minnsta hálfan
annan milljarð króna
samkvæmt kostnaðar-
áætlun, og íslendingar
hafa slæma reynslu af
slíkum áætlunum svo
sem kunnugt er. Það
verður því dýrt að
byggja yfir hina miklu
listaverkagjöf Errós og
aðra þá starfsemi sem
verður að Korpúifs-
stöðum.
Á að rífa
eða byggja upp?
Ólína Þorvarðardóttir, borgar-
fulltrúi Nýs vettvangs, Iagði fram
tillögu í borgarráði í gær. Þar er gert
ráð fyrir að borgarráð samþykki að
vísa endanlegri ákvörðun um ffam-
kvæmdir á Korpúlfsstöðum til
fyrsta fundar borgarstjómar að
loknu sumarleyfi. Fram að þeim
tíma verði borgarverkfræðingi og
byggingadeild borgarinnar falið að
gera kostnaðaráætlanir um tvo áð-
umefnda valkosti sem til greina
koma við endurreisn Korpúlfs-
staða. Hér er átt við að endurbyggja
húsin í samræmi við fyrirliggjandi
teikningar; eða að rífa gömlu húsin
eða hluta þeirra og byggja ná-
kvæma eftirlíkingu.
í tillögu Ólínu segir að borgarráð
leggi áherslu á að skekkjumörk
verði látin kom ffam við báðar
áætlanimar svo og áfangaskipti og
tímaáætlun verksins. Þá verði enn-
ffemur leitast við að leggja mat á
mannaflaþörf framkvæmdanna.
Dýrara en frumáætlun
gerir ráð fyrir?
Ólína Þorvarðardóttir segir það
mat margra fagmanna að við svo
umfangsmikla endurbyggingu
mannvirkis, séu skekkjumörk áætl-
ana mjög stór, ekki síst þegar húsa-
kosturinn er í jafn bágbomu ástandi
og komið hefur í Ijós á Korpúlfs-
stöðum. Bendi því flest til að fyrir-
hugaðar framkvæmdir á staðnum
verði til muna dýrari en ffumáætlun
gerir ráð fyrir.
„Fram hafa komið rökstuddar at-
hugasemdir um að fremur muni
borga sig að rífa húsin og byggja að
nýju, heldur en að endurbyggja á
þann hátt sem áformað er“, segir
Ólína. „Reykjavíkurborg hefur
nógu oft brennt sig á stómm áætl-
anaskekkjum og má síst við nýju
Ráðhúss- eða Perluævintýri. Því er
óhjákvæmilegt annað en að fyrir
liggi sem nákvæmast hvemig unnt
sé að ná settu marki með sem
minnstum tilkostnaði, áður en
ákvörðun er tekin um svo umfangs-
mikla ráðstöfun á fjánnunum borg-
arbúa", sagði Ólína Þorvarðardótt-
ir.
Skekkjumörk eru
enn í áætlunum
Hróbjartur Hróbjartsson, arkitekt
hjá Vinnustofu arkitekta sf„ sem
hefur með hönnun á Korpúlfsstöð-
um að gera, sagði í viðtali við DV í
sumar að húsið væri afar illa farið
og gagngerar endurbætur yrði að
gera á því. „Áætlanir okkar sýna að
það er álíka dýrt að gera við Korp-
úlfsstaði og að byggja nýtt hús, það
er alveg ljóst. En kostnaðaráætlunin
er ekki háð þessu. Hönnunin er á
því stigi að teikningar liggja fyrir
byggingameffid og þá er um þriðj-
ungur hönnunarinnar að baki. Eftir
því sem hönnunin nálgast lokastig-
ið verða allar áætlanir nákvæmari,
en ennþá em skekkjumörk í þessum
áætlunum", sagði Hróbjartur í við-
talinu.
Hönnuðir hýrudregnir
gangi áætlun ekki upp
Fjárveiting til endurbyggingar
Korpúlfsstaða á þessu ári er um 150
milljónir króna. Rfflega helmingur
þeirrar upphæðar mun fara í hönn-
unarkostnað, sem talinn er verða
um 120milljónirþegarhönnun lýk-
ur.
Stefán Hermannsson, borgar-
verkfræðingur, segir að í samning-
um við hönnuði Korpúlfsstaða, sé
svo um samið að þeir geri kostnað-
aráætlun vegna verksins í þrígang,
auk þess sem áætlun sé haldið við
með leiðréttingum og endurskoðun.
Þá sé það nýnæmi að fínna í þess-
Hún á afmæli í dag, hún Reykjavíkurborg
Átjándi ágúst er afmælisdag-
ur Reykjavíkur. Borgin er 207
ára og síung og vaxandi. Afmæl-
isias verður minnst á tiihlýðileg-
an hátt.
Á hádegi í dag mun Markús
Öm Antonsson setja upp sérstakt
skilti á húsið Lækjargötu 2, en það
er eitt tíu húsa sem valin hafa ver-
ið af Árbæjarsafni sem söguleg
hús í borginni og verða þau merkt
sem slík.
1 miðborginni verður dixíband-
ið Stallah-hú á ferðinni frá hádegi
til kl. hálffimm. Á Austurvelli
verður Unnur Guðjónsdóttir með
dans-uppákomu fyrir böm og ung-
linga. Pétur Pókus töframaður
verður á ferðinni í miðbænum eft-
ir hádegi og sýnir ýmsar brellur og
töfrabrögð. Borgarmótið í skák fer
ffam í Tjamarsal Ráðhússins og
eidri borgurum boðið í Geysishús
á sýningamar Sjósókn og sjávar-
fang og Útivist og stígar í Reykja-
vík. Þar munu Karl Jónatansson
og félagar leika létta harmonikku-
tónlist.
Fjölskyldu- og húsdýragarður-
inn býður ókeypis aðgang í dag í
tilefni afmælisins.
Þá verður Siglingaklúbburinn í
Nauthólsvík opinn almenningi og
boðið upp á ókeypis bátsferðir. I
lok afmælisdags verður tilkynnt
um val á fegurstu götu Reykjavík-
ur og val á Borgarlistamanni
1993.
Eins og sjá má eru sjötíu ára veggir mannvirkisins á Korpúlfsstöðum víða að hruni komnir eftir áratuga vanrækslu við
viðhald hússins. Sérfróðir menn í byggingamennsku telja að affarasælast verði að brjóta þcssa veggi og byggja húsið upp
af nýju í stað þess að ráðast í viðgerðir. Alþýðublaðsmynd /Einar Ólason