Alþýðublaðið - 10.09.1993, Page 1

Alþýðublaðið - 10.09.1993, Page 1
* McDonald’s hefur opnað á Islandi GÆÐAKROFUR KOMU MATVÆLA- FYRIRTÆKJUM í OPNA SKJÖLDU - víða þurfti að grípa til róttœkra breytinga til aðfullnœgja hreinlœtis- og gœðastöðlum bandaríska hamborgararisans Gæðastaðlar McDonald’s komu eins og þruma yfir íslenskan matvæla- iðnað. Kröfumar eru harðar. Harðari en svo að ekki þyrfti verulegar endur- bætur í mörgum þeim fyrirtækja sem McDonald’s skiptir við, en þau em mörg. Alþýðublaðið hefur það fyrir satt að í nýlegum húsakynnum Mjólk- ursamsölunnar, hafi orðið að gera miklar breytingar; einnig hjá Reykjagarði í Mosfellssveit sem leggur til kjúklinga til staðarins; og hjá Kjötbankanum í Hafnarfírði, sem annast um hamborgaragerðina. McDonald’s í Reykjavík var kynnt blaðamönnum í gærdag, - en í gærkvöldi opnaði forsætisráðherra staðinn og fékk fyrsta opinbera Makkann, og það Big Mac. stjómarmaður í McDonald’s í Bretlandi, en hann er fyrrverandi blaðafulltrúi frú Thatc- hers, sem lengi hélt um stjómtaumana í Bretlandi. „Velgengni McDonald’s víða um heim stafar af mörgum þáttum, meðal annars þeirri staðreynd að fólk veit að hverju það gengur hjá okkur, hvort heldur það er í London, Moskvu, Hong Kong - nú eða Reykjavík", sagði Sir Bemard Ingham, Sir Bemard sagði að vissulega væri vel- gengni og vinsældir McDonald’s-veitinga- húsanna merkileg saga, en leyndarmálið væri í raun þetta, sömu gæði alls staðar, fúllkomið hreinlæti, og fljót og góð af- greiðsla. Sagði Sir Bemdard að vel hefði Gudlaugur Tryggvi fimmtugur Mikið fjölmenni heiðraði Guðlaug Tryggva Karlsson, hagfræðing, með nærveru sinni í Átthagasal Hótel Sögu í gærkvöldi í tilefni af fimmtugsafmæli kappans. GuðlaugurTryggvi hefur víða lagt hönd á plóg, hvort sem það er í kratastarfi, hestamennsku, kórsöng, ferðalög- um eða ritstörfum. Vina- og ættingjahópurinn er ljölmennur, það mátti sjá á mannfjöldanum sem heiðraði afmælisbamið. „Svona hlæjum við saman“, sagði utanríkisráðherra þegar hann heilsaði upp á Guðlaug Tryggva. Og sannarlega var þetta hrossahlátur hinn mesti. Til hamingju með að vera korninn í „senatið", GuðlaugurTryggvi. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason Miðvikudagskvöldið 15. september KRATAKAFFI - með formanninum Alþýðublaðinu hefur borist það lil eyma að næstkomandi miðvikudagskvöld fari Kratakaffi Alþýðuflokksfélagsins í Reykja- vík aftur í gang í Rósinni - félagsmiðstöð jafnaðarmanna í Reykjavík. Kvöldið hefst klukkan 20:30 og að vanda verða á boð- stólum veglegar veitingar. Búist er við fullu húsi þannig að vissara er að mæta með fyrra fallinu. Einsog menn hafa ef til vill getið sér til af fyrirsögninni þá verður gesturinn í Kratakaffi þetta kvöld Jón Baldvin Hanni- balsson formaður Alþýðuflokksins og utan- ríkisráðherra. tekist til hér á landi og hann gæti fullyrt að gæðin hér væm hin söntu og annars staðar hjá fyrirtækinu. Fjölmennt lið breskra McDonald’s- manna kom hingað til lands til að vinna að uppsetningu nýja staðarins við Suðurlands- braut. Vanir menn sem annast um rekstur slíkra staða í Bretlandi, sem eru orðnir 500 talsins. Við spurðum Peter Richards hvað stað- urinn gæti framleitt margar máltíðir á ein- um degi. Honum vafðist tunga um tönn og sagði að þær yrðu eins margar og eftir- spumin, allir mundu fá sinn hamborgara og það fljótt, en talið væri að 23 milljónir McDonald’s hamborgara væm snæddir á degi hverjum og færi þeim stöðugt íjölg- andi, enda McDonald’s opnaður á 8 tíma fresti allan sólarhringinn. Eftir öðmm leið- um var okkur sagt að steikja mætti 1.080 hamborgara á klukkustund á einu grilli, en þegar mikið liggur við er annað grill tilbúið. Framleiðslugetan hér á landi er því gífurleg. Hamborgarar hafa verið vinsælir hér á landi um langt árabil, og Tommahamborg- arar vom íslensk hamborgarakeðja í líkingu við bandaríska risalyrirtækið. En hvað segja talsmenn hamborgaraiðnaðarins ís- lenska. Við slógum á þráðinn til Jónasar Þórs Jónssonar, en kjötvinnsla hans er þekkt fyrir gott nautakjöt. „Það er margt gott um McDonald’s að segja, hreinlæti, hraða og annað. Þeir geta kennt okkur ýmislegt. En ég leyfi mér að fullyrða að þeir verða ekki með betra hrá- efni en til dæmis Tommahamborgastaðim- ir. Þeir em með fyrsta flokks ungnautakjöt. Eldhúsið hjá McDonald’s er þrælskipulögð aðgerð, scm tryggir góðan mat á mettíma. Hér eru ungir menn og konur að störfum í gær við annaö af tveim grillum veitingahússins. Alþýðublaðsmynd / Bnar Ólason McDonald’s auglýsir að þeir séu með sér- valið nautgripakjöt, það getur þýtt að þar sé notast við kjöt af eldri gripum. Mér finnst einhvemveginn eins og þetta erlenda fyrir- tæki vilji álíta sem svo að hér hafi ekki fyr- irfundist góðir hamborgarar, en það er nú öðm nær. Margir veitingastaða okkar nota aðeins fyrsta flokks ungnautakjöt, ferskt en ekki frosið, og nýbökuð brauð úr ofninum, sem hljóta að vera betri en þau sem flutt em milli landa", sagði Jónas Þór. En hvað kostar Stóri Makk, eða annar matur við Suðurlandsbrautina? Kjartan Öm brosti við og sagði að það yrði að koma í ljós á morgun, það er í dag. Margir bíða eft- ir þessunt verðskrám, einkanlega keppi- nautamir á markaðnum, og þeir em ntargir. Kjartan Öm sagði hinsvegar að verðið yrði hagstætt, og vel á færi fjölskyldnanna að njóta máltíðar hjá McDonald’s við Suður- landsbraut. Akureyri: Iðnaður í erfiðleikum - sjávarútvegur og opinber þjónusta dafna Litla Hong Kona" ” in ab draugabæ - en engin ástæía til a& ast ab Akureyrar bíði svipuð orlog og D|upavikur e&a Hjalt- eyrar - lönaóurinn hefur hrun- ib en sjávarútvegur og opin- ber biónusta kornið i sta&inn ■rrtg 90 í nýjasta tölublaði Vinnunnar, tíma- riti Alþýöusambands íslands, er að finna athyglisverða grein eftir Þröst Haraldsson á Dalvík sem ber fyrir- sögnina: „Utla Hong Kong“ oröin aö draugabœ. í greininni fjallar Þröstur um atvinnuástandið á Akureyri scm hefur verið með verra móti upp á síð- kastið. En Þröstur er ekki einn af þess- um dómsdagspredikurum sem ekkert sjá framundan nema svartnsetti og ný móðuharðindi. Hann bendir í grein- inni á að engin ástæða sé til að óttast, iðnaðurinn hafi jú orðið illa úti á síð- ustu árum, en við hafi tekið blómstr- andi sjávarútvegur og jafnlífieg opin- ber þjónusta. íbúum á Akurevri hafi og tjölgað um 570 manns á þremur ár- um sem sé meira en aðrir staðir á landsbyggðinni geti hrcykt sér af. .dkítta fólk hefur ekki sest að í flótta- mannabúðum né heldur lagst upp á Fé- lagsmálastofnun Akureyrarbæjar. Það hefur komið til að ganga í skóla, sækja sjóinn eða annast opinbera þjónustu," skrifar Þröstur. Hann telur síðan upp nokkur atriði sem séu Akureyringum til að mynda í hag. Skólar: á Akureyri era tveir nýir skól- ar, 950 manna Verkmenntaskólinn sem stofnaður var 1984 og vel á 400 manns verða senn í Háskólanum á Akureyri. Opinber þjónusta: Öflugt tjórðungs- sjúkrahús, Húsnæðisstofnun, Skipulag ríkisins, Hafrannsóknastofnun og Rann- sóknastofnun fiskiðnaðarins. Einnig hef- ur verið rætt um að flytja alla starfsemi Byggðastofnunar og RARIK norður um heiðar. Iðnaður: Efnaverksmiðjan Sjöfn, Kaffibrennsla Akureyrar og KEA. Sjávarútvegur: Útgerðarfélag Akur- eyringa og Samhetji- Nýsköpun: Hátæknifyrirtækið DNG, Haftækni og Gúmmívinnslan. Scm sagt, allt á uppleið á Akureyri. Al- þýðublaðið fagnar því að heyra slík bjart- sýnissjónannið og jákvæða atvinnumála- umljöllun á þessum tímum þegar böl- móðugir vaða uppi, hvarvetna. Mættum við fá meira að heyra. 4

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.