Alþýðublaðið - 10.09.1993, Qupperneq 7
Föstudagur 10. september 1993
STUTT & ERLEND MALEFNI
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7
Fjölskyldu- og húsdýragaröurinn:
Aðsóknarmet slegin og breyttur opnun-
artími
Aðsókn gesta að Fjölskyldu- og húsdýragarðiruun í Laugardal hefiir und-
anfama mánuði farið fram úr björtustu vonum manna. Þetta má efalaust rekja
til veðursins í sumar sem var með eindæmum gott tíl útívistar af þessu tagi.
Talsmenn svæðisins upplýsa STUTTFRÉTTIR um að nú þegar hafi komið
208 þúsund gestir í garðinn og aðsóknarmet hafi verið slegin flesta mánuði
ársins miðað við fyrri ár. Um síðustu mánaðarmót breyttist opnunartími Hús-
dýragarðsins og vetrardagskrá tók gildi. í vetur mun þannig garðurinn verða
opinn virka daga frá klukkan 13 til 17 og lokað verður á miðvikudögum. Á
laugardögum og sunnudögum verður opið frá klukkan 10 tíl 18. Ákveðið hef-
ur verið að hafa Fjölskyldugarðinn opinn í vetur á laugardögum og sunnudög-
um frá klukkan 10 til 18. Öll tæki verða í notkun og veitíngasalan opin. Aðra
daga í vetur geta gestir og gangandi heimsótt Fjölskyldugarðinn og nýtt sem
útívistarsvæði.
Myndlist: Kristbergur Pétursson og
Níels Árnason með sýningar í Hafnar-
borg
Kristbergur Pétursson opnaði laugardaginn 28. ágúst sýningu í Hajhar-
borg. Á sýningunni eru rúmlega 40 olíumálverk og teikningar. Þetta er sjö-
unda einkasýning Kristbergs, en hann hefur einnig tekið þátt í fjölda samsýn-
inga hér heima og erlendis. Sama dag og Kristbergur opnaði sína sýningu þá
opnaði Níels Árnason sýningu í Sverrissal í Hafnarborg. Á sýningu hans eru
35 pastelmyndir. Þetta er fyrsta einkasýning Níelsar, en hann tók þátt í sam-
sýningu hafnfirskra listamanna árið 1983 í tilefni af 75 ára afmæli Hafhar-
fjarðar. í Kqffistofu Hafnarborgar sýnir Eria Stefánsdóttir og á sýningunni
erufrumdrög huliðsheima Hafnarfjarðar. STUTTFRÉTTIR benda lesendum
á að sýningunum lýkur næstkomandi mánudag, 13. september, þannig að nú
fer hver að verða síðastur. Opið er alla daga, nema þriðjudaga, frá klukkan 12
til 18.
Stofnun Sigurðar Nordals:
Fyrirlestur um Jóns sögu helga
Doktor Peter G. Foote, fyrrverandi prófessor við Lundúnahásbóla flytur
opinberan fyrirlestur um Jóns sögu helga í boði Stofnunar Sigurðar Nordals
þriðjudaginn 14. september (á fæðingardegi Sigurðar Nordals) í Veitingastof-
unni Tæknigarði, klukkan 17:15. Fyrirlesturinn nefnist „Hugleiðingar um
Jóns sögu hins helga Ögmundarsonar". Peter G. Foote hefur um langt árabil
verið einn helstí fræðimaður um íslensk efni á Bretlandseyjum og eftir hann
liggja mörg rit um íslenskar fombókmenntír, þýðingar og útgáfur. Þá hefur
hann lengi verið einn af forvígismönnum Víkingafélagsins breska. STUTT-
FRÉTTIR mæta.
Kattavinafélagið:
Flóamarkaður í Kattholti
Um næstu helgi, laugardag og sunnudag 11. og 12. september, ætíar Katta-
vinafélagið að halda flóamarkað í Kattholtí. Það er von aðstandenda félagsins
að félagsmenn og aðrir velunnarar katta látí eitthvað af hendi rakna. Nokkuð
mun vera langt síðan síðastí flóamarkaður félagsins var haldinn og liggja að
sögn fyrir því nokkrar ástæður. Óumflýjanleg lokun „óskiladeildar" hefur
leitt tíl gífurlegra vandræða hjá félaginu. Vegna þessa var nauðsynlegt að
leggja í miklar framkvæmdir, sem Kattavinafélagið hefur aldrei bolmagn til
að fara út í af eigin rammleik. Félagið vill koma á framfæri þökkum tíl allra
þeirra sem lagt hafa sitt af mörkum og veitt Ijárstuðning vegna ffamkvæmd-
anna. Allur ágóði af flóamarkaðnum um helgina mun renna tíl óskilakattanna
í Kattholtí. STUTTFRÉTTIR óska þessu merka félagi og köttunum í þess
umsjá alls hins besta.
„Galvaniserað bárujárn((
- þetta gamla góða...enn betra
Vírnet hf. hefur framleitt galvaníserað bárujúm allt ffá árinu 1978. Þessi
vara hefur átt mikilli velgengni að fagna, á íslenskum byggingamarkaði í
gegnum árin. Þessi tegund bárujáms sameinar marga góða kosti: ffemur
ódýrt, sígilt útlit og er varanleg lausn við viðhald og nýbyggingar, hægt að
nota á hvort eð heldur þök eða veggi. Vímet hf. mun nú bjóða þetta efni með
þykkari sinkhúð en áður hefur þekkst. Stál seni ætlað er til þak- og veggja-
klæðninga er alltaf húðað til að veija það málmtæringu. Sink (Zn) og ál (Al)
em þeir málmar sem algengastir em tii húðunar á stáli, eða blöndur af þeim.
Hér er uni sinkhúð að ræða. Sinkmagn á plötum er gefið upp í grömmum á
fermetra, heildarþykkt sinkhúðar á báðum hliðum. Algengast er að klæðn-
ingaefni sé með 270 gr./m2. Þar sem ending sinkhúðar er í réttu hlutfalli við
þykkt hennar þá leiðir aukið sinkmagn til lengri endingar án þess að stálið fari
að ryðga eða tærast. Með þetta allt saman að leiðailjósi hefur Vímet hf.
ákveðið að bjóða þykkari sinkhúð eða 350 gr./m2. Þeir lesendur STUTT-
FRÉTTA sem áhuga hafa á þessari stórbættu framleiðslu fyrirtækisins er bent
á að hal'a samband í síma 93-71000.
Umhverfismál
GORBI, GRÆNI
STRÍÐSMAÐURINN
Frá kalda stríðinu til gróðurhúsaáhrifa -
Fyrrum Sovétleiðtogi leitar að nýrri rullu
Gorbi græni færir umhvcrfisvemdarsinnum og heiminum öiium nýja von.
Á túnum þegar umhverfisvemdar-
hreyfingjn virðist leita logandi ljósi að
nýjum leiðtoga eru líklegustu kandídat-
arnir fjarverandi án leyfis. Varaforset-
inn A1 Gore, höfundur bókarinnar, Jörð
í jafnvægi“ (Earth in Balance) hefur snú-
ið sér að öðrum verkefnum til að halda í
við Hillary og aðra nána samstarfsmenn
forsetans í hinni framtakssömu nýju rík-
isstjóm í Washington. Norski forsætis-
ráðherrann, Gro Harlem Bmndtland,
tileinkaði mestum hluta síðasta áratugar
til að vekja athygh á umhverfismálum,
en orðspor hennar hefur farið hnignandi
eftir að Norðmenn tóku að nýju upp
hvalveiðar í trássi við alþjóðabann.
Nú stikar inn í skarðið (tómarúmið) Mik-
hail Gorbasjov, sem enn einu sinni er mað-
ur með erindi. Framtak hans til að enda
kalda stríðið og ýta á umbætur í átt til auk-
ins lýðræðis í Rússlandi var einfalt mál
samanborið við hið nýja verkefni sem hann
hefur tekið sér fyrir hendur. Sem forseti Al-
þjóðlega græna krossins, einkastofnunar
sem sett var á legg í þeim tilgangi að hjálpa
til við samræmingu á frumkvæðum í um-
hverfismálum, ætlar Gorbasjov sér ekkert
minna en að eiga frumkvæði að áætlunum
um að bjarga plánetunni.
Maður með grænt hjarta
Jafnvel þegar hann sat í forsæti stórveld-
is talaði Gorbasjov eins og maður með
grænt hjarta. Á fundi Sameinuðu þjóðanna
1988 hvatti hann til að stöðvaðar yrðu
„árásir mannkynsins gegn náttúrunni." í
dag, hljómar hann oftar en ekki líkt og
hnetubrotsbakpokaferðalangur frá Kali-
fomíu fremur en fyrrum kommúnisti sem
braut sér leið upp valdastigann í ríki sem
sýnt hefur einhveija mestu óábyrgð í um-
hverfismálum á okkar tímum. Gorbasjov er
líklega eini leiðtogi heimsins sem notað
hefur orðið noosphere (orð sem vísar
mannlegrar meðvitundar eins og tengist líf-
ríkinu) í meiriháttar ræðum.
Gorbasjov kom Græna krossinum á fót
snemma á árinu í Kyoto, Japan, á ráðstefnu
um málefni jarðarinnar. Fundinn sóttu
þingmenn, trúarleiðtogar, umhverfisvemd-
arsinnar og vísindamenn. Ævintýraleg
ræða hans var á köflum mótsagnakennd og
óraunsæ, en hún var laus við hugtök í lík-
ingu við „varanlega þróun“ og „umhverfis-
venjur“ sem eru svo áberandi í umræðum
um umhverfismálefni. Margt af því sem
sagt var í ræðunni mundi þýða pólitískt
sjálfsmorð fyrir flesta stjómmálamenn í
heimi iðnríkja. Gorbasjov réðist á slíkar
heilagar kýr eins og þróun, framfarir og nú-
tfma skilgreiningar á efnislegri hamingju.
„Tækni hefur ekki aðeins rrústekist að
draga úr átökum milli manns og náttúru,"
sagði Gorbasjov, „hún hefúr magnað þau
átök ... Kreppa siðmenningarinnar sem er
sjáanleg í dag er kreppa hinnar bamslegu
trúar trú á almætti mannkynsins.“ Hann hélt
því fram að heimurinn yrði að gefa upp á
bátinn þá áráttu að vilja sigra náttúmna og
tileinka sér „heimspeki takmörkunar"
byggða á skilningi á því að tæknin geti ekki
leyst öll vandamál.
Reynslumikill maður
Gorbasjov veit frá fyrstu hendi hvað
mannkynið getur gert umhverfinu. „Ég
kom fyrst auga á hættuna í Stavropol, þar
sem vanþróaðir búskaparhættir leiddu af sér
sandstorma sem sviptu burt gróðurmold,"
sagði hann í viðtali við TIME. Á meðan
dvölinni í Kreml stóð þurfti hann að eiga
við hveija hryllingssöguna á fætur annarri
um sortaða himna völdum reyks, ár ónýttar
af eiturúrgangi og flóð á ökmm völdum
vegna lélegra fyrirhleðslna. „Bændur gerðu
uppreisn út af þessum hörmungum," sagði
hann, „en vegna alræðiskerfisins var ekki
hlustað á mótmæli þeirra." Síðan kom
sprengingin í kjamorkuverinu í Tjemóbýl,
sem fyllti mælinn. Öll okkar skyldu þá
hvers konar skrímsli við hefðum skapað.“
Á fundi Umhverfisráðstefnunnar í
Moskvu 1990, þegar hann var enn forseti
Sovétríkjanna, gerði Gorbasjov að tillögu
sinni að stofnuð yrði stofnun álíka Rauða
krossinum til að takast á við umhverfis-
vandamál sem virða engin landamæri. Á
síðasta ári ályktaði umhverfisvemdarráð-
stefnan í Ríó að Alþjóðlegi græni krossinn
yrði settur á fót, og sex mánuðum seinna lét
hollenska ríkisstjómin af hendi rakna 1,1
milljón dollara til að koma málinu af stað.
Á svipuðum tíma, var Græni krossinn
stofnaður af stað af Roland Wiederkehr,
umhverfisvemdarsinna og meðlimi sviss-
neska þingsins. Hann viðurkenndi góðfús-
lega stjömumátt Gorbasjovs og gekk að
boði Rússans um að snúa bökum saman, en
Roland er nú framkvæmdastjóri þessa
átaks. Stofnunin hefur aðalstöðvar í bæði
Haag og Genf.
Gorbi nýtur virðingar
Frá stofnun Græna krossins hafa Gorba-
sjov og Wiederkehr hitt rjómann af um-
hverfisvemdarsinnum til að velja mikil-
vægustu verkefnin. Meðal helstu mögu-
leika em: áætlun um að samræma aðgerðir
til að hreinsa ánna Volgu; áætlun um að
vemda hinn óspillta Plitvicka-vatna þjóð-
garðinn á landamæmm Serbíu og Króatíu
fyrir átökunum sem em að setja Balkan-
skagann í rúst; setja á fól nefnd um iðnaðar-
mál sem myndi hjálpa til við að koma f veg
l'yrir slys í efnaverksmiðjum eins og gaslek-
ann sem varð tvö þúsund manns að fjörtjóni
í Bhopal á Indlandi; hafa frumkvæði aðþví
að leiða sjónir manna að vandamálum sem
fela í sér not og losun eiturefnaframleiðslu
hergagnaverksmiðja heimsins.
Virðing Gorbasjovs hefúr laðað að stjóm
Græna krossins meðlimi eins og Javier Pér-
ez de Cuéllar, íyrmrn aðalritara Sameinuðu
þjóðanna og fyrrum forsætisráðherra Japan
Toshiki Kaifu. Aðrir velunnarar svo dæmi
séu tekin em geimvísindamaðurinn Carl
Sagan og René Felber, fyrrum forseti Sviss.
Gorbasjov sér að endingu fyrir sér þjóðlega
jafnt sem alþjóðlega keðju skrifstofa sem
munu, eins og hann segir, „betmmbæta og
breiða út“ vinnu annarra umhverfishópa.
Hann sér þessa keðju einnig fyrir sér sem
tæki til að breyta „gildum" mannlegs sam-
félags.
Umhverfísmöppudýrastofnun
Hljómi það óljóst, þá er það svo. Sumir
umhverfisvemdarsinnar kvarta um að ven-
öldin þurfi ekki á enn einni umhverfis-
möppudýrastofnun að halda. Þrátt fyrir það
ástfóstur sem Rússinn hefur tekið við nýjan
feril sinn er ljóst að hann á ýmislegt eftir
ólært í starfinu. Samt sem áður hefur
Gorbasjov óumdeilanlegt tromp með sér í
starfið: virðingu leiðtoga heimsins. Nýlega
skrifaði hann Clinton forseta og sagði: í
rauninni, „stöðvaði ég tilraunir með kjam-
orkuvopn; þú getur það líka.“ Thor Hey-
erdahl meðlimur í stjóm Græna krossins
segir: „Þrátt fyrir að til séu aðrar alþjóðlegr
ar umhverfisvemdunarstofnanir kom ég
hingað vegna þess að Gorbasjov hefur þá
virðingu, greind og þrótt sem til þarf svo
hlutimir gangi upp. Honum er ljóst hversu
ógnin er alvarleg og hann færir mér von.“
J