Alþýðublaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ SVEITARSTJORNARMAL Föstudagur 1. október 1993 Kosið um sameiningu sveitarfélaga 20. nóvember LAGT ER TIL AÐ SVEITARFÉLÖGUM FÆKKIUM 153 - Gangiþetta eftir verða 43 sveitarfélög í landinu í stað 196 Umdæmanefndir heimamanna í öllum kjördæm- um landsins hafa skilað tillögum sínum um sam- einingu sveitarfélaga í landinu. Almennar kosn- ingar um tillögurnar fara fram laugardaginn 20. nóvember næst komandi og verður kosið á al- mennum kjörstöðum. Nefndirnar átta gera tillögur um að sveitarfélögum fækki um 153, eða úr 196 í 43. Kosið verður í 186 af 196 sveitarfélögum, sam- kvæmt upplýsingum félagsmálaráðuneytisins. Núverandi sveitarfélagaskipan umdsemanefnda Umdæmanefndirnar kynna nú tillögur sínar í öllum kjördæmum landsins. Grund- vallarhugmyndin um sameiningu sveitarfé- laga hefur þegar verið kynnt í bæklingi sem sendur hefur verið inn á hvert kjördæmi í dreifbýliskjördæmunum. Meginmarkmiðið með sameiningu sveit- arfélaga er að treysta byggð í landinu og efla stjóm heimamanna, að auðvelda flutn- ing verkefna frá ríki til sveitarfélaga og auka þjónustu við íbúana og gera sveitarfé- lögunum betur kleift að takast á við núver- andi verkefni og væntanleg. Við gerð til- lagna sinna hafa umdæmanefndimar enn- fremur haft að markmiði að sveitarfélögin myndi heilstæð atvinnu- og þjónustusvæði þannig að þéttbýli og sveitir umhverfís það séu í sama sveitarfélagi; að tekið sé tillit til landfræðilegra aðstæðna og samgangna eins og kostur er til að tryggja gott sam- göngukerfi innan hvers sveitarfélags og að reynt verði að jafna tekjumöguleika sveitar- féiaga frá því sem nú er. Meirihluta þarf til Undirbúningur sameiningar sveitarfé- laga hefur staðið lengi yfir og víðtækt sam- ráð hefur verið haft við sveitarstjómarmenn um land allt. Alþingi ákvað á sínum tíma að fela umdæmanefndum í hverjum landshluta að gera tillögur um ný umdæmi sveitarfé- laga í samráði við heimamenn. Sérstakri samráðsnefnd var komið á fót um málið og er formaður hennar Bragi Guðbrandsson aðstoðarmaður féiagsmálaráðherra. Nú þegar umdæmanefndir hafa skiiað til- lögum sínum fara fram tvær umræður í við- komandi sveitarstjómum. Síðan verður kosið samb'mis í þeim sveitarfélögum sem lagt er til að sameinist þannig að það em kjósendur sem ákveða hvað gera skal í kosningunum laugardaginn 20. nóvember næst komandi. Um kosningamar sjálfar skal eftirfarandi tekið fram: Meirihluta greiddra atkvæða þarf til að tillaga um sameiningu teljist samþykkt. Það þýðir að vilji menn stuðia að sameiningu á sínu heimasvæði verða þeir að mæta á kjör- stað. Hljóti tillagan ekki samþykki í öllum sveitarfélögum sem lagt er til að sameinist, en að minnsta kosti í 2/3 þeirra, er viðkom- andi sveitarstjómum heimilt að ákveða sameiningu þeirra sveitarfélaga sem sam- þykkt hafa, enda hamli ekki Iandfræðilegar ástæður. Verði tillaga um sameiningu felld en um- dæmanefnd telur að vilji íbúanna standi til annars konar sameiningar er henni heimilt að leggja fram nýjar tillögur innan ríu vikna þar frá, það er eigi síðar en 26. mars 1994. Héráeftir verðurgerð nánari grein fyr- ir tillögum í hverju kjördœmifyrir sig. Höfuðborgarsvæðið A höfuðborgarsvæðinu er lagt til að sveitarfélögum fækki úr níu í fjögur. Lagt er til að Reykjavík og næstu nágrannasveit- arfélög til vesturs og norðurs verði eitt sveitarfélag með samanlagt 110.343 íbúa, það er Reykjavík með 100.850 íbúa, Sel- tjamames með 4.333 íbúa, Mosfellsbær með 4.511, Kjalameshreppur með 494 íbúa og Kjósarhreppur með 155 íbúa. Umdæmanefndin leggur einnig til að Garðabær og Bessastaðahreppur sameinist í eitt sveitarfélag með 8.497 íbúa. Ekki er gert ráð fyrir að Kópavogur og eða Hafnar- fjörður sameinist öðrum sveitarfélögum. Suðurnes Umdæmanefndin á Suðumesjum leggur tii að öll sveitarfélögin á Suðumesjum, sjö talsins, sameinist í eitt sveitarfélag með samtals 15.487 íbúa miðað við íbúatölu sveitarfélaganna 1. desember 1992. Sveit- arfélögin eru: Grindavfk, Hafnarhreppur, Sandgerði, Gerðahreppur, Keflavík, Njarð- vík og Vatnsleysustrandarhreppur. Vesturland A Vesturlandi er lagt til að sveitarfélög- um verði fækkað úr 36 í níu. Akranes yrði áífam sérstakt sveitarfélag með liðlega 5.200 íbúa. í Borgaríjarðarsýslu sunnan Skarðsheiðar yrðu fjórir hreppar, með sam- tals 600 íbúa, sameinaðir í einn. Það em Hvaltjarðarstrandarhreppur, Skilamanna- hreppur, Innri- Akraneshreppur og Leirár- og Melahreppur. Norðan Skarðsheiðar er lagt til að sam- einaðir verðí fimm hreppar með samtajs- 774 íbúa. Um er að ræða Andakílshrepp, Skorradalshrepp, Lundarreykjadalshrepp, Reykholtdalshrepp og Hálsahrepp. Nefndin á Vesturlandi leggur ennfremur til að öll sveitarfélög í Mýrarsýslu, átta að tölu, verði sameinuð í eitt með samtals tæp>- lega 2.600 íbúa. Það em Hvítársíðu-, Þver- árhlíðar-, Norðurárdals-, Stafholtstungna-, Borgar-, Álftanes- og Hraunhreppur auk Borgamess. Austast á Snæfellsnesi leggur nefndin til að fjórir hreppar, með samtals 320 íbúa, sameinist í einn. Það em Kolbeinsstaða- hreppur, Eyjarhreppur, Miklaholtshreppur og Skógarstrandarhreppur. Vestast á Snæfellsnesi leggur nefndin til að aðrir fjórir hreppar sameinist í eitt sveit- arfélag með tæplega 1.900 íbúa. Það em Staðarsveit,- Breiðuvíkurhreppur, Nes- hreppur utan Ennis og Olafsvík. Ennffemur verði Helgafellssveit sameinuð Stykkis- hólmi og yrði heildaríbúafjöldi í því sveitar- félagi 1.314. Loks leggur umdæmanefndin í Vestur- landskjördæmi til að Dalasýsla verði eitt sveitarfélag með tæplega 900 íbúa. Þar er um að ræða Suðurdalshrepp, Haukadals- hrepp, Laxárdalshreppur (Búðardal), Hvammshrepp, Fellsstrandarhrepp, Skarðshrepp og Saurbæjarhrepp. Vestfirðir Á Vestfjörðum leggur umdæmanefndin til að sveitarfélögum fækki um tuttugu, úr 24 í fjögur. Vestur-Barðastrandarsýsla verði eitt sveitarfélag í stað fimm nú með tæplega 1.700 íbúa. Þar em Barðastrandar- hreppur, Rauðasandshreppur, Patreks- hreppur, Tálknafjarðarhreppur og Bíldu- dalshreppur. Vestur-Isafjarðarsýsla, ísafjarðarkaup- staður og Bolungarvíkurkaupstaður verði eitt sveitarfélag í stað 12 með liðlega 6.400 íbúa. Þar em Þingeyrarhreppur, Mýra- hreppur, Mosvaliahreppur, Flateyrarhrepp- ur, Suðureyrarhreppur, Bolungarvíkur- kaupstaður, Isafjarðarkaupstaður, Súðavík- urhreppur, Ögurhreppur, Reykjafjarðar- hreppur, Nauteyrarhreppur og Snæfjalla- hreppur. Þá leggur nefndin til að Strandasýsla verði eitt sveitarfélag í stað sex, með alls liðlega eitt þúsund fbúa. Sveitarfélög þar em Ámeshreppur, Kaldrananeshreppur, Hólmavíkurhreppur, Kirkjubólshreppur, Broddaneshreppur og Bæjarhreppur. Norðurland vestra í Norðurlandskjördæmi vestra leggur umdæmanefndin til að sveitarfélögum verði fækkað úr 30 í fimm. Lagt er til að í Vestur-Húnavatnssýslu verði eitt sveitarfé- lag með hátt í 1.500 íbúa. I sýslunni em eft- irtalin sveitarfélög: Staðarhreppur, Fremri- Torfústaðahreppur, Ytri-Torfustaðahrepp- ur, Hvammstangahreppur, Kirkjuhvamms- hreppur, Þverárhreppur og Þorkelshóla- hreppur. Lagt er til að í Austur-Húnavatnssýslu verði tvö sveitarfélög. I öðm þeirra verði Vindhælishreppur, Höfðahreppur og Skagahreppur með innan við 800 íbúa, en í hinu verði sjö sveitarfélög með liðlega 1.700 íbúa, það er Áshreppur, Sveinsstaða- hreppur, Torfalækjarhreppur, Blönduós- hreppur, Svínavatnshreppur, Bólstaðarhlíð- arhreppur og Engihlíðarhreppur. í Skagafirði er lagt til að verði eitt sveit- arfélag í stað 12. Heildarfjöldi íbúa þeirra er tæplega 4.700. Þessi sveitarfélög em: Skef- ilsstaðahreppur, Skarðshreppur, Sauðár- krókur, Staðarhreppur, Seyluhreppur, Lýt- ingsstaðahreppur, Akrahreppur, Rípur- hreppur, Viðvíkurhreppur, Hólahreppur, Hofshreppur og Fljótahreppur. Norðurland eystra í Norðurlandskjördæmi eystra er lagt til að sveitarfélögum fækki úr 30 í 5. Nefndin leggur til að Eyjafjörður verði eitt sveitarfé- lag, Suður-Þingeyjarsýsla austan Háls- hrepps annað, en að Norður-Þingeyjarsýsla verði þijú sveitarfélög. Umdæmanefndin telur að sem eitt sveitarfélag geti Eyjafjörð- ur orðið sterkara mótvægi gagnvail höfuð- borgarsvæðinu, atvinnulíf yrði fjölbreyttara og byggðaþróun jákvæðari. Aðalþjónustu- kjami svæðisins, Akureyri, liggi miðsvæðis í héraðinu og þar búi um 70% íbúanna. í Eyjafirði em nú 15 sveitarfélög með tæplega 21 þúsund íbúa. Hið nýja sveitarfé- lag yrði því næst stærsta sveitarfélag lands- ins , samþykki íbúamir tillögur nefndarinn- ar. Sveitarfélögin fimmtán em: Akureyri, Grímsey, Ólafsfjörður, Dalvík, Svarfaðar- dalshreppur, Hríseyjarhreppur, Árskógs- hreppur, Amameshreppur, Skriðuhreppur, Öxnadalshreppur, Glæsibæjarhreppur, Eyjafjarðsveit, Svalbarðsstrandarhreppur, Grýtubakkahreppur og Hálsahreppur. 1 Suður-Þingeyjarsýslu austan Hálsa- hrepps em átta sveitarfélög með liðlega 4.200 íbúa. Þau em Ljósavatnshreppur, Bárðdælahreppur, Skútustaðahreppur, Reykdælahreppur, Aðaldælahreppur, Reykjahreppur, Húsavík og Tjömeshrepp- ur. Hreppamir þrír í Öxarfirði myndu verða sveitarfélag með tæplega 500 íbúa. Það em Kelduneshreppur, Fjallahreppur og hluti Öxarfjarðarhrepps. Hinn hluti Öxarfjarðarhrepps myndi sameinast Raufarhöfn ásamt hluta Sval- barðshrepps í sveitarfélag með liðlega 400 íbúa. Loks er gerð tillaga um að Þórshafnar-, Sauðaneshreppur og hluti Svalbarðshrepps sameinist í liðlega 600 manna sveitarfélag. Austurland Umdæmanefnd Austurlands leggur til að sveitarfélögum á Austurlandi verði fækkað úr 30 í átta. Tillögumar gera ráð fyrir að á svokölluðu Norðursvæði myndu Skeggja- staðahreppur og Vopnafjarðarhreppur sam- einast með liðlega 1.000 íbúa. Á Héraðssvæði er lagt til að 11 hreppar sameinist með liðlega 3.000 íbúa. Það em Hlíðarhreppur, Jökuldalshreppur, Fljótdals- hreppur, Fellahreppur, Tunguhreppur, Hj altastaðahreppur, Borgarfj arðarhreppur, Skriðdalshreppur, Vallahreppur, Egils- staðahreppur og Eiðahreppur. Þá er lagt til að Neskaupstaður og Norð- ijarðarhreppur sameinist Mjóafjarðarhreppi í liðlega 1.760 manna sveitarfélagi og Reyðarfjörður og Eskifjörður sameinist í liðlega 1.800 manna sveitarfélagi. Sunnar myndu Fáskrúðsijarðar-, Búða-, Stöðvar- og Breiðdalshreppur sameinast í tæplega 1.500 manna sveitarfélag og loks er gert ráð fyrir að á Suðursvæði sameinist sex hrepp- ar með nærri 2.500 manns. Það em Bæjar- hreppur, Nesjahreppur, Höfn, Mýrahrepp- ur, Borgarhafnarhreppur og Hofshreppur. Suðurland A Suðurlandi er lagt til að sveitarfélögum fækki úr 30 í sjö. Af þessum 30 standi þijú óbreytt, hin 27 skiptist í fjögur sveitarfélög. Rangárvallasýslu verði skipt í tvö sveitarfé- lög (um Eystri-Rangá), austur- og vestur- svæði. Austan Rangár yrðu eftirtaldir hreppar með um 1.750 íbúa: Austur- Eyja- fjallahreppur, Vestur-Eyjafjallahreppur, Vestur- Landeyjahreppur, Austur-Land- eyjahreppur, Fljótshh'ðarhreppur og Hvol- hreppur (Hvoisvöliur). Vestan Rangár er lögð til sameining fjögurra hreppa með tæplega 1.600 íbúa, það er Rangárvalla- hrepps (Hellu), Holta- og Landssveitar, Ásahrepps og Djúpárhrepps. Nefndin leggur til að Ámessýslu verði skipt í' tvö sveitarfélög. í efri hluta yrðu eft- irtalin átta sveitarfélög með liðlega 2.300 íbúa: Skeiðahreppur, Gnúpveijahreppur, Hmnamannahreppur, Biskupstungna- hreppur, Laugardalshreppur, Grímsnes- hreppur, Þingvallahreppur og Grafnings- hreppur. I neðri hluta yrðu Flói og Ölfus með nærri 8.700 íbúa. Þar er um að ræða Sel- fosskaupstað, Gaulverjabæjarhrepp, Stokkseyrarhrepp, Eyrarbakkahrepp, Sand- víkurhrepp, Hraungerðishrepp, Villinga- holtshrepp, Hveragerðishrepp og Ölfus- hrepp með Þorlákshöfn. V I K I IV G A L«TT« Vinningstölur r------------- miðvikudaginn:! 29.sept. 1993 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING n6afe 1 (0 á ísl.) 33.250.000 C1 5 af 6 ES+bónus 1 1.716.035 R1 5 af 6 3 108.918 EB 4 af 6 n"3 af 6 CJH+bónus 256 899 ' 2.030 ^248~ Aðaltöiur: 1^(30) (35 44A45JÍ48 BÓNUSTÖLUR ÁYÁjÆ Heildarupphæð þessa viku 36.035.421 á Isl.: 2.785.421 ------.,. _VR. SÍMSVARI91 - 68 15 11 LUKKUUNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451 BIRT MEÐ FYBIRVARA UM PRENTVILLUR

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.