Alþýðublaðið - 01.10.1993, Síða 6

Alþýðublaðið - 01.10.1993, Síða 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ SKILABOÐ & GETRAUNIR Föstudagur 1. október 1993 RAÐAUG LÝSI NGAR Jafnaðarmannafélag Eyjafjarðar AKUREYRINGAR ATHUGIÐ! Bæjarmálafundur verður haldinn mánudaginn 4. október klukkan 20.30 í JMJ-húsinu (II. hæð) við Gránufélagsgötu. Gísli Bragi Hjartarson bæjarfulltrúi stýrir fundi. Kaffiveitingar. Stjórn Jafnaðarmannafélags Eyjafjarðar. Alþýðuflokksfélag Garðabæjar og Bessastaðahrepps BÆJARMÁLARÁÐSFUNDUR Bæjarmálaráðsfundur verður haldinn mánudaginn 4. októ- ber klukkan 20.30 í Garðaskóla. DAGSKRÁ 1. Gizur Gottskálksson bæjarfulltrúi ræðir bæjarmálin. 2. Önnur mál. Fjölmennið og takið með ykkur gesti! Stjórnin. Alþýðuflokksfélag Hafnarfjarðar AÐALFUNDUR Aðalfundur Alþýðuflokksfélags Hafnarfjarðar verður hald- inn næstkomandi mánudag 4. október klukkan 20.30 í Alþýðuhúsinu við Strandgötu. DAGSKRÁ 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Tryggvi Harðarson ræðir starfið framundan. 3. Önnur mál. Félagar - mætið vel og stundvíslega. Formaður. TRYGGINGASTOFNUN K& RÍKISINS STYRKIR TIL BIFREIÐAKAUPA Tryggingastofnun ríkisins veitir viðtöku umsóknum vegna styrkja sem veittir eru hreyfihömluðum vegna bifreiða- kaupa. Nauðsyn bifreiðar vegna hreyfihömlunar skal vera ótvíræð. Umsóknareyðublöð vegna úthlutunar 1994 fást hjá af- greiðsludeild og upplýsingadeild Tryggingastofnunar ríkis- ins, Laugavegi 114, og hjá umboðsmönnum hennar um land allt. Umsóknarfrestur verður til 15. október. Tryggingastofnun ríkisins. ÉFélag ungra jafnaðarmanna í Reykjavík AÐALFUNDUR Aðalfundur Félags ungra jafnaðarmanna í Reykjavík verð- ur haldinn þriðjudaginn 5. október klukkan 20:00 í Rósinni - félagsmiðstöð jafnaðarmanna í Reykjavík. DAGSKRÁ 1. Skýrsla stjórnar og umræður 2. Skýrsla gjaldkera og umræður 3. Skýrslur forseta málstofa, ritstjóra málgagna og umræður. 4. Lagabreytingar. 5. Kosning stjórnar: (a) formanns (b) varaformanns (c) gjaldkera (d) ritstjóra málgagna (e) tveggja meðstjórnenda 6. Kosning í málstofur: forseta og tveggja meðstjórnenda í hverja málstofu. 7. Kosning ritnefndar: ritstjóra og tveggja meðstjórnenda. 8. Kosning tveggja endurskoðenda reikninga og eins til vara. 9. Samþykkt félagsgjalda. 10. Önnur mál. Formaður. MENNINGARSJÓÐUR Auglýsing Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki úr Menn- ingarsjóði skv. 1. gr. reglugerðar um sjóðina nr. 390 / 1993. Hlutverk Menningarsjóðs er að veita útgefendum og / eða höfundum fjárhagslegan stuðning til útgáfu þeirra bóka á ís- lenskri tungu, sem verða mega til eflingar íslenskri menn- ingu. Sérstök áhersla skal lögð á að efla útgáfu fræðirita, handbóka, orðabóka og menningarsögulegra rita. Jafnframt getur sjóðurinn veitt fjárhagslegan stuðning annarri skyldri starfsemi s.s. vegna hljóðbókagerðar. Umsóknum skal skilað til Menningarsjóðs, Mennta- málaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 20. október 1993. Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Menntamálaráðuneytisins. FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ Starfsnám fyrir meðferðar- og uppeldisfulltrúa Þann 1. nóvember 1993 hefst starfsnám (grunnnám) fyrir meðferðar- og uppeldisfulltrúa og aðra sem vinna hliðstæð störf. Námið hefur það að markmiði að auka þekkingu og færni starfsmanna og gæði þjónustunnar. Umsóknarfrestur um námið er til 15. október 1993 og fást umsóknareyðublöð í félagsmálaráðuneytinu, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu, Reykjavík, sími 609100 og hjá starfsmannafé- lagi ríkisstofnana, Grettisgötu 89, Reykjavík, sími 629644. Fræðslunefnd félagsmálaráðuneytisins 29. september 1993. ?AX 62-92-44 GETRfiUNIR X AIK - Degerfors í síðustu viku sagði ég að AIK myndi vinna öruggan sigur á Brage en svo varð ekki. Eitthvað virðist vera að hjá AIK mönnum en heldur brösuglega hefur gengið síðustu leiki. Degerfors er reyndar ekki heldur sannfærandi þessa stundina. Þeir áttu erfiðan leik í síðustu viku þegar þeir tóku á móti Gautaborg. Þessi leikur ætti að enda með jafntefli eða sigri AIK manna. 1 Gautaborg - Malmö FF Gautaborg stefnir óhikað á titilinn og er þessi leikur ein af hindrununum sem þar á vegi er. Gautaborg er með 51 stig og er einu stigi á eftir Nonköping sem hefur spilað einum leik meira. Malmö FF getur sett markið á þriðja sæti. Þeir eru tjórum stigum á eftir AIK sem er því sæti. Heimasigur er líklegri hér, en þó er hætta ájafntefli. 2 Halmstad - Brage Áhætta vikunnar. Brage hefur nú í tveimur síðustu leikjum sín- um spilað afbragðsvel og spái ég því að þeirri velgengni haldi áfram. Halmstad gat ekki gert mikið á móti sterku liði Nonköp- ing í síðustu urnferð. í þessum leik held ég að vanmat hjá Halntst- ad geti ráðið úrslitum því Brage-menn koma grimmir til leiks. 1 Helsingborg - Örgryte Ekki gengur vel hjá Örgryte þessa stundina og ekki mun ganga betur á næstunni. Á mánudaginn urðu þeir fyrir þvt' áfalli að tapa fyrir Hacken 0 - I en fregnir herma að það hafi ekki verið sann- gjörn úrslit. Helsingborg er dæmigert „nteðal- lið“ sem siglir á lygnum sjó í deildinni. Þeir em með 29 stig eftir 21 leik. Jafntefli er líka hugsanlegt. X Trelleborg - Hácken Spámenn í Svíþjóð halda að Trelleborg fari með sigur af hólmi, en svo fór ég yftr spár hjá íslensku spámönnununi og þeir em all- ir sammála um að Amór og félagar sigri. Þetta er rnjög tvísýnn leikur. Trelleborg er sterkt heima jafnframt sem Hacken hefur verið að gera góða hluti að undanfömu. Jafntefli eða fyrsta tap Trelleborg á heimavelli. 2 Frölunda - Norrköping Ég myndi halda að þetta væri ömggasti leikurinn í þessari viku. Norrköping van Halmstad í sfðustu viku, en að vísu gerðu Frö- lunda-menn það líka. Frölunda tók Hlyn Stefánsson og félaga hreinlega í nefið, 4 - 1. Þrátt fyrir þennan ágæta sigur efast ég um að þeir leiki sama leikinn á móti Nonrköping. 1 Örebro - Öster Menn em mjög ósammála um hvemig þessi leikur muni fara, enda mjög tvísýnn. Bæði liðin em í mjög lélegu formi og hafa leikið afar illa undanfarið. Ég cr á þvf máli að Orebro muni sigra í þessum leik, enda leikur íslendingur með liðinu og við íslend- ingar verðum að standa saman. Athugið aðjafntefli kemureinnig til greina. X Liverpool - Arsenal Liverpool hefur ekki fengið eitt einasta stig í deildinni í sept- ember og er það í fyrsta sinn i' 90 ár. Liðið tapaði fyrir Chelsea síðast með einu marki gegn engu (eins og ég reyndar spáði). Það hefur gengið aðeins betur hjá Arsenal. Þeir em í öðm sæti, 3 stig- um á eftir Manchester United. United átti reyndar í miklu basli með Southampton síðastliðinn laugardag og unnu bara 1 - 0. 1 Norwich - Coventry Coventry tapaði sínum fyrsta leik á laugardaginn var. Það var Danny Wallace sem gerði bæði mörkin fyrir Leeds í þeim leik. Hér tapa þeir ömgglega í annað skiptið í deildinni því Norwich er t mikilli sókn. Ekoku hefur verið á skotskónum í deildinni en hann gerði fjögur mörk á móti Everton f síðasta leik. Hann verð- ur pottþétt áfram í stuði í þessum leik og mun tryggja Norwich sigur. X QPR - Ipswich Erfiður ieikur. Bæði liðin em frekar neðarlega í deildinni og munu ekki hækka mikið eftir þennan leik ef ég hef rétt fyrir mér. Jafntcfli sýnist vera besta lausnin á þessum leik en ef ég ætti að giska á líklegri sigurvegara þá myndin svarið verða: Heimasigur QPR er líklegastur því þeir hafa aðeins tapað einum leik á heima- velli og em því sterkir þangað að sækja. 2 Shefíleld W. - Manc. United Ég held að flestir séu sammála mér í þessu til viki nema kannski hörðustu stuðningsmenn Sheffield. Þeim hefur ekki gengið eins vel og þeim var spáð. í einu ensku knattspymublaði var |>eim til að ntynda spáð titlinum. Eins og flesdr vita er United komið í nokkuð kunnuglega stöðu, nefnilega fyrsta sætið. Ég er á þeirri skoðun að það muni reynast erfitt fyrir önnur lið að vinna þá. 1 Swindon - Blackburn Ég hef ákveðið að hafa tvo áhættuleiki í þessari umferð. Án áhættu er ekkert gaman að þessu. Swindon kom skemmdlega á óvart þegar þeir spiluðu við Manchester United. Margir bjuggust við mörgum mörkum í þeim leik og fengu það reyndar. Þeir héldu hins vegar ömgglega ekki að mörkin myndu skiptast jafnt líkt og þau gerðu. Blackbum náði í jafntefli í síðasta leik á móu Sheffi- eld Wednesday og var þar Shearer að verki, enn einu sinni. 2 West Ham - Chelsea Ég hélt í síðustu viku að West Ham myndi halda áfram sigur- göngu sinni en þeir sviku mig. Töpuðu fyrir Newcastle á údvelli. Kannski var sá leikur of stór biti fyrir þá. Chelsea heldur áfram að vinna „frægu“ liðin 1 - 0 og er þeir eina liðið sem náð hefur að sigra Manchester United. Samt er Chelsea frekar neðarlega í deildinni en gætu þó stokkið gríðarlega upp á við með sigri hér. - Ólafur Lúther Einarsson

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.