Alþýðublaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 8
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
M5BUBLMÐ
Föstudagur 1. október 1993
KONUR VIUA VANDAÐA
OG FÍNA SÍÐKJÓLA
- fyrir samkvœmislífið í vetur segir Hulda Kristinsdóttir
klœðskeri sem hefur opnað stofu í Listahúsinu í Laugardal
Hulda Kristinsdóttir kjólameistari og klæðskeri við vinnu sína. Fyrir
aftan hana er Eva Hildur Kristjánsdóttir sem deilir með henni húsnæð-
inu. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
„Það skemmtilega við tísk-
una í dag er að það gengur
allt ef svo má segja. Fólk er
óhrætt við að velja sér föt að
eigin smekk í stað þess að láta
tískubyigjur alfarið ráða val-
inu. Um þessar mundir vilja
konur vandaða og fína síð-
kjóla fyrir hátíðir vetrarins.
Þær verða bæði undrandi og
glaðar þegar þær komast að
raun um að það er ekki dýr-
ara að láta sauma á sig kjól en
kaupa hann tilbúin úr búð
sem tryggir ekki að flíkin fari
«-nógu vel,“ sagði Huida Krist-
insdóttir í samtali við biaðið.
Hulda var að opna sauma-
stofu í Listahúsinu í Laugardal.
Hún sagðist alla tíð hafa haft
mikinn áhuga á fatasaumi og
iðulega saumað kjóla á vinkon-
ur sínar. Eftirspumin jókst stöð-
ugt og þegar tómstundagaman-
ið var nánast orðið að fullri
vinnu lét hún slag standa og
opnaði í Listahúsinu. En Hulda
saumar ekki eingöngu á konur.
Karlmenn koma til hennar og
láta sauma á sig kjólföt, smók-
ing eða þá jakka ellegar buxur.
Fatnaður Huldu hefur vakið
:r>,,'verðskuldaða athygli og má þar
nefna pallíettukjól sem sýndur
var á tískusýningu á Hótel Borg
á dögunum.
„Eg einbeiti mér að því að
sérsauma fyrir fólk. Þegar verið
er að kaupa vandaðan og dýran
fatnað skiptir meginmáli að föt-
in hæfi viðkomandi og fari vel.
Það getur reynst erfitt þegar
keyptar eru tilbúnar flíkur úr
búð. Með því að láta mig taka
mái, sníða og sauma fæst trygg-
ing fyrir því að fötin fara eins
og best verður á kosið og þetta
kostar ekki meira en að kaupa
tilbúið. S vo við tökum konur og
kjóla þá koma sumar með
ákveðnar hugmyndir að kjól en
aðrar vilja fá aðstoð við að velja
snið, efni og lit. Þó það hljómi
kanski öfugsnúið í öllu þessu
krepputali þá er staðreyndin
engu að síður sú að nú vilja
konur glæsilega og vandaða
síðkjóla fyrir árshátíðir og nýár-
skemmtanir vetrarins," sagði
Hulda Kristinsdóttir.
Hulda sagði ennfremur að sér
virtist sem mikill áhugi væri
orðinn á að láta sauma á sig eft-
ir nokkra lægð í þeim efnum að
undanfömu. Þetta væri skap-
andi og skemmtilegt starf og
ánægðir viðskiptavinir væm
besta auglýsingin fyrir sig og
sína stofu.
KVIKNYNDIR
HINIR ÓÆSKILEGU - MENACE II SOCIETY
LAUGARÁSBÍÓ: Hinir Óæskilegu - Menace II Society LEIKSTJÓRN: Allen Hughes og Albert Hughes
HANIJRIT: Tvger Williams AÐALHLUTVERK: Tvrin Turner, Jada Pinkctt, Larez Tate og Arnold Johnson
STJÖRNUR: ★★★ 1/2
Ofbeldi, víma og ástir er megin at-
burðarás nýjustu myndar Laugarásbíós,
Menace II Society eða Hinir Oæskilegu
eins og hún nefnist hér á landi. Flestir
kannast við slíka atburðarás úr Islend-
ingasögunum og líkt þeim er í myndinni
sagt frá atburðum á hispurslausan hátt.
Olíkt öðrum myndum sem kvikmynda-
húsið Laugarásbjó hefur sýnt síðustu
^misseri er Hinir Oæskilegu mjög góð og
áhrifamikil spennumynd.
Caine er ungur maður sem ólst upp við hræði-
legar aðstæður. Faðir hans seldi eiturlyf og móðir
hans notaði slík lyf að staðaldri. Sem bam horfði
hann uppá föður sinn myrða mann og annan ým-
ist vegna þess að þeir skulduðu honum pening eða
voru með skæting. Þegar leið á æsku Caine lést
móðir hans vegna of stórs eiturlyfjaskammts en
faðirinn hans var myrtur. Fluttist þá unglingurinn
til afa síns og ömmu. Þau vom sannkristið fólk og
fengu drenginn til að stunda nám. Hegðun for-
eldra hans varð honum ekki víti til varnaðar því
hann tók upp hegðun föður síns og þénaði vem-
lega á sölu eiturlyíja. Eftir að hafa náð háskóla-
prófi hefst glæpaferill Caine af ráði þegar hann
verður samsekur um morð. Hefjast þá hörð átök.
Myndin er viss deila á samfélagið. I upphafi
myndarinnar em sýndar fréttamyndir frá uppþot-
w»um sem urðu í blökkumannahverfinu Watts í L.A.
árið 1965. Vom blökkumenn beittir ofbeldi að
hálfu lögreglu sem aðstandendur myndarinnar
telja að jreir hafi ekki átt skilið. Er einnig gefið til
kynna síðar í myndinni að lögreglan beiji blökku-
menn sér til skemmtunar. Má deila um hvort eitt-
hvert sannleiksgildi er í þessum atriðum.
„Þeir aukaleikarar sem líta út fyrir að vera í
glæpagengi eru í glæpagengi," segir Allen Hug-
hes í viðtali við Newsweek. Og hann bætir við: „-
Versta martröð Bandaríkjanna em ungur blökku-
maður sem gefur dauðan og djöfulinn í allt og
alla.“ Til að Hinir Oæskilegu yrði sem raunvem-
legust tóku tvíburamir viðtöl við æskufólkið í
Watts-hverfmu. „Við vildum vita hvemig þeim
Tvíburamir Allcn og Albert Hughes. 21 árs undra-
menn í kvikmyndum. Mynd / Newsweek
leið þegar þeir myrtu einhvem." Heimildavinnan
skilaði sér: Ofbeldisatriði em allsvakaleg og ofsa-
fengin en að sama skapi áhrifamikil. Allen og Al-
bert Huges eiga svo sannarlega Cannes pálmann
skilinn fyrir leikstjórn. Það er tæpast að því sé trú-
andi að Hinir óæskilegu sé byrjendaverk þessara
ungu (21 árs gömlu) tvíburabræðra. í viðtölum
við erlend blöð hafa þeir viðurkennt að ýmis atriði
úr mynd þeirra séu tekin nánast beint úr öðmm
ntyndum uppáhaldsleikstjóra þeirra: Brian De
Palma („Scarface'j og Martin Scorsese („Good-
Fellas'j. Það verður spennandi að sjá þeirra næsta
verk. Hinir Oæskilegu varð öllum á óvart ein af
metsölumyndum bandaríska kvikmyndasumars-
ins. Myndin kostaði aðeins 238 milljónir ís-
lenskra króna að framleiða en á fyrstu þremur
mánuðunum skilaði hún til baka um það bil ein-
um og hálfum milljarði. Næsta mynd Hughes-tví-
buranna ber vinnsluheitið „Public Enemez“ og
fjallar um fjóra eiturlyfjasala á ferðalagi til New
Orleans. Þeir bræður hafa lofað að sú mynd verði
skemmtilegri og þægilegri til áhorfs en Hinir
Óæskilegu.
Niðurstaða: Átakaleg mynd um líf götu-
drengja í stórborg. Mjög athyglisverð - raunar
stórgóð, en vara verður sérstaklega við ógeðfelld-
um ofbeldisatriðum.
- Barði Jóhannsson
V e r i ð velkomin á
DAGANA
UM HELGINA
LJÚFMETI AF LÉTTARA TAGINU
verður á boðstólum úr tilraunaeldhúsi Osta- og smjörsölunnar.
KYNNTU ÞÉR ÍSLENSKA GÆÐAMATIÐ
Birtar verða niðurstöður íslenska
gæðamatsins á ostunum sem teknir voru til mats nú í vikunni.
•
Ostameistari íslands útnefndur.
•
Ostameistararnir verða á staðnum og sitjajyrir svörum um allt það sem
lýtur að ostum og ostagerð og bjóða þér að bragða á ostunum sínum.
OSTARNIRVERÐAÁ KYNNINGARVERÐI
- notaðu tækifærið!
OSTALYST 2
- kynning á nýrri bók.
VERÐLAUNASAMKEPPNI
- stöðugt verið að draga úr pottinum.
OPIÐ HÚS
að Bitruhálsi kl. 1 -6
laugardag 2. okt. & sunnudag 3. okt.
OSTA OG
SMJÖRSALAN SE