Alþýðublaðið - 07.10.1993, Blaðsíða 7
1
Um leið og Reykjavíkurborg þakkar
samskiptin við SVR á liðnum sextíu árum
býður hún borgarbúa velkomna til
viðskipta við SVR hf.
Góðar almenningssamgöngur á traustum
rekstrargrunni eru allra hagur.
Ada flytur píanó með sér til hinna nýju
heimkynna en Steward neitar að flytja það að
húsi sínu vegna þunga þess. En Ada verður að
fá píanóið og það uppgötvar nágranni þeirra
Baines (Keitel). Hann kaupir píanóið af Ste-
ward, flytur það heim til sín og semur við Ödu
urn að hún geti eignast gripinn aftur ef hann
fær að láta hana gera eitthvað í staðinn; Eitt
viðvik fyrir hveija svaita nótu.
Myndin er ótrúlega vel gerð að öllu leiti.
Leikur er frábær og fer þar fremst jafningja
Holly Hunter sem túlkar Odu frábærlega. Hún
nær að sýna það sem hún vill án þess að segja
eitt aukatekið orð. Jafnvel Anne Paquin sem
leikur dóttur Ödu er allgóð.
Tónlistin er sérstaklega skemmtileg. Mi-
chael Nyman sem sá um tónlist myndarinnar
semur sérlega falleg og viðeigandi píanólög
sem auka áhrifamátt atriða til muna.
Það er flest frábært við þessa mynd: Leik-
stjóm, leikur, myndataka, tónlist, búningar og
klipping. Er hægt að hugsa sér eitthvað betra?
Niðurstaða: Nú er kominn tími til að hrista
af sér slenið og bregða sér í bíó. „The Piano“
er mögnuð mynd!
BARDIJÓHANNSSON
StrætisVagnar
Reykjavíkur
Hagur Fólksins
AWMMitö - - 6Z-9Z-M - ími - 6Z-55-66
Fimmtudagur 7. september 1993
KVIKMYNDIR & SKILABOÐ
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7
KVIKMYNDIR
}The Piano“ í Regnboganum
ERMOGNUD
PIANO
MYNDI
REGNBOGINN: The Piano - LEIKSTJORI: Jane Campion -
AÐALHLUTVERK: Holly Hunter, Harvey Keitel, Sam Neill og
Anne Paquin - HANDRIT: Jane Campion - TÓNLIST: Michael
Nyman - STJÖRNUR:
The Piano gerist á síðari hluta 19. aldar og fjallar um mállausa konu að
nafni Ada (Hunter) sem er send ásamt níu ára dóttur sinni til Nýja Sjá-
lands. Er búið að fyrirfram ákveða hjónaband hennar og Stewards (Neill)
nokkurs. Þau höfðu aldrei sést nema á myndum og er Ada ekkert sérlega
ánægð með hlutskipti sitt. Eini hluturinn sem veitir henni lífsfyllingu er
dóttir hennar og píanóleikur.
Reylcjat/flctir
a r»ym
Strœtisvagnar Reykjavíkur þjóna
nú tim 105.000 íhúum i
Reykjavík og á Seltjamamesi og
að auki öllutn þeitn sem sœkja
beim höfuðborgina og nýta sér
almenningssamgöngur ittnatt
bennar. Starfsmenn SVR eru
tceplega 200. Fyrirtœkið á 71
strœtisvagn og vagnamir rúma
samtals 6.023farþega. Á bverju
ári aka vagnamir alls um 4,3
mtlljónir kílómetra og brenna
um 2,4 milljónum lítra af
eldsneyti. Strtetisvagnar
Reykjavíkttr aka á 20 leiðum og
er leiðakerfið samtals 370
kílómetrar. Biðstöðvar em 420
og biðskýli 260. Árið 1992ferð-
uðusl 6,7 milljónir farþega með
vögnunum.
íár er ácetlað að fargjöld með
Strœtisvögnum Reykjavíkur
nemi 395 milljónum króna.
Reykjavíkurborg leggur um 256
milljónir króna til rekstrarins
og Seltjamanies 7,4 milljónir
króna. Aðrar tekjur nema 14,1
milljón króna. Gjöld em áœtluð
um 630 milljóiiir króna. Þar af
er kostnaður við rekstur
vagnanna utn 440 milljónir
króna en annar kostnaður
skiptist á verkstœði, þvottastöð,
skrifstofu, bið- og skiptistöðvar,
fasteignir o.fl.
Stofnað hefur verið hlutafélag í eigu
Reykjavíkurborgar, Strætisvagnar
Reykjavíkur hf., sem tekur við rekstri
Strætisvagna Reykjavíkur frá og með
1. desember nk.
Með stofnun hlutafélags um rekstur
Strætisvagna Reykjavíkur er að því stefnt
að gera rekstur strætisvagnanna
hagkvæmari og skapa þannig grundvöll
fyrir enn betri þjónustu við borgarana og
fyrir gott vinnuumhverfi og bætt kjör
starfsfólks.
Jafnframt er hinu nýja rekstrarformi
ætlað að gefa stjórnendum fyrirtækisins,
í samráði við eiganda þess,
Reykjavíkurborg, frjálsari hendur um
nýtingu fjármuna, uppbyggingu á
starfseminni, endurbætur og tillögur að
stefnumótun. Á móti kemur að
stjórnendur hins nýja hlutafélags munu
axla ríkari persónulegri ábyrgð á rekstri
þess.
Borgarstjórn Reykjavíkur mun eftir sem
áður ákveða fyrirkomulag á þjónustu
almenningsvagna í borginni en felur '
Strætisvögnum Reykjavíkur hf. að sjá um
framkvæmd hennar.
Stjórn hins nýja hlutafélags,
Strætisvagna Reykjavíkur hf., skipa:
Ragnar Kjartansson, sem jafnframt er
formaður, Ásgeir Þórðarson, Guðmundur
Ólafsson, Hannes H. Garðarsson og
Þórunn Pálsdóttir. Forstjóri er Sveinn
Björnsson.