Alþýðublaðið - 08.10.1993, Side 2

Alþýðublaðið - 08.10.1993, Side 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ LEIÐARI, RÖKSTÓLAR & ALÞINGI Föstudagur 8. október 1993 MMDIIBiMIIII HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566 Útgefandi: Alprent hf. Framkvaemdastjóri: Ámundi Ámundason Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason Setning og umbrot: Hermóður Sigurðsson Prentun: Oddi hf. Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566 Fax: 629244 Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 140 Tvískinnungur stjórnarandstöðunnar Stjórnarandstaðan hefur farið geyst í andófi sínu við þá ákvörðun heilbrigðisráðherra að færa rekstur leikskóla sjúkrahúsanna yfir á sveitarfélögin. En lögum sam- kvæmt eiga þau að hafa rekstur þeirra með höndum. Þannig var á fyrsta almennum starfsdegi þingsins efnt til sérstakrar umræðu um málið utan dagskrár, þar sem all- ir talsmenn stjómarandstöðunnar mæltu gegn breyting- unni. Þetta er hins vegar ekki fyrsta umræðan sem hefur átt sér stað í þinginu um málið. Þann 14. apríl 1992 var rætt um nákvæmlega sama efni. Tilefnið var þingsályktunar- tillaga frá tveimur þingmönnum, þar sem lagt var til ná- kvæmlega sama breyting á leikskólum spítalanna og ráðherrann hyggst nú beita sér fyrir. Þá var hins vegar allt annar tónn hjá stjómarandstöðunni: þá töluðu nefni- lega allir fulltrúar hennar með breytingunni. Guðmundur Bjamason, Framsóknarflokki, lýsti þá full- um stuðningi við hugmyndimar, og taldi verst að þessari brýnu breytingu hefði ekki verið hreyft fyrr í þingsölum. Hann beitti sömu rökum og Guðmundur Ámi núna, og kvað flutning leikskólanna yfir til sveitarfélaganna ekki síst nauðsynlegan vegna þeirra fjárhagslegu þrenginga, sem gengið hafa yfir ríkissjóð og heilbrigðisstofnanimar sérstaklega. Pétur Bjamason, varaþingmaður Fram- sóknar, lýsti fulium stuðningi við tillöguna, og úr röðum Alþýðubandalagsins talaði Kristinn H. Gunnarsson, og tók undir meginefni hennar. Fulltrúi Kvennalistans í um- ræðunni, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, þakkaði sér- staklega fyrir tillöguna, og sagði orðrétt: „Þetta misræmi sem er í gangi á milli sveitarfélaga í landinu er með slík- um eindæmum, að nauðsynlegt er að vekja athygli á því, þannig að eitthvað verði gert í framhaldi af þeirri um- ræðu.“ Það ríkti því alger einhugur hjá jafnt stjóm og stjómar- andstöðu um málið, þegar það var rætt á sínum tíma í þinginu. Sá einhugur speglaðist ekki síst í því, að tveir þingmenn stjómarandstöðunnar, Guðmundur Bjamason og Svavar Gestsson, áttu frumkvæði að því að taka mál- ið upp í stjóm Rikisspítalanna, til þess einmitt að flytja rekstur leikskóla spítalanna yfir á sveitarfélögin. Það tókst hins vegar ekki. Nú hefur hins vegar Guðmundur Ámi Stefánsson tekið stjómarandstöðuna á orðinu. Hann fór að hvatningu Kvennalistakonunnar Jónu Valgerðar og tók á málinu. Þá bregður svo við, að gervöll stjórnarandstaðan hefur skipt um skoðun, og er nú á móti því sem hún mælti ein- dregið með fyrir einu og hálfu ári. Ef þetta er ekki henti- stefna, - hvað er þá hentistefna? Hentistefna og kjarkleysi andstöðunnar birtist ekki síst í því, að þeir þingmenn hennar sem áður lýstu eindregn- um stuðningi við málið, - þeir ýmist tóku ekki til máls í umræðunni á miðvikudaginn, eða létu sig hverfa úr þingsal meðan á henni stóð. Stórhugur, - eða hvað? RÖKSTÓLfiR ALÞINGl ER ORÐIÐ AÐ KJÖRBÚÐ Hið háa Alþingi hafði starf- að í hartnær 70 ár þegar það rann upp fyrir íslensku þjóð- inni, að þingmenn töluðu of mikið. Það er sennilega vegna þess að þjóðin hafði bara alls ekki hlustað á þá fulltrúa sem hún kaus á þing fyrir daga þingsjónvarps. Aður var kosning nánast eins og að ganga í hjónaband; menn völdu sér maka og létu sér síð- an í léttu rúmi iiggja, hvort makinn malaði dag og nótt eða ekki. Enda hafa alþingismenn mal- að fjandann ráðalausan í 70 ár eða svo. Ef allar þingræður í gegnum tíðina væru gefnar út, myndi hin nýja Þjóðarbókhlaða ekki nægja til að vista allan þann pappír. Guði sé lof að hægt er að geyma málæðið á míkrófilmum eða tölvudiskum nú til dags. Borað í nefi og Tíminn lesinn Það er annars undarleg þver- sögn að þingmenn tali svona mikið á þingi, því yfírleitt eru þeir íjarverandi af vinnustað. I þau skipti sem íslenska þjóðin gægist inn í þingsali, blasa við auðir stólar og einstaka þing- maður að bora í nefið og lesa Tímann. Það bregst hins vegar ekki að uppi í ræðustól stendur málóður þingmaður og ryður út úr sér ræðunum. Þetta er það sem kallað er eðlileg þingstörf eða þingsköp. Málæðið ber gjörsamlega úr böndunum þegar ríkisstjómar- flokkamir reyna að koma fmm- vörpum sínum í gegnum þingið. Þá standa þingmenn stjómar- andstöðunnar tímum, dögum og jafnvel vikum saman í pontu og lesa upp úr Sveitarstjómarmál- um, Símaskránni og Hagtíðind- um til að teygja lopann. Þetta er kallað málþóf. Það er sem sagt skipulagt málæði til að stöðva afgreiðslu mála. Málþófið er í eðli sínu fjárkúgun. Málþófslið- ið er þar með að gefa þau skila- boð til stjómarliðsins, að þeir muni halda uppteknum hætti að lesa í nokkrar vikur upp úr símaskránni nema að þeir fái að koma nokkmm frumvörpum sínum í gegn. Fjárkúgun, vegna þess að fmmvörpin kosta yfir- leitt ríkið mikla peninga. Að lokum gefast stjómarliðar upp og það er sest niður og um það samið hvaða fmmvörp fara í gegn. Þegar hrossakaupin em gerð, fara þingmenn að tala eðlilega, það er að segja innan við klukkutíma ræðu hver. Stjómarandstaða í ríkisstjórn Ríkisstjóm Davíðs Oddsson- ar hefur nú komið með nýja lausn á málþófi og hrossakaup- um. I stað þess að pína allan þingheim og þjóðina alla (eftir að skipulagðar sjónvarpsút- sendingar frá Alþingi hófust) til að hlusta á Hjörleif, Kristínu og Pál frá Höllustöðum, var gert nýtt fyrirkomulag. Það felst í því að láta stjómarandstöðuna fá formennsku í nokkmm nefndum í því skyni að hún tali minna. Stjómarandstaðan hefur tekið þessu vel. Hún sér í hendi sér að þar með sé hún í raun komin í ríkisstjóm án þess að vera í rík- isstjóm. Formennska í nefndum er á við hálfan ráðherrastól og vel það. Með því að stjóma fastanefndum Alþingis í meira og minna mæli, hefur stjómar- andstaðan í raun tekið völdin á Alþingi. Eins og aikunna er, þá hætta menn að gagnrýna þegar þeir fá völd. Þá þurfa þeir að veija sig fyrir gagnrýni annarra. Þetta heitir á fagmáli að draga menn til ábyrgðar. Davíð og félagar sjá þetta sem nauðsynlegt upp- eldisatriði eftir að stjómarand- staðan hefur sérhæft sig í þæ- fingum og málæði. Stjómarand- staðan er hins vegar alsæl að fá formennsku og varaformennsku í helstu nefndum Alþingis og álítur að hún hafi talað sig til sigurs. Utkoman er því mjög skemmtileg. Málþófi er lokið á þingi, ræðutími verður styttur og allir verða ábyrgir. Það eina sem stingur í augun, er auðvitað að nú verður ekkert stjómarlið og engin stjómarandstaða til. Nú sitja eiginlega allir þing- menn í stjóm. Ríkisstjómin er því að mestu leyti orðin óþörf. Dauðadómur fyrir skattgreiðendur Landinu verður að mestu stjómað neðan úr Alþingi þar sem kurteisir, fáorðir og ábyrgir þingmenn koma sér saman á mettíma hvemig þurfi að af- greiða mál þjóðarinnar. Þetta er sennilega það snjallasta sem nú- verandi ríkisstjóm hefur gert og ömgglega það vitrænasta sem stjómarandstaðan hefur lengi framkvæmt. Fyrir skattgreiðendur er þetta fyrirkomulag sennilega dauða- dómur. Áður fyrr var Alþingi líkt og búðin á hominu þar sem ráðherramir stóðu vörð um rík- isútgjöldin, líkt og ábyrgar hús- mæður sem spurðu um hvað hvert gramm kostaði. Nú er Al- þingi orðin kjörbúð það sem all- ir ryðjast um gólfin með risa- stóra innkaupavagna og moka úr hillunum til hægri og vinstri. En auðvitað hefur afgreiðslan stórbatnað. fiLÞÝÐUBLfiÐIÐ 6 fiLÞINGI EINMANA A ALÞINGI - Ein HJORL, TVO HJORL, ÞRJU HJORL - ZZZZZZZZZZZ Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.