Alþýðublaðið - 08.10.1993, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 08.10.1993, Blaðsíða 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 Föstudagur 8. október 1993 STJÓRNMÁLAVIÐHORFIÐ ELDHÚSDfKiSUMRfEÐUR R fiLPINGI Jón Baldvin Hannibalsson ALLT AFLAVERDMÆTI UR SJÓ FER í AFBORGANIR - af erlendum lánum, segir formaður Alþýðuflokksins Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks íslands - flytur ræðu sína við ddhúsdags- umræðurnar á Alþingi síðastliðinn þriðjudag. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason „Virðulegur forseti. Góðir ís- lendingar. f kosningabaráttunni í Noregi fyrir nokkrum vikum gerðist það að talsmaður Verkamanna- flokksins í efnahagsmálum lýsti yfir með skiljanlegu stolti að á næsta ári yrði Noregur skuldlaus við útlönd. Auðvitað er Noregur olíuríki en orkulindir ókkar eru ekki enn farnar að mala okkur nægilega gullið. En þegar við skundum á Þingvöll 17. júní 1994 þá er því miður öðru vísi um að iitast í okkar þjóðarbúskap. Þá er því spáð að erlendar skuldir okk- ar til langs tíma fari að nálgast 70% af landsframleiðslu okkar og að greiðslubyrðin verði ein- hvers staðar á bilinu 30-40%. Því er spáð með öðrum orðum að langtímaskuldir okkar verði um 265 milljarðar á afmælisárinu. Hvað er það í samanburði við eitthvað annað? Ja, það er svona svipað eins og fasteignamat allra fasteigna í Reykjavíkurborg sem er þó heldur hærri upphæð. Greiðslu- byrðin, það sem við þurfum að borga í vexti og afborganir af þess- um háu upphæðum, því er spáð að hún verði á næsta ári um 51 millj- arður króna. Við erum ekki vön því að skilja svona háar tölur. En til samanburðar mætti nefna að heild- araflaverðmæti af Islandsmiðum upp úr sjó, miðað við hráefnisverð, er metið á tæpa 50 milljarða. Ut- gjöld okkar til heilbrigðisráðuneyt- isins, veigamesta þáttar velferðar- kerfisins, er metið upp á 47,7 millj- arða á verðlagi fjárlagafrumvarps- ins. 16,6 milljarðar í vexti Þetta eru hrikalegar tölur. Bara í vexti til útlendinga vegna þeirra lána sem við áður höfum tekið munum við borga á næsta ári 16,6 milljarða. Það er eins og öll útgjöld menntamálaráðuneytisins. Það er hærri upphæð en öll útgjöld allra sjúkrahúsa á íslandi. Það er meira en heildartekjur Reykjavíkurborg- ar. Stöldrum nú við. Þeir sem gagn- rýna núverandi rikisstjóm harðast, þeir sem veitast hvað harðast að til dæmis núverandi heilbrigðisráð- herra, sem stendur frammi fyrir nokkmm vanda, eru þeir sem hér eru inni staddir allir saklausir af því að hafa efnt til þessara lána og þess- ara skulda? Hafa þeir allir efni á að bera fram þessa gagnrýni? Og það skal tekið fram að sagan er ekki öll sögð þótt þessar tölur séu nefndar. Það er vissulega laukrétt sent fram kom í máli forsætisráðherra að þrátt fyrir tekjubrest og þrátt fyrir afla- brest þá hefur samt sem áður tekist að snúa viðskiptahalla sem var upp á 18 milljarða árið 1991 í 5,5 millj- arða. Það hefur tekist að skera niður lánsfjárþörf ríkissjóðs úr 40 millj- örðum í það sem spáð er, 23 millj- arða. Það hefur dregið úr, þrátt fyrir þessa hrikalegu erfiðleika, hraða skuldasöfnunarinnar. En það breyt- ir ekki því að það er ólíkt hlutskipti hinnar ungu kynslóðar í Noregi sem er að hasla sér völl á nýrri öld skuldlaus eða þeirrar ungu kynslóð- ar sem tekur við af okkur um alda- mótin. Spara útgjöld um 10 milljarða Virðulegi forseti. Um hvað snýst stjómmálaumræðan við þessi skil- yrði? Leiðum fram nokkur vitni. Talsmenn stjómarandstöðunnar segja að ríkisstjómin hafi engum árangri náð og alls engum í ríkis- fjármálum. Hverjar em staðreynd- imar? Staðreyndirnar em þessar að ef við tökum ríkisútgjöld og fæmm þau upp til verðlags fjárlagafrum- varpsins þá vom þau 122 milljarðar 1991. Þið sem emð búin að lesa fjárlagafrumvarpið, sjáið að þar er gert ráð fyrir útgjöldum upp á 112 milljarða, með öðmm orðum spam- aði að raungildi upp á um 10 millj- arða án þess að hækka skatta. Þetta er ekki fordæmanlegur árangur en ég viðurkenni að hann er takmark- aður og við þurfum að gera betur og við þurfum öll sameiginlega að gera betur. Það er ekki nóg að gera hróp að stjóm sem stendur ffammi fyrir erfiðum ytri skilyrðum. Það þarf líka að láta reyna á þegnskap stjórnarandstöðunnar. Þeir segja að við höfum rústað velferðarkerfið og meira að segja dagfarsprúðar konur eins og sú sem hér talaði áðan, háttvirtur þingmað- ur, talaði um spellvirki í því sam- bandi. Af hverju er fólk með þenn- an ýkjustíl? Þeir sem em búnir að lesa fjárlagafmmvaipið vita að framlög til heilbrigðismála aukast að raungildi frá því í fyrra. Framlög til félagsmála aukast um um það bil milljarð, til menntamála standa þau nokkum veginn í stað. Með öðmm orðum, það er aukning á framlög- um um 2,2 milljarða. Þetta er ekki spellvirki Sighvatur Björgvinsson hæst- virtur fyrrverandi heilbrigðisráð- herra stóð í ströngu við það að koma í veg fyrir að aukning út- gjalda héldi áfram þreföld umfram aðra verðmælikvarða í þessu þjóð- félagi og er fyrsti heilbrigðisráð- herrann sem náði þeim árangri að stöðva þensluna. Nú þegar Guð- mundur Ámi Stefánsson þreytir eldskím sína í þessari pólitík þá á hann í raun og vem skilið að fá stuðning ykkar allra í staðinn fyrir að þið gerið að honum hróp með til dæmis þeim hætti að kalla þetta spellvirki. Þetta er ekki spellvirki. Þetta er barátta við erfið skilyrði til þess að varðveita ljárhagslegan gmndvöll þýðingarmestu þátta vel- ferðarkerfisins. Talsmenn stjómarandstöðunnar segja að það hafi ekki verið tekið nægjanlega tillit til þess að jafna byrðunum af réttlæti. Eg er ekki viss um það þegar það mál er skoð- að að þegar þeir sem hæst tala urn það, hafi rétt fyrir sér. Fyrrverandi ríkisstjóm tekjutengdi margar bóta- greiðslur velferðarkerfisins, þessi ríkisstjóm hefur gengið lengra í því að því er varðar bæði lífeyrisbætur, bamabætur og vaxtabætur. Þjón- ustugjöld hafa verið lögð á en þau em líka tekjutengd og þau em með þökum til þess að reyna að hlífa þeim sem minnst bera úr býtum. Mesta öfugmælasmíðin Hvemig stendur á því að það er þessi ríkisstjóm sem lagði á há- tekjuskatt en ekki til dæmis fyrrver- andi ríkisstjóm? Hvemig stendur á því að það er þessi ríkisstjóm sem dregur vemlega úr virðisaukaskatti, lækkar virðisaukaskatt, og kemur þannig til móts við kröfur verka- lýðshreyfingarinnar? Hvemig stendur á því að. það er þessi ríkis- stjóm sem tekur pólitíska ákvörðun urn að koma á húsaleigubótum en ekki fyrrverandi ríkisstjóm? Þannig mætti lengi telja. Og hvemig stend- ur á því að fyrrverandi ríkisstjóm, vinstri stjóm, gat ekki komið á fjár- magnstekjuskatti en þessi ríkis- stjóm mun gera það? Eg er alveg sannfærður um það að þegar menn skoða þetta mál án fyrirfram hleypidóma þá er niðurstaðan önn- ur en sú sem stjómarandstaðan vill vera láta. Mesta öfugmælasmíðin er þó sú þegar háttvirtir leiðtogar stjómar- andstöðunnar segja að þessi ríkis- stjóm skipti sér ekki af atvinnulíf- inu. Það hefur engin ríkisstjóm í sögu lýðveldisins á Islandi lagt jafn mikið af mörkum við að treysta at- vinnulífið á Islandi eins og þessi. Og hver em rökin fyrir þessari full- yrðingu? Þau eru ekki bara EES- samningur sem tryggir markaðsað- gang tollfrjálsan að helstu mörkuð- um okkar. Nei. Þessi ríkisstjóm hefur létt sköttum af atvinnulífinu upp á marga milljarða króna. Þessi rikisstjóm hefur ekki bara skuld- breytt upp á gamla mátann. Hún til dæmis boðar núna Þróunarsjóð fyr- ir sjávarútveginn til þess að hraða þar fjárhagslegri endurskipulagn- ingu og aukinni hagræðingu. Þessi ríkisstjóm hefur lagt fram bein framlög á fjárlögum til atvinnu- sköpunar upp á að minnsta kosti þijá milljarða á átinu 1993, senni- lega á bilinu íjóra til fimm milljarða áámnum 1993-1994. Þannig mætti lengi telja. Það er öfugmæli að segja að þessi ríkisstjóm sé afskipt af atvinnulífinu. Arangur hefur náðst Virðulegi forseti. Ef við bemm okkur saman við aðrar þjóðir þá er auðvelt að sýna tram á nokkrar bjartar hliðar og að árangur hefur náðst. Þrátt fyrir allt hefur náðst betri árangur hér í ríkisfjármálum en víðast hvar annars staðar. Mun- urinn er bara sá að skuldir okkar í útlöndum em orðnar hættulega miklar. Svíar skulda sjálfum sér. Þótt hallinn í Svíþjóð sé mikill í rík- isbúskapnum þegar þeir fara að borga til baka þá borga þeir sænsk- um þegnum og það mun auka fram- boð á fjármagni í þeirra bönkum. Það mun lækka þar vexti, það mun skapa þar nýtt vaxtarskeið. Þetta er hættustigið hjá okkur. Þetta er það sem við þurfum að laga. Og þá kemur að því. Þrátt fyrir þann árangur sem náðst hefur, þá hefur þessi ríkis- stjóm í samskiptum sínum við verkalýðshreyfinguna gengið ansi langt í því að fá sátt á vinnumarkað- inum gegn því að lækka tekjustofna eins og virðisaukaskattinn og leggja fram fé til atvinnusköpunar. Látum vera. Það er matsatriði hvort þetta var í jafnvægi. En jretta er gert á kostnað þess að við emm áfram að auka erlendar skuldir okkar vegna hallareksturs í opinbera bú- skapnum. Og það er varasamt út af því að við verðum að viðhalda láns- trausti okkar. Og ég segi sérstak- lega þetta: Það er satt að segja eng- ar vissar horfur um það hvenær snýr við til hins betra í okkar efna- hagslífi. Það getur tekið nokkum tíma. Jafnvel þótt klak á þorskfisk- um takist bærilega núna þá getur það klak misfarist við breytileg náttúmskilyrði. Ahætta sem ég vil ekki taka Ef við fáum aftur 300 þúsúnd tonn af þorski eftir íjögur ár þá má það ekki vera svo að við væmm búnir að halda áfram að slá erlend lán þannig að við væmm búnir að veðsetja 150 þúsund tonn af þorski þannig að batinn, góðærið, færi áfram til útlendinga og kæmi okkur ekki að neinum notum við að skapa nýtt vaxtarskeið á nýju kjörtímabili. Það er þetta sem er hættulegt. Það er þessa áhættu sem ég vil ekki taka og ég skora á Alþingi íslendinga, því að hér eiu þessar ákvarðanir teknar, á alla flokka, á alla pólitíska forystumenn, ég skora á ykkur að efna til þjóðarsáttar um eitthvað annað en rányrkju, um eitthvað annað en skattsvik og um eitthvað annað en erlenda skuldasöfnun vegna þess að þegar við að lokurn steðjum á Þingvöll til þess að fagna 50 ára afmælis lýðveldisins þá skul- um við reyna eftir megni að sýna okkar þegnskap í verki með því að færa lýðveldinu aðra gjöf en gjald- fallna vtxla. Við skulum láta á það sannast á Alþingi Islendinga að hér em ekki bara í fyrirsvari sendiherr- ar sérhagsmuna. Að hér em menn sem geta vikið þröngri sérhags- munagæslu til hliðar og sameinast um það þegar almannaheill krefst að taka á þessum skuldamálum eins og lagt er til með þvf að við styrkj- unt þetta ljárlagafrumvarp, megin- mál þingsins með því að lækka frekar ríkisútgjöld. Tillögur um það verða lagðar fram fyrir ykkur, hátt- virtir þingmenn, og styrkja jafnvel tekjuhliðina með þvt að sameinast um að koma á skattlagningu fjár- magnstekna. Virðulegi forseti. Besta afmælis- gjöfin sem við getum gefið nýrri kynslóð sem tekur við af okkur væri sú að það skapaðist samstaða um slíkan þegnskap.”

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.