Alþýðublaðið - 15.10.1993, Blaðsíða 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3
Föstudagur 15. október 1993
STUTTFRETTIR
Enn eitt bílageymsluhúsið
í dag opnar enn eitt bOageymsluhúsid í miðbæ
Reykjavíkur. Það er við Vitastíg, milli Hverfisgötu og
Skúlagötu. í húsinu eru 230 bílastæði. Því miður er notk-
un bílageymsluhúsanna í borginni sáralítil. Ástæðan er
fyrst og fremst allt of hátt verð á leigugjöldum. Starfs-
menn í miðborginni forðast geymslumar sem heitan eld-
inn, en leggja ökutækjunum um allar trissur þar sem
ókeypis er hægt að leggja. Hvemig væri að lækka gjöld-
in í bflageymslunum og venja fólk við notkun þeirra?
Allt hlutafé SR-mjöls hf.
til sölu
Sjávarútvegsráðherra, Þorsteinn Pálsson, undirbýr
nú að selja öll hlutabréf íSR-mjöli hf, nýstofnuðu tyrir-
tæki um SUdarverksmiðjur ríkisins víða um land. Þetta
er gert samkvæmt tillögum stjómar fyrirtækisins. Lagt er
til að leitað verði að kaupendum að félaginu úr hópi fjár-
festa, en almennt hlutatjárútboð fari ekki ffam. Starfs-
hópur vinnur að því að fría ríkið af rekstri SR- mjöls hf..
Þrfr Norsarar á toppnum
hjá SAS
Eftir að Jan Carlzon var púttað út úr forstjórastólnum
hjá SAS í lok síðasta mánaðar, sitja þrír Norðmenn á
toppnum hjá þessu stóra flugfélagi. Jan Reinás hefúr
tekið við stari Carlzons; næstir honum koma Kjell Fred-
heim og Gunnar Reitan. Carlzon einbeitir sér nú að
svokölluðu Alcazar-samvinnu SAS, KLM, Swissair og
Austrian Airlines. Komi sú samvinna til með að ganga
upp, á Carizon von á að verða í stjóm hins nýja, sameig-
inlega stórflugfélags.
Koltvíoxíö í hafinu
Prófessor David Dyrsscn frá Háskólanum í Gauta-
borg heldur fyrirlestur í stofu 157 í húsi verkfiæðideild-
ar Háskóla íslands á mánudaginn kl. 17.15 og er hann
öllum opinn. Prófessorinn mun fjalla um jlœði koltvíox-
íðs í hafinu, hvemig efhafræðilegir eiginleikar hafsins
tengjast magni og flutningi gróðurhúsalofttegundarinnar
C02 í hafinu. Prófessor Dyrssen hefur um áratuga skeið
veitt forstöðu hafefhafræðideild Háskólans f Gautaborg.
Lærum og leikum í
Gerðubergi
Menningarmiðstöðin Gerðuberg gengst í vetur fyrir
námskeiðum í handíðum og fóndri sem ætluð eru allri
fjölskyldunni. Markmiðið er að gefa foreldruin, bömum,
ömmum og öfum, tækifæri úl að veija saman notalegri
stund í leik og starífi. Námskeiðin fara fram á laugardags-
morgnum ffá kl. 10.15 til 13 og hvert námskeið stendur í
þrjú skipti. Fyrsta námskeiðið hófst í síðasta mánuði og
glímir fjölskyldan þá við gerð plastmódela. Leiðbein-
andi er Árni Guðmundsson. Síðar í vetur verður nám-
skeið í fluguhnýúngum og skartgripagerð. Upplýsingar í
Gerðubergi.
Irá starfseminni i Gerðubergi.
Minningar 2 styrkja
Rauðakrosshúsið
Hljómplatan Minningar 2 er nú seld í gegnum síma úl
styTktar Rauðakrosshúsinu. Þetta hús við Tjamargötu er
opið allan sólarhringinn alla daga og þangað leita ung-
menni sem eiga við vandamál að stríða. Þau fá þar mat,
húsaskjól, viðtöl, leiðbeiningar um úrræði og hjálp úl
sjálfsbjargar. Húsið hefur staðið opið í 8 ár. Þar hafa um
850 ungmenni gist og tekið hefur verið á móú meira en
29 þúsund símtölum. Þörfrn fyrir sltka þjónustu er því
greinileg.
Hafnarborg 5 ára
Aðeins fimm ár eru liðin frá því að Hafnarborg hóf
starfsemi sína í Hafnarflrði. Sýningarsalir hússins eru
geysilega eftirsóttir og þar hefur þróast mikið og gott
listalíf, sem almenningur tekur eftir. Á 5 ára starfsafrnæl-
inu stendur nú yfir sýning á verkum í eigu safnsins, verk
eftir fjölda listamanna, og þau af ýmsu tagi. Nýlega kom
út bók í tilefni tímamótanna þar sem rakinn er annáll
starfseminnar í fimm viðburðarík ár.
____STUTTFRÉTTIR & AIDAMÓT
ALDAMÓT - HVENÆR?
Nú fer að líða að aldamótum,
tuttugasta öldin að mæta þeirri
tuttugustu og fyrstu. Hátíðar-
undirbúningur er víða að hefjast
og strax má heyra fólk ræða
hvar best muni vera að hagræða
sér á slíkum tímamótum. Aðrir
velta því fyrir sér hvort ísland
verði byggilegt þegar þangað
nær eða hvort þeir sjálfir verði
til viðtals. Hvað sem verður em
sterkar líkur til að aldamótin
verði. Spumingin er bara, hve-
nær?
Um þetta er deilt í svipuðum
dúr og deilt var um hvort jörðin
væri flöt eða hnöttótt hér á öld-
um áður. Deiluaðilar skiptast í
tvo flokka. Sá fyrri heldur því
fram að ný öld hefjist með
fyrstu sekúndunni sem líður á
árinu 2000 og beita því fyrir sig
Kristur hafi hafið göngu sína á
árinu einn ffemur en á núlli, eða
eitthvað í þá áttina. Þeir sem
öndverðu máli fylgja, telja á
hinn bóginn, að ný öld muni
breiða út faðm sinn um leið og
tólfti klukknahljómurinn hefur
fjarað út á síðasta degi desem-
ber mánaðar árið 2000. Blaða-
menn Alþýðublaðsins hafa eytt
vikunni, ásamt ritstörfum í hjá-
verkum í innbyrðis deilur vegna
þessa brennandi máls. Svo hat-
rammar urðu deilur þessar að
leita varð til úrskurðaraðila er
væri því andlega gervi prýddur
að við hæfi væri. Þorsteinn Sæ-
mundsson, stjamfræðingur við
HI, varð fyrir valinu.
Urskurður: næstu aldamót
sem og öll hin fyrri og síðari
hefjast í sárið 2001.
Foreldrar í Reykjavík,
vinsamlegast athugið eftirfarandi:
ÚTIVISTARTÍMIBARNA
Börn 12 ára
og yngri
mega ekki vera á almannafæri
eftir kl. 20.00 frá 1. september
til 1. maí (vetur) og eftir kl. 22.00
frá 1. maí til 1. september (sumar) nema
í fylgd með fullorðnum.
Börn á aldrinum
13 til 16 ára
mega ekki vera á almannafæri
eftir kl. 22.00 frá 1. september til
1. maí (vetur) og kl. 24.00 frá 1. maí til
1. september (sumar) nema í fylgd með fullorðnum
eða um sé að ræða beina heimferð frá viðurkenndri
skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu.
AÐGANGUR BARNA OG UNGMENNA
AÐ DANSLEIKJUM
OG ÖÐRUM SKEMMTUNUM
Börnum yngri en 16 ára
er óheimill aðgangur og dvöl á dansieikjum öðrum
en sérstökum unglinga- eða fjölskylduskemmtunum
sem haldnar eru af skólum, æskulýðsfélögum eða
öðrum þeim sem til þess hafa leyfi. Miða skal aldur
við fæðingarár.
Börnum eða ungmennum
innan 18 ára aldurs
er óheimill aðgangur og dvöl á stöðum sem hafa
leyfi til áfengisveitinga nema í fylgd með foreldri,
öðrum forsjáraðila eða maka.
Miða skal aldur við fæðingardag.
Ungmenni innan
18 ára aldurs
mega ekki starfa á stöðum sem hafa
leyfi til áfengisveitinga nema
það sé liður í viðurkenndu iðnnámi.
Knattborösstofur, leiktæki
og spilakassar
Börnum innan 14 ára
er ekki heimill aðgangur að knattborðum,
spilakössum eða leiktækjum nema
í fylgd með forráðamönnum.
Miða skal aldur við fæðingarár.
Úr lögum nr. 58, 1992, um vemd bama og ungmenna
Úr lögreglusamþykkt Reykjavíkur frá 22. desember 1987.
Lögreglustjórinn
í Reykjavík
Borgarstjórinn
í Reykjavík