Alþýðublaðið - 21.10.1993, Page 5

Alþýðublaðið - 21.10.1993, Page 5
Fimmtudagur 21. október 1993 OPNA UNGA FOLKSINS ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 SANNFÆRINGIN SAMEIGINLEGT FRAMBOÐ! Nú í dag er komið að þeirri stund að Alþýðuflokksmenn í Reykjavík ákveði hvemig bjóða. skuli fram í komandi borgarstjómarkosningum. Nokkur umræða hefur farið fram undanfarið um hvaða leið sé best til þess að ná megi árangri og hafa fulltrúar ungra jafnaðarmanna í Reykjavík verið þar í fremstu röð. Umræðan heíiir fyrst og fremst snúist um hvort Alþýðuflokkurinn býður fram eigin lista eða leiti eftir samstarfi annara minnihlutaflokka um sameiginlegan lista í komandi kosningum. Stjóm FUJ í Reykjavfk sendi á dögunum frá sér ályktun þess efnis að sameiginlegt framboð sé nauð- syn til að ná árangri og krafðist þess að fulltrúaráðið hefði nú þegar við- ræður við aðra flokka um þessi mál. Astæða þess að þetta var sam- þykkt í stjóm félagsins var einföld, það er öðmvísi er ekki hægt að ná árangri. Færð vom rök fyrir þessu og er helst að minnast á að þvf fleiri framboð sent em þeim mun meira græðir stærsti flokkurinn vegna þess hversu mörg atkvæði falla dauð meðal hinna flokkana. Sem dæmi má nefna að ef 7 framboð em gegn Sjálfstæðisflokki þá falla að meðaltali 10-15 þúsund atkvæði greidd minnihlutaflokkun- um dauð. Þannig gæti farið svo að Sjálfstæðisflokkurinn gæti unnið - Ingvar Sverrisson skrifar hreinan meirihluta með tæplega 40% atkvæða. Forsvarsmenn minnihlutaflokk- anna verða að gera sér grein fyrir því að ekki er hægt að sigra slíka baráttu sérstaklega með hliðsjón af því að Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei farið neðar en 46% atkvæða og þar af leiðandi unnið í öll skipti nema eitt. Þess ber einnig að geta að minnsta kosti þrisvar sinnum hefur Sjálfstæðisflokkurinn unnið á sundmngu hinna flokkana, fengi hreinan meirihluta þrátt fyrir færri atkvæði og í það skipti sem þeir töpuðu vom Alþýðubandalags- menn heppnir að ná að nýta öll sfn atkvæði og vom þó aðeins fjögur framboð utan Sjálfstæðisflokksins. Allt bendir til að í komandi kosn- ingum verði allt að 7-8 framboð minnihlutaflokkanna og sér hver heilvita maður að það er tapaður slagur fyrirfram. Eg vona því að fulltrúaráðsmenn sem koma á þennan fund í kvöld láti ekki eigin hagsmuni ráða ferð- inni heldur beri hagsmuni borgar- búa fyrir brjósti og geri allt sem í þeirra valdi stendur til að losa borg- ina undan ógnarstjóm Sjálfstæðis- manna og greiða þvi tillögu ungra jafnaðarmanna um að hefja beri formlegar viðræður um sameigin- legt framboð félagshyggjuaflanna atkvæði sitt. VIÐTALIÐ AÐ GETA SLAPPAÐ AF OG NOTIÐ LÍFSINS - ÞÓ VIÐ SÉUM í NÁMI * - Oskar R. Harðarson formaður Nemendafélags Fjölbrautaskólans Breiðholti í viðtali Opið hús í FB. Frá vinstri eru Þórhallur Hákonarson skóla- stjórnarfulltrúi, Oskar R. Harðarson formaður NFB og baki í Ijósmyndarann snýr Guðmundur Sverrisson formaður Vídeó- nefndar. Nemendafélag Fjölbrautaskól- ans Breiðholti er fjölmennasta nemendafélag landsins og em fé- lagar á annað þúsund. Formaður fé- lagsins, sem kosinn er á hverju vori til eins árs í senn, er að þessu sinni Oskar R. Flarðarson sem síðasta vor hlaut kosningu eftir mjög tví- sýna kosningabaráttu og gegnir embættinu því fram á vor. Tíðinda- maður Opnu unga fólksins gekk á fund Óskars og ræddi lítið eitt við hann um nemendafélagið. - Hver myndir þú segja að til- gangur og markmið nemendafé- lagsins vœru? „Að mínu mati er tilgangur og markmið nemendafélagsins að gæta hagsmuna félaga sinna, hvort sem það er innan skóla eða utan. Einnig að reyna að halda uppi sem fjölbreyttastri félagsstarfsemi þannig að allir meðlimir nemenda- félagsins haii gaman af og geti slappað af og notið lífsins þó að við séum í nárni." - Nú mœtti segja mér að félags- lífið í stœrsta framhaldsskóla landsins vœri mikið. Hvernig er það uppbyggt og hvað er á döf- inni? „Félagslífinu í skólanum er stjómað af níu manna nemendaráði sem fer með yfirstjóm mála. Þeim til aðstoðar við skipulagningu fé- lagslífsins eru margar nefndir og má meðal annars nefna Arshátíðar- nefnd sem sér um okkar glæsilegu árshátíð eins og alltaf, Aristofanes sem sér um uppsetningu á leikriti og PC-nefnd sem gefur út blaðið „Pro et Contra“ (með og á móti). Það blað er nokkurs konar stjómar- andstöðublað og á að virka sem nokkurs konar innra eftirlit. Margar fleiri nefndir ern auk fjölbreyttrar klúbbastarfsemi í skólanum. Böll em stór hluti af félagslífi fram- haldsskóla og verður svokallað „Kjulli“ á Ingólfskaffi í kvöld, fimmtudagskvöld, og er stefnan að hafa ekta sveitaball með öllu í nóv- ember og verður án efa geysileg stemmning á því. Nú fyrir utan það em framundan stórtónleikar með hljómsveitinni HAM í Undirheim- um 22. okt. og viku síðar verður sannkölluð RAVE-stemmning á sama stað. Auk þessara uppákoma er fjöldi annarra á döfinni á næstu vikum.“ - Rekstur nemendafélaga er allajafna dýr, hvernig standið þið að Jjármögnun? „Rekstur nemendafélagsins er fjármagnaður með nemendafélags- gjöldum nemenda, tekjum af böll- um ef einhverjar em og styrkjum frá fyrirtækjum og þá aðallega til útgáfu blaða í skólanum. Með þess- um tekjunr er reynt að halda úti öfl- ugu félagslífi enda sætta nemendur FB sig ekki við neitt nema það besta.“ - Nú hafa nemendaráð síðustu ára barist mikið fyrir því að fá lyftu fyrir fatlaða í skólann, er nú- verandi nemendaráð að vinna í því máli? „Já, skólastjórnarfulltrúi nem- endafélagsins fór niður í mennta- málaráðuneyti og talaði þar við deildarstjóra og sótti um að fá lyftu í skólann en svarið var neikvætt. Næsta skref okkar í þessu máli verður að fara niður á Alþingi og tala beint við sjálfan menntamála- ráðherra, enda er það jafnréttismál bæði fatlaðra og heilbrigðra ein- staklinga að lyfta sé til staðar hér í FB. Það er í raun alveg furðulegt og skömm að því fyrir stjómendur þessa lands að þeir skuli ekki vera búnir að koma fyrir Iyftu í FB enda er FB stærsti framhaldsskólinn á landinu og Breiðholtið stærsta hverfið á íslandi en samt þurfa fatl- aðir nemendur sem búa í Breiðholt- inu að sækja menntun sína niður í MH.“ - Hefur nemendaráð einhver áhrif á stefnu skólayftrvalda? „Nemendaráð dagskóla hefur tvo fulltrúa í skólastjóm, formann og skólastjómarfulltnía og beijast þeir þar fyrir hagsmunum nemenda og reyna að hafa álirif á stefnu skólayfirvalda. Einnig á formaður sæti í skólanefnd sem er pólitísk nefnd. Ég held að það sé ömgglega hægt að segja að nemendaráð hafi þó nokkur áhrif á stefnu skólayfir- valda.“ MOLAR FB-ingar í fremstu víglínu Ef skoðað er vandlega hverjir það eru sem eru mest áber- andi í háskólapólitíkinni og í ungliðahreyfingu Alþýðu- flokksins má sjá að fyrrverandi nemendur úr FB eru á báð- um vígstöðvum fremstir í flokki. Ber þar helst að nefna Jón Þór Sturluson sem gegnir nú stöðu formanns í Röskvu en hann sat áður í nemendaráði í FB. Gjaldkeri Röskvu, Davíð Logi Sigurðsson er einnig vel þekktur úr félagslífi FB því hann gengdi ritarastöðu í nemendaráði eitt sinn. Fyrsti mað- ur á lista Röskvu í síðustu kosningum, Guðmundur Ingi Jónsson, var einnig í nemendaráði í FB, því sama og Davíð. Framkvæmdastjóm SUJ er einnig uppfull af fyrrverandi FB- ingum. Má þar helst nefna Magnús Áma Magnússon vara- formann sambandsins og fyrrverandi fonnann NFB (Magn- ús Ámi var einnig á síðasta framboðslista Röskvu), Jón Þór sem fyrr var nefndur. Ingvar Sverrisson fyrrverandi formann NFB, Brvnjólf Þór Guðmundsson núverandi PC-nteðlim, Kristinn Ásgeirsson varaformann FUJ í Reykjavík sent sat í nemendaráði NFB og rnarga fleiri. Breiðlioltlð vex í áliti Það hefur sýnt sig að Breiðholtið er að vaxa í áliti hjá því fólki sem í gegnum árin hefur haldið fram að þar sé stunduð almesta glæpastarfsemi sem þekkist á Islandi og alltaf bann- að bömum sínum að svo mikið sem yrða á lyklabömin svo- kölluðu. Besta dæntið um þessa kúvendingu er að KR-ingar leika nú heimaleiki sína í handbolta í íþróttahúsi Fjölbrauta- skólans vegna þess að ekkert minna dugir. Breiðhyltingar bjóða vafalaust vesturbæinga velkomna í hæðimar, glæsi- legasta hverfi borgarinnar. Það má kannski búast við að fast- eignaverð fari hækkandi í Breiðholti, hver veit!! FJnclirhciinar — Yeealilr Það er mál manna að aðstaða NFB í Undirheimum sé stærri og betri en önnur nemendafélög dreymi um. Þar er nieðal annars aðstaða til útvarpsrekstrar sem notaður er óspart af Fjölntiðladeid skólans til kennslu og einnig öll þægindi sem nemandi getir hugsað sér til dægrastyttingar. Þess ber einnig að geta að nemendur hafa komið sér upp fullkominni aðstöðu til upptöku á allskyns efni fyrir video sýningar og er óspart búið til efni til sýningar. Þar em einnig fullkominn tæki til klippingar á efninu og hægt er að senda það úr Undirheimum og yfir í matsal skólans þar sem nent- endur korna saman í fnmínútum og geta þá fylgst með bein- um útsendingum úr Undirheimum. Þar hefur enn eitt fram- faraskrefið verið tekið af hálfu FB-inga og í þetta sinn nem- enda. Kór FB folómstrar Kór Fjölbrautaskólans hefur nú verið starfræktur í nokkur ár undir stjóm Emu Guðmundsdóttur og hefur hann vaxið og dafnað undir hennar stjórn og em nú um 70 nemendur í honum. Breiðiioltsblað FB Það hefur oft áður verið reynt að gefa út svokallað Breið- holtsblað en ekki hefur það tekist nema tvisvar, það er eitt blað hefur komið út og síðan ekki söguna nteir. Það gerðist þó fyrir stuttu að íjölmiðladeild FB með þá Siguijón Jó- liannsson og Magnús Ingvason í fararbroddi tók að sér út- gáfu blaðsins. Blaðið er rekið á auglýsingum sem nemendur safna og fer engin aukakostnaður í það fyrir skólann. Grein- amar í blaðið vinna svo nemendur í deildinni þannig að greinar þeirra eru hvort tveggja æfingagreinar fyrir skólann og einnig dægrastytting allra BreiðhoLtsbúa. Það hlýtur því að vera að nemendur leggi meiri metnað í verk sín en fyrr. Það er víst satt sem þeir segja Fjölbrautaskólinn Breiðholti fer ekki troðnar slóðir frekar en fyrri daginn. Stórfundur í kvöld! I kvöld verða Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráð- herra og Birgir Hemiannsson, aðstoðamtaður umhverfisráð- herra á fundi um kjördæmismálin og stjómskipan íslenska rikisins í Rósinni, félagsmiðstöð jal'naðarmanna, Hverfis- götu 8-10. Fundurinn er liður í undirbúningi fyrir málefnaráðstefnu Sambands ungra jafnaðamianna sem haldin verður 12. febrúar á næsta ári. Undirbúningurinn verður í fomti mál- stofa sem íjalla munu um sjö málaflokka. 1. Stjórnskipan lýðveldisins og kjördæmamálið, 2. Atvinnumál: Island árið 2003, 3. Menningar og menntamál, 4. Utanríkismál, 5. Um- hverfismál, ó.Velferðannál og 7.Ríkisf]ámiál. Málstofumar verða að jafnaði með kynningarfundi á hálfsmánaðarfresti, þar sem fengnir verða fróðir fyrirlesarar víðsvegar að úr þjóðfélaginu. Meiningin er að málstofumar haldi áfram málefnavinnunni eftir kynningarfundina. Gestir kynningarfundarins í kvöld verða eins og áður seg- ir Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra og Birgir Hennannsson, aðstoðarmaður umhverfisráðherra. Fundur- inn verður haldinn í félagsmiðstöð jafnaðarmanna, Rósinni, Hverfisgötu 8-10 (ofan við Ingólfscafé) og hefst klukkan 20.300. Hann er að sjálfsögðu öllum opinn.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.