Alþýðublaðið - 16.12.1993, Page 5
Fimmtudagur 16. desember 1993
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5
LANDAKOT, AMNESTY & SKILABOÐ
Sparnaðaraðgerðir í heilbrigðiskerfinu skila árangri
BETRISTAÐA í REKSTRILANDAKOTSSPÍTALA
ÁN ÞESS AÐ ÞJÓNUSTA VIÐ SJÚKLINGA
HAFIVERIÐ SKERT HLUTFALLSLEGA
Fjárveitingar til rekstrar Landakots voru lœkkaðar um 440 milljónir árið
1992 miðað við árið 1991, eða um 34%. Þrátt jyrir mikinn niðurskurð
hefur stjórn spítalans tekist að aðlaga reksturinn að breyttum forsendum
ífjárveitingum. Allt útlit er fyrir að reksturinn verði innan fjárlaga
ársins án þess að þjónusta við sjúklinga hafi verið skert hlutfallslega.
Stjórn spítalans hyggst halda áfram að leita leiða til að
draga úr rekstrarkostnaði og styrkja reksturinn.
Miklar breytingar
hafa orðið á rekstrar-
afkomu St. Jósefsspít-
ala, Landakoti, á síðari
hluta þessa árs. Tekist
hefur að snúa rekstrin-
um úr 23,8 milljóna
króna tapi eftir fyrstu
flmm mánuði ársins í
hallalausan rekstur á
árinu samkvæmt nýj-
ustu rekstraráætlun.
Þegar ljóst varð um
mitt þetta ár að hveiju
stefndi í rekstrinum
greip stjóm spítalans til
ítarlegra aðhalds- og
spamaðaraðgerða, sem
virðast ætla skila tilætl-
uðum árangri.
Þannig hefur rekstrar-
kostnaður á föstu verð-
lagi fyrstu 9 mánuði
þessa árs lækkað um 7%
miðað við sama tímabil í
fyrra.
Gripið
til aðgerða
Meðal aðgerða sem
gripið var til má nefna
sameiningu sjúkra-
deilda, endurskipulagn-
ingu á ræstingu og í eld-
húsrekstri spítalans, þar
sem tekið var upp
bakkakerfi í dreifmgu
matar og verður eldhúsi
í Hafnarbúðum lokað
vegna þess frá og með
næstu áramótum.
Þá hafa útboð verið
aukin í aðkeyptri vöm
og þjónustu. I því sam-
bandi er meðal annars
um að ræða þætti eins og
akstur og kaup á rekstr-
arvömm. Einnig hefur
verið gripið til aukins
aðhalds í viðhaldsvinnu
á fasteignum.
Ný deild
opnuð
Ljóst er að þessar að-
gerðir hafa skilað mikl-
um árangri í rekstri og er
útlit fyrir að hann verði
innan fjárlaga ársins án
þess að þjónusta við
sjúklinga hafi verið skert
hlutfallslega.
Þrátt fyrir minnkandi
rekstrarkostnað er ekki
útlit fyrir að legudögum
spítalans fækki samsvar-
andi.
Mikil starfsemi er á
göngudeildum og í ágúst
síðastliðnum var opnuð
göngudeild fyrir sykur-
sjúk böm, hin eina sinn-
ar tegundar á landinu.
Góðar horfur
á árangri
Fjárveitingar til
rekstrar Landakots vom
lækkaðar um 440 millj-
ónir árið 1992 miðað við
árið 1991, eða um 34%.
Þrátt fyrir mikinn niður-
skurð hefur stjóm spítal-
ans tekist að aðlaga
reksturinn að breyttum
forsendum í íjárveiting-
um.
En þótt allt bendi nú
til þess að takast muni að
halda rekstrinum innan
fjárveitinga ársins mun
stjóm spítalans halda
áfram að leita leiða til að
draga úr rekstrarkostn-
aði hans og styrkja
reksturinn svo unnt
verði að halda uppi fjöl-
þættri þjónustu við sjúk-
linga.
Herferð gegn pólitískum
morðum og mannshvörfum
Amnesty Interna-
tional stendur um
þessar mundir fyrir
alþjóðlegri herferð
gegn pólitískum
morðum og „manns-
hvörfum“. Meðal
þeirra mála sem sam-
tökin vilja vekja at-
hygli á er morðið á
hjúkrunarkonu í
Perú og „hvarf“ Ta-
míla á Sri Lanka.
Þann 8. september
1989 var Marta Christ-
ómó García, 22 ára
hjúkrunarkona myrt af
einkennisklæddum
hermönnum á heimili
sínu í Huamanga í
Perú. Fyrr um daginn
hafði Marta gefið sér-
stökum rannsóknarað-
ila vitnisburð sinn
vegna fjöldamorða her-
manna á 30 bændum.
Morðið á Mörtu hefur
ekki verið rannsakað
né ábyrgir aðilar sóttir
til saka þó svo að dóm-
stólar haft undir hönd-
unt staðfestar frásagnir
vitna. Marta var ein
átta vitna að bænda-
morðunum og hafa öll
vitnin verið myrt.
Amnesty Intema-
tional biður fólk að
skrifa kurteislega orðað
bréf til stjómvalda í
Perú og biðja um að
rannsókn verði fram-
kvæmd á morðinu á
Mörtu og ábyrgir aðilar
sóttir til saka.
Utanáskrift er:
Presidente Alberto
Fujimori
Presidente de la
República
Palacio de Gobierno
Plaza de Arms
Lima 1, Perú
- ÓKEI, ÉG VAR ÓÞEKKUR VIÐ NOKKRAR LÆÐUR
EN ÞAÐ ER ÞÓ VARLA NOKKUR ÁSTÆÐA TIL AÐ
HAFA MANN í ÚTIVISTARBANNIUM ALLA EILÍFÐ...
GRAFÍSK HÖNNUN: MERKISMENN HF