Alþýðublaðið - 16.12.1993, Side 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
BRUNAVARNIR & SUJ
Fimmtudagur 16. desember 1993
BRUNAVARNAATAK - Vísbending viðfyrstu spurningu getraunar
Landssambands slökkviliðsmanna
HVERT Á AÐ HRINGJA?
A neyðarstund er mikilvægt að símanúmer neyðarþjónustu
sé einfalt og auðvelt að muná. Hvemig er neyðarsímsvörun
nú háttað í landinu? Núverandi kerfi er þannig að lögreglan
hefur síma 0112 í Reykjavík, Seltjamamesi, Mosfellsbæ og
slökkvilið og sjúkraflutningar 11100, til vara 0112, Al-
mannavamir 22040 eða 11150. Vitað er að í landinu em tug-
ir símanúmera, sumir segja jal'nvel 170, sem þjóna því hlut-
verki að vera neyðamúmer. I brcnnandi húsnæði eða við önn-
ur neyðartilvik, til dæmis líkamsárás, er ömggara að hafa eitt
númer, stutt og einfait, sem auðvelt er að muna.
HVAÐ SKAL GERA EF ELDUR VERÐUR LAUS?
VARIÐ ALLA VIÐ.. .ELDUR ER LAUS, SJÁIÐ UM AÐ
ALLIR FARIÚT.
Hringið í neyðarsímanúmer slökkviliðs.
Tilkynnið hvar er að brenna, takið á inóti slökkviliðinu er
það kemur á staðinn og gefið nánari upplýsingar ef þær em
fyrir hendi.
Notið slökkvitæki á staðnum til að hefta útbreiðslu eldsins
þar til slökkviliðið kemur. Ef tími Ieyfir, lokið hurðum og
gluggum til að helja útbreiðslu eldsins þar til slökkviliðið
kemur.
Foreldrar athugið:
SKILJIÐ LÍTIL BÖRN ALDREIEIN EFTIR.
Setjið límmiða á símtæki á heimilinu með NEYÐAR-
SÍMÁNÚMERI iögrcglu og slökkviliðs.
Kennið bömum og unglingum hvernig og hvenær á að
hringja í neyðarsímanúmer sem á við í ykkar heimabyggð.
Næsta vísbcnding verður í blaðinu á morgun og þá fjallaö
um LEIK AÐ ELDFÆRUM.
BRUNA-
VARNAÁTAK
1
ELDVARNAGETRAUN BARNSINS!
1. Hvert er neyðarsímanúmer íþínu
byggðarlagi ef eldsvoða, slys eða
önnur óhöpp ber að höndum?
SÍMI:__________________
2. Telur þú að leikur að eldspýtum
og/eða vindlingjakveikjurum geti
orsakað alvarlegan eldsvoða,
brunasár og jafnvel dauða?
JÁ___________ NEI__________
3. Má yfirgefa eldunartœki og
önnur rafmagnstœki þegar
þau eru ínotkun?
JÁ___________NEI___________
4. Hefur þú gert ráð fyrir
neyðarútgönguleið, komi upp eldur
hjáþér að nóttu?
JÁ_____________NEI___________
5. Er búið að skipta um rafhlöðu
í reykskynjaranum á þínu heimili?
JÁ____________NEI.___________
6. Er notkun flugelda, blysa og
hvellhettna algengasta orsök
augnslysa um áramót?
JÁ_____________NEI___________
C/7V
Clngir jafnaðarmenn takið eftir!
Pó fer að líða að
JÓLfiGLÖGGINO...
SUJ-arar ostla að hittast í filþýðuhúsinu, Hverfisgötu 8-10,
II. h<ffð, föstudaginn 17. desember klukkan 20.30.
Síðar um kvöldið munum við heilsa upp d gamlingjana í flokknum,
en þeir verða líklega með jólaglögg í Rósinni sama kvöld.
Öryggishjálmur, blikkandi endurskinsmerki
á reiðhjól og reykskynjari og sérstakt
viðurkenningarskjal Landssambands
slökkviliðsmanna.
Svör þurfa að póstleggjast fyrir
miðnœtti 31. desember 1993.
Sendist til: Landssamband slökkviliðsmanna,
pósthólf4023,124 Reykjavík.
NAFN:.
En þangað förum við ekki fyrr en við höfum keypt okkur
faein bj...eða fóein glögggl.. ó kreppuverðlogi til að styrkja
göðan múlstað: Barúttu ungra jafnaðarmanna fyrir
réttlótara þjöðfelagi og gleði öllum til honda.
Og svo, gott ungt jafnaðarfölk, eru gestir EINSTfUiLEGR velkomnir.
Samkvœmt fornri hefð fazr allt kvenfölk fyrsta glö..bollann ókeypis.
Með kveðju,
jólasveinninn!
HEIMILI:___
PÓSTNÚMER:.
SKÓLI:_____
Vísbendingar sem hjálpa börnunum til að vara
rétt birtast í ALÞ ÝÐUBLAÐINU NÆSTU
DAGA, sú fyrsta birtist hér á síðunni.