Alþýðublaðið - 21.12.1993, Qupperneq 5
Þriðjudagur 21. desember 1993
BÓKAFLÓÐ & SKILABOÐ
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 13
JÓLfiBÓKfíFLOÐ fiLPÝÐUBLfiÐSlNS
Matta á Njálsgötunni
— sem leiddist út í vímu og vœndi íAmeríku
Konur eru sannarlega kjarkaðar margar hverj-
ar. Við höfum sagt frá vel heppnaðri bók Jóhönnu
Kristjónsdóttur um hjónaband hennar og Jökuls
Jakobssonar. Til þess að skrifa þá bók þufti mik-
inn kjark. Enn önnur kona sýndi mikla djörfung
með því að birta endurminningar sínar, Matthild-
ur Jónsdóttir heitir hún.
Matta var uppalin á Njálsgötunni í Reykjavík, fædd
rétt eftir stríðslokin. Hún lýsir í bókinni I viðjum vímu
og vœndis högum fjölskyldu sinnar. Ljóst er að þar
hefur áfengið verið í hávegum haft. Uppvaxtarárin
hafa verið stúlkunni erfið. Afengisnautn foreldranna,
misnotkun bóndastráks á litlu telpunni sumar eftir
sumar í sveitinni, mislukkað hjónaband. Allt þetta set-
ur mark á þessa konu.
Hún gerir þau reginmistök að elta amerískan strák
af Vellinum til Ameríku. Hann reynist ekki eins ríkur
og hann hafði sagt henni, reyndar bláfátækur, mennt-
unarlaus og að því er virðist hinn minnsti bógur. Auk
þess er hann með aðra kæmstu til vara, þegar Matta
birtist fyrirvaralaust, bamung manneskjan. Hjóna-
bandið með þessum ameríska pilti er framhald af fyrri
reynslu Möttu, - drykkjuslark og framhjáhald.
Eitt leiðir af öðm. Skilnaður. Sambúðir. Eiturlyf.
Vændi. Bókin lýsir þessu öllu, að því er virðist af mik-
illi hreinskilni, stundum svo mikilli að mönnum getur
blöskrað. Kannski kallar fólk þetta óþverra, - en þetta
er þó raunvemleikinn sjálfur í allri sinni grimmd. En
allt er gott sem fer vel. Þessi bók lýsir því líka hvem-
ig Matta rífúr sig upp úr þeim viðjum sem hún hefúr
verið hneppt í um árabil. Hún tekur til við að hjálpa
eiturlyljasjúklingum og tekst á við eigin vandamál af
fullkominni hörku. Einmitt sú lýsing er mjög áhuga-
verð og vel skrifuð.
Hafdís L. Pétursdóttir hefur ritað þessa bók í sam-
vinnu við hálfsystur sína. Bókin er prýðilega skrifúð
af byijanda að vera. Málfarið er ekki uppskrúfaður
orðaflaumur heldur alþýðlegt og yfirleitt gott mál.
Þetta er gífurlega sterk og áhrifamikil bók. An efa
hefði Hafdís getað leitað í smiðju bókamanna og snið-
ið af ýmsa agnúa. Þó er það álitamál. Bókin er nokk-
uð hrá eins og hún birtist, og kannski í stfl við inni-
haldið.
Og menn kunna að spytja um tilganginn með bók
sem þessari. Líklega hafa ungar stúlkur frá Islandi
gott af að lesa þessa bók. Allt of margar hafa farið ut-
an og orðið illa íyrir barðinu á dmllusokkum, sem
hafa leitt þær út í vímuefni, - og jafnvel vændi, sem
oft er fylgifiskur eiturlyljaneyslu.
Mér þótti áberandi í þessari bók um Möttu af Njáls-
götunni hversu illa upplýst hún var um hvaðeina. Til
dæmis virðist hún ekki hafa vitað um hættumar af eit-
urlyljanotkun. Maður hélt að hveiju mannsbami hefði
verið kunnugt um það á sjötta áratugnum að slíkt var
vanabindandi.
- Jón Birgir Pétursson.
JÓLfiBÓKfiFLÓÐ fiLPYÐUBLfiÐSINS
Stórviðburðir
órsins 1992
ÁRIÐ 1992 birtist
okkur ljóslifandi í
bók frá Bókhúsi
Hafsteins Guð-
mundssonar. Þetta er
28. árið sem Haf-
steinn gefur út stór-
viðburði ársins í
myndum og máli.
Bækumar hafa söfn-
unargildi og margir
eiga öll árin og leita
gjaman til þeirra,
þegar atburðir em
rifjaðir upp.
Bókin er unnin af
Erich Gysling aðal-
ritstjóra og frétta-
stjóra svissneska
sjónvarpsins og
starfsliði hans í
Ziirich. Gísli Ólafs-
son hefur annast um íslensku ritstjómina sem fyrr, og Björn Jóhannsson
var ritstjóri íslenska kaflans í bókinni. Islenski kaflinn, 28 síður, grípur
stuttlega á innlendum atburðum ársins, vel myndskreyttum.
Auk þess að birta stuttar frásagnir af helstu viðburðum á alþjóðlegum
vettvangi á árinu 1992, er að finna í bókinni ágætar greinar eftir þekkta
sérfræðinga á hinum ýmsu sviðum. Iþróttum em gerð góð skil, enda var
árið 1992 ólympíuár og mikið um að vera.
Árið 1992 kemur út á átta tungumálum.
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
auglýsir lausar til umsóknar eftirgreindar
stöður í vinnumáladeild ráðuneytisins:
Stöðu deildarstjóra sem annast ýmis vinnumarkaðsmál á veg-
um ráðuneytisins, sér um atvinnuleysisskráningu, vinnumiðlun
og tengda starfsþætti.
Stöðu deildarsérfræðings sem hefur umsjón með vinnumiðl-
unarskyldum ráðuneytisins innan hins evrópskra efnahags-
svæðis og með þróun og rekstri tölvukerfa vegna vinnumála-
starfs á vegum ráðuneytisins.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi í hagfræði, við-
skiptafræði eða öðrum skyldum greinum.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf
sendist félagsmálaráðuneytinu fyrir 7. janúar nk.
Félagsmálaráðuneytið,
20. desember 1993.
Með því að binda fjármálaskútu þína við Kaupþing hf. ert þú í öruggri höfn.
Markmið Kaupþings hf. er að bjóða upp á fjármálaþjónustu í hæsta
gæðaflokki sem grundvallast á sérfræðiþekkingu á íslenska
fjármagnsmarkaðnum og náinni samvinnu við trausta viðskiptaaðila erlendis.
Kaupþing er að jöfnu í eigu Búnaðarbankans og Sparisjóðanna.
Vertu ávallt velkominn í Kaupþing hf. - leiðandi fyrirtæki á fjármagnsmarkaði.
*
SPARISJÓÐIRNIR
KAUPÞING HF
Kringlunn 't 5, sttni 689080
í eigu Búnaðarbanka ís/ands og sparisjóðanna
BÚNAÐARBANKINN