Alþýðublaðið - 26.01.1994, Síða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Miðvikudagur 26. janúar 1994
P4LLBORÐIÐ: Arni Finnsson skriíar
Málstaður hvalveiðisinna
er ekki jafn lágkúrulegur
og rógtækni Magnúsar
Guðmundssonar
ARNIFINNSSON:
„Ef Magnús Guðmundsson hefur
„undir höndum gögn sem við erum
tilbúnir að leggja fyrir dómstóla, ef
til þess kemur“, sem, eins og hann
segir „sanna ótvírætt tengsl Green-
peace við Sea Life og mútugreiðsl-
urnar“ má spyrja hvers vegna þau
gögn eru ekki sýnd í myndinni
„Manden í Regnbuen?“ Eins má
spyrja, hvers vegna er hann ekki til-
búinn til að leggja þessi gögn fyrir
lesendur
Alþýðublaðsins?
Þá er vert að minna á, að á sínum
tíma lýsti Magnús Guðmundsson
glaðbeittur yfír að hann hefði undir
höndum gögn sem ótvírætt sýndu
fram á að Greenpeace hefðu falsað
margumrædda selveiðisenu. Þegar
til kom, reyndist honum þó um
megn að leggja fram nokkur gögn
þvítil
stuðnings. Eins og alkunna er, felldi
norskur dómstóll ummæli þar að
lútandi í myndinni Lífsbjörg í
Norðurhöfum, sem dauð og ómerk."
Gautaborg 21. janúar
1994.
Ágæta ritstjóm.
Enn hef ég ástæðu til að
þakka umfjöllun Alþýðu-
blaðsins þann i2. og 13.
janúar síðastliðinn um
málefni sem varða Green-
peace. Samtímis finnst
mér vert að benda á nokk-
ur atriði sem máli skipta
fyrir þau skoðanaskipti
sem fram bafa farið á síð-
um blaðsins.
1. Ef Magnús Guð-
mundsson hefur „undir
höndum gögn sem við er-
um tilbúnir að leggja fyrir
dómstóla, ef til þess kem-
ur“, sem, eins og hann seg-
ir „sanna ótvírætt tengsl
Greenpeace við Sea Life
og mútugreiðslumar“ má
spyija hvers vegna þau
gögn era ekki sýnd í
myndinni „Manden í
Regnbuen?“ Eins má
spyrja, hvers vegna er
hann ekki tilbúinn til að
leggja þessi gögn fyrir les-
endur Alþýðublaðsins?
Þá er vert að minna á, að
á sínum tíma lýsti Magnús
Guðmundsson glaðbeittur
yfir að hann hefði undir
höndum gögn sem ótvírætt
sýndu fram á að Green-
peace hefðu falsað marg-
umrædda selveiðisenu.
Þegar til kom, reyndist
honum þó um megn að
leggja fram nokkur gögn
þvf til stuðnings. Eins og
alkunna er, felldi norskur
dómstóll ummæli þar að
lútandi í myndinni Lífs-
björg í Norðurhöfum, sem
dauð og ómerk.
2. Bókhald Greenpeace
er endurskoðað af virtum
og viðurkenndum endur-
skoðendum, hvarvetna í
heiminum.
3. í viðtali við Bjöm Ök-
em í norska dagblaðinu,
„Gudbrandsdölen Lille-
hammer Tilskuer", þann
20. mars 1993, kemur
fram að hann hafi „Faat
sparken fra miljöorganis-
ationen. Arsaken er at Ök-
em ikke taklet den admin-
istrative oppgaven, noe
han selv er enig i“, Hann
gaf upp sömu ástæðu í
sænskum sjónvarpsþætti
fyrir tæpu ári síðan.
Bjöm var ekki rekinn
sökum þess að skoðanir
hans hafi stangast á við
stefnu Greenpeace. Það er
seinni tíma tilbúningur.
4. Magnús Guðmunds-
son hefur verið styrktur
fjárhagslega af aðilum sem
sjá hagsmuni sína í því að
rægja Greenpeace. Upp-
lýsingar um slíkt er meðal
annars að finna í Alþingis-
tíðindum.
5. Tengsl Magnúsar við
Ron Amold og önnur
hægri öfgaöfl í Bandaríkj-
unum era löngu kunn orð-
in. Til dæmis hefur nýjasta
mynd hans verið ákaft
kynnt og hyllt af samtök-
um bandarískra forseta-
frambjóðandans, Lyndon
LaRouche, 21st Century
Science and Technology,
sem greinilega höfðu undir
höndum allar upplýsingar
um hana áður en hún var
framsýnd á dönsku sjón-
varpsstöðinni TV 2.
LaRouche hefur verið
dæmdur til langrar fang-
elsisvistar fyrir svindl og
falsanir, er þekktur fyrir
hægri-öfgamennsku og
fullyrðingar í stíl við að El-
ísabet Bretadrottning sé
ein af lykilpersónum í
heimsversluninni með eit-
urlyf.
Samstarf Magnúsar við
LaRouche og kompaní
nær að minnsta kosti aftur
til 1989, en þann 8. júní
það ár hélt hann blaða-
mannafund í Washington,
sem kostaður var af 21st
Century Science and
Technology.
6. Því fer fjarri að „þriðj-
ungur fulltrúa á Banda-
ríkjaþingi sendi forseta
Bandaríkjanna yfirlýsingu
þar sem gagnrýnd er stefna
bandarískra stjómvalda
gagnvart veiðum smá-
þjóða eins og Islands og
Noregs“.
7. Það er einnig ijar-
stæða að halda fram að „í
þeim stóra hópi sem kom
og skoðaði hana (það er
mynd Magnúsar) vora
bæði Demókratar og
Repúblikanar...“. Það
komu nefnilega engir
þingmenn til að skoða
rnyndir Magnúsar. Ekki
einu sinni Bill K. Brewst-
er.
8. í bréfi mínu til Al-
þýðublaðsins þann 11.
janúar síðastliðinn hélt ég
því ekki fram að „hvergi í
myndinni sé minnst á að
Watson sé höfuðpaur Sea
Shepard“. Eg sagði ein-
ungis að „má ljóst vera að
ef Magnús þarf að leita í
herbúðir Sea Shepard til að
safna liði gegn Green-
peace, er hann ekki í
merkilegum félagsskap“.
I myndinni er Watson
kynntur með skjátexta sem
„en av Greenpeace grund-
are“. Þulurinn segir: „Paul
Watson var með och
startade Greenpeace. Efter
sex ar lamnade han organ-
isationen, bl.a. pa grand av
en konflikt með David
McTaggart.“
Út af fyrir sig er þetta
rangt. Watson var ekki
einn af stofnendum Green-
peace, en um það er ekki
deilt hér, heldur hitt að
hvergi er þess getið í
myndinni að Watson sé
„höfuðpaur Sea Shep-
hard“. Ekki heldur var
þess getið að Watson var
rekinn úr Greenpeace fyrir
þær sakir að hann vildi
beita aðferðum sem ein-
kenndust af ofbeldi. Þessar
upplýsingar koma fram í
bréfi Greenpeace um
myndina „Manden í regn-
buen“.
Hvergi kemur fram í
myndinni að Watson „hafi
stofnað eigin öfgasam-
tök“, eins og Magnús held-
ur fram. Öðru nær hann er
kynntur sem einn „af
stofnendum Greenpeace"
sem hafi orðið undir í
valdabaráttu við David
McTaggart.
Að iokum. Magnús
Guðmundsson hefur um
árabil haft það að atvinnu
að rægja og rakka Green-
peace. Það væri illa gert af
mér að kalla hann róg-
tækni hvalveiðisinna allra
landa. Þrátt fyrir allt er
málstaður hvalveiðisinna
ekki jafn lágkúrulegur og
rógtækni Magnúsar. Að
minnsta kosti ekki þeirra
sem ég þekki til á íslandi
og í Noregi. Þeir eiga ekki,
líkt og Magnús, sameigin-
legan málstað með hægri
öfgamönnum eins og Ron
Amold eða Lyndon
LaRouche.
Virðingarfyllst.
| PALLBORÐIÐ: Snorri Guðmundsson skrit'ar
Maður að
Það er ánægjulegt að sjá að
Gunnar Gissurarson hefur
ákveðið að gefa kost á sér í
prófkjöri Fulltrúaráðs alþýðu-
flokksfélaganna í Reykjavík
til borgarstjómarkosninga
sem fram fer 5. og 6. febrúar
næstkomandi.
Gunnar stefnir á 4. sæti á
sameiginlegum lista minni-
hlutaflokkanna.
Hann hefur staifað í yfir 25
ár innan Alþýðuflokksins og
gegnt mörgum trúnaðarstöð-
um á þessum tíma fyrir jafn-
aðarmenn.
Gunnar hefur einnig víð-
tæka reynslu á mörgum svið-
um. Fyrst vann hann sem
rekstrarstjóri hjá Húsnæðis-
málastofnun ríkisins. Þá starf-
aði hann við ráðgjafastörf er-
lendis í þrjú ár og fram-
kvæmdastjóri Gluggasmiðj-
unnar hf. hefur hann verið
síðastliðin tíu ár.
Gunnar er sonur Gissurar
Gunnar Gissurarson.
Símonarsonar, formanns Iðn-
aðarmannafélagsins í Reykja-
vík, sem einnig er vel þekktur
fyrir störf sín innan Alþýðu-
flokksins og margvísleg störf
sín að félagsmálum í gegnum
árin.
Þekking og reynsla
Það er mikill fengur að fá
Gunnar inn á þennan sameig-
inlega lista vegna reynslu
hans af atvinnumálum. Það er
nauðsynlegt að fá mann inn á
listann sem hefur raunhæfa
reynslu af rekstri fyrirtækja.
Borgin er ekkert annað en fyr-
irtæki sem skiptir miklu máli
að sé vel rekið og þeim pen-
ingum sem þar eru til skipt-
anna sé ráðstafað af kunnáttu
og fyllstu hagkvæmni sé gætt
í hvívetna. Þar kemur yfir-
gripsmikil þekking og reynsla
Gunnars að miklu gagni.
Það er hagur okkar borgar-
búa að peningum okkar sé
ráðstafað af kunnáttufólki -
fólki með faglega reynslu á
því sviði.
Mætum öll á kjörstað 5. og
6. febrúar og kjósum Gunnar
Gissurarson í 4. sætið á sam-
eiginlegum lista.
PALLBORÐIÐ: Eiríkur B. Einarsson skrifar
Rödd sem heyrist
Eiríkur Bergmann Einarsson. Bolli Runólfur Valgarðsson. Ingvar Sverrisson.
Nú stöndum við borgarbú-
ar frammi fyrir raunhæfum
möguleika á, að binda endi á
nær 60 ára samfelld yfirráð
íhaldsins í Reykjavík. Þau
sögulegu tíðindi hafa gerst, að
félagshyggjuflokkamir í
borgarstjóm hafa tekið hönd-
um saman, til þess að freista
þess að ffelsa borgina úr klóm
hins steinrunna risa. Nú þegar
þessi langþráði draumur er í
augsýn, verðum við að sýna
styrk og vanda vel til verks-
ins. í komandi prófkjöri Full-
trúaráðs alþýðuflokksfélag-
anna í Reykjavík verða kjós-
endur að sjá til þess að upp
verði stillt sterkum lista, með
traústu og sigurstranglegu
fólki.
Traustur fulltrúi
jafnaðarstefnunnar
Bolli Runólfur Valgarðs-
son er einn þeirra manna sem
tvímælalaust á erindi inn í
borgarstjórn. Bolli Runólfur,
sem er formaður Félags ungra
jafnaðarmanna í Reykjavík
og varaformaður Sambands
ungra jáfnaðarmanna, hefur
unnið þarft og fómfúst starf í
þágu ungra jafnaðarmanna og
verið traustur fulltrúi jafnað-
arstefnunnar út á við.
Ungir jafnaðarmenn hafa
verið undirstaða grasrótarinn-
ar og vaxtarbroddur Alþýðu-
flokksins undanfarin ár og því
er eðlilegt að fulltrúi ungu
kynslóðarinnar, eins sterkasta
afls flokksins, skipi 2. sæti
Alþýðuflokksins til borgar-
stjórnar, sem er 9. sæti hins
sameiginlega listá.
Bolli Runólfur hefur verið í
framvarðasveit þeirrar þróun-
ar, að virkja unga jafnaðar-
menn til starfa í þágu jafnað-
arstefnunnar og tendra vonar-
neista í brjóstum þeirra um
réttlátara þjóðfélag. Hann
hefur átt stóran þátt í upp-
byggingu Sambands ungra
jafnaðarmanna, sem nú em
stærstu og öflugustu samtök
Alþýðuflokksins. Samband
ungra jafnaðarmanna hefur á
stuttum tíma brotist til vegs
og virðingar, samtökin eru
orðin sterkt stjómmálaafl -
rödd sem heyrist.
Ljóst er, að ef Bolli Runólf-
ur hreppir 9. sæú hins sameig-
inlega lista, þá munu ungir
jafnaðarmenn brýna sverðin
enn betur og leggja allan sinn
þunga í komandi borgar-
stjómarkosningar. Enginn
skyldi vanmeta þau þungu lóð
sem þar munu bætast á vogar-
skálamar, til að fella íhaldið
og skapa mannlegri borg.
Bolli Runólfur er einn
þeirra manna sem tilheyra
ungu kynslóðinni, en nýtur
einnig trausts þeirra eldri.
Hann er því einkar vel til þess
fallinn að ná til breiðrar fylk-
ingar og breyta 9. sæti listans
úr Ijarlægri óskhyggju yfir í
raunhæft baráttusæti. Með
samfylkingu félagshyggjuafl-
anna og þeim ferskleika sem
ungu kynslóðinni, og hennar
fulltrúa fylgir, tryggjum við
árangur.
Ingvars þáttur
Sverrissonar
Annar er sá maður innan
raða Sambands ungra jafnað-
armanna sem ekki á hvað
minnstan þátt í að hinn lang-
þráði draumur um samein-
ingu félagshyggjuaflanna
varð að vemleika. Ingvar
Sverrisson heitir hann. Ingvar
hefur um langt skeið barist af
dug og þrautseigju fyrir tilurð
þessa lista. Á meðan svo gott
sem allir höfðu gefið sameig-
inlegan lista upp á bátinn hélt
Ingvar áfram baráttu sinni.
Og svo uppskera menn sem
til er sáð.
Ingvar hefur ákveðið að
gefa ekki kost á sér í prófkjör
og er það miður. Hinsvegar
veit ég það fyrir víst að ef til
hans verður leitað um að taka
sæú aftar á listanum þá mun
hann hvergi skorast undan
þeirri ábyrgð.
Uppstillingarnefndin ætti
því að grípa tækifærið og
setja Ingvar Sverrisson á list-
ann til að enn ferskari vindar
fái blásið um hið nýja fram-
boð. Annað væri skarð fyrir
skildi.
Höfundur er stjórnmálafræðinemi
og forseti Málstofu
Sambands ungra jafnaðarmanna
um stjórnskipan.