Alþýðublaðið - 17.02.1994, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 17.02.1994, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 17. febrúar 1994 BILASIÐAN ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 REYNS LUAKSTU R: NlSsAN MiCrA Micran var kosinn bíll ársins árið 1993. Aðdáendur Nissan Micra eða Nissan Mai'ch sem hann heitir líka, voru orðnir allþreyltir á að bíða eftir eðlilegum breyt- ingum á bflnum. Staðreynd- in er sú að þróunin er það ör, að bflar sent eru framleiddir lítt breyttir í 5-8 ár, missa af eðlilegri þróun og verða nokkuð á eftir þeim keppi- nautum sínum sem fylgja straumum og stefnu þétt eft- ir og þróa bfla sfna í takt við tímann og þær kröfur sem gerðar eru jöfnunt höndum. En svo kom að Micran breyttist, fylgdi ekki aðeins tíðarandanum, heldur sló honum við á margan hátt. Við fyrstu sýn hristu eldri áhugamenn höfuðið og töldu sig hafa séð fallegri bfla en þetta. Unga fólkið greip útlitið strax, fannst það töff og því áhugavert. Maður heyrði nokkra tala um að þarna væri kominn bfll sem gæti verið útlitslega óbreyttur í fjöldamörg ár. Hann væri það sérstakur, að ekki væri hætta á að hann vendist ekki vel, líkt og bjallan, sem nú er leitað að dyrum og dyngjum. TRÖLL í SNJÓ Undirritaður hafði átt gamla Micru í nokkur ár, reynt hana sem tröll í snjó, nánasarlega varðandi eyðslu og gangvissa með afbrigð- um. En það var með hana eins og svo margt annað, að tíminn skildi eftir sín spor, og þrátt fyrir happadijúgan feril kom að því að leiðir skildu. Ég fylgdist með henni hjá nýjum eiganda, hún reyndist honum vel, en þegar hann seldi hana og fékk sér nýlegri Micru, missti ég sjónar af gripnum en trúi að enn hafi hún ekki valdið vonbrigðum. Það var þvf nokkur tilhlökkun, þeg- ar sest var undir stýri á þeirri nýju, en eins og fyrr sagði, var hún kosinn bíll ársins, sá fyrsti frá Japan. (Framleidd í Englandi, nánar tiltekið í Sunderland.) ÍALLRIFÆRÐ Micran nýtur dropalags- ins að fullu þegar kernur að innanrými en þar slær hún allmörgum keppinautum sínum við, auðvelt er að stfga inn í hana og vel fer um mann undir stýri. Þéttur skellur þegar hurð er lokað, minnir mann á að nokkuð dósahljóð var í forveranum. Ef bfll er tekin í raunveru- legan reynsluakstur, þarf tíma og aðstöðu til skoðun- ar, en þar sem tíminn var ekki nægur, og færðin ekki sent skyldi, til þess að keyra bfl af fullri alvöru, varð að taka tillit til aðstæðna og aka samkvæmt því. Snjóföl var yfír, svo ekki var hægt að leggja á Micr- una að ráði, en í staðinn gafst tækifæri til þess að láta hana ösla aðeins í fönninni. Ágætur staður við Úlfarsfell var notaður og farið aðeins utan vegar, að sjálfsögðu var lekið tillit til þess farar- tækis sem verið var á og kröfur gerðar í samræmi við það. Ég hafði hér áður fyrr í flimtingum, að þó eitthvað félli af snjó, hefði ég ekki „- nennu“ til þess að kíkja út og athuga með færð, Micran færi þetta allt. Ég skal játa, að miðað við þá færð sem ég nuddaði þeirri nýju í, þá er ég enn sama sinnis. Ég tel litlu skipta hvað fallið hefur himnaranni úr, Micran fer það sem henni er ætlað, ekki með offorsi og látum, held- ur með mýkt og jafnvel ör- lítilli þolinmæði. GOTT VIÐBRAGÐ Þegar ekið var á Vestur- landsveginum skilaði 75 hestafla vélin mjög skemmtilegu viðbragði, en hún er 1,3 lítra og fjögurra strokka. Blokkin er úr áli en slífamar úr steypustáli, sveifarásinn er holur og með 5 höfuðlegur. Heddið er úr áli með tveim ofanáliggj- andi kambásum, þeir em keðjudrifnir, ventlamir em 16 og kertin em fyrir miðju. Ágætri vinkonu minni fannst nokkuð djúpt á þeim og sá fram á, að nú yrði að fjárfesta í nýjum kertalykli og framlengingu. Gírkass- inn er fimm gíra og sérstak- ur ‘ öryggislás forðar öku- manni frá því að reka hann í bakkgír. BÍLL ÁRSINS En svo áfram sé haldið að Úlfarsfelli, þá svaraði skipt- ingin mjög vel og kassinn reyndist sérstaklega mjúkur. og það var virkilega gaman að keyra Micmna upp í gír- unum, því samhæfmg þeirra og lipurð er með því betra sem ég hef kynnst. Útsýni úr bflnunt er mjög gott, rúður stórar og póstar nettir. Bíll- inn er rásfastur en ekki gafst tækifæri til þess að athuga með svömn við hliðarvindi, því veður var eins og það getur einna best orðið á vetr- ardegi, logn og blíða. Það vom nokkur atriði sem mig langaði að skoða betur, en vegna tímaskort, verður það að bíða betri tíma. Ef ég lýsi bflnum í stuttu máli þá, er hann mjög skemmtilegur í akstri, útlitið sérstakt, en venst vel, hirslur í hurðum, hægt að leggja ýmislegt frá sér, hvort sem er í hólfum eða ofaná mæla- borðið. Þetta er bfll sem ég er sannfærður um að eigi eftir að seljast vel. Mig undrar ekki að hann skuli hafa verið valinn bfll ársins 1993. UMSJÓNMEÐ BÍLASÍÐUNNI HEFURJÓNASS. ÁSTRÁÐSSON DOLLARAGRÍN: CHRYSLER C 39 -ÁRGERÐ1949 Eftir seinna stiíð var nokk- ur bið á því að nýjar bílagerð- ir kæmu á markaðinn. Orka framleiðanda hafði að miklu leyti farið í framleiðslu og hönnun stríðsgagna. Hudson Studebaker og Packard höfðu þó af, að koma með nýjar gerðir á markaðinn árið 1947 en þeir hjá Ford og GM vom ekki tilbúnir fym en árið 1949 til þess að koma með nýja bfla á markaðinn. Þeir hjá Chrysl- er stóðu mjög illa að vígi um þetta leyti því framleiðsla þeirra á strfðsámnum hafði að öllu leiti byggst á framleiðslu hergagna hvort sem var til sjávar eða lands. Það var því við ramman að eiga, að ætla sér að hefja baráttuna á víg. velli bifreiðaframleiðslunnar að nýju. MIKIÐ LAGT UNDIR Útsjónarsemi Bandaríkja- manna em þó lítil takmörk sett. Nýtt viðamikið grill var hannað, nokkrar breytingar gerðar á hjólbogum og við bættist tréverkið sem sett var á TOWN and COUNTRY gerðimar. Þetta allt gerði þann gæfu mun er dugði. Ekki þýddi að kasta lil hönd- um því allmikið var í húfi og mikið lagt undir. Sérvalin klæðning sem sett var á yfir- bygginguna var úr aski og fyllingin var úr mahóní. En þegar fram í sótti þá varð ein- faldari og léttari leiðin valin, það var að setja plasteftirlík- ingu af mahónf á milli en ask- urinn hélt sér. Mikil vinna var lögð í slípun og undirvinnu tréverksins og var hvergi til sparað. Bfllinn var því ekki aðeins unnin af málmiðnaðar- mönnum heldur og líka af tré- smiðum og var handverk þeirra stór hluti þess sem at- hygli vakti. ...OG DÆMIÐ GEKK UPP! En svo við snúum okkur aðeins að tækninni á bak við Chrysler c 39 þá vom bflamir byggðir á 1942 árgerðunum. Sá lokaði 4 dyra TOWN and COUNTRY var framleiddur með 6 cylindra, 4100 rúm- sentimetra og 114 hestafla vél, Windsor gerðin. En tveggja dyra opni bfllinn, New Yorker gerðin, var aftur á móti 8 cylindra, en hann var 5300 rúmsentimetrar og 135 hestöfl. Hann var með vökva- skiptingu ‘Fluid Drive gtr- skipting við stýri og hún færð milli þess girs ætlað var að aka í. Alhyglin sem Chrysler C-39 vakti hélt merki fy- ritækisins á lofti. En á fullu var áfrant unnið að breyting- um og tækniframförum. Bylt- ingarkenndur og spennandi var til að mynda Chrysler 300 sem kom á markaðinn 1955 með 300 hestafla V8 topp- ventlavél, vél sem síðar átti eftir að knýja meðal annars Facel Vega og Jensen. En Bristol og Monteverdi verk- smiðjumar notuðu hana svo í ýmsar gerðir af sérsmíðuðum bflum sem þeir framleiddu. Briggs og Cunningham í Flórída notuð einnig gmnn- gerð vélarinnar sem undir- stöðu þegar jteir hófu ffarn- leiðslu á vélum í GT og Le Mans hraðakstursbfla. DODGE VIPER 10 CVL OG 405 HESTÖFL Einn sá heitasti og eftirsóttasti sportbfll sem er á Bandaríkjamarkaði í dag erDodge Viper, þetta er 10 cyl tryllitæki með 405 hestafia vél og hröðun frá 0-100 knt hraða er 4,4 sek hámarkshraði er 266 km á klukkustund. Þó Viperinn hafi verið hannað- ur af tæknimönnum Chrysler létu þeir ekki hjá líða að leita í smiðju Lamborghini verksmiðjanna. Enda var ekki komið að tómum kofanum á þeim bæ en Lamborg- hini hafði verið einn helsti ógnvaldur þeirra hjá Ferrari í gegnum tíðina. En hvað um það Viperinn er 2 dyra, tveggja sæta (ekki pláss fyrir tengdó... því miður) 4,44 tn á lengd l,97 m á breidd og hæðin l,l l metri. Vélin er 405 hestöfi, gíramir 6 og þeir hjá Chrysier fullyrða að eyðslan sé ekki nema átta lítrar á hverja 100 km ef ek- ið er á jöfnum 90 kflómetra hraða. Það væri eitthvað að heima hjá þeim Dodge Vi- per eiganda sem dúllaði við að athuga hvort þær tölur væru réttar. ERFITT ÁR Síðasta ár var það erfiðasta í sögu evrópska bílaiðnaðarins frá stríðslokum, en sala nýrra bfla dróst saman um 15,2%. Mestur var samdráttur ffamleiðenda í Grikk- landi, eða 27,7%, Spánverjar fylgdu á eftir nteð 24,1 %. í kjölfarið fylgdu svo ítal- ir, Hollendingar, Belgar, Svíar, Þjóðverjar og Frakkar. Bretar aftur á móti létu engan bilbug á sér finna en þar varð aukning um 11,6%. Samvinna bílaframleið- enda fer vaxandi með hverju ári, enda dýrt og seinlegt að hanna nýjan bfl og koma honum á markað. Eitt nýjasta dæmið um þessa samvinnu er fjölnotabfll sem hann- aður var af Fiat, Lancia, Peugeot og Citroen, í sameiningu. RENAULT 21 VÍKUR FVRIR LAGUNA Nú er komið að því að hinn átta ára gamli Reunault 21 verði að mestu settur til hliðar. Arftakinn, Laguna, er kominn á markaðinn en sumir vilja halda því fram að Laguna sé smækkuð mynd af Reunault Safraite. Laguna er aðeins stærri en for- verinn og mun fást með ýmsum vélagerðum, til dæmis frá 1,81.95 hestafla vél upp í 3,0 1. V6, 170 hestafla vél. Þess ber þó að geta að ekki verður hægt að fá Laguna sent langbak nú fyrstum sinn, svo langbakurinn Nevada verður því ekki alveg sett- ur í glatkistuna og framleiddur áfram enn um sinn. NÝR AUDl A GOLF PLÖTU Nú em Audi verksmiðjurnar farnar að huga að nýjum bfl. A2 er hann kallaður en kemur líklega í staðinn fyrir Audi 80 en verður nokkai minni. Líklegt er talið að hann verði settur á sama undirvagn og næsta kynslóð af Golf en verði nokkru stæm en Golfinn. Þá er verið að tala um 5 dyra fjölskyldubfl sem brúi enn betur það bil sem nú er milli Golf-Vento og Audi línunnar. OPEL CALIBRA. NÚ MEÐ V6 Calibra sportbfllinn knái frá Opel verksmiðjunum er nú fáanlegur með 2,5 1. V6 170 hestafla mótor. Hámarkshraði er 237 kflómetrar á klukkustund. Þetta er þó ekki öflugasta vélin sem fáanleg er í Opel því 2,01. túrbóinn er 204 hestöfl. BMW EIGNAST ROVER Það hriktir í ýmsum undirstöðum hjá bflaframleiðendum nú til dags og ekki að ófyrirsynju. Minnkandi sala hefur neytt framleiðendur til þess að tryggja sig á ýmsan hátt og auka hagræðingu sem mest. Einn liður í því var nú hjá BMW verk- smiðjunum að kaupa Rover verksmiðjurnar í Englandi. Kom þetta eigendum Honda verksmiðjanna í opna skjöldu því þeir áttu orðið 20% í Rover verksmiðj- unum voai til í að bæta við en ekki til í að kaupa pakkann að öllu leiti. Rover sem hafði framleitt tvíbura Honda Accord (Rover 600) hafði aukið mjög sölu sína á Englandsmarkaði, en 8% aukning er drjúg þegar tekið er tillit til |ress ástands sem var á bflamarkaði Evrópu nú á síðasta ári. V8 MVLLUR í STVKKJATALI Hvað er það sem tveir jafn ólíkir bflar og, AC Cobra, Lotus 7, Morgan, Caterham, TVR, og nokkrir fleiri eiga sameiginlegt? Fjögurdekk? Að sjálfsögðu, og að auki mótor keyptan frá Ford. 1 gegnum árin halá þeir hjá Ford haft nokkum ávinning af því að selja vélar (í lausri vigt). Minni verksmiðjur og framleiðendur hafa verið áljáðir kaupendur og því hefur Ford knúið margan vagninn, án þess að eigendur gerðu sér grein fyrir því. Nú em þeir hjá Ford að koma með nýja vél á markaðinn, V8 244 kg. 4915 cm3 og 219 hestöfl, ef miðað er við 4600 snúninga á mín., en 238 hestöfl ef miðað er við 4800 snúninga á mín. ALFA 164 04 Þeir láta ekki að sér hæða hjá Alfa Romeo hvað varðar hátæknina (þrátt fyrir að kvartað hafi verið óspart yfir lé- legri ryðvöm). Flaggskip þeiiTa er Alfa Romeo 164 Q4 og er hann með sömu vél og QV gerðin en er að auki íjór- hjóladrifinn. Vélin er 2959 cm3 - V6 - 232 hestöfl og gírkassinn 6 gíra. Hámarkshraði er uppgefinn 237 km á klukku- stund.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.