Alþýðublaðið - 17.02.1994, Blaðsíða 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Fimmtudagur 17. febrúar 1994
LESENDABRÉF: Örn Eldins
Stöðvum nafnabirtingar
í auglýsingum um vanskil
Oftsinnis gerist það á
hverju ári, að birtar eru
flennistórar auglýsingar í
dagblöðum þar sem tilteknir
einstaklingar eru auglýstir
sem vanskilamenn við Pétur
og Pál, venjulega banka eða
lífeyrissjóði, Gjaldheimtu
eða Húsnæðisstofnun,
VISA ísland eða aðra aðila.
Það gerist með þeim hætti,
að hlutaðeigandi aðilar til-
kynna, að þar sem umrædd-
ir einstaklingar hafa ekki
getað staðið í skilum við þá
verði ijölskylduíbúðir
þeirra, eða aðrar eignir,
seldar á opinberum uppboð-
um á tilteknum stað og tíma.
Stillt upp a
almarmalæri
Sú var tíð, að sjálfsagt
þótti að demba mönnum í
MALEFNIN RAÐA!
Málefnahópur um
fjölskyldu- og
velferðarmál
Málefnahópur Alþýðuflokksins um fjölskyldu- og vel-
ferðarmál kemur saman til fundar í Rósinni við Hverf-
isgötu í Reykjavík, mánudaginn 21. febrúar klukkan
17.00.
Vertu með og hafðu áhrif á jafnaðarstefnuna.
FJÖLMENNUM!!!
Oddvitar.
ALÞYÐUFLOKKURINN AUSTURLANDI
Fundur í Valaskjálf
á Egilsstöðum
Alþýðuflokkurinn - Jafnaðar-
mannaflokkur íslands - boðar til
fundar á Egilsstöðum.
Fundurinn verður haldinn
fimmtudaginn 17. febrúar í Hótel
Valaskjálf og hefst hann klukkan
20.30.
Á fundinn mætir Rannveig Guð-
mundsdóttir, alþingismaður og
varaformaður Alþýðuflokksins.
Ræðir hún um stöðu flokksins, rík-
isstjórnarsamstarfið og landsmálin
almennt.
Einnig mætir á fundinn Sigurður
Eðvarð Arnórsson, erindreki Al-
þýðuílokksins, og ræðir hann um
undirbúning vegna komandi sveit-
arstjórnarkosninga og gerir grein
fyrir ýmsu sem á döfinni er í þeim
efnum.
Rannveig.
Sigurður Eðvarð.
Jafnaðarmenn á Austfjörðum eru eindregið hvattir til að
mæta og eiga kvöldstund með þessum gestum, bera fram
fyrirspumir og nota þetta tækifæri sem gefst heima í héraði
til almennra skoðanaskipta um flokksstarfið.
Framkvœmdastjórn Alþýðuflokksins -
Jafnaðarmannaflokks íslands.
ALÞYÐUFLOKKURINN VESTFJORÐUM
HA PPDRÆTTI
Alþýðuflokksins í
Vestij arðakj ördæmi
Vinningar:
Flugfar fyrir tvo, Keflavík - Luxemborg -
Keflavík, að verðmæti kr. 80.000.-
Flugfar fyrir tvo, Keflavík - Kaupmanna-
höfn - Keflavík, að verðmæti kr. 42.920.-
Upplýsingar gefa Pétur Sigurðsson í síma
94 - 35 36, Snorri Hermannsson í síma 94 -
35 36 og Karitas Pálsdóttir í síma 94 - 36 64.
Útgefnir miðar: 1.000 - Verð kr. 500 -
Dregið verður 1. aprfl 1994.
ALÞYÐUFLOKKSFELAG
AKRANESS
Framboðs-
frestur til
prófkjörs
Framboðsfrestur til prófkjörs
Alþýðuflokksins á Akranesi vegna
komandi bæjarstjórnarkosninga rennur
út sunnudaginn 20. febrúar næstkomandi.
Framboðum skal skila til formanns
Alþýðuflokksfélags Akraness, Rannveigar
Eddu Hálfdánardóttur, Esjubraut 20,
Akranesi.
Stjórnin.
skuldafangelsi ef þeir gátu
ekki borgað, en sú lenska
þykir ekki lengur sæmandi
og er því aflögð. Hinsvegar
þykir löggjafanum ekkert
athugavert við það, að
mönnuni sé stillt upp á al-
mannafæri og þeir auglýstir
sem vanskilamenn, hafi ein-
hverjar aðstæður leitt til þess
að þeir hafa lent í greiðslu-
vanda og erfíðleikum.
Það er skiljanlegt og eðli-
legt, að óumflýjanlegt er að
knýja á um að menn standi í
skilum og greiði sínar skuld-
bindingar. Og oftsinnis
verður þá ekki umflúið, eins
og „kerfið" er í dag, að hóta
mönnum uppboði á eigum
þeirra, greiði þeir ekki í tæka
tíð. En það er algjör óþarfi
að nafngreina þá í slíkum
dagblaðaauglýsingum og
það hefur ekkert gildi. Því
það er þó ekki ætlunin, þrátt
fyrir allt, að reka andlitið á
þeim niður í forarpollinn,
þótt það sé vitaskuld gert
með slíkum nafnabirtingum.
Brot á friðhelgi
einkalífsins
Flestu fólki finnst það afar
meiðandi og særandi að sjá
nöfn sín í slíkum auglýsing-
um og vill flest til vinna að
komast hjá því. En það við-
horf á ekki að nota til þess
að knýja á um greiðslu, svo
sem eins og gert er. í raun og
veru má segja, að það sé brot
á friðhelgi einkalífsins að
sýslumannsembættin í land-
inu skuli sífellt birta nöfn
manna með þessum hætti.
Líka má líta svo á, sem
mannhelgi hlutaðeigandi
einstaklinga sé misboðið
freklega með þessum nafna-
birtingum, því að sannarlega
hafa þeir ekkert gert af sér.
Og það er gamaldags, dóna-
legt og ómannúðlegt að
stilla mönnum upp við vegg
á almannafæri, svo sem gert
er. Enda tæpast eða ekki gert
í öðrum menningarríkjum.
Þessvegna er brýnt að dóms-
málayfirvöld að sjái til þess,
að því verði steinhætt.
ÖRN
ELDING:
„Flestu fólki
fínnst það
afar
meiðandi og
særandi að
sjá nöfn sín í
slíkum
auglýsingum
og vill flest til
vinna að
komast hjá
því. En það
viðhorf á ekki
að nota til
þess að knýja
á um
greiðslu, svo
sem eins og
gert er. I raun
og veru má
segja, að það
sé brot á
friðhelgi
einkalífsins
að sýslu-
manns-
embættin í
landinu skuli
sífellt birta
nöfn manna
með þessum
hætti.“
Gagnkvæm tillitssemi adlra vegfarenda
FLOKKSSTJORNARFUNDUR
Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur íslands - boðar til
flokksstjórnarfundar laugardaginn 5. mars 1994. Fundurinn verður
haldinn á Hótel Holiday Inn í Reykjavík og hefst klukkan 10.15.
Dagskrá auglýst síðar.
Að venju er fundurinn opinn öllum flokksmönnum, en ef til
atkvæðagreiðslu kemur hafa einungis kjörnir fulltrúar
í flokksstjórn atkvæðisrétt.
- Formaður.