Alþýðublaðið - 23.02.1994, Side 3

Alþýðublaðið - 23.02.1994, Side 3
Miðvikudagur 23. febrúar 1994 FRETTIR ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 OLYKTIN HORFIN, - EN LÍKA MIKLIR PENINGAR - eftir að ekki er lengur hægt að bræða loðnu á Kletti KLETTUR. Þessari afkastamestu fiskimjölsverksmiðju Reykjavíkinga var lokað vegna þess að lyktin fór í taugarnar á höfuðborgarbúum, - en það þýðir að sameiginlegir sjóðir missa af umtalsverðum fjármunum. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason Ólyktin frá fískimjöls- verksmiðjunni á Kletti í Kleppsholti fór fyrir brjóstið á mörgum. Henni var endanlega lokað síð- asta sumar. En hvað þýðir lokun þessarar stærstu bræðslu höfuðborgarinn- ar? Alþýðublaðið spurði Gunnlaug Sævar Gunn- laugsson, forstjóra Faxa- mjöls hf. þeirrar spurn- ingar. Gunnlaugur sagði að vissulega munaði verulega um að nú væri ekki hægt að taka við loðnu til bræðslu á Kletti. Þar var hægt að bræða 500-600 tonn á sólar- hring, en í lyktarlausu bræðslunni vestur á Granda væru afköstin í dag aðeins 130 og upp í 150 tonn þegar best gengur, Faxamjöl gæti í dag annað litlu öðru en úr- kastinu frá Granda hf. Af- gangurinn fer í dæluskip sem notað er til að flytja loðnu til bræðslu norður á Siglufjörð, 1400 tonn í ferð. Sagði Gunnlaugur að fljótt á litið þýddi lokun verksmiðjunnar á Kletti að höfuðborgarbúar yrðu af um 200 milljón króna útflutn- ingsverðmæti. Reykvíking- ar yrðu líka af 30 störfum meðan loðnuvertíð stendur, trúlega 20 milljónum króna brúttó, en auk þess óbeinum störfum hjá vörubílstjórum, vélsmiðjum og annað. „Við vorum orðnir þreytt- ir á sífelldum kvörtunum út af rekstrinum á Kletti og auk þess var verksmiðjan orðin frekar léleg“, sagði Gunn- laugur. En Reykvíkingar hafa sumir hverjir vilja reka af höndum sér loðnubræðslu alfarið og þarmeð þá at- vinnu og peninga sem í slíkri starfsemi liggja. Fyrir tveim árum voru mynduð samtök Vesturbæinga gegn bræðslunni í Örfirisey. Mál- uðu menn fremur ljóta fram- tíðarmynd af þeirri starf- semi. Gunnlaugur segir að ekkert af þeim spádómum hefðu komið fram. Bræðsl- an hefði farið í gang og eng- inn tekið eftir því. Hún er með öllu lyktarlaus og mengar ekki hið minnsta. Hefur síðan ekkert heyrst í andófshópnum. Islenskar konur fjölmenna á Nordisk Forum í Ábo í Finnlandi í sumar STEFNIRIAÐ100« KONUR FARIUTAN Um það bil 530 konur hafa Iátið bóka far til Ábo (Turku) í Finnlandi í sum- ar, en þar verður haldið Nordisk Forum, norræna kvennamótið. Aðeins vika er síðan byrjað var að bóka þátttakendur í mót- inu og augljóst að íslensk- ar konur munu verða fjöl- mennar. Vitað er um stóra hópa kvenna sem ætla ut- an en hafa ekki enn látið bóka sig. Margrét Eiríksdóttir hjá Flugleiðum sagði í samtali við Alþýðublaðið í gær að greinilegt væri að þátttakan í sumar yrði meiri en hún var á sama móti sem haldið var 1988 í Osló, en þangað steðjuðu 780 íslenskar kon- ur og áttu saman ógleyman- lega daga. „Langflestar kjósa kon- urnar beint leiguflug með okkur til Ábo, en allmargar fara tií Stokkhólms og fara MARGRÉT EIRÍKSDÓTTIR, sölufulltrúi hjá Flugleiðum, er önnum kafin þessa dagana við að bóka farþega í leiguflug kvenna til Ábo í Finnlandi. yfir til Finnlands með ferj- unum sem ganga þar á milli“, sagði Margrét. Verðið á beinu flugi fram og til baka er 24.990 krónur, en sé ferðast með leiguflugi út og opinn farseðill tekinn heim með áætlunarflugi, þá kostar miðinn 33 þúsund krónur. „Þarna skapast mjög gott tækifæri til að skoða Finn- land, sigla út í skerjagarð- inn, fara dagsferð til Hels- inki, eða jafnvel yfir landa- mærin til St. Pétursborgar í Rússlandi. Við bjóðum upp á ótalmargt í þeim efnum, en vissara að ákveða sig strax“, sagði Margrét Eiríksdóttir. Gisting er í höndum fram- kvæmdanefndar, en Val- gerður Gunnarsdóttir er for- maður hennar. Boðið er upp á ódýra gistingu, allt frá ódýrum en bærilega vistleg- um hermannaskálum upp í fimm stjömu hótel. Verðlag í Finnlandi er afar hagstætt. Þannig kostar herbergi á lúxushóteli ekki nema 215 mörk, eða tæpar 3.000 krón- ur, morgunverður innifal- inn. Margrét sagði að sér mundi ekki koma á óvart þótt þátttakan ætti eftir að tvöfaldast á næstunni. Sumir giskuðu á að um þúsund ís- lenskar konur færu til Finn- lands. Svipmyndfrá þúsund-vatna-landinu, hinu fagra Finnlandi. Umhverfið er stórbrotið og 70% landsins þakin skógi að sögn Finna. Jörundurhundadagakóngur og fangahjálpin Hvemig tengist Jiirundur hundadagakóngur Fangahjálpinni? Skýringin fæst þegar menn horfa á söng- og gleðileik, sem Leikféiag Selfoss frumsýndi fyrir helg- ina. Leikurinn er byggður á dægumiálaumræðunni, tfðum útbrotum fanga. landa- bruggun, einkavinavæðingu og frfmerkjasöfnun. Verkið heitir Leikið kiusum hala og hefur Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson samið textann, en tónlist er eftir Davíð Krist- jánsson. Tóniistina flytur Leikhússtríóið og helstu leikarar leikfélagsins fara með hlutvcrkin, alls um 30 manns. Selfyssingar vænta þess að landsmenn komi og hlægi sig máttlausa. Boðið er upp á leikhústengd tilboð í mat og gistingu á Selfossi. Góð hugmynd að eiga þar helgí. Sláið á þráðinn hjá leikfélaginu í símum 98-21672 og 98- 2250 til klukkan 18 alla daga, eftir það í 98- 22787. Ferðalok til Stokkhólms Þjóðleikhúsið hefúr fengið boð um að sýna leikrit Steinunnar Jóhannesdóttur, Ferðalok, á menningar- og listahátfð í Stokkhólmi í næsta mánuði, en hún er haldin í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Sýningamar í Stókkhólmi verða tvær, dagana 9. og 10. mars, og verður sýnt á aðalsviði Södra Teatems. Leikritið verður túlkað jafn- óðum á sænsku fyrir þá sem kjósa. Úr kikriti Steinunnar Jóhannesdóuur, Ferðalokttm. Manneskjan í íslensku landslagi Anna G. Torfadóttir, grafildistakona frá Akureyri, hefur opnað sýningu í Portinu að Strandgötu 501 Hafnarftrði. Á sýningunni eru 11 verk, unnin með blandaðri tækni sem sýna manneskjuna í fslensku landslagi. Opið daglega írá klukkan 15 úl 18, nema á þriðjudögum til sunnudagsins 6. mars. Sinfóníuhljómsveitin á faraldsfæti í lok þcssa mánaðar verður Sinfóníuhijómsveit íslands á faraldsfæti og sækir heim Akumesinga 23. febrúar, Selfyssinga 24. febrúar og Kópavogsbúa 25. og 26. febrií- ar. Hljómsveitin heldur tónleika sem tengdir eru verkefni því sem Jónas Ingimund- arson, píanólcikari, hefur skipulagt og kallast Tónlistfyrir alla, og raunar smiðs- höggið íþví stóra vcrkefni. Hljómsveitarstjóri verðurFinninn Juha Nikkola, einleik- ari Sigrún Eðvaldsdóttir, kynnir Svcrrir Guðjónsson, en fram kemur Listdans- flokkur œskunnar, en dansahöfundur er David Grcenall. Maraþonbíósýning allan laugardaginn Stónnyndin Stríð ogfriður verður sýnd í heild sinni á laugardaginn kemur í bíósal MÍR að Vatnsstíg 10. Þar verður íslandsmetinu í bíóglápi án efa hnekkt á eftinuinni- legan liátt. Bíósýningin hefst klukkan 10 að morgni, en lýkur ekki fyrr en klukkan 18.30 um kvöldið. Allur laugardagurinn fer því í að skoða þetta magnaða verk Ser- gei Bondartsjúk, en það er á við Ijórar venjulegar k vikmy ndir. Hlc verður gert á sýn- ingunni í þrfgang, tvisvar til að fá sér kaffihressingu, auk eins matartfma, en þá munu sýningargestir snæða þjóðlega rússneskarétti. Takmarkað pláss er í bíósal MÍR og er sula aðgöngumiða hal'in þar. Bæjatal á íslandi Margir hafa saknað þess í sfmaskránni að þar er ekki lengur að finna lista yfir sveita- bæi á íslandi. Póstur og sími hefur nú bætt fyrir þetta með útgáfu áBajauili áíslandi ásamt póstnúmeraskrL Bókin er byggð upp á upplýsingum frá Hagstofu íslands. Bæjunum er raðað efúr sýslum og hreppum, en cinnig hægt að flctta þcim upp el'úr stafrófsröð. í ritinu er einnig póstnúmeraskrá fyrir landið allt. Bæjatalið fæst á póst- húsum og símstöðvum og kostar 825 krónur. Forræðishyggja í öldrunarþjónustu Öldrunarráð íslands gengst fyrir ráðstefnu á lostudaginn, 25. október, klukkan 13.15. að Borgartúni 6. Ráðstefnan ber yfirskriftina Forrœðishyggja í öldrimarþjón- ustu - Réttur einstáklingsins. Ráðstefnan er öllum opin. Ráðstefnan hefst með erindi dr. Vilhjálms Árnasonar heimspekings og híifundar bókarinnar Siðfrœði lífs og dauða. Þá flytur Þóra Arnfinnsdóttir geðhjúkrunarfræðingur og forstöðumaður Hlíðabæjar crindið.44 gefa og þiggju imannlcgum saniskiptum. Að lokum fiytur Jó- hanna Siginarsdóttir forstöðumaður vistheimilis Hrafnistu í Reykjavík erindi sem beryfirskriftinaöíig/egr fífástóru heimili. Ráðstefnustjóri verðurSigrún Karisdótt- ir relagsráðgjafi. Ráðstefinrgjáld er 1.200 krónur.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.