Alþýðublaðið - 23.02.1994, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 23.02.1994, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 23. febrúar 1994 YMISLEGT ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 Eimskip nýtir sér bætta samkeppnisstöðu innlends vinnuafls: Fundur Ríkisútvarpsins á Akureyri í kvöld: Um 25 manns starfa við gámaviðgerðir hérlendis Eimskip hefur í vaxandi mœli látið gera við gáma í eigu félagsins hér á landi. Heita má að nú séu að staðaldri um 25 maitns starfandi við gámaviðgerðir hérlendis á um 20 stöðum á landin u. Alþýðublaðið / Einar Ólason Eimskip hefur í vaxandi mæli látið gera við gáma í eigu félagsins hér á landi en þessar viðgerðir fara fram í 25 löndum fyrir fé- lagið. Heita má að nú séu að staðaldri um 25 manns starfandi við gámaviðgerð- ir hérlendis á um 20 stöð- um á landinu. Þessar upplýsingar koma fram í nýjasta fréttabréfi Eimskips. Þar segir að Eim- skip láti gera við gáma í um 25 löndum. Víðast hvar séu viðgerðirnar sérhæfð at- vinnugrein sem skiptist ann- ars vegar í málmviðgerðir og hins vegar í viðhald og við- gerðir á kælibúnaði frysti- gáma. Allmörg ár eru síðan um- fangsmiklar viðgerðir og viðhald kæligáma hófust hjá Eimskip í Reykjavík en í seinni tíð hefur þessi þjón- usta í auknum mæli verið unnin á öðrum stöðum á landinu. Aðrar viðgerðir gáma voru lengi vel lítið unnar hér á landi en bætt samkeppnisstaða innlends vinnuafls hefur á seinni ár- urn haft í för með sér veru- legar breytingar þar á. Á árinu 1993 var enn auk- inn hlutur innlendra verk- stæða og er nú langstærsti hluti viðgerða á gámum Eimskips unnar hérlendis. Heita má að nú séu að stað- aldri um 25 manns starfandi við gámaviðgerðir hérlendis á um 20 stöðum á landinu. Á þessu ári mun Eimskip íjárfesta umtalsvert í nýjum gámunr. Áætlað er að bæta 1.120 gámaeiningum við gámaeign Eimskips en einn tuttugu feta gámur telst vera ein gámaeining. SVIPMYNDIR FRÁ SELTJARNARNESI Einn af útsendurum Alþýðublaðsins var á ferðinni um Seltjarnarnesið á dögunum og smellti þá af meðfylgjandi myndum. Á myndunum sést glögg- lega hversu ægifagurt getur orðið þarna á fallegum vetrardögum. Sjáið þetta óviðjafnanlega samspil ljóss og skugga. Fjaran, Nesstofa og vitinn á Gróttu eru hér „mótívin“ einsog sagt er á Ijósmyndaramáli. Hvert stefnir í atvinnumálum? Stöðugt hefur sigið á ógæfu- hliðina í atviiinuináluni á Ak- ureyri og víðar á Norðurlandi og nú er svo komið að um 10 prósent vinnufærra manna er án atvinnu í höfuðstað Norð- urlands. Ríkisútvarpið á Ak- ureyri efnir til almenns fund- ar um ástandið þar sem reynt verður að finna svör við vand- anum og leita leiða til að auka atvinnu. Fundurinn verður í Sjallanum í kvöld, miðviku- dagskvöld, og eru tveir ráð- herrar meðal framsögu- manna. Fundurinn hefst klukkan 20.30 stundvíslega og honum verður útvarpað í svæðisútvarp- inu á Norðurlandi. Framsöguer- indi flytja Sigurður J. Sigurðs- son forseti bæjarstjómar Akur- eyrar, Sighvatur Björgvinsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Halldór Blöndal samgöngu- og landbúnaðanáðheira, Bjöm Snæbjörnsson formaður Eining- ar og Ásgeir Magnússon fram- kvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar. Að loknum framsöguerindum geta fundarmenn tekið til máls annað hvort úr pontu eða sæti. Miðað er við stuttar ræður eða spumingar sem mögulegt verður að varpa til framsögumanna. Fundarstjóri verður Arnar Páll Hauksson deildarstjóri ríkisút- varpsins á Akureyri. SIGHVATUR BJÖRGVINS- SON og HALLDÓR BLÖN- DAL. Ráðherrarnir verða með- al framsögumanna á almenn- um fundi um atvinnuástandið á Norðurlandi sent Ríkisútvarpið á Akureyri heldur kvöíd. Alþýðublaðsmyndir/ Einar Ólason REYKJANES KJÖRDÆMI -Viðtalstími ráðherra- Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherrann, Guðmundur Árni Stefánsson, hyggst á næstunni efna til viðtalsfunda með almenningi í Reykjaneskjördæmi. Fundirnir hefjast nú eftir helgina og verða sem hér segir: Hafnarfjörður: Mánudagurinn 21. febrúar kl. 17-19 í Heilsugæslustöðinni Sólvangi, Hörðuvöllum, sími 65 26 00. Grindavík: Miðvikudagurinn 23. febrúar kl. 17-19 í Heilsugæslustöð Suðurnesja, Víkurbraut 62, sími 68021. Keflavík: Fimmtudagurinn 24. febrúarkl. 17-19 í Heilsugæslustöð Suðurnesja, Skólavegi 8, sími 20580. Þeir sem vilja eiga erindi við ráðherra og ná tali hans á þessum stöðum er bent á, að viðtalsbeiðnum er veitt móttaka í framangreindum símanúmerum. HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ 8 1 MNaMNMNMMNMMMMMMMMNMRI

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.