Alþýðublaðið - 01.03.1994, Page 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
TIÐINDI
Þriðjudagur 1. mars 1994
Reiðhöllin:
hestadagar
með merkri
sögusýningu
O I/ O
um tíma árs.
í tilefni af þessu framtaki var
efnt tii álieita á reiðina suður.
Það fé sem safnast með þeim
áheitum mun renna til kaupa á
innbúi í íbúð sem Krabbameins-
félag íslands er festa kaupa á
fyrir krabbameinssjúklinga sem
koma í meðfcrð til Reykjavíkur
og aðstandenda krabbameins-
sjúklinga utan að landi.
Flestir toppgæðinga Norður-
lands eiga að koma fram á
hestadögunum í ReiðhÖllinni.
Sýningar verða daglega þessa
viku og er sú fyrsta klukkan 21 í
kvöld. Reiknað er með að 70 til
S0 hross taki þátt í hestadögun-
um og annað eins af fólki.
NORÐLENSKIR hesta-
menn eru væntanlegir til
Reykjavíkur með Akraborg
um hádegi í dag eftir að hafa
komið ríðandi frá Norður-
landi til Akraness. Norðlensk-
ir hestadagar verða í Reiðhöll-
inni þessa viku og í tilefni af 50
ára afmæli lýðveldisins verða
norðanmenn með sögusýn-
ingu sem hefst á Inndnámi ís'-
lenska hestsins og endar á
stöðu hans í dag.
Norðlensku hestamennimir
komu nðandi suður með hand-
ritið að Sögusýningunni og voru
þrjá daga á leiðinni. Það mun
vera langt síðan að farið hefur
verið á hestum þessa leið á þess-
LANDSPÍTALINN
REYKLAUS VINNUSTAÐUR
BARNASPÍTALl HRINGSINS
1. aðstoðarlæknir
Tvær stöður 1. aðstoðarlæknis (superkandidat) á Barna-
spítala Hringsins eru lausar til umsóknar. Ráðið er til
eins árs, annars vegar frá 1. maí og hins vegar frá 1. júlí
nk. Auk venjubundinna starfa aðstoðaryfirlæknis er ætl-
ast til virkrar þátttöku í bundnum vöktum skv. fyrirfram-
gerðri áætlun. Starfsreynsla á barnadeild æskileg. 1. að-
stoðarlækni eru falin ábyrgðarmeiri störf, eftirlit með
yngri aðstoðarlæknum, þátttaka í kennslu læknanema
og nemenda eða starfsfólks í öðrum heilbrigðisgreinum.
Um getur verið að ræða námsstöðu í barnalækningum
eða starfsþjálfun í öðrum sérgreinum.
Umsóknum skal skila á eyðublöðum lækna og senda
forstöðulækni, Víkingi H. Arnórssyni prófessor sem veit-
ir nánari upplýsingar í síma 601050. Ljósrit af prófskír-
teini og upplýsingum um starfsferil, ásamt vottorðum frá
yfirmönnum, fylgi.
Umsóknarfrestur er til 20. mars 1994.
Hafrannsóknir:
Sjórannsóknaleiðangur
Bjarna Sæmundssonar
Heildarniðurstöður vetrarleiðangurs 1994 sýna að hiti og selta
var í meðallagi í sjónum allt í kringum landið miðað við árstíma.
Lítil hætta virðist vera á hafís í vetur eða vor
RANNSÓKNASKIPIÐ Bjarni
Sæmundsson var í sjórannsókna-
leiðangri á miðunum umhverfls
landið 7. til 18. febrúar síðastlið-
inn. Slíkir leiðangrar hafa verið
farnir á þessum árstíma allt frá
árinu 1970. Helstu niðurstöður
hita- og seltumælinga voru þess-
ar:
Sjávarhiti og selta fyrir Suður- og
Vesturlandi var í meðallagi (5-7°,
35.1 0/00). Hlýsjórinn að sunnan
náði fyrir Kögur (3-4°, 34.9 0/00),
en austar á norðurmiðum var hita-
stig 2-3° (vetrarsjór) sem telst vera í
meðallagi fyrir árstímann. Skilin
við kalda sjóinn að norðan voru
langt undan landi og hvergi varð
vart við kaldan pólsjó eða hafís á at-
hugunarsvæðinu. A Austfjarðamið-
um var hitastig sjávar tæpar 2° sem
ér nálægt meðallagi. Djúpt út af
Norðausturlandi í Austur-íslands-
straumi var selta í vetur tiltölulega
há sem bendir hvorki til nýísmynd-
unar eða ísreks úr þeini átt. Skilin
rrúlli kalda og hlýja sjávarins við
Suðausturland voru að vanda í
Lónsbug. Hitastig grunnt með Suð-
urlandi á loðnuslóð var um 6°.
Ferskvatnsáhrif voru h'til fyrir Suð-
vesturlandi.
Heildamiðurstöður vetrarleið-
angurs 1994 sýna að hiti og selta
var í meðallagi í sjónum allt í kring-
um landið miðað við árstíma. Lítil
hætta virðist vera á hafís í vetur eða
vor.
I leiðangrinum í vetur voru einn-
ig gerðar athuganir á kolefni og átu
í sjónum fyrir Norðurlandi. Fyrir
Veðurstofu Islands fóru fram sér-
stakar veðurfarsathuganir og sýn-
um var safnað á ýmsum stöðum
fyrir Geislavamir ríkisins.
Leiðangursmenn á r/s Bjama Sæ-
mundssyni vom Svend-Aage
Malmberg leiðangursstjóri og
hafrannsóknamennirnir Héðinn
Valdimarsson, Jóhannes Briem,
John Mortensen, Guðmundur
Sv. Jónsson Sólveig Ólafsdóttir.
Skipstjóri var Ingi Lárusson.
OJAONI
'0N05S0H
BJARNISÆMUNDSSON í Reykjavíkurhöfn ígærdag.
Alþýðublaðsmynd / Elnar Olason
Örverufræðingar halda málþing:
2. aðstoðarlæknir
Tvær stöður 2. aðstoðarlæknis á Barnaspítala Hringsins
eru lausar til umsóknar.
Ráðningartímabil er 1. júlí-31. desember 1994. Um er
að ræða venjubundin störf aðstoðarlækna. Þátttaka í
bundnum vöktum skv. fyrirframgerðri áætlun.
Umsóknum skal skila á eyðublöðum lækna og senda
forstöðulækni, Víkingi H. Arnórssyni prófessor sem veit-
ir nánari upplýsingar í síma 601050. Ljósrit af prófskír-
teini og upplýsingum um starfsferil, ásamt vottorðum frá
yfirmönnum, fylgi.
Umsóknarfrestur til 20. mars 1994.
RÍKISSPÍTALAR
Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á íslandi með starfsemi
um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sér fyrir markvissri
meðferð sjúkra, fræðslu heilbrigðisstétta og fjölbreyttri rannsóknastarf-
semi. Okkur er annt um velferð allra þeirra, sem við störfum fyrir og með,
og leggjum megináherslu á þekkingu og virðingu fyrir einstaklingnum.
Starfsemi Ríkisspítala er helguð þjónustu við almenning og við höfum
ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni að leiðarljósi.
Sýklasmit til landsins með
vörum, dýrum og fólki
ÖRVERUFRÆÐINGAR
standa fyrir málþingi á fimmtu-
daginn um hugsanlegar breyting-
ar á reglum um innflutning á
ýmsum vörum til landsins og
hvað kunni að vera honum sam-
fara. Oft er vitnað til einangrun-
ar landsins og bent á að veruleg
hætta geti stafað af auknum inn-
Ilutningi þar sem það kunni að
leiða til þess að auknar líkur séu á
að sýklar af ýmsu tagi berist til
landsins.
Örverufræðifélagið bendir á að
sagan sýni að hrikaleg slys hafi orð-
ið, bæði hérlendis og erlendis við
innflutning á sýklum. Nauðsynlegt
sé að fara varlega en jafnframt að
koma í veg fyrir einangrunarstefnu
sem byggir eingöngu á hræðslu og
vanþekkingu, nema hvort tveggja
komi til.
Örverufræðifélag Islands vill
stuðla að aukinni þekkingu og
skilningi almennings á örverufræði
og telur tímabært að fjaila um þetta
mál á faglegum gmnni. Því er boð-
að til málþingsins í Norræna húsinu
3. mars klukkan 13 til 18. Setning
þingsins og fundarstjóm verður í
höndum Hjörleifs Einarssonar, for-
manns félagsins.
Fimm frummælendur munu
fjalla utn hinar ýmsu hliðar sýkla-
smits. Haraldur Briem læknir talar
um sýklasmit með fólki; Eggert
Gunnarsson, dýralæknir, um sýkla-
smit með dýmm; Sigurður Helga-
son, ftsksjúkdómafræðingur, um
sýklasmit með ftskum; Sigurgeir
Ólafsson um sýklasmit með plönt-
um; og Franklín Georgsson, mat-
vælaörverufræðingur, um sýkla-
smit með matvömm. Þá fjallar Sig-
urður Öm Hansson, dýralæknir, um
lög og reglur. Loks verða pallborð-
sumræður sem fyrirlesarar taka þátl
í ásamt Jóhannesar Gunnarssonar,
formanns Neytendasamtakanna og
Jónasar Fr. Jónssonar, lögmanns
Verslunarráðs Islands, auk fleiri að-
ila.