Alþýðublaðið - 01.03.1994, Síða 7
Þriðjudagur 1. mars 1994
HEILBRIGÐISMAL
ALÞYÐUBLAÐIÐ 7
Heilbrígðisráðherra opnar
nýja sérhæfða deild í EIR
Deildin er hönnuð fyrir heilabUaða og þar eru 20 rými
GUÐMUNDUR Árni Stefáns-
son heilbrígðisráðherra opnaði
síðastliðinn föstudag sérhæfða
heilabilunardeild í EIR, hjúkrun-
arheimili við Gagnveg í Reykja-
vík. Deildin er hönnuð með þarf-
ir Alzheimersjúklinga og ann-
arra heilabilaðra einstaklinga í
huga og þar eru 20 rými.
Hin nýja deild mun tengjast lok-
uðum útigarði og er nýlunda hér-
lendis. Á deildinni eru sérlega rúm-
góðir gangar sem fullnægja munu
hreyfiþörf þessara einstaklinga og
setustofur sem meðal annars eru
ætlaðar til dægradvalar. Deild sem
þessi þarfnast meiri mönnunar en
almennar deildir vegna eðlis veik-
inda þessara einstaklinga og mikill-
ar hjálparþarfar og mun hún þar af
leiðandi verða dýrari í rekstri en
þær einingar heimilisins sem þegar
hafa tekið til starfa. Eftir opnunina
munu 74 heimilismenn dvelja á
hjúkrunarheimilinu EIR. Síðari
hluta þessa árs er fyrirhugað að
opna aðra sérhæfða einingu fyrir
meðal annars blinda og sjónskerta.
Á ljórðu hæð hússins verður
deild fýrir greiningu, endurhæfingu
og skammtímavistun. Þessi deild
mun skipa sérstöðu hér á landi.
Starfsemi hennar mun meðal ann-
ars létta undir með bráðadeildum
og öldrunardeildum sjúkrahúsanna
og gera þeim fært að starfa eins og
Iteilbrigðisráðherra opnaði síðastliðinn
fóstudag sérhœfða heilabilunardeild í
EIR, hjúkrunarheimili við Gagnveg í
Reykjavik.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
þeim er ætlað. Með tilkomu deild-
arinnar er þess einnig vænst að ein-
staklingum gefist kostur á að dvelja
lengur á heimilum sínum og að hún
verði þar með mikilvægur stuðn-
ingur við heimaþjónustu.
Hjúkrunarheimilið EIR er reist af
Reykjavíkurborg, Seltjarnames-
kaupstað, Samtökum
blindra og blindravina,
Sjómannadeginum í
Reykjavík og Hafnatfirði,
Sjálfseignarstofnuninni
Skjól, Verslunarmanna-
félagi Reykjavíkur og Fé-
lagi aðstandenda Alz-
heimersjúklinga.
Húsið er 7.135 fermetr-
ar á fjórum hæðum og mun
fullbúið rúma 120 heimil-
ismenn.
Helstu ráðgjafar við
hönnun og framkvæmdir
eru Halldór Guðmundsson
Teiknistofunni Ármúla 6,
yerkfræðistofa Stefáns
Olafssonar hf. og Stýri-
tæknihf.
Stjóm EIRAR skipa
Páll Gíslason formaður,
Sigurður Helgi Guð-
mundsson, Petrea Jóns-
dóttir, Pétur A. Maack,
Helga Einarsdóttir, Hall-
dór S. Rafnar og Pétur
Sigurðsson.
Formaður byggingar-
nefndar er Sigurður Helgi
Guðmundsson. Yfirlækn-
ir er Sigurbjöm Bjöms-
son, forstöðumaður er
Gréta Guðmundsdóttir
og Birna Krístín Svav-
arsdóttir er hjúkrunarfor-
stjóri.
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RIKISSJÓÐS
í 2. FL. B1985
Hinn 10. mars 1994 er sautjándi fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 2. fl. B 1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 17 verður frá og með 10. mars n.k. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 50.000 kr. skírteini = kr. 4.451,90
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabiiið
10. september 1993 til 10. mars 1994 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1239 hinn 1. september 1985
til 3343 hinn 1. mars 1994.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða nr. 17 ferfram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og hefst hinn 10. mars 1994.
Reykjavík, febrúar 1994.
ALÞÝÐUFLOKKURINN VESTFJÖRÐUM
HAPPDRÆ TTI
Alþýðuflokksins í
Vestfj ar ðakj ördæml
Vinningar:
Flugfar fyrir tvo, Keflavík - Luxemborg -
Keflavík, að verðmæti kr. 80.000.-
Flugfar fyrir tvo, Keflavík - Kaupmanna-
höfn - Keflavík, að verðmæti kr. 42.920.-
Upplýsingar gefa Pétur Sigurðsson í síma
94 - 35 36, Snorri Hermannsson í síma 94 -
35 36 og Karitas Pálsdóttir í síma 94 - 36 64.
Útgefnir miðar: 1.000 - Verð kr. 500 -
Dregið verður 1. apríl 1994.
° ALÞÝÐUFLOKKURINN
Happdrætti Alþýðuflokksins
Drcgið hefur vcrið í Happdrætti Alþýöuflokksins og hlutu
handhafar cftirtalinna númcra vinninga:
1. 6283 9. 6510
2. 6216 10. 2562
3. 4208 11. 4517
4. 4105 12. 2540
5. 4999 13. 1108
6. 9386 14. 3581
7. 9026 15. 9884
8. 7660
Vinningshafar eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband
við skrifstofur Alþýðuflokksins, sími 91-29244, Hverfisgötu 8-
10, Reykjavík.
SEÐLABANKIÍSLANDS
AUGLÝSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00
1982- 1.fl. 1983- 1 .fl. 1984- 2.fl 1985- 2.ÍI.A 1985-2.fl.B 01.03.94-01.03.95 01.03.94-01.03.95 10.03.94 - 10.09.94 10.03.94 - 10.09.94 10.03.94-10.09.94 kr. 156.874,20 kr. 91.144,10 kr. 75.487,40 kr. 47.954,30 kr. 26.981,40**
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
**) Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt
frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, febrúar 1994.
SEÐLABANKIÍSLANDS