Alþýðublaðið - 18.03.1994, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 18.03.1994, Blaðsíða 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 Föstudagur 18. mars 1994 FRÉTTIR Við þurfum að stofna félag um heilbrigðistækni, segir Vilhjálmur Guðjónsson, stoðtækjasmiður hjá Össuri hf. - Slíkt félag gæti leitt til verðmætrar samvinnu margra stétta sem vinna innan heilbrigðisþjónustunnar: Þekking Á Sviði Heilbrigðistækni iÞÁGUIÐNAÐAR EITT ÞEIRRA iðnfyrir- tækja sem vakið hefur verð- skuldaða athygli á síðustu ár- um er stoðtækjasmiðjan Öss- ur hf. Það fyrirtæki hefur unnið sér álitlega markaði er- lendis fyrir vörur sína, sem hafa reynst afar traustar og vandaðar og tekið samkvæmt því á kröfuhörðum mörkuð- um. Starfsmenn fyrirtækisins eru afar opnir fyrir nýjum hugmyndum. Einn þeirra er Vilhjálmur Guðjónsson, stoð- tækjasmiður. Hann sagði í samtali við Alþýðublaðið að hér á landi þyrfti að stofna fé- lag um heilbrigðistækni. En hverskonar félagsskapur verður það? „Heilbrigðistækni er sú tækni sem tengist líf- og lækn- isfræði. Hún er bæði fræðileg og verkleg. Hún nær yftr ferlið allt, hvemig mæli- og meðferð- artæki eða hugbúnaður verður til, allt frá rannsóknum til not- anda. Hún fjallar um aðferða- fræði, öryggismál, gæðakröfur, skipulag og fleira. Víða erlend- is er heilbrigðistækni orðið sér- stök atvinnugrein og umfangs- mikill iðnaður", segir Vilhjálm- ur. Undirbúningur félags sem VILHJÁLMUR GUÐJÓNSSON, - hvetur til samstarfs og samvinnu þeirra sem staifa að lieilbrigðis- tœkni í félagsskap, sem stofnaður verður eftir eina viku. sameina á hina ýmsu þætti heil- brigðistækninnar er vel á veg kominn og starfa tæknimenn sjúkrahúsa, sölumaður lækn- ingatækja og stoðtækjasmiður í undirbúningsnefnd. Stofnfund- urinn er reyndar eftir eina viku. Hugmyndin er að skapa breið- an hóp manna með mismun- andi menntun og mismunandi áhugasvið sem em þó öll tengt heilbrigðismálum á einhvem hátt. Hópamir fá hér tækifæri til að miðla þekkingu sín á milli innan vébanda félagsins. Þann- ig getur stoðtækjasmiður leitað til tæknimanna á sjúkrahúsum með vandamál, til dæmis varð- andi mælingar og greiningar, fengið ráðleggingar eða öfugt. Þar getur læknir leitað til iðnað- arfyrirtækja með hugmyndir sem hann kann að hafa að tækj- um og þannig getur samstarfið leitt til margra góðra hluta. „Ástæðan fyrir þvf að nauð- synlegt er að stofna sérstakt fé- lag um heilbrigðistækni em ört vaxandi áhugi fyrir þessum rnálum. Með því að miðla upp- lýsingum og koma á sambönd,- um manna á milli gætu þróun, rannsóknir og þekking aukist á þessu sviði. Þannig gæti iðnað- arfyrirtækjum fjölgað, mat- vælaframleiðsla orðið betri, gjaldeyrir sparast, störfum ijölgað og síðast en ekki síst getur læknisþjónusta batnað“, sagði Vilhjálmur Guðjónsson. Vilhjálmur bendir á að ís- lendingar byggja afkomu sína að vemlegu leyti á matvæla- framleiðslu. Að hafa vald á þeirri tækni sem tengist sjávarútvegi og landbúnaði gæti skipt okkur miklu máli. „Hér em tilrauna- stöðvar og rannsóknastofur sem nýta sér það nýjasta í tækniheiminum. Þar er þekking á sviði heilbrigðistækninnar. Sú þekking gæti gert vinnuna skil- virkari og jafnvel skilað okkur söluvöm. Líf- og læknisffæði- legar stofnanir em í samstarfi við erienda aðila sem hafa ábyggilega áhuga á að kaupa sér lausn sinna vandamála“, segir Vilhjálmur og segir að umhverfið hér á landi fyrir rannsóknir og þróun sé gott. „Hér er gott heilbrigðiskerfi og myndarlegar heilbrigðisstofn- anir. Þar er að finna ýmiskonar tæknibúnað. Hér hefur um ára- tuga skeið verið viðhald á lækn- inga- og rannsóknabúnaði og er mikil þekking tengd því. Síð- ustu ár hafa íslensk fyrirtæki lit- ið dagsins ljós sem hafa það að markmiði að lifa á framleiðslu heilbrigðistæknilegra vara fyrir einstaklinga og sjúkrastofnan- ir“. Og félagið um heilbrigðis- tækni verður að vemleika. Stofnfundurinn er föstudaginn 25. mars í Gerðubergi og hefst klukkan 15. Þar em á dagskrá nokkrir stuttir fyririestrar. Þangað em allir velkomnir sem áhuga hafa á málefnum, sem tengjast tæknimálum heilbrigð- issviðsins. Lyfjatíðindi í samkeppni við læknablöðin NÝTT tímarit, Lyfjatíð- indi, er komið út. Blaðið er greinilega í mikilli sam- keppni við tímarit lækna, Læknablaðið, með 19 síður af auglýsingum í 40 síðna blaði, sem meðal annars koma frá erlendum lyfja- fyrirtækjum, sem borið hafa uppi Læknablaðið. Virðist fagmönnum ekki annað sýnt en að þarna séu lyfjafræðingar í góðum málum með útgáfu slíks tímarits. Ólafur M. Jóhannsson, hinn góðkunni íjölmiðlarýn- ir Morgunblaðsins, er rit- stjóri Lyljatíðinda. Hann sagði í samtali við Alþýðu- blaðið að ekki væri allt sem sýndist um glæstan hag hins nýja blaðs. Tilkostnaður hefði reynst meiri en gert var ráð fyrir, en þó væri ekki annars að vænta en að útkoma blaðsins í framtíðinni væri trygg og það komið til með að vera. Blaðið á að koma út 6 sinn- unt á ári. Ólafur er útgefandi auk þess að vera ritstjóri, en að baki honum standa fulltrúar lyfjafræðinga, fulltrúi lyíja- vöruhóps innan Félags ís- lenskra stórkaupmanna, full- trúi innlendra lyfjaframleið- enda og fulltrúi heilbrigðis- ráðuneytis og frá lyfjaskor Háskóla íslands. Blaðið er fallega prentað á dýran pappír hjá Gráskinnu. Iðnaður við ísafjarðardjúp: Fyrirtæki í málmiðnaði hafa stofnað félag MÁLMIÐNAÐARFYRIR- TÆKI við ísafjarðardjúp hafa stofnað með sér félag til samstarfs um vöruþróun og markaðssetningu. Stofnfund- urinn fór fram í Bolungarvík og þar gerðust flest fyrirtæki í málmiðnaði við Djúpið stofn- félagar. Starfsvcttvangur fyr- irtækjanna er fyrst og fremst þjónusta við sjávarútveg á norðanverðum Vestfjörðum. Fyrirtækin sem mynda Félag málmiðnaðar við Djúp hafa gert með sér samning um þróunar- verkefni sem felst í markaðs- könnun og frumhönnun á vör- um til framleiðslu. í þessu verk- efni koma Tæknimið hf. á ísa- firði til liðs við málmiðnaðar- fyrirtækin. Nýja félagið mun meðal annars vinna að því að bæta aðstöðu fyrir skipaþjón- ustu og viðgerðir í höfnum við Djúpið. Sömuleiðis verður unn- ið að hagræðingu í innkaupum og bættu rekstrarumhverfi. Félag málmiðnaðar við Djúp vill hafa samstarf við Fram- haldsskóla Vestfjarða um verk- menntun í málmiðnaði sem og eflingu endur- og framhalds- menntunar í málmiðnaði. í stjóm félagsins vom kjömir Víðir Benediktsson, Sigurður Jónsson og Jón Guðni Guð- mundsson. Föstuvaka í FRÍKIRKJUNNI Föstuvaka verður haldin í Fríkirkjunni í Reykjavík á sunnudaginn klukkan 17. í stað föstuguðsþjónustu að kvöldlagi var í fyrra gerð filraun með veglega föstuvöku. Nið- urstaðan varð sú að vert væri að halda áfram f þeirri von að þama gæti orðið um fast- an lið að ræða í starfsemi safnaðarins. Nafnið er sótt til jólavöku, sem haldin hefur verið um árabil á jólaföstu, segir sóknarpresturinn, séra Cecil Haraldsson. Á föst- unni munu ungmenni lesa píslarsöguna. Kirkjttkórinn syngur undir stjóm organist- ans, Pavel Smid. Einsöng syngja þær Erla Einarsdóttir, Harpa Haraldsdóttir og Svava Ingólfsdóttir. Þá syngja þær tvísöng, Svala og Þuríður Pálsdóttir. Pavel Em- 11 Smid leikur einleik á píanó. í lok föstuvökunnar geta kirkjugestir látið hjálp af hendi rakna til Líknarsjóðs safnaðarins. Allir velkomnir. Samsöngvar KARLAKÓRS REYKJAVÍKUR a Karlakór Reykjavíkur heldur tónleika fyrir styrktatfélaga sína óvenju snemrna í ár. eða fyrir páska, sem em reyndar snemma á ferðinni að þessu sinni. Fyrsti samsöng- urinn er í Langhollskirkju á sunnudagskvöldið klukkan 20. Á mánudagskvöld em tónleikar í Víðistaðakirkju í Hafitarjirði klukkan 20. Síðan verður sungið þrisvar í Langhollskirkju Idukkan 20, miðvikudags-, og fímmtudagskvöld og lokatónleikar laugatdaginn 26. mars klukkan 16. Boðið er upp á vandaða og fjölbreytta söngskrá og þijá glæsilega söngvara, en yngstur í þeim hópi er Jóhannes Ari Lárusson, aðeins 12 ára. HAGSTOFAN - merk stofnun 80 ára Um þessar rnundir em liðin 80 ár frá stofnun Hagstofu íslands. Af þvt tilefni er al- menningi boðið tii opins húss íSkuggasundi 3, en sú gata liggur niður af Lindargöt- unni að baki Þjóðleikhússins. Saga Hagstofunnar verður ekki tíunduð hér í blaðinu að þessu sinni, en gaman er að geta þess að hún tók við af hlutverki Indríða Einarsson- ar leikritaskálds með mciru, sem hafði sinnt hagsýslustarfi stjómanráðsins nánast í hjáverkum fyrst á öldinni. Hjá Hagstofunni verður opið milli klukkan 13 og 17 á ntorgun og sunnudag, og upplagt að Kta inn og skoða merkilega stofnun. Fær SPIELBERG loksins Óskarinn? Margir bíða án efa með óþreyju eftir uthlutun Óskarsverðlauna. Athöfhin fer fram í Holly- wood á mánudag. Fimm myndir em útnefndar sent bestu myndir ársins: The Fugitive; In the Name of the Father; The Piano; The Remains ofthe Day; og Schindler's Ust, allt myndir sem kvikmynduunnendur hér á landi þekkja. Út- nefndir sem bestu karileikarar em: Daniel Day Lewis; Laurence Fishburne; Tom Hanks; Anthony Hopkins og Liam Necson. Sent bestu leikkonumar em útnefndar: Angela Bassett; Stockard Channing; Holly Hunter; Emma Thompson og Debra Winger. Spennandi verð- ur að sjá hvort snillingurinn Steven Spiclbcrg hreppi ekki loks verðlaun fyrir leikstjóm. Mynd hans, Schindler’s List, er nú sýnd í Háskólabíói við mikla aðsókn og fær geysi loisamlega dóma. Myndin hefur fengið eigi færri en tólf útnefhing- ar tii verðlaunanna. SPIELBERG, - hefur oft vcrið út- nefndur til Óskarsverðlauna, en enn ekki fengið. Hvað gerist á mánudag'! IÐNSKÓLADAGUR á sunnudaginn Árlegur Iðnskóladagur verður haldinn í Iðnskólanum í Reykjavt'k á sunnudaginn, 20. ntars, klukkan 13-17. Altnenningi er boðið að koma og skoða Iðnskólann og kynna sér þá starfsemi sem þar fer fram. Sýndir verða smíðisgripir nemenda ásamt öðrum verkum sem nemendur vinna á hinum ýmsu verkstæðum skólans svo sem fataiðnaðardcild og hárgreiðslu að ógleymdu sumarhúsi sem framleitt er f tréiðnað- areild. Iðnskóladagurinn er fyrir alia tjölskylduna en þó ekki síst fyrir unga fólkið sem er að kveðja grunnskólann og leitar áhugaverðum námsleiðum fyrir ffamtíðina. hagstæð kjör, langur lánstími, sveigjanlegt lánshlutfall, margir gjaldmiðlar » IÐNÞROUNARSJOÐUR Kalkofnsvegi 1 150Reykjavík sími: (91) 69 99 90 fax:62 99 92

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.