Alþýðublaðið - 24.03.1994, Qupperneq 8
ÍS A 1 T § ll
UM AÐSKILWAD BÍKIS OG KIRKJU
upplýsingar og skráning stofnenda
JSjörgvin s: 95-22710 [kl. 17-19) J
MMBUBLMD
UM ADSKILNAÐ RÍKIS OG KIRKJU
upplýsingar og skráning stofnenda
vBjörgvin S* 95-22710
(kl. 17-19)
Fimmtudagur 24. mars 1994
47. TOLUBLAÐ - 75. ARGANGUR
Tryggmgastofhun ííkisins:
Bætur greiddar fyrir páska
„ÉG RÆDDI við fjár-
málaráðherra um að bæt-
ur Tryggingastofnunar
yrðu greiddar út fyrir
páska eða þann 30. mars.
Lögum samkvæmt á að
greiða bæturnar þriðja
virka dag hvers mánaðar
en vegna páskanna hefði
það þýtt að greiðsla hefði
frestast til 7. apríl. Ég held
að þeir sem fá greiddar
bætur megi síst við drætti á
útborgun og á ekki von á
öðru en það takist að leysa
málið enda tók fjármála-
ráðherra því vel,“ sagði
Guðmundur Arni Stefáns-
son heilbrigðis- og trygg-
ingaráðherra í samtali við
blaðið.
í framhaldi af þessum við-
ræðum ritaði Guðmundur
Ámi bréf til Friðriks Sophus-
sonar þar sem hann áréttaði
beiðni um útborgun fyrir
páska til bóta-, lífeyris- og
tryggingaþega Trygginga-
stofnunar ríkisins. Þessar
greiðslur munu nema um
1.250 milljónum króna.
„Mér fmnst eðlilegt að
gera allt sem hægt er til að
greiða bætumar út fyrir
páska og bendi á að starfs-
menn ríkisins fá greidd laun
fyrir páska. Hér er fyrst og
fremst um að ræða tæknilega
útfærslu og ég á ekki von á
öðm en hún gangi eftir því
viðbrögð fjármálaráðherra
vom jákvæð,“ sagði Guð-
mundur Ámi Stefánsson
heilbrigðis- og tryggingaráð-
GUÐMUND UR ÁRNI
STEFÁNSSON: „Mér
finnst eðlilegt að gera allt
sem hœgt er til að greiða
bæturnar út Jyrir páskaN
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
Harðskeyttur íslenskur umhyerfísmálastjóri
í sænska bænum Landskrona:
Högni Hansson
saumarað
bensínstöðvum
- og vill skikka þær til að selj a aðeins
umhverfisvænt - blýlaust - bensm
HÖGNI HANSSON, umhverfismálastjóri í Land-
skrona stendur í ströngu um þessar mundir.
Fax-mynd
HÖGNI HANSSON, 48
ára Islendingur, umhverfis-
málastjóri í Landskrona, í
Suður-Svíþjóð, hefur tekið
í hornin á bensínstöðvum
þar í bæ og vill skikka þær
til að selja einvörðungu
umhverfisvænt, blýlaust
bensín í stað venjulegs
mengandi eldsneytis. Hann
segir að JO, Justitsombuds-
mannen, eða Umboðsmað-
ur sænska þingsins, hafi
ekkert vit á þessum málum
í blaðagrein sem birtist ný-
lega.
Þessi tillaga umhverfis-
málastjórans hefur vakið
ýmsar geðshræringar í land-
inu og meðal annars hefur
embætti Umboðsmanns, sem
er fima sterkt í Svfþjóð, neit-
að svipuðum ráðagerðum.
Bensínsalar hafa þó tekið.
þessum tíðindum með mestu
ró að sögn Högna.
„Embætti Umboðsmanns-
ins hefur ekkert vit á þessum
málum“, segir Högni Hans-
son, þar halda menn að yfir-
völd á hverjum stað megi
ekki skipta sér af söluaðilum
sem hafa aðsetur utan sveitar-
félagsins. En eigendur bens-
índæla ákveða ekki sjálfir
hvaða bensín þeir eiga að
selja. Það gerir olíufélagið
sem afgreiðir bensínið, og
það er ekki til hér í bæ. Þá
verðum við að grípa inn í hjá
þeim sem ákveður hvaða
eldsneyti á að setja á dælurn-
ar...“, segir Högni Hansson
hinn galvaski íslenski um-
hverfismálamaður í ferju-
bænum sænska.
Verkefnisstjóri
til undirbúnings fræðslustofnunar
um náttúru íslands
Samstarfshópur á sviði náttúruverndar, ferðaþjónustu og fræðslu vill ráða
verkefnisstjóra til að undirbúa starfsemi fræðslustofnunar á háskólastigi
sem ætlað er að bjóða erlendum vísindamönnum, námsmönnum og
áhugafólki fræðslu um náttúru íslands og ef til vill síðar um önnur efni.
Verkefnisstjórinn skal hafa staðgóða þekkingu á náttúru íslands, helst
vera menntaður í náttúrufræðum eða hafa aflað sér þekkingar á því sviði
með öðrum hætti. Hann skal vera framtakssamur, vanur að vinna sjálf-
stætt og hafa reynslu af alþjóðlegum samskiptum. Starfið er tímabundið,
miðað er við að undirbúningur verkefnis hefjist í apríl (hlutastarf ef til vill í
byrjun) og verkefninu verði lokið í desember 1994. Launakjör miðast við
laun háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna.
Umsóknarfrestur er til 5. apríl.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást íTæknigarði,
Dunhaga 5,107 Reykjavík. Sími 694920.