Alþýðublaðið - 12.04.1994, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 12.04.1994, Qupperneq 1
PALMIKARLSSON, kaupmaður í Fiskbúðinni okkar - vinsælli fískvinnslu og fískbúð í Kópavogi Hyggst opna fiskbúðir í Lúxemborg og Þýskalandi - og segir það raunhæfan möguleika eftir að Island varð aðili að Evrópska efnahagssvæðinu PÁLMl KARLSSON í Fiskbúðinni okkar í Kópavogi, - œtlar að reyna fyrir sér með fiskbúðir á mcginlandi Evrópu. PÁLMI Karlsson, kaup- maður í Fiskbúðinni okkar í Kópavogi, hyggur nú á opn- un fiskbúðar í Lúxemborg og ef til vill einnig í þýskri borg nálægt landamærum Lúxemborgar. Pálmi stað- festi við Alþýðublaðið í gær að hann ynni þessa dagana að stofnun fiskbúðar á er- lendri grund. Slíkt ætti nú að vera raunhæfur mögu- leiki eftir að ísland varð að- ili að Evrópskra efnahags- svæðinu. „Hagsmunir okkar liggja í því að héðan mun varan fara fullunnin á erlendan markað, glænýr fiskur sem kominn verður í verslunina í Lúxem- borg örfáum klukkutímum eftir að hann fer úr fiskiðjunni hjá okkur“, sagði Pálmi. Fiskbúðin okkar selur fisk- afurðir sínar víða um land og sagði Pálmi að varan gæti borist mun fyrr á markað í Lúxemborg og nágrenni en til viðskiptavina víða innan- lands. Pálmi sagði að slík full- vinnsla gæti þýtt betra verð til sjómanna og fyrir þjóðarbúið og að hér væri í raun verið að búa til dýrmætan gjaldeyri. Slík vinnsla fyrir erlendan neytendamarkað þýddi að sjálfsögðu nokkur ný störf í atvinnuleysinu. Fiskbúðin okkar hefur starfað í hálft annað ár og hef- ur vakið athygli fiskunnenda á höfuðborgarsvæðinu öllu, sem venja komur sínar þang- að. Búðin er staðsett í iðnaðar- hverfi Kópavogs, að Smiðju- vegi 6, rétt hjá Bónusbúðinni. Þar er engin aðaláhersla lögð á ýsu, eins og títt er, heldur ýmsa aðra góða matfiska og varan fullunnin og tilbúin á pönnu eða í pott. Einmitt slíka rétti er hugmyndin að bjóða upp á í Lúxemborg og í Þýskalandi, en þar er ágætur áhugi fyrir fiskneyslu, en minna um gott úrval slíkrar vöru. „Það eina sem ég óska eftir, og það af gefnu tilefni, er að við verðum látnir í friði með þetta framtak", sagði Pálmi. Hann segist hafa orðið fyrir ótrúlegri framkomu yfirvalda, þegar honum tókst á sínum tíma að lækka verð á svepp- um um 35% til neytenda með notkun innflutts rotmassa. Slíka lækkun hefði kerfið ekki þolað. Honum hefði ver- ið bolað burtu af markaðnum, en hlaðið undir samkeppnis- aðilann á Flúðum. Pálmi segir að Jón Baldvin Hannibalsson hafi verið sá eini í kerfinu sem reyndi að aðstoða fyrir- tækið, en þá hafi skaðinn ver- ið skeður og fyrirtækið neyðst til að hætta störfum. „Það ætlar að loða við okk- ur Islendinga þúfnakolla- göngulagið og torfkofahugs- unarhátturinn, þvf miður. Þannig þoldi kerfið ekki til- raunir okkar til að lækka verð á vinsælli matvöru og annar- leg sjónarmið voru látin ráða varðandi innflutninginn á rot- massanum. Ég vona að þess- ari hugmynd okkar verði bet- ur tekið“, sagði Pálmi Karls- son. FULLTRÚAR minnihlutaflokkanna í borgarstjórn iögðu til í borgarráði að fengnir verði óháðir og virtir aðilar, verk- fræðingar, arkitektar og lögfræðingar, til að gera borgarráði grein fyrir tjárhags- legri stöðu Klappar hf. og framkvæmd- um á Völundarlóð- inni í heild. Meiri- hlutinn ákvað hins vegar að gefa eftir veð borgarinnar að Skúiagötu 10 og færa þau yfir á byggingar- rétt að óbyggðu liúsi á Völdunarlóðinni án þess að fram fari út- tekt á stöðunni. -Sjá umfjöUun á baksíðu. # Listahátíð í Reykjavík Forsala aðgöngumiða á eftirtalin atriði hefst þriðjudaginn 12. apríl í íslensku óperunni, opið virka daga M. 16.00-19.00 - sími 11475. Sun. 29/5. Mótettukórinn, stj. Hörður Áskelsson. M.a. frumfl. verk eftir Pál P. Pálsson. Hallgrímskirkja kl. 17.00. Mán. 30/5. Guido Pikal, tenór, Alfred Wafter, píanó. íslenska óperan kl. 20.30. ■ 'í % r. Mið. 1/6. Blásarakvintett Reykjavíkur og Vovka Ashkenazy, píanó. íslenska óperan kl. 20.30. 1/6 - 5/6: Barnaleikhúshátíð í Möguleikhúsinu við Hlemm. Mið. 1/6. Leikhópurinn Mariehpnen - Den lille heks, kl. 17.00. Fim. 2/6. Mókollur umferðarálfúr, kl. 17.00. Lau. 4/6. Leikhópurinn Mariehpnen - Den lille heks, kl. 15.00. Sun. 5/6. Mókollur umferðarálfur, kl. 15.00. Fös. 3/6. Gerry Mulligan & The Gerry Muliigan Quartet. Háskólabíó, kl. 20.00. Sun. 5/6. Igor Oistrakh, fiðla, Natalia Zertsalova, píanó. íslenska óperan, kl. 17.00. Þri. 7/6. Macbeth eftir Shakespeare. Mið. 8/6. Frú Emilía. Fim. 9/6. Héðinshús, Seljavegi 2, kl. 20.00. ‘ Mið. 8/6. Beethoven: Sinfónía nr. 9. Fim. 9/6. Sinfóníuhljómsveit íslands - Áskriftartónleikar. . Hamráhlíðarkóramir og einsöngvarar. Stjómandi Osmo Vanska. Hallgrýnskirkja.Ál. 20.00. Lau. 11/6. Nýtt verk eftir Tómas R. Einarsson. „Einslags stórt hrúgald af grjóti", tónleikur um ísland fyrir 5 einsöngvara og 6 manna jazzhljómsveit. íslenska óperan, ld. 21.00. Lau. 11/6. íslenski dansflokkurinn - Lýðveldisdansar. Sun. 12/6. Frumfl. verk eftir Hlíf Svavarsdóttur, Nönnu Ólafsdóttur, Maríu Gísladóttur. Borgarleikhúsið, kl. 20.00. Sun. 12/6. Tíminn og vatnið eftir Atla Heimi Sveinsson (frumfl.). Kammersveit Reykjavíkur, kór og einsöngvaramir Marta G. Halldórsdóttir, Sverrir Guðjónsson og Bergþór Pálsson. Stj. Paul Zukofsky. Langholtskirkja, kl. 20.00. Mán. 13/6. Vladimir Ashkenazy, píanó. Háskólabíó, kl. 20.00. Þri. 14/6. Ny Dansk Saxofon Quartet. M.a. frumfluU verk eftir Per Nprgárd. Norræna húsið,.kl. 20.30. Mið. 15/6. Erling Blöndal Bengtsson, selló. íslenska óperan, kl. 20.30. Lau. 18/6. Milska, oratorio eftir Kjell Mörk Karlsen, samið við samnefnt íslenskt miðaldakvæði. Asker Kirkekor og T0nsbei>g Domkantori, einsöngur og talrödd. Hallgrímskirkja, kl. 16.00. Fös. 25/6. The Street of Crocodiles. Lau. 26/6. Theater de Complicité frá Bretlandi. Sun. 27/6. Borgarleikhúsið, kl. 20.00. Fim. 2/6. Sannar sögur af sálaríífi systra. Lau. 4/6. eftir Guðberg Bergsson og Viðar Eggertsson. Þjóðleikhúsið, Smíðaverkstæði. Fös. 27/5. Niflungahringurinn eftir Richard Wagner. Sun. 29/5- Valin atriði sviðsett og skevtt saman með íengitextum. Þri. 31/5. Listræn yfirumsjón: Wolfgang Wagner - Hljómsveitarstjóri: Alfred Walter. Fim. 2/6. Leikstjóri: Þórhitdur Þorleifsdóttir - Leikmynd og búningar: Sigurjón Jóhannsson Lau. 4/6. Einsöngvarar - Kór íslensku óperunnar, Sinfómuhljómsveit íslands. Þjóðleikhúsið kl. 18.00. x , , .. ..x. * Mioasala a onnur atriði verður auglvst siðar. Forsala aðgöngumiða á eftirtalin atriði stendur yfir í Þjóðleikhúsinu, sími 11200. Opið alla daga nema mánudaga kl. 13.00-18.00, sýningardaga til kl. 20.00. Tekið á móti símapöntunum virka daga frá kl. 10.00 - Græna línan 996160. \

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.