Alþýðublaðið - 12.04.1994, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 12.04.1994, Blaðsíða 8
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ KŒKEMIi niit jr r w HASKOLIISLANDS: 5,2% stúdenta á kjörskrá kusu í rektorskjöri SÁÁ: Kántrýkvöld í ÚLFALDANUM & MÝFLUGUNNI Rektorskjör í Háskóla íslands fór fram síðastliðinn föstudag. Alls greiddu 224 kennarar og aðrir starfs- menn skólans atkvæði eða 45,9% þeirra, sem voru á kjörskrá. 271 stúd- ent greiddi atkvæði eða 5,2 þeirra sem á kjörskrá voru. Greidd atkvæði stúdenta gilda sem einn þriðji hluti greiddra atkvæða alls. Flest atkvæði hlaut Sveinbjörn Björnsson: 196 at- kvæði kennara og 183 atkvæði stúd- enta eða 80.8% atkvæða alls. Þar sem Sveinbjöm Bjömsson hlaut tilskilinn meirihluta greiddra atkvæða hefur hann verið endurkjörinn rektor Há- skóla íslands til þriggja ára, frá og með byijun næsta háskólaárs, 5. sept- ember næstkomandi. Kántrýkvöld verður haldið í Úlfaldanum & Mýflugunni, félagsmiðstöð SÁA í Ár- múla 17a, næstkomandi miðvikudagskvöld, 13. apríl, klukkan 20.30. Fyrri kántrý- kvöld í Úlfaldanum hafa verið vel sótt og dansinn stiginn fram í morgunsárið. Á mið- vikudagskvöldið spilar Dreifbýlisband Stefáns Ingólfssonar ásamt bandaríska ftðl- aranum Dan Cassidy sem vakið hefur verðskuldaða athygli og hrifningu hér á landi uppá síðkastið. Auk hljómsveitarinnar verða ýmis skemmtiatriði þar sem trúbadorar láta ljós sitt skína og dans verður stiginn að vanda. Aðgöngumiðar verða seldir á 600 krónur við innganginn. FULLVINNSLA SJÁVARAFURÐA - ekki orðin tóm í nýjasta hefti Vinn- unnar er viðtal við Gunnar G. Guð- mundsson í Garðinum. Hann hefur séð til þess að frasinn „fullvinnsla sjávarafurða" sem er kunnugur úr hátíðaræð- um, er annað og meira en orðin tóm. Gunnar segist ekki hafa orðið var við mikinn skilning þegar fjármagna þurfti fyrirtækið, - hann þurfti að leita til frænda okkar á Norðurlöndum til að fá lán. Framleiðsla fyrirtækis Gunnars er einkum ýsurúllur unnar í alíslenskri vél Sigurðar Kristjánssonar upp- fmningamanns. Afurðimar eru seldar til sjúkrahúsa í Reykjavík og til Flugleiða og Atlanta. Á myndinni er Gunnar G. Guðmundsson til vinstri ásamt ffamleiðslustjóran- um Gísia R. Sigurðssyni við íslensku vélina sem framleiðir tilbúna fiskrétti og marg- faldar söluverð fisksins. MEXÍKANSKT á Hótel Sögu Nærri tuttugu gestir frá Mexíkó koma hingað til lands í tengslum við mexíkanska viku sem haldin verður á Hótel Sögu dagana 12.-17. apríl. Grillið verður fagurlega skreytt að mexíkönskum hætti þessa daga og í eldhúsinu stjómar Alejandro Caloca meisUirakokkur, og á boðstólum verða að sjálfsögðu mexíkanskar veigar, meðal ann- ars Tequila. Þá mun 10 manna hljómsveit og dansfólk skemmta matargestum með þjóðlagatónlist. KENNARASAMBANDIÐ sendir samúöarkveöjur Sjöunda fulltrúaþing Kennarasambands íslands vottaði á fimmtudaginn Isfirð- ingum og öðmm Vestfirðingum hluttekningu og samhug vegna þeirra atburða sem þar gerðust fyrr í vikunni. „Félagsmenn í Kennarasambandi Islands búa og starfa um allt land og eiga náið samstarf við fjölskyldumar í landinu. Þeim er þv/ ljóst hversu alvarlegar afleiðingar náttúmhamfarimar á Vestfjörðum síðastliðinn þriðjudag hafa á líf íbúanna þar“, segir í ffétt ffá Kennarasambandinu. Hundruð milljóna í vanskilum hjá KORTHÖFUM Hagur VISA-ÍSLANDS - Greiðslumiðlunar hf. var með ágætu móti í fyrra, 57 milljón króna hagnaður varð af starfseminni þrátt fyrir tugmilljóna herkostnað við að koma á markað debetkortunum. Um síðustu áramót kvað rammt að vanskiium kort- hafanna, sem em orðnir 97 þúsund, - því vanskilaskuldimar um áramót námu 409 milljónum króna. Sú upphæð er vissulega stór, en þó ekki nema tæpt 1% af heildar- viðskiptum ársins. Effir stendur að 99,04% korthafanna stendur í skilum með greiðsl- ur sínar. Nýjar MYNDLISTARsýningar Dröfn Friðfinnsdóttir myndlistarkona frá Akureyri opnaði grafíksýningu í Lista- safniASÍ síðastliðinn laugardag og sýnir þar 24 verk unnin í tréristu. A Kjarvalsstöð- um sama dag opnuðu Hulda Hákon í vestursal, og Ólafur Gíslason í rniðsal. í aust- ursal em verk eftir Kjarval. Þá opnaði Margrét Sveinsdóttir sýningu í Galleriinu að Skólavörðustíg 4.1 Nýlistasafninu opnaði sýning á veggspjöldum Guerilla Girls, sem er hópur myndlistarkvenna í New York. Þær vinna undir nafnleynd og koma æt- íð fram með grímu fyrir andlitinu. Vinnuföt þeirra em stuttir þröngir kjólar, háhælað- ir skór og górillugrímur! MMDMIDID Þriðjudagur 12. apríl 1994 Vandræðin við SKÚLAGÖTU: Ihaldíð vill ekki úttekt á fjárhagsstöðu Klappar - og felldi tillögu tillögu minnihlutans í borgarstjóm um úttekt en ákvað að gefa byggi ngafélaginu Klöpp eftir veð borgarinnar í Skúlagötu 10 FULLTRÚAR minnihlutaflokkanna í borgarstjórn lögðu til í borgarráði að fengnir verði óháðir og virtir aðilar, verkfræðingar, arkitektar og lögfræð- ingar, til að gera borgarráði grein fyrir fjárhagslegri stöðu Klappar hf. og fram- kvæmdum á Völundarlóðinni í heild. Meirihlutinn ákvað hins vegar að gefa eftir veð borgarinnar að Skúlagötu 10 og færa þau yfir á byggingarrétt að óbyggðu húsi á Völdunarlóðinni án þess að fram fari úttekt á stöðunni. Þessi afgreiðsla meirihlutans er í fram- haldi af tillögum ffá byggingarfélaginu Klöpp hf. sem vom yfirfamar af lögfræði- og stjómsýsludeild borgarinnar. Fulltrúar minnihlutans í borgarráði lögðu fram grein- argerð með tillögu sinni um úttekt á Klöpp á fundi borgarráðs 22. mars. Þar segir: „Þær áætlanir varðandi fjármál hlutafé- lagsins sem liggja fyrir borgarráði, em væg- ast sagt ófullkomnar, enda hafa áætlanir hingað til engan veginn staðist, hvorki varðandi framkvæmdahraðann né ijármál- in. Upphaf vandræðanna á Völundarreit má rekja til rangra skipulagsákvarðana. Skipu- lag Skúlagötureitsins gerir ráð fyrir miklu stærri og flóknari byggingareiningum en al- mennur verktaki, sem byggir og selur íbúð- ir, ræður við. Steintak h.f. keypti Völundarlóðina af Reykjavíkurborg með þeim skilyrðum að byggja skv. staðfestu skipulagi Skúlagötu- svæðisins, en varð gjaldþrota aðeins tveim- ur ámm síðar. Reykjavíkurborg hafði þó áður reynt að koma til móts við fyrirtækið með því að kaupa 12 íbúðir af Steintaki, þar með varð borgin aðili að hlutafélaginu Klöpp, sem yfirtók eignir þrotabús Steintaks h.f. Þá er rétt að geta þess, að borgin hefur enn ekki fengið fullnaðargreiðslu fyrir lóð- ina.“ Steintak var lýst gjaldþrota árið 1991 og var þá með óklárað fjölbýlishús á Völund- SKÚLAGATA 10. Fulltrúar minnihlutaflokk- anna í borgarstjórn lögðu til í borgarráði að fengnir verði óháðir og virtir aðilar til að gera borgarráði grein fyrir fjárhagslegri stöðu Klappar hf og framkvœmdum á Völundarlóð- inni í heild. Meirihlutinn ákvað hins vegar að gefa eftir veð borgarinnar að Skúlagötu 10 og ftera þau yfir á byggingarrétt að óbyggðu húsi á Völdunarlóðinni án þess að fram fari úttekt á stöðunni. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason arlóðinni svokölluðu. Islandsbanki átti þama mikilla hagsmuna að gæta vegna skulda Steintaks við bankann. Þá var staða íbúðakaupenda hússins mjög óviss við gjaldþrotið og fór svo að bankinnn, íbúða- eigendur og Reykjavíkurborg stofnuðu byggingafélagið Klöpp sem yfirtók eignir þrotabúsins á Völundarlóðinni. Hluti henn- ar er lóðin Klapparstígur 7 en meirihluti borgarráðs ákvað 29. mars að flytja veð borgarinnar á lóðina af húseigninni að Skúlagötu 10. Ámi Sigfússon borgarstjóri segir að framkvæmdir á Völundarlóðinni hafi legið niðri um tíma en með þessari lausn verði hægt að halda þeim áfram. Bókanir minnihlutans Guðrún Ögmundsdóttir, borgarfulltrúi frá minnihlutanum, sagði í samtali við blað- ið að það væri mjög óeðlilegt að gera slíkar ráðstafanir sem þessar án þess að fyrst fari fram óháð úttekt á málinu í heild. Þau Guð- rún, Sigrún Magnúsdóttir og Sigurjón Pétursson lögðu fram eftirfarandi bókun á fundi borgarráðs 29. mars: „Við sitjum hjá við afgreiðslu þessa máls vegna þess að við teljum að nákvæmari upplýsingar skorti og einnig er þessi af- greiðsla hæpin vegna fordæmis gagnvart fjölmörgum íbúum þessarar borgar sem lent hafa í svipaðri aðstöðu og íbúar Klapp- ar, það er að segja að hafa keypt fbúðir af fyrirtækjum, sem síðar hafa orðið gjald- þrota. Það er óumdeilt að vandi fbúa Klapp- ar er mikill og því enn meiri ástæða til að fá trausta úttekt á stöðunni. Rétt er að minna á að borgin hefur áður reynt að bjarga málum þama þegar hún keypti 12 íbúðir f húsinu." Guðrún Jónsdóttir borgarfulltrúi lagði fram eftirfarandi bókun: ,,Eg er engan veginn sannfærð um að hagsmunum borgarinnar sé best borgið með þeirri samþykkt sem hér hefur verið gerð. Varðandi vinnubrögð hefði þurft að við- hafa í þessu máli í samræmi við það sem minnihlutinn lagði til á síðasta fundi borg- arráðs. Hitt er svo óumdeilt að vandi íbúa og borgarinnar er mikill og því enn meiri ástæða til að traustari úttektir hefðu legið fyrir áður en ákvörðun var tekin. Þar hefði meðal annars þurft að meta fordæmisgildi samþykktarinnar." omin TIL ÞESS að leigjendur geti átt rétt til húsa- leigubóta þarf að liggja fyrir ákvörðun við- komandi sveitar- stjórna um greiðslu húsa- leigubóta. Sveit- arfélög sem greiða íbúum sín- um húsaleigu- bætur skulu leggja út fé til greiðslu bótanna en ríkið endur- greiðir þeim 60% af útlögðum kostnaði. Húsa- JÓHANNA SIGURÐ- ARDÓTTIR félags- málaráðherra. Frum- varp til laga um húsa- leigubœtur byggir með- al annars á niðurstöð- um nefndar sem Jó- hanna skipaði. Alþýðublaðsmynd / EinarÓlason leigubætur eiga að vera tekjutengdar og verða að hámarki 21 þúsund krónur á mánuði. Grunnfjárhæð á að vera sjö þúsund krónur á mánuði og er hún sú sama fyrir einstaklinga, einstæða for- eldra og hjón. Þetta kemur fram í frumvarpi til laga um húsaleigubætur sem Alþingi hefur til með- ferðar. Frumvarpið er unnið á vegum fé- lagsmálaráðuneytisins og byggir meðal annars á niðurstöðum nefndar sem Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra skipaði til að gera tillögur um aðgerðir til að draga úr húsnæðiskostnaði leigjenda. Lög um húsaleigubætur eiga að taka gildi 1. janúar 1995. í frumvarpinu segir að sveitarstjóm skuli ákveða fyrir 1. október ár hvert hvort sveit- arfélagið greiði húsaleigubætur næstkom- andi ár samkvæmt ákvæðum laganna. Þá ákvörðun skal sveitarstjóm auglýsa með tryggilegum hætti. Húsaleigubætur skulu ákvarðaðar og reiknaðar út miðað við ákveðinn gmnn sem miðast við ákveðna fjárhæð íyrir hveija íbúð og hvert bam á framfæri umsækjanda, að teknu tilliti til leigufjárhæðar, eigna og tekna. Húsaleigubætur greiðast ekki vegna leigu á einstaklingsherbergjum eða ef eld- hús, snyrting eða baðaðstaða er sameiginleg fleimm. Ef leigjandi gefúr upp leiguíjárhæð sem er verulega hærri en markaðsleiga fyrir sambærilegt leiguhúsnæði í viðkomandi sveitarfélagi eða þykir óeðlileg að öðm leyti eða ef um er að ræða fburðarmikið og óhóflegt húsnæði þá er sveitarfélagi heimilt að færa niður viðmiðunarleigu sem því nemur eða til þess sem eðlilegt þykir. Vinningstölur 9. apríl 1994 VINNÍNGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING H 5af5 0 5.366.790 p>H+4af5 6 92.423 04af5 127 7.532 H 3af 5 4.776 467 24A2S37 BÓNUSTALA: Heildarupphæð þessa viku: kr.9.108.284 UPPLYSINQAR, SlMSVAM 91- 66 15 11 LUKKUIÍNA 9910 00 - TEXTAVARP 4S1

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.