Alþýðublaðið - 20.04.1994, Page 7
Miðvikudagur 20. apríl 1994
VMISLEGT
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7
Listasafn Kópavogs
- Gerðarsafn - opnað!
Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn opnaði formlega síðastliðinn sunnu-
dag. Árið 1977 færðu erfmgjar Gerðar Helgadóttur kaupstaðnum að
gjöf á annað þúsund listaverk af ýmsu tagi úr dánarbúi listakonunnar.
Með þessu urðu erfingjar Gerðar fyrstir til að gefa bænum veglega lista-
verkagjöf svo að komandi kynslóðir mættu njóta listar hennar í glæsilegu
húsi sem kaupstaðurinn hefur nú látið reisa. Þetta er veglegt safnhús sem
bera mun nafn Gerðar, og er ífamkvæmdum nú lokið. Kópavogskaup-
staður hefur allt frá stofnun varið vissum hundraðshluta tekna sinna til
kaupa á listaverkum og á því afar stórt og mikið safn listaverka eftir lista-
menn frá ýmsum tímum. Þá fékk bærinn á sínum tíma að gjöf úrval af
verkum hjónanna Barböru og Magnúsar Á. Árnasonar, sem prýða
munu safnið.
VINAFUNDUR. Meðal gesta á opnunarhátíð safnsins voru þau Rannveig Guð-
mundsdóttir, alþingismaður og varafonnaður Alþýðuflokksins, og Guðmundur
Oddsson, bœjarfulltrái t Kópavogi og fonnaður framkvœmdastjórnar Alþýðu-
flokksins.
Alþýðublaðsmynd/Einar Ólason
Alþýðuflokksmenn í Reykjavík
Kratakaffi með
Reykjavíkurlistafólki
Miðvikudaginn 27. apríi
fjölmennum við í Kratakaffi í
Rósinni - félagsmiðstöð
jafnaðarmanna í Reykjavík -
klukkan 20.30.
Gestir í Kratakaffi þetta
vorkvöld verða fjórir efstu
frambjóðendurnir á
Reykjavíkurlistanum.
Kaffiveitingar.
Pétur Guðrún Guðrún Sigrún
Jónsson. Ögmundsdóttir. Ágústsdóttir. Magnúsdóttir.
HAFNARFJÖRÐUR
Matjurtagarðar
Leigjendum matjurtagarða í Hafnarfirði tilkynnist hér með að
þeim ber að greiðuna leiguna fyrir 1. maí nk.
Bæjarverkfræðingur.
REYKJAVÍK
Framboðsfrestur
Framboðsfrestur til borgarstjórnarkosninga í Reykjavík, 28.
maí 1994, rennur út laugardaginn 30. apríl nk. kl. 12 á há-
degi.
Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðslistum þann kl. 10.00 til
12.00 í fundarsal borgarráðs í Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnar-
götu 11.
Reykjavík, 15. apríl 1994
Yfirkjörstjórn Reykjavíkur
Jón Steinar Gunnlaugsson
Gísli Baldur Garðarsson
Eiríkur Tómasson
Aðalfundur
íslandsbanka
Aðalfundur íslandsbanka hf. 1994
verður haldinn í Borgarleikhúsinu
mánudaginn 25. apríl 1994 og hefst kl. 1630.
Dagskrá
1. Aðalfundarstörf T samræmi við
19. grein samþykkta bankans.
2. Tillögur til breytinga á sam-
þykktum bankans:
a) Skipulagsbreytingar í
yfirstjórn
b) Um eignaraðild útlendinga
c) Um verkefni bankaráðs
d) Um verkefni bankastjórnar
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar aö fundinum verða
afhentir hluthöfum eöa umboðsmönnum þeirra í
íslandsbanka hf. Ármúla 7, Reykjavík 3. hæð
20. og 22. apríl n.k. frá kl. 915-1600
og á fundardegi frá kl. 915 - 1200.
Ársreikningur félagsins fýrir árið 1993 sem og tillögur
þær sem fyrir fundinum liggja verða hluthöfum til sýnis
á sama stað.
Hluthafar eru vinsamlegast beönir um aö vitja
aðgöngumiða og atkvæðaseöla sinna fýrir kl. 1200
á hádegi á fundardegi.
Reykjavík, 19. apríl 1994
Bankaráð íslandsbanka hf.
ÍSLANDSBANKI
REYKJAVÍKURLISTINN
Breytdr tímar, bétri borg
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSIADÓTTIR, borgarstjóra-
efni Reykjavíkurlistans, efnir til opinna borgarafunda
um helstu málefni Reykvíkinga. Öllum Reykvíkingum
er boðin þátttaka í umrœðum til að liafa áhrif á
framboð Reykjavíkurlistans og stjórn hans á
höfuðborginni nœsta kjörtúnabil.
3. FUNDUR -
Þriðjudagur 26. apríl:
Örugg, breytt og betri borg
Fundarstaður auglýstur síðar.
Opið hús með frambjóðendum
Frambjóðendur Reykjavíkurlistans verða til viðtals á
kosningaskrifstofunni við Laugaveg alla virka daga frá
klukkan 16.00 til 18.00.
Viðtalstímar:
MIÐVIKUDAGUR 20. apríl:
Óskar Bergsson
Sigþrúður Gunnarsdóttir
FIMMTUDAGUR 21. APRÍL
(Sumardagurinn fyrsti):
Allirframbjóðendur til viðtals.
FÖSTUDAGUR 22. APRÍL:
Gunnar Levy Gissurarson
Sigrún Magnúsdóttir
LAUGARDAGUR 23. APRÍL:
(Opið hús)
Ungir frambjóðendur.
MÁNUDAGUR 25. APRÍL:
Guðrún Ögmundsdóttir
Ingvar Sverrisson
Kristín Dýrfjörð
ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL:
Bryndís Kristjánsdóttir
Pétur Jónsson
Sigfús Ægir Árnason
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL:
Arthur Mortliens
Guðrún Kr. Óladóttir
Sigrún Magnúsdóttir
FIMMTUDAGUR 28. APRÍL:
Árni Þór Sigurðsson
Steinunn Óskarsdóttir
Vilhjálmur Þorsteinsson
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL:
Alfreð Þorsteinsson
Guðrún Agústsdóttir
Margrét Sœmundsdóttir
Kosningaskrifstofan
Kosningaskrifstofa Reykjavíkurlistans er að Laugavegi
31 (gamla Alþýðubankahúsið). Síminn er 15200 og
myndsendirinn 16881. Gestir eru velkomnir á
kosningaskrifstofuna hvenœr sem er, hvort heldur til
að taka þátt í starfinu og láta skoðanir sínar í Ijós eða
bara til að sýna sig og sjá aðra. I kaffiteríu á jarðhœð er
boðið upp á súpu og salat í hádeginu og það er heitt á
könnunni allan daginn.
Athugið!!!
FIMMTUDAGUR 21. APRÍL: Opið hús á sumar-
daginnjýrsta. Allir frambjóðendur verða til viðtals.
LAUGARDAGUR 23. APRÍL: Opið hús í umsjón
ungra frambjóðenda.