Alþýðublaðið - 12.05.1994, Blaðsíða 6
6 (a) ALÞÝÐUBLAÐIÐ
STARFIÐ
Fimmtudagur 12. maí 1994
47. flokksþing
Alþýðuflokksins,
J afnaðarmanna-
*
flokks Islands
Með vísan til 29. og 30. greinar
flokkslaga Alþýðuflokksins
- Jafnaðarmannaflokks Islands -
er hér með boðað tii 47.
flokksþings Alþýðuflokksins
- Jafnaðarmannaflokks íslands
sem samkvæmt ákvörðun
flokksstjórnar verður haldið
dagana 10. til 12. júní 1994 í
íþróttahúsinu í Keflavík.
Með vísan til 16. til 19. greinar
flokkslaga er því hér með beint til
stjórna allra Alþýðuflokksfélaga
að láta fara fram kosningu
aðal- og varafulltrúa á
flokksþing, svo sem nánar er
mælt fyrir í flokkslögum.
Með vísan til 18. greinar
flokkslaga er því hér með beint til
aðildarfélaga að kosningar fari
fram á tímabilinu 5. maí til 5. júní
næstkomandi.
Félagsstjórnum er skylt að
tilkynna kjör fulltrúa að
kosningum loknum til skrifstofu
Alþýðuflokksins (Hverfísgötu
8-10 í Reykjavík, sími 91-29244),
sem veitir allar nánari
upplýsingar.
Með vísan til 21. greinar
flokkslaga skulu kjördæmisráð
Alþýðuflokksins í öllum
kjördæmum hafa lokið kosningu
fulltrúa sinna í flokksstjórn fyrir
reglulegt flokksþing.
Með vísan til 24. og 25. greinar
flokkslaga skulu stjórnir allra
félaga hafa sent flokksstjórn
skýrslu um starfsemi félagsins á
kjörtímabilinu, félagaskrá miðað
við áramót og greiðslu
félagsgjalda samkvæmt þeirri
skrá.
Dagskrá flokksþings
Alþýðuflokksins
- Jafnaðarmannaflokks íslands
verður auglýst síðar.
Jón Baldvin Hannibalsson
formaður.
Aukaþing
Sambands ungra
jafnaðarmanna
verður haldið
3. og 4. júní á
LA-Café
í Reykjavík
Aukaþing Sambands ungra jafnaðar-
manna verður haldið 3. og 4. júní á
LA-Café við Frakkastíg í Reykjavík.
Aukaþingið verður sett föstudaginn
3. júní klukkan 19.30 og mun því ljúka
með hátíðarkvöldverði
laugardagskvöldið 4. júní.
Málefnahópar þingsins verða:
(1) Atvlnnumál ungs fólks
Abyrgðarmenn: Jón Þór Sturluson
og Benóný Valur Jakobsson
(2) Jafnréttismál
Abyrgðarmenn: Jóhanna Þórdórsdóttir
og Sigríður Björk Jónsdóttir
(3) Evrópumál
Abyrgðarmenn: Kjartan Emil Sigurðsson
og Eiríkur Bergmann Einarsson
(4) Innri mál SUJ
Abyrgðarmenn: Magnús Arni Magnús-
son og Bolli Runólfur Valgarðsson
Á aukaþinginu munu ungir jafnaðar-
menn undirbúa þau málefni sem farið
verður með inn á flokksþing Alþýðu-
flokksins (haldið 10. til 12. júnO. Auka-
þingið mun einnig taka til samþykktar þá
fulltrúa sem Félög ungra jafnaðarmanna
hafa valið til setu á flokksþingi. Ekki
verður kosið í embætti á aukaþingi SUJ
og lagabreytingar eru ekki leyfilegar á
slíku þingi.
Rétt til þátttöku hafa allir þeir félagar í
Sambandi ungra jafnaðarmanna sem
tilkynntir hafa verið sem þátttakendur af
stjórnum Félaga ungra jafnaðarmanna til
framkvæmdastjórnar SUJ.
✓
Nánari upplýsingar gefa Magnús Arni
Magnússon (hs. 14123 / vs. 15200 og
29244) og Bolli Runólfur Valgarðsson
(hs. 618523
REYKJAVÍKUR
IISTINN
Viðtalstímar
Hafið augun opin fyrir viðtalstímum frambjóðenda
Reykjavíkurlistans sem eru á milli klukkan 16 og 18
alla virka daga. I dag, fimmtudaginn 12. maí, munu
Guðrún Jónsdóttir (10. sœti) og Oskar Dýrmundur
Olafsson (19. sœti) taka á móti
gestum og gangandi í kosningamiðstöðinni.
FIMMTVDA GUR12. MAÍ
Guðrún Jónsdóttir (10. sœti)
Oskar Dýrmundur Olafsson (19. sœti)
FÖSTUDAGUR13. MAÍ
Guðrún Kr. Óladóttir (15. sœti)
Helgi Pétursson (11. sœti)
Hverfamiðstöðvar
Nú hafa verið opnaðar þrjár glœsilegar hverfa-
miðstöðvar Reykjavíkurlistans. Allar eru þœr opnar
fram til kosninga á virkum dögum frá klukkan 16
til 22 og um helgar frá klukkan 13 til 20:
ÁLFHEIMAR 74 (GLÆSIBÆR)
- fyrir gamla austurbœinn.
ÞÖNGLABAKKI1, III. HÆÐ (MJÓDD)
- fyrir Breiðholtshverfin.
HÖFÐABAKKI1,1. HÆÐ
- fyrir Grafarvog og Arbœ.
Kosningamiðstöðin
Höfuðstóðvar Reykjavíkurlistans eru að Laugavegi
31 (nánar tiltekið á 1., 2. og 3. hœð gamla Alþýðu-
bankahússins). Gestireru velkomnir ílieimsókn
hvenœr sem er, hvort heldur til að taka þátt í
starfinu og láta skoðanir sínar í Ijós eða bara til að
sýna sig og sjá aðra. I kafftteríu á jarðhœð er boðið
upp á súpu og salat í hádeginu og það er heitt á
könnunni allan daginn. Síminn í kosninga-
miðstöðinni er 15200 og myndsendirinn 16881.