Alþýðublaðið - 19.05.1994, Side 1
Taugavdkhin bæjarstjóraefinanna í Kópavogi:
BÆJARSTJÓRINN í
Kópavogi og frambjóðandi
Framsóknarflokksins, Sig-
urður Geirdal, neitaði Jó-
hönnu Sigurðardóttur fé-
lagsmálaráðherra um að-
gang að húsnæði bæjarins
til að taka á móti bæjarbú-
um er óskuðu að ræða við
ráðherra. Jóhanna er nú á
ferð um landið og hefur
hvarvetna fengið inni á bæj-
arskrifstofum til viðtals við
íbúa viðkomandi sveitarfé-
laga nema í Kópavogi.
Sigurður Geirdal sagði í
samtali við Alþýðublaðið í
gær að hann teldi óæskilegt að
Jóhanna væri þama í heim-
sókn svona rétt fyrir sveitar-
stjómarkosningar. Málið
SIGURÐUR GEIRDAL neitaði
Jóhönnu Sigurðardóttur félags-
málaráðherra um aðgattg að
húsnœði bœjarins til að taka á
móti bœjarbúum er óskuðu að
rœða við ráðherra.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
snerist ekki um Jóhönnu Sig-
urðardóttur persónulega.
Hann hefði haft jafnmikið á
móti því að til dæmis Davíð
Oddsson kæmi til viðræðna
við bæjarbúa í húsnæði bæjar-
ins svo skömmu fyrir kosn-
ingar.
Sigurður Geirdal hefur
væntanlega úthýst félags-
málaráðherra í samráði við
oddvita sjálfstæðismanna í
Kópavogi, Gunnar Birgisson
forseta bæjarstjómar.
Mikillar taugaspennu gætir
nú milli þeirra félaga eftir að
Gunnar lýsti því yfir að hann
stefndi á embætti bæjarstjóra í
Kópavogi eftir kosningar.
Þessi yfirlýsing kom Sigurði
Geirdal í opna skjöldu og hef-
ur hrikt í meirihlutasamstarf-
inu að undanfömu.
Það er þó ljóst að þeir fé-
lagar eiga það sameiginlegt
að hafa gert það sem þeir geta
til að gera bæjarbúunt erfiðara
fyrir að ná fundi Jóhönnu Sig-
urðardóttur félagsmálaráð-
herra.
SAMEINING fylgir blaðinu
Alþýóublaðinu í dag fylgir SAMEINING,
málgagn jaíhaðarmanna í hinu nýja og
sanieinaða svdíarfélagi í Mýransýslu.
Blaðinu er af þessu tilefni dreiíl inn á
öll heimili í sveibirfélaginu.
- Sjá biaðsíður lb tii 4b.
jaíhaðarmenn i Kopavogi opna nvja kœningaskrifetoíu:
I gærdag opnuðu jafnaðarmenn í Kópa-
vogi formlega nýja kosningamiðstöð A-list-
ans að Hamraborg 10.
Við spjölluðum af því tilefni stuttlega við
HREIN HREINSSON, einn frambjóðend-
anna og formann Félags ungra jafnaðar-
manna í Kópavogi: „Okkurþótti við hæfi að
gera hlutina með stæl enda stefnum við á
lágmark íjóra menn inn. Miðstöðin er köll-
uð SKEIFAN og er í þessu nýbyggðu hús-
næði á besta stað í miðbæ Kópavogs. Við
ætlum að hafa opið frá klukkan 15 til 22 alla
daga og alltaf verður einhver frambjóðend-
anna á staðnum til viðtals.
í dag, fimmtudaginn 19. maí, kemur síð-
an JOHANNA SIGURÐARDÓTTIR
félagsmálaráðherra í heimsókn til okkar og
spjallar við gesti og gangandi. Við höfum
gert ýmislegt til að ná frant góðu andrúms-
lofti héma. ÁSDÍS SIGURÞÓRSDÓTT-
IR myndlistarkóna ætlar til að mynda að
sýna verk sín hér ffam að kosningum.
Eitthvað að lokum? Já, við viljum bara
hvetja alla Kópavogsbúa til að koma í heim-
sókn og spjalla um bæjarmálin og kosning-
amar framundan. Heyrðu já, eitt í viðbót:
Það er að sjálfsögðu alltaf heitt á könnunni
og við höfum nælt okkur í sjónvarp til að
enginn missi nú af neinu. Og láttu koma
ífam að símanúmerin héma em 644435 og
644436,“ sagði Hreinn Hreinsson að lokum.
Alþýðublaðsmynd /Einar Ólason
Nú fá íslenskir neytendur að gæða sér á
Kvargi - nýrri, undurgóðri mjólkurafurð!
Kvarg er ekki eins og skyr og ekki eins og
jógúrt - en eitthvað einstaklega Ijúffengt
þar á milli.
Margir íslendingar þekkja Kvargið erlendis
frá en þessi eftirsótta mjólkurafurð er upp-
runnin í Mið- og Austur-Evrópu. Mikið
hefur verið lagt í þróun Kvargsins hér á
landi og hefur sérstök áhersla verið lögð á
bragðgæðin og rétta þykkt og áferð. Við
erum afar stolt af útkomunni: Kvargið er
meiriháttar gott á bragðið og leynir sér ekki
að það er unnið úr íslensku úrvals hráefni.
Tttsrt
Kvarg er til með jarðarberjum, bláberjum
og blönduðum ávöxtum og er kjörið á
morgnana, í hádeginu og sem eftirréttur.
rttetf
cienk I •fttsrf
ógleymanlega gott
MJOLKURSAMSALAN
■1MB
mm&i