Alþýðublaðið - 26.05.1994, Side 4
4(c)
Fimmtudagur 26. maí 1994
VIÐTAL - Sigurður Símonarson kennari skipar 2. sœtið á A- lista Jafnaðarmanna í Mosfellsbœ:
Gagnrýnum stjómarhœtti sjálfstœðismanna
Sigurður Símonarson
skipar 2. sætið á A-lista
Jafnaðarmanna í Mosfells-
bæ. Hann er 52 ára, fæddur
á Vatnsleysuströnd og er
kennari að mennt. Kennslu-
störf hefur Sigurður stund-
að bæði í Hafnarfirði við
Öldutúnsskóla og við Æf-
mgaskóla Kennaraháskóla
Islands, þar sem hann var
lengst af æfingakennari og
gegndi jafnframt stöðum
æfingastjóra við Kennara-
háskólann og yfirkennara
við Æfingaskólann. Sigurð-
ur stundaði framhaldsnám í
uppeldis- og kennslufræð-
um við Háskólann í Gauta-
borg og 1985 réðist hann
sem sveitarstjóri til Egils-
staða og starfaði við það til
vorsins 1991 er hann tók við
starfi framkvæmdastjóra
Norræna félagsins á íslandi.
Um sfðustu áramót lét hann
af því starfi og stundar nú
kennslustörf á ný. Sigurður
er kvæntur Jóhönnu Jó-
hannsdóttur, fóstru, og eiga
þau þrjú uppkomin börn.
- Hver telur þú að verði
helstu verkefni bœjarstjórn-
ar Mosfellsbcejar á nœsta
kjörtímabili?
„Verkefni bæjarstjómar
em mýmörg og þó ég vilji
telja upp þau helstu sem ég
vildi sjá unnin á næstu árum,
geri ég mér fyllilega grein fyr-
ir því að stærstur hluti af tíma
bæjarstjómarfulltrúa fer í að
sinna málefnum sem þeir hafa
ekki valið sérstaklega að fást
við, heldur koma til kasta
bæjarstjómar í dagsins önn, ef
svo má segja.
Kjörin bæjarstjóm má þó
ekki gleyma sér f slíkum
verkefnum, heldur verður að
vinna markvisst að stefnu-
mótandi viðfangsefnum fyrir
bæjarfélagið.
Sveitarfélögin í landinu
þurfa á næstunni að takast á
við mjög stór verkefni sem
munu færast alfarið til þeirra
vegna breyttra laga um verka-
SIGURÐUR SÍMONARSON: „Það mun koma að þvi, þó síðar verði,
að takast mun að hnekkja veldi sjálfstœðismanna íMosfellsbœ.“
skiptingu ríkis og sveitarfé-
laga og koma fyrst upp í hug-
ann í því sambandi málefni
gmnnskólans, heilbrigðismál,
öldrunarmál og málefhi fatl-
aðra.
Allt em þetta stórir mála-
flokkar og er brýn nauðsyn til
þess að bæjaryfirvöld, það er
bæjarstjóm og viðkomandi
nefndir fari að móta þá heild-
arstefnu sem vinna á eftir í
Mosfellsbæ varðandi þá.“
- Hvað er það sem þið Imf-
ið helst gagnrýnt bœjar-
stjórnarmeirihluta Sjálf-
stœðismanna fyrir?
„Ég vil taka það ffam að
gagnrýni okkar jafnaðar-
manna beinist fyrst og ffemst
að því hvemig sjálfstæðis-
menn hafa stjómað bænum,
ekki endilega á það hvað hef-
ur verið gert.
Að sjálfsögðu em einstök
verkefni alltaf umdeild og
höfum við í þeim efhum bent
á að kaup bæjarins á húsnæð-
inu í svonefndum Kjama er
ráðstöfun sem við teljum að
komi til með að kosta bæjar-
félagið allt of mikið og koma
þannig í veg fyrir að unnt
verði að sinna öðmm nauð-
synlegum framkvæmdum í
bænum nema því aðcins að
taka allt fjármagn vegna
þeirra að láni.
Þá teljum við að meirihluti
sjálfstæðismanna hafi verið
allt of sofandi í málefnum
ungs fólks í bænum sem býr
nú við algjört aðstöðuleysi
fyrir sín félags- og tóm-
stundamál, það er að segja sá
hluti þeirra sem ekki stundar
íþróttir reglulega með íþrótta-
félaginu.
Margt gott hefúr samt
áunnist á undanfömum ámm
og er sjálfsagt að viðurkenna
það. Það er hins vegar það
sambandsleysi sem ríkir milli
bæjarstjómar og hins al-
menna kjósanda sem við vilj-
um sjá breytast á næsta kjör-
tímabili.
I þessu sambandi vil ég til
dæmis nefna fjölgun borgara-
funda sem bæjarstjóm stend-
ur fyrir og reglulega útgáfu
fréttabréfs bæjarstjómar þar
sem greint er frá því helsta
sem bæjarstjóm og nefndir
bæjarins em að vinna að, svo
og að sjálfsögðu auglýstur
viðtalstími bæjarfulltrúa og
formanna helstu nefnda bæj-
arins.“
- Er eitthvað sem þú vildir
segja að lokum?
„Eg vil vera raunsær fyrir
þessar kosningar og á því ekki
von á að sveiflan til minni-
hlutaflokkanna verði svo stór
að jrcssu sinni að meirihluti
Sjálfstæðismanna í bæjar-
stjóm falli.
Eg tel það hins vegar raun-
hæft markmið að fella þeirra
5. mann til þess að geta veitt
sjálfstæðismönnum aukið að-
hald á næsta kjörtímabili. Það
mun svo koma að því, þó síð-
ar verði, að takast mun að
hnekkja veldi sjálfstæðis-
manna í Mosfellsbæ.“
VIÐTAL - Aslaug Asgeirsdóttir kennari skipar 3. sœtið á A- lista jafnaðarmanna í Mosfellsbœ:
Núvemndi mehihluti hefiir eytt langt um efidfram
Áslaug ásgeirsdóttir
fæddist í Reykjavík og ólst
upp á Sólvallagötunni, nán-
ast á sömu þúfunni í 28 ár.
Heimilið var mannmargt,
systkinin fimm auk foreldra
og afa. „Skólagangan þarna
í Vesturbænum var síðan
mjög hefðbundin, það var
Öldugötuskóli, Melaskóli,
Hagaskóli og MR fyrir þá
sem það kusu,“ segir Ás-
laug. Hún lauk kennara-
prófi frá Kennaraháskóla
Islands árið 1975 og hefúr
unnið við kennslu frá þeim
tíma ásamt öðrum störfum.
Áslaug er gift Halldóri
Bjamasyni og eiga þau þrjú
börn.
- Hvaðan sœkir þú áhug-
ann á pólitík?
„Ætli ég hafi ekki skynjað
eitthvað sem heitir réttlæti,
ranglæti og siðleysi í umræð-
unni heima hjá mér. Það var
spjallað um ýmis málefhi,
meðal annars um áfengis-
vandann, bamavemd og jafn-
réttismál kvenna vora þar of-
arlega á baugi. Seinna meir
fékk ég áhuga á að taka þátt í
að móta mitt umhverfi, hafa
eitthvað að segja til að skapa
vænni heim fyrirbömin. Þetta
er sjálfsagt baktería sem ég
losna ekki við, hún er í blóð-
inu.“
- Hvers vegna valdi fjöl-
skyldan að setjast að í Mos-
fellsbœ sem framtiðarstað?
„Það er einmitt staðreynd-
in, þetta er framtíðarstaður
fyrir fjölskylduna, ef rétt er á
málum haldið. Við fluttum
hingað nánast beint efitir fjög-
urra ára dvöl erlendis, fast-
eignaverð hér var mun lægra
en í Reykjavík fyrir sjö áram.
Auk þess bjuggu tvær syst-
ur mínar hér, böm létu vel af
dvöl sinni í bænum og náttúr-
an hér er óspillt. Ég fékk síð-
an stöðu við Gagnfræðaskól-
ann. Einnig má nefna að við
eigum nokkra hesta sem okk-
ur þótti fysilegt að flytja hing-
að.
Enda hefúr raunin orðið sú
að öllum hefur liðið bærilega,
ÁSLAUG ÁSGEIRSDÓTTIR ásamt eiginmanni sínum, Hatldóri Bjamasyni, og bömum fyrir framan
heimili þeirra í Mosfellsbce: „Núverandi meirihluta hefur tekist nokkuð vel upp í að eyða langt um efni
fram. Reyndar svo vel að nú blasa heilu fjöllin af óleystum mjúkum málum við þeim sem taka við eftir kosn-
ingar.“
menn og skepnur fá hér nægt
efni í tómstundir og útivera."
- Nú hefur Sjálfstœðis-
flokkurinn verið í meirihluta
hér í 20 ár, hafa þeir ekki
staðið sig þokkalega síðast-
liðið kjörtímabil?
„Þeir hófu kjörtímabilið á
því að samþykkja, í trássi við
vilja bæjarbúa, risastórt
stjómsýsluhús sem firam-
kvæmdafé bæjarins hefur að
stóram hluta verið bundið í
síðan.
Þetta era aðalmistök þeirra
og sem veltur inn á borð til
þeirra fleiri vandræðum en
þeir kæra sig um að viður-
kenna.
Staðan í dag er slík að Ijúka
á við bygginguna (þar sem
fermetrinn kostar 80 þúsund
krónur), aukin heldur hefur
verið samþykkt að byggja
nýtt íþróttahús fyrir lánsfé
upp á litlar 210 milljónir.
Þannig liggur ljóst fyrir að
málefni sem era í brennidepli
munu sitja á hakanum.“
- Hvaða málefni eru það
helst?
„Það era málefni fjölskyld-
unnar: Skólinn, dagheimilis-
vistun, unglingamir okkar,
aukið öryggi aldraðra, mál-
efni fatlaðra, atvinnumálin og
umhverfismál.
I þessu sambandi má til að
mynda nefna að Skálatún er
hér í bæjarfætinum og starfs-
fólk þar hefur á undanfömum
áram þurft að notast við hita-
veitustokkinn til að ýta heim-
ilisfólki á hjólastólum inn í
bæinn.
Nú er búið að byggja upp
slóða sem á að vera úrlausn
fyrir þetta fólk en ekki vildi
nú betur til við framkvæmd-
ina en svo að hann endar beint
inn á hringtorgi við Vestur-
landsveg. Og sá vegur er auð-
vitað þjóðbraut númer eitt
með öllum þeim umferðar-
þunga sem henni fylgir. Þetta
eru auðvitað forkastanleg
vinnubrögð.
Lítið er gert til að gera ævi-
kvöldið bærilegra, en örygg-
ismál heimilismanna á DA-
MOS eru ekki sem skyldi.
Eitt lítið dæmi um hugsana-
leysið er að það er ekki einn
einasti bekkur til að tylla sér á
í grennd við heimilið. Fólkinu
er boðið upp á að þurfa ganga
á götunni ef það þarf í versl-
un.
Núverandi meirihluta hefur
tekist nokkuð vel upp í að
eyða langt um efni fram.
Reyndar svo vel að nú blasa
heilu fjöllin af óleystum
mjúkum málum við þeim sem
taka við eftir kosningar."
- Hvert er þitt stœrsta bar-
áttumál?
, J>að er að leysa húsnæðis-
vanda skólans með ffamtíðina
í huga. Yngri deild grann-
skólans býr við þrengsli sem
ósjálfrátt kemur niður á starf-
inu í skólanum.
Við fáum æ fleiri einstak-
linga sem þurfa séraðstoð, og
bara það eitt kallar á fleiri og
betri úrræði en þau sem nú
era til bráðabirgða. Síðast-
nefndu Iausnimar hafa ein-
mitt verið viðkvæðið hjá
meirihluta sjálfstæðismanna
hér í bæ.
Mér finnst einfaldlega að
forgangurinn ætti einu sinni
að vera skólanna.“
• §
GREIN- Ólafur Guðmundsson forvarnarfulltrúi skipar 6. sœtið á A-lista Jafnaðarmanna íMosfellsbœ:
Oflugarforvamir eru besta ráðið gegn óreglu
í umfjöllun fjölmiðla um
fíkniefni nú að undanfomu
kemur ffam að samkvæmt
nýrri könnun eru nú í landinu
um þijú hundmð „sprautu-
fíklar".
Þetta em hörmulegar fréttir
því það að sprauta sig með
vímuefnum er offast síðasta
stigið í langri óregluþróun hjá
einstaklingi. Flestir fíklanna
byija ferilinn á að fara að fikta
við reykingar mjög ungir.
Þegar þeir era tólf, þrettán eða
fjórtán ára gamlir byrja þeir
að drekka áfengi. Einu til
tveimur áram síðar byija þeir
að reykja hass. Sextán, sautj-
án eða átján ára era þeir famir
að taka amfetamín í nefið og
nokkrum árum síðar eru þeir
famir að sprauta sig með því.
Þessi gerð óregluþróunnar er
langalgengust þó til séu af
henni allskyns afbrigði. Flest-
ir stoppa þó á áfengisstiginu
með mjög mismunandi ár-
angri eins og flestir vita, því
ennþá drepa sig fleiri á áfeng-
isdrykkju en á neyslu fíkni-
efna.
Það að byrja að reykja er
talsvert stórt skref í ferlinu. Ef
það skref er ekki tekið virðist
vera minni hætta á annarri
neyslu. Það er því mikilvæg-
ast að kenna bömum nógu
snemma að velja og hafna
allri vímu.
Við komum ekki í veg fyrir
innflutning á fíkniefnum með
löggæslu eða tollleit, því að á
meðan einhver vill kaupa þá
era alltaf til ævintýramenn,
sem vilja taka þá áhættu til að
auðgast á að flytja þau inn og
selja. Við komum heldur ekki
í veg fyrir áfengisdrykkju
með boðum eða bönnum. Eft-
ir því sem áfengi er gert óað-
gengilegra og dýrara eykst at-
hafnasemi bruggara og
smyglara.
Það er því ekki nema eitt
ráð sem ég kann til að draga
úr líkum á að menn ánetjist
vímuefnum og það era öflug-
ar forvamir gegn allri óreglu.
Þær eiga að hefjast sem fyrst
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON:
„Það er ekki nema eitt ráð sem ég
kann til að draga úr líkum á að
menn ánetjist vímuefnum og það
eru öflugar forvarnir gegn allri
óreglu.“
áður en, eða um svipað leyti
og böm fara að leggja eyru að
og rangtúlka hetjusögur um
reykingar og áfengisdrykkju
annarra. Það er of seint fyrir
ungling að fara að hugsa og
taka ákvörðun þegar hann er
staddur í boði við rómantískar
aðstæður og honum er rétt
eitthvað sem að sögn veitand-
ans mun veita honum óminn-
issælu.
Böm og unglingar í Mos-
fellsbæ era eins og allt ungt
fólk lífsglatt, áhyggjulaust og
áhrifagjamt. Þeim er því jaíú
hætt og öðmm. Það er því
ekki vanþörf á að aðstoða þau
við „að ná tökum á tilver-
unni“ eins og námsefnið
Lions Quest nefnist á Islandi.
Ég varð mjög ánægður þegar
að ég frétti að heíja ætti
kennslu á því í skólunum í
Mosfellsbæ næsta haust.
Námsefnið Lions Quest var
gefið fyrst út fyrir nokkrum
árum síðan. Það hefur átt
fremur erfitt uppdráttar, en nú
em sífellt fieiri skólar að heija
kennslu á því. Lions Quest er
ágæt byijun á því forvamar-
starfi, sem vinna þarf.
Ég er stundum að velta fyr-
ir mér hvað margir opinberir
aðilar séu að vinna að ein-
hveijum forvömum í þessa
átt. Væri ekki ráð að sameina
þá í eina stofnun líkt og lagt er
til í lagafrumvarpi að skipu-
legum vímuvömum? Þessi
stofnun gæti haft á sínum
vegum sérhæft starfsfólk sem
sinnti ffæðslumálum kerfis-
bundið í skólum, aðstoðaði
vímuvamamefndir sveitarfé-
laganna og samræmdi vinnu
þeirra svo hún yrði markviss-
ari og árangursríkari. Að því
markmiði ber að keppa.