Alþýðublaðið - 31.05.1994, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
POLITIK
Þriöjudagur 31. maí 1994
MPIMDID
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Alprent hf.
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 140
RÖKSTÓLAR
Tunínná þrotuni
Umræður formanna stjórnmálaflokkanna í beinni
útsendingu að loknum sveitarstjómarkosningum
Þáttaskil
Söguleg tíðindi áttu sér stað um helgina er Reykjavíkurlistinn
vann glæsilegan sigur í borgarstjómarkosningunum í Reykja-
vík og felldi meirihluta sjálfstæðismanna. Reykjavílcurlistinn
hlaut 53% atkvæða og átta fulltrúa kjöma í borgarstjóm en
Sjálfstæðisflokkurinn 47% og sjö fulltrúa. Hin sögulegu tíð-
indi marka þáttaskil í Reykjavík og í íslenskum stjómmálum
almennt. Ekki aðeins hefur meirihluta sjálfstæðismanna í
Reykjavík verið hnekkt í annað sinn í 60 ár, heldur hefur ný
hreyfmg og nýr foringi séð dagsins ljós; ný samfylking sem ef
til vill á eftir hafa mikil áhrif á landsvísu og boða stórfellda
riðlun flokkakerfis á Islandi.
Sigur Reykjavíkurlistans er mikill persónulegur sigur Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur. En sigurinn er ekki síst fólksins
sjálfs, íbúa Reykjavíkur sem snúið hafa baki við einræði og
flokksveldi Sjálfstæðisflokksins. Borgarbúar gripu þann val-
kost sem Reykjavíkurlistinn skóp þeim; raunhæft val milli
tveggja kosta. Krafan um virkt lýðræði fæddi af sér Reykja-
víkurlistann. í stað íjögurra smáflokka sem fáliðaðir börðust
gegn íjármagni og ofurvaldi Sjálfstæðisflokksins, og jafn-
framt körpuðu sín á milli, rannu smáframboðin fjögur saman
í samhenta fylkingu. Þegar borgarbúar eygðu hinn nýja og
öfluga valkost, bættust þeir sjálfir í hópinn. Þannig varð til
fimmti hópurinn og kannski sá stærsti: Oflokksbundnir kjós-
endur sem flykktu sér um Reykjavíkurlistann.
Þjóðin er rétt að ná sér
eftir timburmenn helgar-
innar. Sumir drukku sig-
urskál en aðrir drekktu
sorgum sínum. Að mati
Rökstóla voru hinir einu
sönnu sigurvegarar kosn-
inganna formenn allra
flokka, en samkvæmt
umræðum í sjónvarpssal
á kosninganótt höfðu allir
unnið kosningamar. Rök-
stólar endursegja hér um-
ræðumar eftir besta
minni tíðindamanns Rök-
stóla sem treystir sér þó
ekki að muna setningam-
ar í smáatriðum enda orð-
ið nokkuð áliðið og tekið
að grynnka á birgðum í
vínskáp tíðindamanns
þegar útsending hófst.
Yfirburðastaða
Sjónvarpsmaður: - Nú
virðist borgin fallin, hvað
hefur þú að segia um það
Davíð?
Davíð: - Þetta er gífur-
legur sigur Sjálfstæðis-
flokksins. Flokkurinn var
einn á móti fjórum flokk-
um. Þetta sýnir yfírburða-
stöðu flokksins.
Sigur Reykjavíkurlistans er því sigur fólksins gegn fjármagn-
inu og flokksvaldinu. Sjálfstæðisflokkurinn hætti að hlusta að
borgarbúa. Hætti að hlusta á þarftr þeirra og óskir; beiðni um
dagheimili, leikskóla, bætt skólakerfí, öflugra atvinnulíf.
Borgarbúar frábáðu sér nýjar embættisbyggingar sem kost-
uðu þá svimandi Ijármuni, frábáðu sér Korpúlfsstaðarævin-
týrið, frábáðu sér hampi flokksgæðinga og einkavina. En
Sjálfstæðisflokkurinn var hættur að hlusta. Hann fór sínu
fram með bundið íyrir augu og tappa í eyrum.
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík virtist trúa því að hann
hefði eilífðarvöld; að lýðræðið væri bara upp á grín, að mót-
staðan yrði aldrei marktæk, að smáflokkamir myndu halda
áfram karpi sínu í hinu pólitíska Puttalandi þar sem Gúlliver
var óhultur. En Gúlliver var ekki óhultur. Borgarbúar risu upp
og sameinuðust gegn risanum í landi þeirra. Og þegar sjálf-
stæðismenn í höfuðborginni vöknuðu upp við vondan draum,
var orðið of seint að snúa við blaðinu. Þrátt fyrir nýjan borg-
arstjóra, þrátt fyrir ný málefni og áþekkar áherslur og
Reykjavíkurlistinn hafði í einu og öllu; þrátt fyrir pólitískar
kúvendingar, andlitsupplyftingu, fjármagn, ógnanir, hræðslu-
áróður og þrátt fyrir alls kyns uppákomur var slagurinn tapað-
ur. Um tíma náðu sjálfstæðismenn að ná upp fylgi í skoðana-
könnunum og skapa spennu í kosningabaráttunni. En slagur-
inn var í raun tapaður eins og kom í ljós.
Mikill vandi bíður nú Reykjavíkurlistans. Mikil ábyrgð hvíl-
ir á listanum og ekki síst á herðum hins glæsilega leiðtoga
hans, verðandi borgarstjóra, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur.
Ekki aðeins bíður hennar og Reykjavíkurlistans að stjóma
borginni betur en sjálfstæðismenn og mæta óskum borgarbúa.
Reykjavíkurlistinn hefúr leyst úr læðingi pólitískt samfylk-
ingarafl sem gæti markað þáttaskil í íslenskum stjómmálum
og umbylt íslensku flokkakerfí. Það verður horft til Reykja-
víkurlistans og verka hans langt út fyrir ramma sveitarstjóm-
armála. Þess vegna verður Reykjavíkurlistinn undir forystu
Ingibjargar Sólrúnar að skila lýðræðislegu og skilvirku starfi
ef samfylkingin á að verða sá pólitíski aflvaki í íslenskum
stjómmálum sem margir binda nú vonir við.
Sjónvarpsmaður: - En
nú hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn tapað um land
allt, Mosfellsbær fallinn,
enginn meirihluti í Hafn-
arfírði eða Kópavogi og
meira að segja Seltjamar-
nesið hangir á bláþræði.
Hvað viltu segja um land-
ið, Davíð?
Davíð: - Þetta er stór-
sigur Sjálfstæðisflokks-
ins um land allt. Flokkur-
inn var einn á móti öllum
um allt land. Þetta sýnir
yfirburðastöðu flokksins
um landið.
Sjónvarpsmaður: - Jón
Baldvin, nú virðast jafn-
aðarmenn hafa tapað víða
um land. Endurspeglar
þetta óvinsældir Alþýðu-
flokks sem stjómar-
flokks?
Jón Baldvin: - Spurt
er: Endurspeglar meint
tap Alþýðuflokksins
óvinsældir flokksins í rík-
isstjóm? Ég spyr á móti:
Er AJþýðuflokkurinn
óvinsælf í rflcisstjóm? Lít-
um á landið. Alþýðu-
flokkurinn fær fimm
kjöma í Hafnarfirði.
Hann fær tvo kjöma í
Kópavogi og einn kjörinn
á Akureyri. Flokkurinn
fær...
(Davíð grípur fram í):
- Blessaður hættu þessu,
Jón! Það er búið að birta
úrslitin!
Jón Baldvin: - Það er
því alveg ljóst, að Al-
þýðuflokkurinn hefur
stómnnið á í þessum
kosningum, styrkt stöðu
sína um landið, verið
framar öllum skoðana-
könnunum sem birtar
vom síðustu vikuna fyrir
kosningar...
(Davíð grípur fram í):
- Síðustu skoðanakann-
anir fyrir kosningar vom
allar^gerðar í Reykjavík,
Jón. I Reykjavík, Jón!
Jón Baldvin: - Já, og
einmitt þess vegna segi
ég: Álþýðuflokkurinn
hefur yfirburðastöðu um
land allt.
Yfirburða
einræði á
Neskaupsstað
Sjónvarpsmaður snýr
sér að Olafi Ragnari: -
Nú hefur Alþýðubanda-
lagið bætt við sig á Norð-
firði. Sumir hefðu nú sagt
að það væri ekki hægt að
bæta meiru við sig þar á
bæ.
Ólafur Ragnar: - Já,
það er einkar ánægjulegt,
og ég vona að mér fyrir-
gefist að segja það hér, að
Alþýðubandalagið undir-
strikaði 50 ára valdaferil
sinn á Neskaupsstað með
því að bæta við sig fjölda
atkvæða og hefur nú fylgi
allra í bænum..
(Davíð grípur fram í):
- Þetta er alveg dæmigert
fýrir Ólaf Ragnar, fyrst
hneykslast hann á einræði
sjálfstæðismanna í
Reykjavík svo fagnar
hann einræði kommanna
á Neskaupsstað!
(Jón Baldvin grípur
fram í): - Skilgreinum
þettaeinræði...
(Davíð grípur fram tj:
- Nei, Jón, það verður
ekkert skilgreint í kvöld!
Áffam með smjörið!
Kvennalistinn
missir
skírlífisbeltið
Sjónvarpsmaður: - Nú
er ljóst að Kvennalistinn
missti skírlífisbeltið þeg-
ar flokkurinn gekk til
samstarfs við aðra flokka
eins og gerðist í Reykjav-
íkurlistanum. Er Kvenna-
listinn hættur í kvenna-
pólitík?
Kristín: - Nei, nei, alls
ekki. Það var alltaf mark-
mið okkar að komast til
botns í stjómkerfmu og
koma konum að valda-
póstunum. Nú hefur okk-
ur tekist að koma Ingi-
björgu Sólrúnu að stærsta
kjötkatli landsins og
hlökkum til þeirrar elda-
mennsku.
Sjónvarpsmaður: - Er
þá sérstaða Kvennalistans
búin?
Kristín: - Nei, nú fýrst
er hann kominn með sér-
stöðu.
Jón Baldvin: - Skil-
greinum kvennapólitík...
Davíð: -Uss, Jón!
Alþýðuflokkurinn
staðið sig vel
eftir stríð
Sjónvarpsmaður:
— Framsókn er stjómar-
andstöðuflokkur. Hann
virðist vinna á í þessum
kosningum. Er það vegna
þess að hann er stjómar-
andstöðuflokkur? Hall-
dór?
Halldór: - Ha? Ég? Ég
hef nú svo lítið talað í
kvöld...
Sjón varpsmaður:
- Gjörðu svo vel, Hail-
dór.
Halldór: - Já, ég veit
ekki hvað segja skal. Mér
finnst Alþýðuflokkurinn
koma mjög vel út úr þess-
um kosningum. Hann
vinnur alls staðar á nema
þar sem hann tapar.
Jón Baldvin: - Þetta
em mjög hefðbundnar
kosningar. Það hafa verið
erfiðir tímar í þjóðlífinu
og erfitt að stjóma.
Stjómarflokkamir gjalda
þessa og þeim er refsað í
sveitarstjórnarkosning-
um. Stjómarandstaðan
vinnur hins vegar á. Þetta
hefúr alltaf verið svona.
Þetta var svona 1990,
1986 og einhvem tímann
fýrir stríð.
Davíð: - Við emm að
tala um tímana eftir stríð,
Jón. Eftir stríð!
Halldór: - Já, það er
nefnilega það. Alþýðu-
flokkurinn finnst mér
hafa staðið sig mjög vel
eftir stríð. Næst á eftir Al-
þýðuflokknum hefur
Framsóknarflokkurinn
staðið sig vel eftir stríð.
Sjónvarpsmaður: - Því
miður er tími okkar á
þrotum svo við komumst
ekki lengra í kvöld og
hættum því á þessum já-
kvæðu nótum. Góða nótt!
Jón Baldvin: - Góða
nótt!
Davíð: - Það er kom-
inn morgun, Jón Baldvin!
Maður segir góðan dag-
inn! Ekki góða nótt!