Alþýðublaðið - 31.05.1994, Síða 3

Alþýðublaðið - 31.05.1994, Síða 3
Þriðjudagur 31. maí 1994 TIMAMOT ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 Borgarbúar Mdu íhaldíð í Reykjavík kusu sér nýjan boi^irstjómanneirihluta: ReykjavTkurlistí 53% - D-Bstí 47 % Stórsigur borgarbúa - Ekkert miðaldainyrkur fraiuundan, segir nýr borgarstjúri Reykjavíkur, Ingibjörg Sólrún (iisladóttir. Hún segir fjánnál borgarinnar þarfhast úttektar og fjárhagsáietlun ársins þurfá endurskoðunar við „REYKVÍKINGAR þurfa engu að kvíða, hvorki ég né aðrir borgarfulltrúar af Reykjavíkurlistanum eru því- Ifldr borgarskelfar sem mér og öðrum var á stundum lýst í kosningabaráttunni. Það var engu líkara en að myrkur miðaldanna væri að skella á borginni, þannig var umræð- an hjá andstæðingum okkar. í sjónvarpinu lýsti fréttamað- ur Morgunblaðsins lýðræðis- legum sigri okkar sem „valda- ráni“. En ég held að Reykvík- ingar séu sammála um að þeir hafi ekki haft neinu að tapa. Við munum standa þétt sam- an um að stjórna borginni vel“, sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, hinn nýi borgar- stjóri Reykvfldnga í samtali við Alþýðublaðið í gær. Afgerandi sigur Reykjavíkurlistinn, sameigin- legur framboðslisti Alþýðu- flokks, Alþýðubandalags, Framsóknarflokks og Kvenna- lista, vann afgerandi sigur í borgarstjórnarkosningunum. Strax upp úr klukkan 10 á laug- ardagskvöldið var ljóst að sigur- inn var í höfn, þegar formaður yfirkjörstjómar, Jón Steinar Gunnlaugsson, las upp fyrstu tölur, 10 þúsund atkvæði. Reykjavíkurlistinn átti enn eftir að bæta við sig og lokatölumar vom þær að listinn hlaut 34.418 atkvæði og 8 borgarfulltrúa - D-listinn 30.504 atkvæði og 7 borgarfulltrúa. Reykjavíkurlist- inn hlaut því 53,01% atkvæð- anna, Sjálfstæðisflokkurinn 46,99%. Munurinn reyndist því nokkm meiri en síðustu skoð- anakannanir höfðu bent til. Fjármálin ekki of beysin Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði að eitt fyrsta verkefnið hjá hinni nýju borgarstjóm Reykja- víkur yrði að fara vandlega yfir ljármál borgarinnar, þau væm hreint út sagt ekki of beysin. Fengnir yrðu hæfir menn til að gera ljárhagslega úttekt á borg- inni. Þá væri ljóst að núverandi meirihluti yrði að taka upp fjár- hagsáætlunina fyrir yfirstand- andi ár, og hugsanlega yrði að skoða aukaljárveitingar af ýmsu tagi, sem ákveðnar vom í kosn- ingaslagnum af fyrrverandi meirihluta. Ingibjörg Sólrún sagði að þær væm margar hveijar markleysu eina. í hádeginu í gær komu saman til fundar borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar Reykja- víkurlistans, borgarmálaráð list- INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLA- DÓTTIR á kjörstað um hálfníu- leytið á laugardagsmorgun. Ingibjörg Sólrún segir að eitt fyrsta verkefnið hjá hinni nýju borgarstjóm Reykjavíkur yrði að fara vandlega yfir jjármál borg- arinnar, þau vœru hreint út sagt ekki of beysin. Fengnir yrðu hœfir menn til að gera fjárhags- lega úttekt á borginni. Þá vceri Ijóstað núverandi meirihlutiyrði að taka upp fjárhagsáœtlunina fyrir yfirstandandi ár, og hugs- anlega yrði að skoða aukafjár- veitingar af ýmsu tagi, sem ákveðnar vom í kosningaslagn- um af fyrrverandi meirihluta. Ingibjörg Sólrún sagði að þœr vœm margar hverjar markleysu eina. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason ans, á kosningaskrifstofu listans að Laugavegi 31, og tóku til við að ræða málefni borgarinnar og framtíðarstefnumörk listans. A þeim fundi var einnig rætt nokkuð um skipan fólks í nefndir og ráð borgarinnar. Sagði Ingibjörg Sólrún að hún óttaðist ekki hið minnsta að fullt samkomulag yrði um öll þau mál innan Reykjavíkurlistans, en flestir telja að sjálfstæðis- menn geri sér vonir um að ágreiningur muni koma upp við skipan nefndanna. Nýr meirihluti eftir 15 daga En hvenær tekur nýr meiri- hluti við borginni? „Samkvæmt sveitarstjómar- lögum er það 15 dögum eftir kosningar, en það þýðir 13. júní. Nú er næsti reglulegur borgar- stjómarfundur ekki fyrr en fimmtudaginn 16. júní. Það er enn ekki ljóst hvort við tökum við þann dag, eða að boðað verði til aukafundar þann 13. júní. Þetta mun senn skýrast“, sagði Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir hinn nýi borgarstjóri Reykvíkinga. Óttast ljótar tölur borgarreikningsins Pétur Jónsson, ljármálastjóri Ríkisspítalanna, fjórði maður Reykjavíkurlistans, fulltrúi Al- þýðuflokksins á listanum, sagði í gær að hann væri í sjöunda himni yfir gott gengi listans í kosningunum. Hann hafi raunar aldrei misst trú á að meirihlut- inn næðist. Hinsvegar væri þungu af létt, þegar úrslitin liggja fyrir. „Eg mun fyrst og fremst leggja áherslu á atvinnumálin þegar nýr meirihluti kemur saman og um þau mál er algjör samstaða innan borgarstjómar- flokksins okkar. í þeim mála- flokki má breyta miklu. Þá verða fjármálin mjög til um- ræðu og skoðunar í upphafi fer- ils okkar. Reikningar borgar- sjóðs verða birtir á næsta borg- arstjómarfundi. Eg er hræddur um að við komum ekki að allt of góðu búi, þeir verði nánast skuggalegir og til muna verri en menn gerðu ráð fyrir“, sagði Pétur Jónsson í gær. Pétur sagði að samheldnin milli fólks á Reykjavíkurlistan- um og hinna fjölmörgu stuðn- ingsmanna á öllum aldri hefði verið einstök allt ffá upphafi, væri það enn og yrði án efa út kjörtímabilið. Atvinnumálin til úrlausnar ,Eitt það fyrsta sem nýr meirihluti í borgarstjóm mun taka sér fyrir hendur, er að taka á atvinnuleysinu í borginni", sagði Gunnar Levy Gissurar- son, fyrsti varamaður í borgar- stjóm, þegar Alþýðublaðið ræddi við hann í gær. Gunnar þekkir af eigin raun til atvinnu- mála í borginni, en hann rekur Gluggasmiðjuna hf., gamalgró- ið iðnfyrirtæki. Sem fyrsti vara- maður mun hann væntanlega koma mjög við sögu í borgar- stjóm Reykjavíkur næstu fjögur árin. Gunnar sagði að það væri ánægjulegt og spennandi verk- efni að fá tækifæri til að vinna að lausn borgarmála. Urlausnar- efnin væm mörg, ekki síst at- vinnumálin, útrýming biðlista á leikskólum, einsetning gmnn- skóla og lenging skóladagsins, og málefhi aldraðra borgarbúa. „Reykjavíkurborg getur gert til muna meira í atvinnumálum en meirihluti Sjálfstæðisflokks- ins gerði. Innkaupastefna borg- arinnar hefur verið á þann veg að aðallega hefur verið horft á innkaupsverðið, sem segir auð- vitað ekki alla söguna. Að sjálf- sögðu er heimabitinn hollastur í þessu sem öðm. Það þarf að skoða bæði gæði vömnnar og hagkvæmnina við að kaupa inn- lenda vöm. Kaup á innlendri vöm skapar atvinnu og eykur tekjur borgarinnar með auknum skattgreiðslum bæði fyrirtækja og einstaklinga. Það er eins og þetta dæmi hafi aldrei verið reiknað til fulls“, sagði Gunnar Gissurarson. Gunnar sagði að vissulega mundi það taka sinn tíma fyrir nýjan meirihluta að breyta ýmsu í atvinnumálum borgar- innar, en hann væri bjartsýnn á að takast mundi að breyta mál- um mjög til hins betra. Fram- undan væri ýmis bráðavandi, til dæmis sumarvinna skólafólks- ins, sem leysa þyrfti á viðunandi hátt. „Eg er mjög ánægður með úr- slit kosninganna og bjartsýnn fyrir hönd Reykvíkinga. Hinn nýi meirihluti á eftir að gera ótal marga góða hluti í þágu borgar- búa og mun vinna Saman í ein- drægni að lausn mála“, sagði Gunnar. REYKJAVÍKURLJSTINNfundar. í hádeginu ígœr komu saman tilfundar borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar Reykjavíkurlistans, borg- armálaráð listans, á kosningaskrifstofu listans að Laugavegi 31, og tóku til við að rœða málefni borgarinnar og framtíðarstefnumörk listans. Á þeim fundi var einnig rœtt nokkuð um skipan fólks í nefndir og ráð borgarinnar. Á myndinni em frá vinstri talið: Ingvar Sverrisson (13), GuðrúnJónsdóttir(lO), Guðrún Ögmundsdóttir (3), Helgi Pétursson (11), Steinunn Valdís Óskarsdóttir (7), Arthur Morthens (12), GuðrúnKr. Óladóttir (15), Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (8), Guðrún Ágústsdóttir (2), Hulda Ólafsdóttir (14), Ámi Þór Sigfússon (5), Sigfús ÆgirÁmason (16), Gunnar Levy Gissurarson (9), Pétur Jónsson (4), Alfreð Þorsteinsson (6) og Sigrún Magnúsdóttir (1). Alþýðublaösmynd/ Einar Ólason

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.