Alþýðublaðið - 31.05.1994, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
KOSNINGAUMFJOLLUN
A-listi Alþýðuflokksins
á Akranesi:
Úrslitin
vonbrigði
A-LISTI Alþýðuflokksins tapaði tveimur bæj-
arf'ulltrúum á Akranesi og fékk einn, Framsókn-
arflokkur tapaði einum og fékk tvo. Sjálfstæðis-
flokkurinn vann cinn og fékk þrjá en Alþýðu-
bandaiagið vann tvo og fékk einnig þrjá.
„Þessi úrslit eru mikil vonbrigði og við áttum
ekki von á svo miklu tapi þótt vart yrði við and-
byr. Aiþýðuflokkurinn myndaði meirihluta í frá-
farandi bæjarstjórn með Framsóknarflokki sem
er nú í oddaaðstöðu eftir þessi úrslit,“ sagði Ing-
var Ingvarsson bæjarfulitrúi Aiþýðuflokksins á
Akranesi.
Listi Alþýðuflokksins fékk nú 362 atkvæði eða
12,1 prósent atkvæða en fékk 816 atkvæði og 28,1
prósent atkvæða við kosningarnar 1990.
„Við unnum mikinn sigur 1990 en sá sigur hef-
ur nú gengið til baka enda er gengið í pólitíkinni
fallvalt Eflaust höfum við goldið þess að atvinnu-
ástand hefur ekki verið gott og auk þess fékk list-
inn ekki nægilegan hljómgrunn,“ sagði Ingvar
Ingvarsson.
A-listi Alþýðuflokkksins
á Akureyri:
/
I meírihluta
með
Framsókn
Á AKUREYRI vann Framsóknarflokkurinn
einn mann af Sjálfstæðisflokki sem myndaði
meirihluta með Alþýðubandalagi. Alþýðuflokk-
urinn hélt sínum manni og Alþýðubandalagið
sínum tveimur.
„Við fengum færri atkvæði en ég vonaðist eftir
en hins vegar fleiri atkvæði en skoðanakannanir
gerðu ráð fyrir. Urslitin sýna að kjósendur vildu
fella meirihiutann og töldu þá vænlegra að veðja
á fimmta mann Framsóknar heldur en annan
mann Alþýðuflokksins, „ sagði Gísii Bragi Hjart-
arson bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins á Akureyri.
„Viðræður um myndun meirihluta Framsókn-
arflokks og Alþýðuflokks eru komnar vel á stað
en við gcfum okkur góðan tíma og of snemmt að
segja til um hvenær þetta gengur saman,“ sagði
Gísli Bragi.
Alþýðuflokkurinn á Akureyri fékk 931 at-
kvæði en í kosningunum 1990 fékk flokkurinn
862 atkvæði.
A-Iisti Alþýðuflokksins
í Borgarnesi:
Megum
sæmilega
viðuna
KOSIÐ var í nýju sveitarfélagi í Borgarnesi
eftir að Hraunahreppur, Staflioltstunguhreppur
og Norðurárdalshreppur sameinuðust Borgar-
nesi. Bæjarfulltrúum var íjölgað úr sjö í níu. Al-
þýðuflokkurinn fékk einn og tapaði einum,
F'ramsóknarflokkur fjóra og bætti við sig tveim-
ur, Sjálfstæðisflokkur bætti við sig einum og fékk
þrjá. Alþýðubandalagið fékk einn mann.
„Miðað við stöðuna þá megum við sæmiiega
vel við una með þessi úrslit, en að vísu áttum við
von á meira fylgi. Við fórum úr 20 prósenta fylgi
í 17 prósent og mcirihluti okkar og sjálfstæðis-
manna féll naumlega,“ sagði Sigurður Már Ein-
arsson bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins í Borgar-
nesi.
Sigurður sagði að flokkinn hefði skort um 25
atkvæði til að halda sínu. Meirihlutinn hefði ver-
ið samfleytt í átta ár og ekki legið undir ámæli
fyrir sín vinnubrögð. H-listi Oháðra hefði ekki
boðið fram núna en fylgi hans farið yfir á AI-
þýðubandalagið.
„Þetta gengur svona upp og ofan í pólitíkinni
en miðað við stöðuna víða um land held ég að við
getum verið nokkuð hressir með þessi úrslit.
Hlutföllin riðlast í nýju sveitarfélagi og tekur
tíma að ná jafnvægi aftur,“ sagði Sigurður Már.
A-listi Alþýðuflokksins
á Eskifirði:
Uppskáru
einsog til
varsáð
A-LISTI Alþýðuflokksins á Eskifirði telst ótví-
ræður sigurvegari kosninganna þar og vantaði
aðeins hársbreidd upp á að ná manni númer tvö
inn. Framsóknarflokkur fékk tvo menn, Sjálf-
stæðisflokkur tvo, E-listi Eskifirðinga einn og Al-
þýðubandalagið einn. Fulltrúi Alþýðuflokksins í
bæjarstjórn verður Ásbjörn Guðjónsson. AI-
þýðuflokkurinn bætti stórlega við sig í bænum og
fékk 18,6% atkvæða. Við spjölluðum við fráfar-
andi bæjarfulltrúa Alþýðuflokksins, Guðmund-
ur Þ. Svavarsson:
„Þetta var mjög gott. Úrslitin sýna að við hljót-
um að teljast sigurvegarar þessara kosninga. Eg
þakka þetta góðri vinnu frábærs hóps fólks sem
stóð saman og barðist vel. Okkar málflutningur í
bæjarstjórn hefur greinilega fallið bæjarbúum
vel í geð og við uppskerum samkvæmt því. Það
vantaði aðeins sautján atkvæði upp á annan
manninn. Hann kemur næst.
Kosningabaráttan fór nokkuð vel og prúð-
mannlega fram. Það voru aðallega sjálfstæði-
menn sem héldu sig á persónulegu nótunum. Mér
þykir líklegt að núverandi meirihluti haldi áfram
samstarfi. Það erum við ásamt Framsókn og Al-
þýðubandalagi. Góð kosningastemmning í bæn-
um og maður fann góðan byr daginn fyrir kjör-
dag. Áhugi fólk var mikill.
Stærstu fréttirnar á landsvísu hljóta að vera
fall íhaldsins í Reykjavík. Ég hef persónulega
alltaf verið hlynntur tveggja flokka kerfi hægri
og vinstri afla. Við spjölluðum aðeins um sameig-
inlegt framboð hér á Eskifirði fyrir kosningar en
ekkert kom út úr því. Við sjáum hinsvegar hvað
gerist seinna. Já, tíðindin úr Reykjavík bera
langsamlega hæst,“ segir Guðmundur Þ. Svav-
arsson.
A-listi Alþýðuflokksins
í Garðabæ:
Meirihluti
íhaldsins
fellurnæst
í GARÐABÆ fékk A-Iisti Alþýðuflokksins
einn mann kjörinn, Gizur Gottskálksson. Al-
þýðuflokkurinn fékk einnig einn mann kjörinn í
kosningunum 1990. Sjálfstæðisflokkurinn fékk
fjóra menn kjörna, Framsóknarflokkurinn einn
og Alþýðubandalagið einn. Við heyrðum hljóðið í
Gizuri Gottskálkssyni:
„Ég er náttúrulega ekki ánægður. En við í
Garðabæ erum þó ein af fáum sem getum haldið
höfði eftir þessar kosningar. A fáum stöðum öðr-
um hélt Alþýðuflokkurinn sínu eða bætti við sig.
Við stóðum svo að segja í stað. Kosningabaráttan
var erfið og undiraldan var augljóslega gegn okk-
ur. Baráttan var hinsvegar mjög góð og menn
unnu gífurlega vel. Þetta er góður hópur. Það
sem kom mér einna mest á óvart var hversu
feiknalegur straumur lá til okkar af ungu fólki.
Mikil nýliðun á þeim vígstöðvum.
Maður gerir sér nokkuð góða grein fyrir
ástæðunni fyrir slakri útkomu Alþýðuflokksins í
þessum kosningum. Þegar menn eru í erfiðri
stöðu í landsmáium þá er herkostnaðurinn mik-
ill. En við skulum ekki örvænta heldur róa þessu
öllu heim og líta svo á stöðuna. Af einstökum
málum sem voru okkur dýr var skipan Stein-
gríms Hermannssonar í embætti Seðlabanka-
stjóra erfiðust. Ég tel óhætt að fullyrða að hún
kostaði okkur 50 atkvæði. Nálægðin er svo mikil
í hérna Garðabænum að maður fann þetta mjög
vel. „Þykist þið vera siðapostular, boðið breytta
tíma í siðvæðingarmálum. Þið ættuð að skamm-
ast ykkar,“ sagði fólk.
En burtséð frá þessu öllu getum við jafnaðar-
menn í Garðabæ vel við unað. Sjálfstæðisflokk-
urinn tapaði miklu magni atkvæða og ég er sann-
færður um að meirihlutinn fellur í næstu kosn-
ingum. Af viðburðum í kosningunum ber fall
Reykjavíkurborgar hæst. Sigur Reykjavíkurlist-
ans eru stærstu tíðindin. Stórkostlegum áfanga
er náð. Ég óska þeim hjartanlega til hamingju,“
sagði Gizur Gottskálksson.
A-listi Alþýðuflokksins
í Grindavík:
Gflurleg
vinna bar
árangur
A-LISTI Alþýðuflokksins í Grindavík hélt sín-
um mönnum í bæjarstjórn og fékk tvo menn
kjörna, þau Kristmund Ásmundsson og Iluldu
Jóhannsdóttur. Sjálfstæðisflokkurinn fékk tvo
menn kjörna, Framsóknarflokkurinn tvo og Al-
þýðubandalagið einn. Við spjölluðum við Krist-
mund Ásmundsson:
„Að halda þessum tveimur mönnum hér í
Grindavík kostaði mikla vinnu og gífurleg átök.
Það var stígandi í þessu hjá okkur og geysilega
snarpur spretturinn síðasta hálfa mánuðinn.
Maður svaf í tvo til þrjá tíma á nóttu. Þetta var
stór og góður hópur í kringum framboðið sem
var ákaflega vel samstilltur og ég hef varla
kynnst betra fólki. Okkur hafði verið spáð einum
manni en héldum okkar og ég get ekki verið ann-
að en ánægður með það - þetta var mikill varn-
arsigur.
Annars er ég ekki nógu sáttur við útkomu Al-
þýðuflokksins á landsvísu. Þar hefur efnahags-
og atvinnuástandið í landinu sitt að segja ásamt
óvinsældum ríkisstjórnarinnar sem kennt er um
allt sem aflaga fer. Mér líst síðan vel á árangur
Reykjavíkurlistans þrátt fyrir að manni sýnist
hlutur alþýðuflokksmanna á þeim lista heidur
rýr. Eins hefði nú mátt hressa upp á Reykjav-
íkurlistann að ýmsu öðru leyti. Nokkrir gamlir
flokkshundar úr öðrum flokkum hefðu mátt
missa sín. En sigurinn í kosningum var Reykjav-
íkurlistafólksins og það er ánægjulegt,“ sagði
Kristmundur Ásmundsson.
A-listi Alþýðuflokksins
í Hafnarfirði:
Stöndum
teinréttir
meðnær
40% fylgi
ALÞÝÐUFLOKKURINN er áfram stærsti
flokkurinn í Hafnarfirði með fimm bæjarfulltrúa
en tapaði einum yfir til Alþýðubandalagsins sem
fékk tvo fulltrúa. Sjálfstæðisflokknum tókst að
halda sínum fjórum en Kvennalistinn fékk engan
fulltrúa.
„Við jafnaðarmenn stöndum teinréttir eftir
þessi úrslit þótt atkvæðin hafi reynst nokkru
færri en við vonuðumst eftir. Þetta er tvímæla-
laust góður varnarsigur því það var á brattan að
sækja í þessum kosningum. Við unnum slíkan
stórsigur 1990 að það var mjög erfitt að halda því
fylgi,“ sagði Tryggvi Harðarson bæjarfulltrúi Al-
þýðuflokks og formaður bæjarráðs Hafnarfjarð-
ar.
Tryggvi sagði úrslitin betri en skoðanakannan-
ir bentu til fyrir kosningar þar sem því var spáð
að Alþýðuflokkurinn tapaði tveimur fulltrúum.
Þegar litið væri á kosningaúrslitin á landsvísu
kæmi í ljós að stjómarflokkarnir hefðu víðast
Þriðjudagur31. maí 1994
tapað fylgi. Alþýðuflokkurinn hefði komið út
með tæplega 40% fylgi í Hafnarfirði scm væri
hreint ekki slæm útkoma.
„Við höfum sent Alþýðubandalaginu bréf og
óskað eftir viðræðum um myndun meirihluta.
Við áttum gott samstarf við Alþýðubandalagið í
meirihlutanum sem þessir flokkar mynduðu
kjörtímabilið 1986 til 1990. Nú virðist vera uppi
almenn krafa um samstarf félagshyggjuflokka og
ég vona að við náum saman um myndun meiri-
hluta,“ sagði Tryggvi Harðarson.
Ásamt Tryggva náðu kjöri af A-lista þau Ing-
var Viktorsson, Valgerður Guðmundsdóttir,
Oddný Hjörleifsdóttir og Ómar Smári Ármanns-
son.
A-listinn á Húsavík
Nær
óbreytt fylgi
Á HÚSAVIK urðu úrslit kosninganna þau að
Alþýðuflokkurinn tapaði nokkrum atkvæðum og
fékk einn mann og D-Iistinn heldur sínum tveim-
ur. Framsókn tapaði einum og fékk þrjá og listi
Alþýðubandalags og Kvennalista þrjá.
„Ég átti von á að við fengjum meira fylgi en
raun varð á án þess þó að búast við að ná inn
manni til viðbótar. En miðað við áhrif frá óvin-
sælli ríkisstjórn var kanski ekki við meiru að bú-
ast,“ sagði Jón Ásberg Salómonsson bæjarfull-
trúi Alþýðuflokksins á Húsavík.
Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur
voru í meirihlutasamstarfi á Húsavík síðasta
kjörtímabil. Þessir flokkar geta áfram myndað
meirihluta, en Jón Ásberg sagðist vita til þess að
Framsókn og Alþýðubandalag væru að krunka
saman.
„Maður er hálf illa settur að vera eini bæjar-
fulltrúi flokksins og vera í minnihluta án þess að
vera í aðstöðu til að mynda meirihluta eins og til
dæmis er á Akureyri. En auðvitað geri ég mitt
besta til að ná fram okkar markmiðum,“ sagði
Jón Ásberg Salómonsson.
A-Iisti Alþýðuflokksins
á fsafírði:
/
Attu von á
þessum
úrslituni
A-LISTI Alþýðuflokksins fékk tvo menn
kjörna á Isafirði, þau Sigurð R. Ólafsson og Ka-
ritas Pálsdóttur. Alþýðuflokkurinn fékk einnig
tvo menn kjörna 1990. Sjálfstæðisflokkurinn
fékk fjóra menn, Framsóknarflokkurinn tvo, AI-
þýðubandalagið einn og Kvennalistinn einn. Við
höfðum samband við Karitas Pálsdóttur, sem
skipaði annað sæti á A-listanum:
„Kosningarnar komu mjög vel út fyrir okkur
jafnaðarmenn. Annað verður ekki sagt þar sem
við fengum 18,3 prósent og héldum okkar hlut.
Kosningabaráttan hér á Isafirði hófst nokkuð
seint og var ekki tiltölulega erfið. Ég kann vel við
það. Þegar baráttan hefst svo snemma sem raun-
in varð á flestum stöðum þá verður þetta svo yfir-
þyrmandi að fólk færi hreinlega nóg.
Viðræður um meirihlutamyndun eru nú í full-
um gangi á milli sjálfstæðismanna og framsókn-
ar en ég hef nú lítið frétt af því hvernig það geng-
ur. Þeir láta ekki ná í sig þessi menn. Við jafnað-
armenn funduðum strax á sunnudegi og hljóðið
var almennt gott í fólki. Við áttum von á þessum
úrslitum hjá okkur en þetta var náttúrulega ekki
gefið. ij
Landsmálin blönduðust ekki svo mikið inn í
baráttuna og það var fátt sem kom á óvart nema
ef vera skyldi aðferðir sjálfstæðismanna á tíma-
bili. Þá reyndu þeir að vera stikkfrí af fortíð sinni
og töluðu eingöngu um framtíðina. Fólk er ekki
vant þesskonar vinnubrögðum hér í bæ en sjálf-
stæðismenn áttuðu sig á þcssu ábyrgðarleysi þeg-
ar líða tók á baráttuna. Annars keniur mér það
nokkuð undarlega fyrir sjónir hversu margir sig-
urvegarar eru í kosningunum. Allir telja sig sig-
urvegara. Meira að segja sjálfstæðismenn hér á
Isafirði telja sig hafa unnið mikinn sigur þegar
raunin er sú að þeir hafa hrapað í prósentum tal-
ið frá síðustu kosningum,“ sagði Karitas Páls-
dóttir.