Alþýðublaðið - 31.05.1994, Blaðsíða 7
Þriðjudagur31. maí 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7
F
h
FLOKKSSTARFIÐ
Stofnun undirbúnings sem stuðla á að
aukinni þátttöku kvenna við stjómun
Sambands ungra jabiaðarmanna:
Ungir jafnaðarmenn
og annað áhugafólk!
„Einsog flest ykkar kannski vita var á máiefnaþingi
Sambands ungra jafnaðarmanna í febrúar síðast-
liðnum samþykkt að hafa kynjakvóta sam viðmiðunar-
reglu við val í nefndir og ráð innan sambandsins.
Nú er kominn tími til þess að gera eitthvað í málinu.
Til að ná þessu markmiði teljum við nauðsynlegt að
koma á fót undirbúningshópi til að stuðla að aukinni
þátttöku kvenna við stjórnun sambandsins. Undir-
búningsfundur vegna stofnunar þessa nýja hóps innan
Sambands ungra jafnaðarmanna verður haldinn í dag,
þriðjudaginn 30. júní, klukkan 2030 í Rósinni - félags-
miðstöð jafnaðarmanna í Reykjavík (Hverfisgötu 8-10).
Fundurinn er opinn öllum þeim sem áhuga hafa á
málinu. Á dagskrá fundarins er meðal annars að finna
nafn á hópinn, ritun málefnalista um markmið og ieiðir
hópsins í framtíðinni, umræða um kynjakvótann og
kynning á ferðaiagi tveggja félaga tii Strasborgar í
Frakklandi.
Fjölmennum!
Fyrir hönd undirbúningshópsins -
Sigríður Björk Jónsdóttir og
Jóhanna Þórdórsdóttir.“
Ungtfólkog
atvinnuleysi
Á framkvæmdastjórnarfundi Sambands ungra
jafnaðarmanna þann 7. maí síðastliðinn var ákveðið að
áhersla skyldi lögð á atvinnumá! ungs fólks á komandi
aukaþingi SUJ sem haldið verður á LA Café í Reykja-
vík, dagana 4. tii 5. júní. Iil að stjórna máiefnavinnu á
þinginu voru tilnefndir þeir Jón Þór Sturiuson, ritari
SUJ, og Benóný Valur Jakobsson, formaður
stjórnmála- og verkalýðsnefndar.
Miðvikudaginn l.júní verður haldinn vinnufundur
starfshóps um atvinnumál ungs fólks í Alþýðuhúsinu
við Hveríísgötu og hefst hann klukkan 17.
Gestur fundarins verður Gunnar Sigurðsson, deildar-
stjóri Vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins.
Fimmtudaginn 2,júní klukkan 20 verður síðan farið
í vettvangsheimsókn í Hitt húsið, upplýsinga- og menn-
ingarmiðstöð ungs fólks, 16 ára og eldri. Þar mun taka
á móti okkur og sitja fyrir svörum Logi Sigurfinnsson,
forstöðumaður Hins hússins. Að heimsókninni lokinni
eru fyrirhugaðar stuttar umræður og undirbúningur
fyrir ályktun aukaþingsins skipulagður. Mæting er í
Hitt húsið á 111. hæð klukkan 19:50.
Fundurinn er öllurn opinn.
Þeir sem áhuga hafa á að starfa í vinnuhópnum, vin-
samlega hafíð samband við Jón Þór Sturluson sem allra
fyrst í heimsíma 12003 eða vinnusíma 694554.
Aukaþing
Sambands ungra
jafnaðarmanna
verður haldið
3. og 4. júní á
LA-Café
í Reykjavík
Aukaþing Sambands ungra jafnaðar-
manna verður haldið 3. og 4. júní á
LA-Café við Frakkastíg í Reykjavík.
Aukaþingið verður sett föstudagmn
3. júní klukkan 19.30 og mun því Ijúka
með hátíðarkvöldverði
laugardagskvöldið 4. júní.
Málefnahópar þingsins verða:
fl) Atvinnumál ungs folks
Abyrgðarmenn: Jón Þór Sturluson
og Benóný Valur Jakobsson
(2>j Jafnréttisixiál
Abyrgðarmenn: Jóhanna Þórdórsdóttir
og Sigríður Björk Jónsdóttir
(3) Evrópumál
Abyrgðarmenn: Kjartan Emil Sigurðsson
og Eiríkur Bergmann Einarsson
ý4) Innri mál SUJ
Abyrgðarmenn: Magnús Árni Magnús-
son og Bolli Runólfur Valgarðsson
Á aukaþinginu munu ungir jafhaðar-
menn undirbúa þau málefhi sem farið
verður með inn á flokksþing Alþýðu-
flokksins (haldið 10. til 12. júní). Auka-
þingið mun einnig taka til samþykktar þá
fulltrúa sem Félög ungra jafnaðarmanna
hafa valið til setu á flokksþingi. Ekki
verður kosið í embætti á aukaþingi SUJ
og lagabreytingar eru ekki leyfilegar á
slíkuþingi.
Rétt til þátttöku hafa allir þeir félagar í
Sambandi ungra jafnaðarmanna sem
tilkynntir hafa verið sem þátttakendur af
stjórnum Félaga ungra jafnaðarmanna til
framkvæmdastjórnar SUJ.
Nánari upplýsingar gefa Magnús Ámi
Magnússon (hs. 14123 / vs. 15200 og
29244) og Bolli Runólfur Valgarðsson
47. flokksþing
Alþýðuflokksins,
J afnaða r m anna-
flokks Islands
Með vísan til 29. og 30. greinar
flokkslaga Alþýðuflokksins
- Jafhaðarmannaflokks íslands -
er hér með boðað tíl 47.
flokksþings Alþýðuflokksins
- Jafnaðarmannaflokks íslands
sem samkvæmt ákvörðun
flokksstjómar verður haldið
dagana 10. til 12. júní 1994 í
íþróttahúsinu í Keflavík.
Með vísan tíl 16. til 19. greinar
flokkslaga er því hér með beint til
stjóma allra Alþýðuflokksfélaga
að láta fara fram kosningu
aðal- og varafulltrúa á
flokksþing, svo sem nánar er
mælt fyrir í flokkslögum.
Með vísan til 18. greinar
flokkslaga er því hér með beint til
aðildarfélaga að kosningar fari
fram á tímabilinu 5. maí til 5. júní
næstkomandi.
Félagsstjómum er skylt að
tilkynna kjör fulltrúa að
kosningum loknum til skrifstofu
Alþýðuflokksins (Hverfisgötu
8-10 í Reykjavík, sími91-29244),
sem veitir allar nánari
upplýsingar.
Með vísan til 21. greinar
flokkslaga skulu kjördæmisráð
Alþýðuflokksins í öllum
kjördæmum hafa lokið kosningu
fulltrúa sinna í flokksstjóm fyrir
reglulegt flokksþing.
Með vísan til 24. og 25. greinar
flokkslaga skulu stjómir allra
félaga hafa sent flokksstjóm
skýrslu um starfsemi féiagsins á
kjörtímabilinu, félagaskrá miðað
við áramót og greiðslu
félagsgjalda samkvæmt þeirri
skrá.
Dagskrá flokksþings
Alþýðuflokksins
- Jafinaðarmannaflokks íslands
verður auglýst síðar.
Jón Baldvin Hannibalsson
«formaður.