Alþýðublaðið - 14.06.1994, Qupperneq 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
47. FLOKKSÞINGIÐ
Þriöjudagur 14. júní 1994
MMtMD
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson
Setning og umbrot: Alprent hf.
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Sími: 625566 - Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði.
Verð f lausasölu kr. 140
Sögulegt flokksþing
- glæsileg forysta
Lokið er 47. flokksþingi Alþýðuflokksins - Jafnaðar-
mannaflokks íslands. Þetta flokksþing er um margt
merkt og verður minnst sem þingi uppgjörs og sögulegra
ákvarðana í ýmsum málefnum, ekki síst Evrópumálum.
Flokksþingið samþykkti fyrst allra íslenskra stjómmála-
flokka að beita sér fyrir víðtækri umræðu í þjóðfélaginu
um aðild að Evrópusambandinu. Þannig vill Alþýðu-
flokkurinn bjóða hagsmunasamtökum, stjómmálahreyf-
ingum og öðrum almannasamtökum til viðræðna um
málið í þeim tilgangi að efla samstöðu þjóðarinnar um
þau hagsmunamál sem setja þarf á oddinn í viðræðum
við sambandið.
Kjör um embætti formanns og varaformanns skyggðu á
flest annað í umfjöllun fjölmiðla um flokksþingið enda
fólu þau átök í sér ákveðið uppgjör við heildarstefnu
flokksins út á við sem inn á við. Alþýðublaðið hefur áð-
ur áréttað þau sjónarmið að ekkert er jafn óheppilegt og
skaðlegt fyrir eina stjómmálahreyfmgu eins og óupp-
gerð deilumál eða átök um áherslur og málefni. Ríki op-
ið ósamkomulag milli forystumanna flokksins um þessi
efni, ber að fá niðurstöðu sem fyrst áður en alvarleg inn-
anmein taka að gera vart við sig. Þess vegna hefur Al-
þýðublaðið verið því fylgjandi að uppgjör færi fram
milli formanns flokksins og fyrrum varaformanns, svo
unnt yrði að fá niðurstöðu í stefnumál flokksins; niður-
stöðu sem flokkurinn getur flykkt sér um.
Nú er þessi niðurstaða fengin. Jón Baldvin Hannibals-
son hlaut afgerandi meirihluta í kosningu flokksþing um
formannsembættið. Þar með hefur Alþýðuflokkurinn -
Jafnaðarmannaflokkur Islands sýnt Jóni Baldvini sam-
stöðu og lýst trausti á verk hans og forystu. Að loknu 47.
flokksþingi Alþýðuflokksins getur Jón Baldvin Hanni-
balsson haldið áfram að veita stjómmálahreyfmgu jafn-
aðarmanna brautargengi sem sterkur formaður. Þar með
hefur Alþýðuflokkurinn einnig fylkt sér að baki málefn-
um og áherslum Jóns Baldvins, ekki síst í Evrópumál-
um. Jóhanna Sigurðardóttir fékk einnig viðunandi niður-
stöðu en mátti vera ljóst að við ofurefli var að etja og að
flestum þingfulltrúum féll þungt að gera uppá milli þess-
ara tveggja vinsælu forystumanna flokksins. Þetta var
erfítt kjör fyrir alla jafnaðarmenn. Uppgjörið er nú í höfn
og hið mikilvæga fyrir alla jafnaðarmenn er að sætta sig
við niðurstöðuna og standa saman um stefnu og mark-
mið.
(d 47. (tokkfjkýi
Séð yfir skreyttan þingsal iþróttahússins.
til starfa. Ágúst og Marías sposkir.
Beðið í ofvœni eftir úrslitum kosninga
Formaðurinn og varaformaður hans fagna ákaft.
Jón Baldvin kynnir ályktunina „Island íEvrópu‘
Það var léttyfir mönnum þrátt fyrir sprengjuhótun.
Guðmundur Árni Stefánsson og Össur Skarphéðinsson.
Sigbjörn Gunnarsson heilsar upp á Jóhönnu.
Landbúnaðarnefndfundaði utandyra vegna sprengju.
Karl Steinar Guðnason: „Engin sprengja hér!“
Kosning Guðmundar Árna Stefánssonar í embætti vara-
formanns styrkir enn forystu flokksins. Varaformanns-
embættið styrkir einnig Guðmund Árna innan flokksins.
Alþýðuflokkurinn kemur af flokksþingi sínu með glæsi-
lega forystu, þá Jón Baldvin og Guðmund Árna sem
saman mynda breiðfylkingu í áherslum jafnaðarmanna.
Nútímaleg jafnaðarstefna byggist upp á samtengingu
opins hagkerfis og velferðar. 47. flokksþing Alþýðu-
flokksins - Jafnaðarmannaflokks íslands hefur undir-
strikað svo um munar að flokkurinn er frumkvæðis-
flokkur svo orð Jóns Baldvins séu notuð; nútímalegur
jafnaðarmannaflokkur sem vinnur jafnt að opnun hag-
kerfisins og uppbyggingu atvinnulífs sem víðri skírskot-
un og jöfnuði og velferð.
Sighvatur Björgvinsson gaf ekki kost á sér.
Rannveig Guðmundsdóttir gaf ekki kost á sér.